Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2014, miðvikudaginn 29. október kl. 09:05, var haldinn 84. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Hjálmar Sveinsson, Magnea Guðmundsdóttir, Gísli Garðarsson, Júlíus Vífill Ingvarsson, og Svafar Helgason áheyrnarfulltrúi. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Örn Sigurðsson, Björn Axelsson, Ágústa Sveinbjörnsdóttir, Stefán Finnsson, Magnús Ingi Erlingsson, og Marta Grettisdóttir. 

Fundarritari var Björgvin Rafn Sigurðarson.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070

Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa Reykjavíkur dags. 24. október 2014.

2. Landakot, breyting á deiliskipulagi (01.160.1) Mál nr. SN140565

Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Landakotsreits. Í breytingunni felst að afmarkaður er reitur fyrir grenndargáma við vestari innkeyrslu á bílastæði sem liggur nyrst í útivistarsvæði Landakotshæðar meðfram Túngötu að Hólavallagötu, skv. tillögu VA arkitekta ehf. dags. 24.október 2014.

Samþykkt að grenndarkynna tillöguna fyrir hagsmunaaðilum að Túngötu 13, 14, 16, 18, 20, 22, 24 og 26. Jafnframt var samþykkt að kynna breytinguna fyrir Strætó bs. og hverfisráði Miðborgar. 

Herdís Anna Þorvaldsdóttir tekur sæti á fundinum kl. 9:15. 

{Margrét Þormar verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.}

3. Laugavegur 12B og 16, breyting á deiliskipulagi (01.171.4) Mál nr. SN140492

Miðbæjarhótel/Centerhotels ehf., Aðalstræti 6, 101 Reykjavík

Batteríið Arkitektar ehf., Hvaleyrarbraut 32, 220 Hafnarfjörður

Lögð fram umsókn Miðbæjarhótels/Centerhotels ehf. dags. 17. september 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.171.4 vegna lóðanna nr. 12B og 16 við Laugaveg. Í breytingunni felst aukning á nýtingarhlutfalli lóðanna nr. 12B og 16 við Laugaveg ásamt hækkun hússins á lóð 12B um eina hæð og endurbyggingu bakhúss, samkvæmt uppdr. Batterísins Arkitekta ehf. dags. 15. september 2014, br. 23. október 2014. 

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Vísað til borgarráðs.

Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir tekur sæti á fundinum kl. 9:23. 

Eva Indriðadóttir tekur sæti á fundinum kl. 9:31. 

{Margrét Þormar verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.}

4. Frakkastígsreitur 1.172.1, breyting á deiliskipulagi (01.172.1) Mál nr. SN140528

Blómaþing ehf., Pósthólf 8814, 128 Reykjavík

Teiknistofan Tröð ehf, Hávallagötu 21, 101 Reykjavík

Lögð fram umsókn Blómaþings ehf. dags. 8. október 2014 varðandi breytingu a deiliskipulagi reits 1.172.1, Frakkastígsreits, vegna lóðarinnar nr. 8 við Frakkastíg. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit og færslu á byggingarmagni innan lóðar, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Traðar ehf. dags. 27. ágúst 2014. 

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Vísað til borgarráðs.

{Hildur Gunnlaugsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.}

5. Grensásvegur 62, breyting á deiliskipulagi (01.805) Mál nr. SN140561

Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 62 við Grensásveg. Í breytingunni felst að lóðarmörkum er bætt inná lóðina, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 16. október 2014.

Samþykkt með vísan til 2. mgr. 12. gr. samþykktar um umhverfis- og skipulagsráð. 

Samþykkt að falla frá frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2.ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

6. Vogabyggð svæði 1, lýsing, deiliskipulag, Gelgjutangi Mál nr. SN140215

Lögð fram drög að tillögu umhverfis- og skipulagssviðs og Hamla ehf. dags. 27. október 2014 vegna gerðs deiliskipulags Vogabyggðar svæði 1 fyrir Gelgjutanga. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar dags. 27. október 2014.

Hannes F. Sigurðsson, Jaakko van't Spijker, Sigríður Magnúsdóttir fulltrúar teiknistofunnar Traðar og hönnunarteymisins jvantspijker +Felixx kynna

{Ágústa Sveinbjörnsdóttir og Björn Ingi Edvaldsson verkefnisstjórar taka sæti á fundinum undir þessum lið.} 

7. Vogabyggð svæði 2, lýsing, deiliskipulag, norðursvæði milli Tranavogar og Kleppsmýrarvegar Mál nr. SN140217

Lögð fram drög að tillögu umhverfis- og skipulagssviðs og Hamla ehf. dags. 27. október 2014 vegna gerðs deiliskipulags Vogabyggðar svæði 2 fyrir svæðið sem afmarkast milli Tranavogar og að Kleppsmýrarveg. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar dags. 27. október 2014.

Hannes F. Sigurðsson, Jaakko van't Spijker, Sigríður Magnúsdóttir fulltrúar teiknistofunnar Traðar og hönnunarteymisins jvantspijker +Felixx kynna

{Ágústa Sveinbjörnsdóttir og Björn Ingi Edvaldsson verkefnisstjórar taka sæti á 

8. Vogabyggð svæði 3, lýsing, deiliskipulag miðsvæði sunnan Tranavogar og norðan Súðavogar að Sæbraut Mál nr. SN140216

Lögð fram drög að tillögu umhverfis- og skipulagssviðs og Hamla ehf. dags. 27. október 2014 vegna gerðs deiliskipulags Vogabyggðar svæði 3 fyrir miðsvæði sem afmarkast af svæðinu sunnan Tranavogar og norðan súðarvogar að Sæbraut. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar dags. 27. október 2014.

Hannes F. Sigurðsson, Jaakko van't Spijker, Sigríður Magnúsdóttir fulltrúar teiknistofunnar Traðar og hönnunarteymisins jvantspijker +Felixx kynna. 

{Ágústa Sveinbjörnsdóttir og Björn Ingi Edvaldsson verkefnisstjórar taka sæti á fundinum undir þessum lið.} 

9. Reitur 1.254, Kennaraskóli - Bólstaðahlíð, breyting á deiliskipulagi (01.27) Mál nr. SN140444

Kynntar hugmyndir Arkþings ehf., dags. september 2014, Yrki arkitekta dags. 27. október 2014, Ydda arkitekta dags. 27. október 2014 og A2F arkitekta dags. 27. október 2014 varðandi uppbyggingu á hluta af þróunarsvæði 33 í Aðalskipulagi Reykjavíkur,  deiliskipulagi reits  1.254, Kennaraskóli-Bólstaðahlíð. 

Fulltrúar Arkþings, Yrki arkitekta. Ydda arkitekta  og A2F arkitekta kynna.

Guðlaug Erna Jónsdóttir og Lilja Grétarsdóttir verkefnisstjórar taka sæti á fundinum undir þessum lið. 

(B) Byggingarmál

10. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Fundargerð Mál nr. BN045423

Fylgiskjöl með fundargerð þessari eru nr. 799 frá 28. október 2014. 

11. Fiskislóð 43, Gistihús fl.3 (01.086.603) Mál nr. BN047271

Miðfell ehf., Borgartúni 24, 105 Reykjavík

Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. mars 2014 þar sem sótt er um leyfi til að breyta skrifstofubyggingu í gistihús (gististað) í flokki III á lóð nr. 43 við Fiskislóð. Einnig er lagt fram bréf LEX dags. 2. apríl 2014, tölvupóstur Guðjóns Ármannssonar hrl. f.h. Miðfells ehf. dags. 8. maí 2014 og bréf Faxaflóahafna dags. 27. júní 2014. Jafnframt eru lögð fram bréf Lex lögmannsstofu dags. 2. apríl, og 20. október 2014 og bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 23. apríl 2014. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 23. október 2014. 

Stærðir: 2272,3 ferm., 7697,6 rúmm. Lóðarstærð 3687 ferm. nýtingarhlutfall 0,6. Gjald kr. 9.500

Frestað. 

(E) Umhverfis- og samgöngumál

12. Klambratún, tímabundin æfingaaðstaða fyrir knattspyrnufélagið Valur Mál nr. US140193

Lagt fram bréf Jóns Valgeirs Björnssonar f.h. samráðs- og samhæfingarhóps vegna uppbyggingar og framkvæmda við Hlíðarenda ódags. um tímabundna æfingaaðstöðu fyrir knattspyrnufélagið Val á Klambratúni. 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, deildarstjóra umhverfisgæða. 

13. Miðgarður, borgarbýli Mál nr. US140059

Lagt fram bréf dags. 13. mars 2014 Miðgarðs  borgarbýli eru nýstofnuð félagssamtök, tilgangur þeirra er að búa til sjálfbært borgarbýli þar sem að hverfisbúar geta tekið þátt í ræktun í gróðurhúsi eða leigt sér ræktunarreit til eins árs með möguleika á að framlengingu. Borgarbýlið á að bjóða upp á námskeið tengd heilbrigðum og sjálfbærum lífstíl ásamt því að selja grænmeti í beinni sölu eða áskrift.

(C) Ýmis mál

14. Umhverfis- og skipulagsráð, Ársfundur Umhverfisstofnunar og

náttúruverndarnefnda sveitarfélaga. Mál nr. US140194

Kynnt dagskrá ársfundar Umhverfisstofnunar og náttúrverndarnefnda sveitarfélaga  sem haldinn verður í félagsheimilinu Hvoli Hvolsvelli fimmtudaginn 6. nóvember 2014. 

15. Erindisbréf, Stýrihópur um leiðakerfisbreytingar í Reykjavík. Mál nr. US140189

Lagt fram erindisbréf borgarstjóra ódags. varðandi skipan í stýrihóp um leiðakerfisbreytingar í Reykjavík vegna alhliða samgöngumiðstöðvar á umferðarmiðstöðvarreit. 

Umhverfis og skipulagsráð samþykkir að skipa fulltrúa samfylkingarinnar Evu Indriðadóttur, fulltrúa sjálfstæðisflokksins Herdísi Önnu Þorvaldsdóttur og árheyrnarfulltrúa pírata Svafar Helgason í stýrihóp um leiðakerfisbreytingar í Reykjavík vegna alhliða samgöngumiðstöðvar á umferðarmiðstöðvarreit. 

16. Betri Reykjavík, 1 2 og Reykjavík Mál nr. US140152

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lögð fram efsta hugmynd júlímánaðar úr flokknum stjórnsýsla "1 2 og Reykjavík" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 5. ágúst 2014 ásamt samantekt af umræðum og rökum. 

Erindinu vísað til meðferðar stjórnkerfis- og lýðræðisráðs.

17. Gilsárstekkur 8, kæra 111/2014 (04.612.0) Mál nr. SN140550

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 16. október 2014 ásamt kæru, dags. 14. s.m. þar sem kærð er ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs frá 27. ágúst 2014 að breyta deiliskipulagi Breiðholts I vegna lóðarinnar nr. 8 við Gilsárstekk.

Vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra.

18. Þórunnartún 4, kærur 113,114,115/2014 (01.220.0) Mál nr. SN140551

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 21. október 2014 ásamt kæru 113/2014, 114/2014 og 115/2014, dags. 20. og 22 s.m. þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkur frá 30. september 2014 um veitingu byggingaleyfis til Þórunnartúns 4 slf. og á ákvörðun borgarráðs frá 3. júlí sl. um samþykki á breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits 1.220.0 vegna Þórunnartúns 4.  

Vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra.

19. Austurbrún 6, kæra 106/2014, umsögn (01.381.1) Mál nr. SN140525

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 6. október 2014, ásamt kæru, dags. s.d, þar sem kærð er ákvörðun borgarráðs frá 2. október 2014 um breytingu á deiliskipulagi reits 1.381 Laugarás  vegna lóðar nr. 6 við Austurbrún. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 16. október 2014.

20. Ægisíða 74, kæra, umsögn, úrskurður (01.545.0) Mál nr. SN130383

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 19. júlí 2013 ásamt kæru, dags. 16. júlí 2013 vegna ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 19. mars 2013 um veitingu leyfis til breytinga á þaki Ægisíðu 74. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 2. september 2013. Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 23. október 2014. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu á byggingarleyfi.

1 Visthæfar bifreiðar, reglur um bílastæði fyrir visthæfar bifreiðar í Reykjavík. Mál nr. US140137

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 16. október 2014 vegna samþykktar borgarráðs s.d. um reglur varðandi bílastæði fyrir visthæfar bifreiðar í Reykjavík.

22. Austurberg 3, breyting á deiliskipulagi (04.667.1) Mál nr. SN140282

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 16. október 2014 um samþykkt borgarráðs s.d. á breytingu á deiliskipulagi Breiðholts 3, vestur og miðdeild vegna lóðarinnar að Austurbergi 3.

23. Reitur 1.131, Nýlendureitur, breyting á deiliskipulagi (01.13) Mál nr. SN130122

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 16. október 2014 um samþykkt borgarráðs s.d. á samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs á umsögn skipulagsfulltrúa um breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits, 1.131 ásamt fylgigögnum.

Fleira gerðist ekki.

Fundi slitið kl. 14:00

Fundargerðin lesin yfir og undirrituð 

Hjálmar Sveinsson

Magnea Guðmundsdóttir Eva Indriðadóttir

Gísli Garðarsson Júlíus Vífill Ingvarsson 

Herdís Anna Þorvaldsdóttir Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2014, þriðjudaginn 28. október kl. 10:32 fyrir  hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 800. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Björn Kristleifsson, Björn Stefán Hallsson, Sigrún Reynisdóttir, Eva Geirsdóttir, Karólína Gunnarsdóttir, Björgvin Rafn Sigurðarson og Óskar Torfi Þorvaldsson.

Fundarritari var Björgvin Rafn Sigurðarson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Arnargata 10 (01.553.296) 106567 Mál nr. BN048296

Einar Kristinn Hjaltested, Arnargata 10, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja hæð og kjallara og þaksvalir þar ofan á og sólstofu að hluta til við norðvestur hlið hússins á lóð nr. 10 við Arnargötu.

Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 25. september 2014 fylgir erindinu.

Stærðir: fyrir, 131,7 ferm., stækkun, 54 ferm., eftir, 185,7 ferm.,

fyrir, 340,9 rúmm., stækkun 156,6 rúmm., eftir, 497,5 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Arnarholt 221217 (32.161.101) 221217 Mál nr. BN048436

Fylkir ehf, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta 14 einstaklingsherbergjum í starfsmannahúsi í sjö íbúðir, en fyrir eru fjórar íbúðir þannig að byggingin verður fjölbýlishús með 11 íbúðum, mhl. 04, einnig er sótt um að byggja sorpgerði og hjóla- og vagnageymslu, mhl. 10 og mhl. 11, við fjölbýlishúsið  á Arnarholti með landnúmer 221217.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

3. Austurstræti 8-10 (01.140.404) 100847 Mál nr. BN048441

Reitir III ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að skipta í tvo veitingastaði, annan í flokk II, hinn í flokk III, veitingahúsi á jarðhæð verslunar- og skrifstofuhúss á lóð nr. 8-10 við Austurstræti.

Gjald kr. 9.500

Frestað.Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

4. Álfab. 12-16/Þönglab. (04.603.503) 111722 Mál nr. BN048447

Faxar ehf., Síðumúla 20, 108 Reykjavík

S&L ehf., Iðufelli 12, 111 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi, sjá BN048272, þannig að í stað kassa fyrir loftræsingu kemur gasgeymsla á gaflvegg atvinnuhúsinu Þönglabakka 6 á lóðinni Álfab.  12-16/Þönglab.

Erindi fylgir umsögn um loftræsikerfi dags. 22. október 2014.

Gjald 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

5. Barónsstígur 28 (01.190.314) 102447 Mál nr. BN048209

Eyþór Ingi Kristinsson, Lækjarfit 11, 210 Garðabær

Brynjar Kristinsson, Lækjarfit 11, 210 Garðabær

Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús úr steyptum samlokueiningum, fjórar hæðir og kjallara með átta íbúðum á lóð nr. 28 við Barónsstíg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. október 2014.

Jafnframt er erindi BN047706 dregið til baka.

Niðurrif/flutningur:   xx ferm., xx rúmm.

Stærð:  Kjallari 84,7 ferm., 1., 2. og 3. hæð 81 ferm., 4. hæð 78,3 ferm.

Samtals 406 ferm., 1.287 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

6. Bergstaðastræti 10 (01.180.209) 101697 Mál nr. BN048283

Eignarhaldsfélagið Bakkavör ehf, Bakkabraut 5c, 200 Kópavogur

Sótt er um samþykki á þegar gerðum breytingum, sbr. erindi BN036553 samþ. 9. október 2007, af íbúðum í húsi á lóð nr. 10 við Bergstaðastræti.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Lagfæra skráningu.

7. Bragagata 38A (01.186.629) 102324 Mál nr. BN048356

Þorp ehf, Bolholti 4, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja kvisti á þak, flóttastiga á austurhlið og breyta innra skipulagi í húsi á lóð nr. 38A við Bragagötu.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2014.

Stækkun:   xx rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2014.

8. Brúnavegur 13 (01.351.001) 104174 Mál nr. BN048311

Laugarásbíó, Brúnavegi Hrafnistu, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum þar sem búið er að fjarlægja vegg á milli forsalar og salar A í Laugarásbíó á lóð nr. 13 við Brúnaveg. 

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

9. Drafnarfell  2-18 (04.683.007) 112306 Mál nr. BN048089

Róði ehf., Grjótaseli 17, 109 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem er að loka hurð og gluggum í suðurhlið og að breyta nr. 6, 8, 10 og 12 í einn eignarhluta og 14 og 18 verða tveir eignarhlutar í  húsi á lóð nr. 2-18 við Drafnarfell. 

Samþykki meðeigenda dags. 26. ágúst 2014 fylgir.

Gjald kr. 9.500 + 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.    

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

10. Fiskakvísl 10-16 (04.236.102) 110931 Mál nr. BN048429

Ólafur Örn Ingólfsson, Fiskakvísl 10, 110 Reykjavík

Erna Eiríksdóttir, Fiskakvísl 12, 110 Reykjavík

Geir Jón Grettisson, Þorrasalir 9, 201 Kópavogur

Jóhann Gunnarsson, Fiskakvísl 16, 110 Reykjavík

Anna María Aðalsteinsdóttir, Fiskakvísl 16, 110 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum kjallara undir  raðhúsi á lóð nr. 10-16 við Fiskakvísl.

Erindi fylgir samþykki allra eigenda Fiskakvíslar 10-16 dags. 19. október 2014..

Stækkun:

Hús nr. 10, 104,4 ferm., nr. 12, 101,7 ferm., nr. 14, 101,7 ferm., nr. 16, 104,4 ferm.

Samtals:  412,2 ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

11. Fjölnisvegur 3 (01.196.214) 102666 Mál nr. BN048199

Theódóra Gunnarsdóttir, Bandaríkin, Sótt er um leyfi til að rífa eldri viðbyggingu á bakhlið, byggja nýja á sama stað og til að breyta innra skipulagi í einbýlishúsi á lóð nr. 3 við Fjölnisveg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. október 2014 fylgir erindinu. Erindið var grenndarkynnt frá 22. september til og með 20. október 2014. Engar athugasemdir bárust.

Viðbyggingar: 9 ferm., 29 rúmm.

Stækkun:  4,1 ferm., 17,2 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

12. Fossaleynir 16 (02.467.401) 186199 Mál nr. BN048440

Húsfélagið Fossaleyni 16, Fossaleyni 16, 112 Reykjavík

Litagleði ehf., Otrateigi 30, 105 Reykjavík

Smápartar ehf., Fossaleyni 16, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að skipta rými 0104 í tvö rými og til að byggja geymsluloft í rými 0112 í iðnaðarhúsi á lóð nr. 16 við Fossaleyni.

Stækkun, milliloft:  xx ferm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

13. Framnesvegur 30 (01.133.245) 100274 Mál nr. BN048418

Jóna Björgvinsdóttir, Smáragata 5, 900 Vestmannaeyjar

Sótt er um leyfi til að setja þakglugga á salerni á 3. hæð í húsi nr. 30 á lóð nr. 28-30 við Framnesveg.

Samþykki meðeigenda í stigagangi nr. 30 fylgir.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Frostaskjól 25-31 (01.515.103) 105817 Mál nr. BN048344

Inga Rósa Guðmundsdóttir, Frostaskjól 103, 107 Reykjavík

Jóhann Ingi Kristjánsson, Frostaskjól 103, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja einnar hæðar viðbyggingu á suðurhlið og til að stækka glugga í kjallara raðhúss nr. 25 á lóð nr. 25-31 við Frostaskjól.

Erindi fylgir samþykki meðeigenda á lóð dags. í september 2014.

Stækkun:  17,3 ferm., 49,9 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Grenndarkynningu ólokið.

15. Geirsgata 7C (01.117.307) 219202 Mál nr. BN048379

Brytinn ehf, Túngötu 6, 101 Reykjavík

Faxaflóahafnir sf., Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka glugga í veitingasal efri hæðar veitingahúss á lóð nr. 7C við Geirsgötu.

Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 15.10. 2014 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 20.10. 2014.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

16. Guðrúnargata 1 (01.247.406) 103377 Mál nr. BN048370

Sara Pétursdóttir, Guðrúnargata 1, 105 Reykjavík

Sótt er um samþykki á áður gerðum breytingum og teikningum vegna eignaskiptasamnings á íbúðarhúsi á lóð nr. 1 við Guðrúnargötu.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

17. Hafnarstræti 17 (01.118.502) 100098 Mál nr. BN048060

Sjöstjarnan ehf., Rafstöðvarvegi 9, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja nýbyggingu úr steinsteypu með mansardþaki, sem í verður hótel í flokki V með 72 herbergjum,  tengt við nýbyggingu á lóðinni Hafnarstræti 19, norðan og vestan við verndað timburhús sem fyrir er á lóð og verður endurbyggt í upprunalegri mynd með hótelherbergum á efri hæðum og morgunverðasal i hlöðnum steinkjallara, á lóð nr. 17 við Hafnarstræti.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2014.

Einnig umsögn Minjastofnunar dags. 9. september 2014 og brunahönnun frá Mannvit dags 11. júlí 2014.

Erindi BN047204 um niðurrif á bakhúsi er í fresti.

Stækkun:  XX ferm., XX rúmm. 

Niðurrif:  XX ferm., XX rúmm. 

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og leiðbeiningar í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2014 ásamt umsögn Minjastofnunar dags. 9. september 2014.

18. Hafnarstræti 19 (01.118.503) 100099 Mál nr. BN048059

Sjöstjarnan ehf., Rafstöðvarvegi 9, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja hótel í flokki V með 72 herbergjum sem verður tengt við hús á lóðinni í Hafnarstræti 17, sótt er um að rífa húsið vegna bágs ástands á steypuvirki og byggja nýbyggingu þar sem frontur að Hafnarstræti  verður endurbyggður í núverandi mynd, steinsteypt og einangrað að innan, verslunarrými á jarðhæð með flötu þaki og verður 4. hæð inndregin Hafnarstrætismegin á lóð nr. 19 við Hafnarstræti .

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2014.

Einnig brunahönnun Mannvits dags. 11. júlí 2014 og umsögn Minjastofnunar dags. 9. september 2014.

Niðurrif:  XX ferm., XX rúmm. 

Stærðir nýs hús:  XX ferm. , XX rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og athugasemda og leiðbeiningar í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2014 ásamt umsagnar Minjastofnunar dags. 9. september 2014.

19. Helluvað 7-21 (04.731.601) 199077 Mál nr. BN048424

Helluvað 7-21,húsfélag, Helluvaði 7-21, 110 Reykjavík

Sótt er um samþykki á eldvarnarmerkingum hurða í stigahúsum inn á geymsluganga í kjallara fjölbýlishúss, MHL 02, á lóð nr. 7-13 við Helluvað.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

20. Helluvað 7-21 (04.731.601) 199077 Mál nr. BN048423

Helluvað 7-21,húsfélag, Helluvaði 7-21, 110 Reykjavík

Sótt er um samþykki á eldvarnarmerkingum hurða í stigahúsum inn á geymsluganga í kjallara fjölbýlishúss, MHL 01, á lóð nr. 7-13 við Helluvað.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

21. Hjallaland 1-31 2-40 (01.862.001) 108797 Mál nr. BN048428

Halldóra Árndís Ingvadóttir, Hjallaland 1, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að útbúa bílastæði, sbr. fyrirspurn BN047989, við hús nr. 1 á lóð nr. 1 - 40 við Hjallaland.

Meðfylgjandi er bréf umsækjanda dags. 20. október 2014.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa og skrifstofu samgöngustjóra.

22. Hverfisgata 103 (01.154.407) 101135 Mál nr. BN048228

SA Verk ehf., Áslandi 3, 270 Mosfellsbær

Hvannir ehf., Pósthólf 140, 602 Akureyri

Sótt er um leyfi  til að breyta loftræsiristum á SV-gafli og stækka tæknirými vegna loftræsikerfis sbr. erindi BN047377 samþ. 15. júlí 2014 í hóteli á lóð nr. 103 við Hverfisgötu.

Stærðarbreytingar eru engar.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

23. Höfðabakki 9 (04.075.001) 110681 Mál nr. BN048434

Reitir II ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um samþykki á smávægilegum breytingum vegna lokaúttektar, sbr. erindi BN046313, á húsnæði verkfræðistofunnar Eflu á lóð nr. 9 við Höfðabakka.

Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 20.10. 2014 og niðurstöður lokaúttektar dags. 16.10. 2013.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Karfavogur 25 (01.441.211) 105452 Mál nr. BN048340

Daði Hannesson, Karfavogur 25, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að lagfæra nýsamþykkt erindi, sjá BN045970, í einbýlishúsi á lóð nr. 25 við Karfavog.

Stækkun 5,3 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

25. Karfavogur 54 (01.444.006) 105520 Mál nr. BN048448

Ragnheiður Stefánsdóttir, Karfavogur 54, 104 Reykjavík

María Helgadóttir, Logafold 56, 112 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri breytingu þar sem útidyr eru færðar fram í einbýlishúsi á lóð nr. 54 við Karfavog.

Stækkun:  xx ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

26. Klettagarðar 11 (01.330.601) 172573 Mál nr. BN048260

E.T. ehf, Klettagörðum 11, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja einnar hæðar viðbyggingu til suðurs úr forsteyptum einingum við húsið á lóð nr. 11 við Klettagarða.

Stækkun:  137,3 ferm., 461,3 rúmm. 

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

27. Klettháls 13 (04.346.701) 188543 Mál nr. BN048186

Fönn - Þvottaþjónustan ehf, Skeifunni 11, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að koma fyrir þvottahúsi í vesturenda núverandi húss, breytingarnar felast aðallega í að innrétta ketilhús og byggja við það skorstein, innrétta búningsaðstöðu, snyrtingar og kaffistofu, setja nýja vöruhurð og gönguhurð á NA-hlið hússins á lóð nr. 13 við Klettháls.

Meðfylgjandi er bréf framkvæmdastjóra Fannar dags. 5. september 2014 og brunahönnun Mannvits dags. 10. september 2014

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

28. Klettháls 15 (04.346.801) 188544 Mál nr. BN048410

Orkuveita Reykjav - Veitur ohf., Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að reisa 500 KVA dreifistöð úr áli og timbri með olíufylltum spenni og lekaþró á lóð nr. 15 við Klettháls.

Stærðir: 3,8 ferm., 9,8 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

29. Klettháls 3 (04.342.301) 188538 Mál nr. BN048420

Eðal ehf., Kletthálsi 3, 110 Reykjavík

Sótt er um samþykki á stækkun millilofts í rými 0105 í atvinnuhúsi á lóð nr. 3 við Klettháls.

Stækkun: 121,2 ferm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Kringlan  4-12 (01.721.001) 107287 Mál nr. BN048442

Reitir VII ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til breytinga á innréttingum í einingu 227-2 á 2. hæð í norðurhúsi Kringlunnar á lóð nr. 4 - 12 við Kringluna.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

31. Lambhagavegur 23 (02.684.101) 189563 Mál nr. BN048277

Hafberg Þórisson, Lambhagavegur 23, 113 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja við til vesturs, byggja opið rými við suðurhlið og klæða að utan húsið með steinklæðningu á lóð nr. 23 við Lambhagaveg. 

Stækkun húss með skiptiklefa og kjallara: 77,7 ferm., 275,2 rúmm. 

Stærði opið skýli B-rými: 66 ferm., XX rúmm.

Gjald kr. 9.500

Stækkun húss með skiptiklefa og kjallara: 77,7 ferm., 275,2 rúmm. Stærði opið skýli B-rými: 66 ferm., XX rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

32. Langirimi 21-23 (02.546.803) 175689 Mál nr. BN048435

Jón I. Garðarsson ehf, Langirimi 21-23, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta gistiheimili með fjórtán herbergjum í skrifstofuhúsnæði á 2. hæð atvinnuhúss á lóð nr. 21-23 við Langarima.

Erindi fylgir fsp. BN047862 sem fékk jákvæða umfjöllun 26. ágúst 2014.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

33. Laufásvegur 2 (01.183.005) 101917 Mál nr. BN048361

Flying Viking ehf, Krókhálsi 5A, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta skráningu húss úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði á lóð nr. 2 við Laufásveg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. október 2014 fylgir erindinu.Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Lautarvegur 30 (01.794.606) 213581 Mál nr. BN048450

Ragnar Þór Hannesson, Geitland 2, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að opna milli bílskúrs og anddyris í einbýlishúsi á lóð nr. 30 við Lautarveg.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

35. Lágmúli 9 (01.261.303) 103509 Mál nr. BN048378

Nova ehf., Lágmúla 9, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta rekstrarleyfi kaffihússins Nova á 1. hæð í flokk II í húsi á lóð nr. 9 við Lágmúla.

Samþykki eigenda dags. 20. mars 2014 fylgir.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

36. Lindargata 39 (01.152.310) 101044 Mál nr. BN048445

Skuggi 3 ehf., Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur

Sótt er um aðskilið byggingarleyfi fyrir frágang innanhúss frá byggingarstigi 5 að byggingarstigi 6 vegna aðskildrar byggingarstjóraábyrgðar á frágangi innanhúss frá utanhúss fyrir Lindargötu 39, matshluta 14 á lóð að Skúlagötu 14-16, sbr. BN043991 og BN033769.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

37. Melgerði 20 (01.815.602) 108036 Mál nr. BN048377

Kjartan Páll Eyjólfsson, Lækjasmári 106, 201 Kópavogur

Eyjólfur Pálsson, Melgerði 20, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja úr timbri á einni hæð með standandi bárujárnsklæðningu og flötu þaki, sbr. fyrirspurn BN048138 sem fékk jákvæða umfjöllun, viðbyggingu við einbýlishúsið á lóð nr. 20 við Melgerði.

Stækkun: 28,4 ferm., 80,6 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdráttar nr. 001  dags. 7. október 2014.

38. Neshagi 4 (01.542.218) 106395 Mál nr. BN048256

Margrét Ásgeirsdóttir, Neshagi 4, 107 Reykjavík

Halldór Ásgeirsson, Neshagi 4, 107 Reykjavík

Guðmundur Steinn Gunnarsson, Neshagi 4, 107 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi, til að koma fyrir hurð út á niðurgrafinn pall og  stækka baðherbergi  í húsi á lóð nr. 4 við Neshaga. 

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Lagfæra skráningu.

39. Norðurstígur 3 (01.132.016) 100206 Mál nr. BN048368

TMI ehf, Flúðaseli 69, 109 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að hækka hús um eina hæð úr timbri og stáli klætt utan með báruáli, fjölbýlishús á lóð nr. 3 við Norðurstíg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. október 2014.

Stækkun:  98,8 ferm., 310,4 rúmm.

Gjald kr, 9.500

Frestað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 22. október 2014.

40. Óðinsgata 1 (01.181.003) 101727 Mál nr. BN048347

Þuríður Ottesen, Óðinsgata 1, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu á bakhlið, hækka þak, byggja svalir og innrétta íbúðarherbergi í risi íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 1 við Óðinsgötu.

Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt dags. 10. og 13. október, umsögn Minjastofnunar Íslands og Borgarsögusafns dags. 16. september 2014.

Stækkun:  47,2 ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

41. Ránargata 34 (01.135.011) 100433 Mál nr. BN048366

Tjörvi Bjarnason, Ránargata 34, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að samþykkja ósamþykkta íbúð í kjallara,  setja nýja glugga á vesturhlið, stækka núverandi glugga á suður- og vesturhlið og tengja geymsluskúr á lóð við rafmagn við hús á lóð nr. 34 við Ránargötu.

Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 7. október 2014, samþykki eigenda á nr. 36, samþykki eigenda á nr. 34 fór með fyrirspurn.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

42. Ránargata 8A (01.136.018) 100521 Mál nr. BN048449

Jon Olav Fivelstad, Hófgerði 6, 200 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að byggja létt opið skýli með glerþaki yfir inngangi 1. hæðar í húsi á lóð nr. 8A við Ránargötu.

Stækkun: ferm., rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

43. Saltvík 125744 (00.064.000) 125744 Mál nr. BN048364

Stjörnugrís hf., Vallá, 116 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN048095, að breyta byggingarefni úr steinsteypu í timbur og stækka frystigeymslu frá því sem áður var samþykkt á lóðinni Saltvík 125744.

Erindi fylgir jákvæð umsögn Matvælastofnunar dags. 17. október 2014.

Stækkun:  26,5 ferm., 216,7 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

44. Skildingatangi 1 (01.675.101) 106899 Mál nr. BN048181

Gunnar I Hafsteinsson, Skildinganes 58, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka gluggalausan kjallara og innrétta inntaksrými í einbýlishúsi á lóð nr. 1 við Skildingatanga.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. september 2014 fylgir erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. október 2014.

Leiðreitt bókun frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa frá 26. september 2014.

Rétt bókun er: 

Ekki er gerð skipulagslega athugasemd við erindið. 

Jafnframt er erindi BN046379 dregið til baka.

Stækkun kjallara:  10,8 ferm., 27,3 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

45. Skógarás 21 (04.386.502) 111537 Mál nr. BN048393

Skeiðarvogur ehf, Móvaði 41, 110 Reykjavík

Sótt er um samþykki á stækkun svala í suður átt, sbr. erindi BN039376 dags. 27. janúar 2009, á efri hæð húss á lóð nr. 21 við Skógarás.

Stækkun svalir, B-rými:  22,5 ferm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vantar umsögn skrifstofu sviðsstýru.

46. Skógarvegur 12-14 (01.794.101) 213552 Mál nr. BN048405

Eykt ehf., Stórhöfða 34-40, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt fjölbýlishús með 33 íbúðum á þremur til fjórum hæðum og bílakjallara fyrir 33 bíla, einangrað að utan og klætt, málmklæðningu, flísum og timbri,  á lóð nr. 12-14 við Skógarveg.

Erindi fylgir útreikningur á varmatapi og greinargerð hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið hönnuða dags. 14. október 2014.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. október 2014 fylgir erindinu

Stærð:  Kjallari 1.550,2 ferm., 1. hæð 962,8 ferm., 2. og 3. hæð 991,4 ferm., 4. hæð 654,1 ferm.

Samtals:  5.169,9 ferm., 16.013 rúmm.

B-rými 339,4 ferm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og útskriftar út gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. október 2014.

47. Skólabrú 2 (01.141.213) 100903 Mál nr. BN048299

M21 ehf., Mánagötu 21, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta eldhús  í kjallara og samþykki fyrir minni háttar áður gerðum breytingum  á innra skipulagi í kjallara og á fyrstu hæð í einbýlishúsi á lóð nr. 2 við Skólabrú.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

48. Skólavörðustígur 8 (01.171.206) 101387 Mál nr. BN048439

Sigurður Jónas Eysteinsson, Bergstaðastræti 19, 101 Reykjavík

Kristján Jörgen Hannesson, Bergstaðastræti 19, 101 Reykjavík

Kornelíus ehf, Bankastræti 6, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að endurinnrétta og tengja saman milli hæða veitingastað í flokki ?? fyrir 60 gesti í verslunarbili 0105 merkt E í verslunarhúsi á lóð nr. 8 við Skólavörðustíg.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

49. Stakkhamrar 7 (02.293.704) 109041 Mál nr. BN048433

Davíð Sigurðsson, Stakkhamrar 7, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka bílskúr við hús á lóð nr. 7 við Stakkhamra.

Stækkun: 20 fer., xx rúmm.

Gjald kr. 9.500.

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

50. Tangabryggja 14-16 (04.023.108) 222116 Mál nr. BN048446

Hraunbraut ehf., Síðumúla 12, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta fimm atvinnurýmum í íbúðir og útbúa sérnotafleti framan við þær á jarðhæð húss á lóð nr. 14-16 við Tangabryggju.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

51. Tryggvagata 19 (01.118.301) 100095 Mál nr. BN048223

Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi, sjá BN045618, þannig að frestað verður að byggja akstursbraut upp á 2. hæð og þak hellulagt á verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 19 við Tryggvagötu.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.

52. Úlfarsbraut 80 (02.698.703) 205742 Mál nr. BN048249

Úlfarsbraut 80, húsfélag, Úlfarsbraut 80, 113 Reykjavík

Ragnar Torfi Geirsson, Úlfarsbraut 80, 113 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að loka svölum með gustlokandi glerflekum á rennibrautum á fjölbýlishúsi á lóð nr. 80 við Úlfarsbraut.

Meðfylgjandi er samþykki eigenda dags. 11. september 2014.

Stærðir svalalokun samtals: 143,8 ferm., 414,1 rúmm. 

Einstakar svalir taldar á teikningu.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

53. Úlfarsbraut 96 (02.698.605) 205748 Mál nr. BN048395

Integrum ehf., Jónsgeisla 35, 113 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi votrýma, sjá erindi BN035376,  á 1. 2. og 3. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 96 við Úlfarsbraut.

Erindi fylgir samþykki meðeigenda ódagsett.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

54. Þórsgata 6 (01.184.203) 102025 Mál nr. BN048419

Hörsey ehf, Gerðhömrum 27, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt fjölbýlishús með sjö íbúðum á lóð nr. 6 við Þórsgötu.

Lagðar fram umsagnir skipulagsfulltrúa dags. 7. nóvember 2013 og umsögn Minjastofnunar dags. 6. febrúar 2014.

Stærð:  577,7 ferm., 1.928 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Synjað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 7. nóvember 2013 og umsagnar Minjastofnunar frá 6. febrúar 2014

55. Þórunnartún 4 (01.220.004) 102780 Mál nr. BN048443

Þórunnartún 4 slf., Bolholti 4, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktri viðbyggingu, sjá BN047985, þannig að burðarvirki breytist úr steypu í stál í hóteli á lóð nr. 4 við Þórunnartún.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Fyrirspurnir

56. Eldshöfði 9 (04.035.205) 110531 Mál nr. BN048438

Ásmundur Jóhannsson, Hraunteigur 9, 105 Reykjavík

Spurt er hvort leyft yrði að skipta í fjóra hluta og til að byggja skábraut og nýjar innkeyrsludyr fyrir miðjurýmin í atvinnuhúsi á lóð nr. 9 við Eldshöfða.

Jákvætt.

Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

Vísað til leiðbeininga á fyrirspurnarblaði.

57. Fossaleynir 8 (02.467.201) 178762 Mál nr. BN048372

Bjarki Már Sveinsson, Norðurvellir 64, 230 Keflavík

Spurt er hvort byggja megi viðbyggingar, ca. 2.300 ferm.,sunnan og austan við atvinnuhús á lóð nr. 8 við Fossaleyni.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. október 2014.

Jákvætt.

Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og með vísan til leiðbeininga í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. október 2014.

58. Hverfisgata 39 (01.152.423) 101068 Mál nr. BN048360

VíFí ehf., Laugavegi 3, 101 Reykjavík

Spurt er hvort samþykki fáist fyrir áður gerðri íbúð á 1. hæð húss á lóð nr. 39 við Hverfisgötu.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. október 2014.

Jákvætt.

Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og með vísan til leiðbeininga á fyrirspurnarblaði og umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 24. október 2014.

59. Laugavegur 176 (01.251.101) 103435 Mál nr. BN048413

Saga Film ehf., Pósthólf 5490, 125 Reykjavík

Spurt er hvort leyft yrði að innrétta fjölnýtisal í fyrrum "sjónvarpssal" á jarðhæð verslunar- og skrifstofuhúss á lóð nr. 176 við Laugaveg.

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

60. Lautarvegur 12 (01.794.105) 213563 Mál nr. BN048392

Jónas Ólafsson, Bjarmaland 10, 108 Reykjavík

Spurt er hvort leyft yrði að byggja þriggja hæða fjölbýlishús með kjallara og tvöföldum bílskúr á lóð nr. 12 við Lautarveg.

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

61. Skólastræti 3 (01.170.202) 101330 Mál nr. BN048422

Óttar Magnús G Yngvason, Birkigrund 23, 200 Kópavogur

Spurt er hvort leyft yrði að færa framhlið þannig að verði samsíða bakhlið, endurbyggja í upprunalegri mynd og innrétta íbúð í Skólastræti 3B sem er bakhús við hús á lóð nr. 3 við Skólastræti.

Frestað.

Gera þarf betur grein fyrir erindinu.

62. Tjarnarsel 3 (04.930.511) 112846 Mál nr. BN048290

Brynjar Jóhannesson, Tjarnarsel 3, 109 Reykjavík

Spurt er hvort samþykkja megi og skrá íbúð á neðri hæð sem séreign í íbúðarhúsi á lóð nr. 3 við Tjarnarsel.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. október 2014.

Nei.

Samræmist ekki deiliskipulagi.

63. Tryggvagata 13 (01.117.407) 222370 Mál nr. BN048444

T13 ehf., Bolholti 8, 105 Reykjavík

Spurt er hvort ásættanlegt sé að öll bílastæði, þar með talin bílastæði hreyfihamlaðra, séu neðanjarðar við væntanlegt íbúðar- og atvinnuhús á lóð nr. 13 við Tryggvagötu.

Jákvætt.

Að uppfylltum skilyrðum.

64. Víðimelur 63 (01.524.106) 106021 Mál nr. BN048437

Hilmar Thor Bjarnason, Hjarðarhagi 64, 107 Reykjavík

Spurt er hvort leyft yrði að breikka tröppur á framhlið og gera nýjar útidyr við hlið þeirra sem fyrir eru til að sér inngangur verði í hvora íbúð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 63 við Víðimel.

Jákvætt.

Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

65. Ægisíða 123 (01.532.004) 106162 Mál nr. BN048432

Valgeir Gunnlaugsson, Vallarbraut 19, 170 Seltjarnarnes

Spurt er hvort innrétta megi veitingaverslun í flokki II með þjónustu í sal og pizzu-eldhúsi í atvinnuhúsnæði, sem áður var sjoppa á jarðhæð í húsi á lóð nr. 123 við Ægisíðu.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. október 2014.

Jákvætt.

Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem grenndarkynnt verður berist hún.

Fleira gerðist ekki.

Fundi slitið kl. 13:15

Björn Stefán Hallsson

Björn Kristleifsson Björgvin Rafn Sigurðarson

Sigrún Reynisdóttir Óskar Torfi Þorvaldsson

Karólína Gunnarsdóttir Eva Geirsdóttir