Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2009, miðvikudaginn 19. ágúst kl. 9.07, var haldinn 181. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12-14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Júlíus Vífill Ingvarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Brynjar Fransson, Sóley Tómasdóttir, Stefán Benediktsson, Björk Vilhelmsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Magnús Skúlason. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Ólafur Bjarnason og Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Haraldur Sigurðsson, Björn Axelsson og Lilja Grétarsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 14. ágúst 2009.

2. Græni trefillinn, útmörk höfuðborgarsvæðisins, Mál nr. SN080612
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins.2001-2024, breyting
Að lokinni auglýsingu er lögð fram tillaga að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins vegna Græna trefilsins. Tillagan felur í sér breytingar á skilgreiningu varðandi græna trefilinn sem settar eru fram í greinargerð svæðisskipulagsins á bls. 59-61. Tilgangur breytinganna er að einfalda orðalag og undirstrika að frekari útfærsla stefnumörkunar og nánari skilgreining landnotkunar innan trefilsins sé í höndum sveitarfélagana og sett fram í viðkomandi aðal-og deiliskipulagsáætlunum. Einnig er bætt inn nýrri setningu varðandi heimild um tímabundna losun ómengaðs jarðvegs á svæðinu, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Tillagan felur ekki í sér breytingar á meginmarkmiðum um græna trefilinn né breytingar á landfræðilegri afmörkun hans. Auglýsing stóð yfir frá 8. maí til 6. júlí 2009. Athugasemdir bárust frá: Þórir Einarssonar og Guðbjörn Eggertssonar dags, 12. júní, Helga Kristjánsdóttir, f.h. fjögurra landeigenda, dags. 6. júlí 2009. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 17. ágúst 2009.
Framlögð tillaga samþykkt með vísan til . 14. gr. 2. mgr.. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs

3. Hólmsheiði, Fisfélag Reykjavíkur, (05.18) Mál nr. SN080691
Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024, breyting
Að lokinni auglýsingu er lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 5. maí 2009 að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 vegna aðstöðu fyrir fisflug á Hólmsheiði samkv. meðfylgjandi uppdrætti dags. 5. maí 2009, ásamt umhverfisskýrslu dags. 31. janúar 2009. Einnig lögð fram umsögn Skipulagsstofnunar um umhverfisskýrslu, dags. 12. júní 2009. Athugasemdarfrestur var framlengdur til 6. júlí 2009. Athugasemdir bárust frá: Þóri Einarssyni dags. 21. júní, Lögmál f.h. Græðis félags landeigenda, dags. 19. júní, Kristínu Harðardóttur og Herði Jónssyni dags. 25. júní 2009. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 17. ágúst 2009.
Framlögð tillaga samþykkt með vísan til 3. mrg. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 sbr. einnig 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 og með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.

4. Hólmsheiði, Fisfélag Reykjavíkur, (04.4) Mál nr. SN080048
deiliskipulag athafnasvæðis Fisfélagsins
Fisfélag Reykjavíkur, Pósthólf 8702, 128 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Fisfélags Reykjavíkur, dags. 18. janúar 2008, um deiliskipulag athafnasvæðis Fisfélagsins á Hólmsheiði skv. uppdrætti Skapa og Skerpa arkitekta, dags. 6. mars 2009. Í tillögunni er gert ráð fyirr tímabundinni afmörkun svæðis fyrir starfsemi Fisfélags Reykjavíkur. Um er að ræða þrískipt svæði, flugbrautir og æfingaaðstaða fyrir vélknúin fis, svæði fyrir bílastæði og flugskýli og svæði fyrir félagsheimili og útivist. Samhljóða tillaga var áður auglýst frá 13. febrúar 2007 til og með 28. mars 2008. Lagt er fram bréf frá Skipulagsstofnun dags. 16. júní 2008 þar sem gerð er athugasemd við birtingu á samþykkt deiliskipulagsins, eldri athugasemdir vegna fyrri auglýsingar: Orkuveita Reykjavíkur, dags. 30. janúar, Fjáreigendafélag Reykjavíkur, dags. 17. mars 2008, hestamannafélagið Fákur, dags. 25. mars 2008, Flugmálastjórn Íslands, dags. 26. mars 2008, Lögmál f.h. Græðis, dags. 26. mars 2008, Þórir Einarsson Skaftahlíð 38, dags. 27. mars 2008 og umsögn umhverfisstjóra skipulags- og byggingarsviðs dags. 15. apríl 2008. Einnig er lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 6. ágúst 2008 og umsagnir Flugmálastjórnar Íslands dags. 29. júlí og 23. október 2008. Auglýsing stóð frá 8. maí til 22. júni 2009. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Orkuveita Reykjavíkur, dags. 8. maí, Sigurjón Fjeldsted og Ragnheiður Fjeldsted dags 7. júní, Lögmál f.h. Græðis félags landeigenda, dags. 19. júní 2009, Árni Ingason dags. 19. júní, Þórir Einarsson dags. 21. júní, Kristín Harðardóttir og Hörður Jónsson dags 25. júní, Þóri J. Einarssyni og Guðbjarna Eggertssyni hdl. dags. 2. júlí og Helga Kristjánsdóttir, f.h. 4 landeigenda, dags. 6. júlí 2009. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 17. ágúst 2009.
Framlögð tillaga samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.

Skipulagsráð leggur sérstaka áherslu á að samkvæmt fyrirliggjandi tillögu hefur ætíð verið gert ráð fyrir því að nýting svæðisins fyrir aðstöðu Fisfélags Reykjavíkur sé tímabundin. Í ljósi þess er því beint til Framkvæmda- og eignasviðs að huga að slíkum fyrirvörum við gerð afnotasamnings um svæðið auk þess sem ítreka skal skilmála í deiliskipulagi um útlit og frágang bráðabirgðamannvirkja á svæðinu.

5. Hólmsheiði, jarðvegsfylling, (05.8) Mál nr. SN080570
Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024, breyting
Að lokinni auglýsingu er lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur dags. 29. ágúst 2008. Í breytingunni felst afmörkun á svæði til jarðvegsfyllingar á Hólmsheiði fyrir tímabundna losun á ómenguðum jarðvegi samkv. meðfylgjandi uppdrætti dags. 29. ágúst 2008. Einnig er lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 29. október 2008 og bréf Skógræktarfélags Garðabæjar dags. 24. nóvember 2008. Auglýsing stóð yfir frá 8. maí til 6. júlí 2009. Athugasemdir bárust frá: Lögmál f.h. Græðis félags landeigenda, dags. 19. júní, íbúasamtök Grafarholts og Úlfarsárdals, dags. 6. júlí 2009 og Þóri J. Einarssyni og Guðbjarna Eggertssyni hdl. dags. 2. júlí 2009. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 17. ágúst 2009.

Ragnar Sær Ragnarsson tók sæti á fundinum kl. 9:40

Framlögð tillaga samþykkt með vísan til 3. mgr. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.

6. Hólmsheiði, jarðvegsfylling, (05.8) Mál nr. SN080657
endurauglýsing deiliskipulags
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju tillaga Landmótunar, að deiliskipulagi á Hólmsheiði dags. 22. vegna afmörkunar á svæði til jarðvegsfyllingar á Hólmsheiði fyrir tímabundna losun á ómenguðum jarðvegi. Samhljóða deiliskipulag var fellt úr gildi með úrskurði úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 24. júlí 2008. Tillagan var auglýst frá 8. maí til og með 6. júlí 2009. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Sigurjón Fjeldsted dags. 22. maí 2009, Lögmál f.h. Græðis félags landeigenda, dags. 19. júní, Helga Kristjánsdóttir, f.h. 4 landeigenda, dags. 6. júlí, íbúasamtök Grafarholts og Úlfarsárdals, dags. 6. júlí 2009 og Þóri J. Einarssyni og Guðbjarna Eggertssyni hdl. dags. 2. júlí 2009. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 17. ágúst 2009.
Framlögð tillaga samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.

Skipulagsráð felur skipulagsstjóra að gera tillögu að stofnun vinnuhóps sem skal hafa það verkefni að móta stefnu um skipulag efnistöku og efnislosunar innan borgarinnar og geri tillögur um reglur þar að lútandi, með vísan til umfjöllunar í umsögn skipulagsstjóra. Skipulagsráð beinir því jafnframt til stýrihóps um endurskoðun á aðalskipulagi Reykjavíkur, þar sem m.a. er verið að endurskoða stígakerfi á Hólmsheiði, að gera tillögu að nýrri legu göngustígs frá Reynisvatni að Hólmsheiði á þann hátt að hann verði færður til vesturs í samræmi við tillögu í umsögn skipulagsstjóra.

7. Grandagarður/Geirsgata, Mál nr. SN090056
Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024, breyting
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Teiknistofa ark Gylfi G/fél ehf, Skólavörðustíg 3, 101 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Faxaflóahafna dags. 16. febrúar 2009 að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024. Í breytingunni felst breytt landnotkun verbúða við Grandagarð 13a til og með 35, samkvæmt uppdrætti dags. 12. febrúar 2009. Auglýsing stóð frá 26. júní með athugasemdarfresti til 7. ágúst 2009. Engar athugasemdir bárust.
Framlögð tillaga samþykkt með vísan til 3. mrg. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 sbr. einnig 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Vísað til borgarráðs.

8. Búrfellslína, Kolviðarhólslína, suðvesturlínur, Mál nr. SN070190
Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024, breyting
Landsnet ehf, Krókhálsi 5c, 110 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. s.br. 11. júní 2009 að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024, ásamt umhverfisskýrslu dags. 11.júní 2009. Ennfremur eru lögð fram bréf Landsnets dags. 10. nóvember og 3. desember 2008. Einnig er lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 5. desember 2008 ásamt bréfi Landsnets dags. 1. desember 2008 og bréf Skipulagsstofnunar dags. 16. desember 2008. Auglýsing stóð frá 12. júní með athugasemdarfresti til 27. júlí 2009. Engar athugasemdir bárust.
Framlögð tillaga samþykkt með vísan til 3. mgr. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 sbr. einnig 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Vísað til borgarráðs.

9. Lokastígsreitir 2, 3 og 4, deiliskipulag Mál nr. SN080688
Að lokinni hagsmunaaðilakynningu er lögð fram að nýju tillaga Dennis og Hjördísar ehf. að deiliskipulagi Lokastígsreita dags. í maí 2009. Tillagan var í hagsmunaaðilakynningu frá 3. júní til og með 18. júní 2009
Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Árni Þór Árnason dags 6. júní, Orri Árnason dags. 12. júní, Þormóður Sveinsson f. hönd eiganda Lokastíg 21 dags 15. júní, Hrönn Vilhelmsdóttir og Þórólfur Antonsson dags. 14. júní, Dýrleif Bjarnadóttir dags. 17. júní, Lilja Gunnarsdóttir og Eyjólfur Ingi Ásgeirsson dags. 17. júní, Friðþjófur Árnason og Líney Símonardóttir dags. 17. júní, Bjarni Rúnar Bjarnason dags. 18. júní, Erna Sigurbaldursdóttir og Pétur Örn Sigurðsson dags 18. júní, Sigtryggur Magnússon og Bergljót Haraldsdóttir dags. 18. júní, Jóhann Gunnarsson, Ellert Finnbogason og Linda Jóhannsdóttir dags 18. júní og Loftur Ásgeirsson dags. 17. júní. Einnig er lögð fram samantekt skipulagsstjóra dags. 10. júli 2009.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu með þeim breytingum sem fram koma í samantekt skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.

Fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, Sóley Tómasdóttir óskaði bókað:
Ekki eru gerðar athugasemdir við auglýsingu tillögunnar á þessu stigi með hefðbundnum fyrirvörum um endanlega afstöðu að auglýsingu lokinni

10. Reykjavíkurflugvöllur 106748, breyting á deiliskipulagi(01.6) Mál nr. SN090291
Flugstoðir ohf, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík
Bjarni Snæbjörnsson, Fagraberg 14, 221 Hafnarfjörður
Lögð fram umsókn Bjarna Snæbjörnssonar ark. f.h. Flugstoða, dags. 14. ágúst 2009, um breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar skv. uppdrætti dags. 11. ágúst 2009. Breytingin snýst um nýja staðsetningu á bráðabirgðavélageymslu.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð. Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar einungis hagsmuni lóðarhafa

Fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, Sóley Tómasdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.

(B) Byggingarmál

11. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN040315
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 550 frá 18. ágúst 2009.

(C) Fyrirspurnir

12. Lækjargata 2A, auglýsingadúkur (01.140.505) Mál nr. BN040317
Hugmyndasmiðjan ehf, Sólvallagötu 74, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að setja upp auglýsingadúk vegna kvikmyndar á norðurgafl húss nr. 2A við Lækjargötu frá 21. ágúst í nokkrar vikur.
Samþykki Iðanda ehf. dags. 17. ágúst 2009 og Landic Property dags. 18. ágúst 2009 fylgir erindinu.
Frestað.

(D) Ýmis mál

13. Skipulagsráð, tillaga Mál nr. SN090295
Lögð fram eftirfarandi tillaga skipulagsráðs;
#GL Skipulagsráð samþykkir að láta fara fram úttekt á gistirými í Reykjavík, nýtingu þess og áætlaða þörf fyrir frekari uppbyggingu. Tekið verði mið af þróun ferðamannaiðnaðarins og uppbyggingu hótela og gistiheimila á undanförnum árum. Úttektin verði notuð í þeirri vinnu sem framundan er við endurskoðun Aðalskipulags Reykjavíkurborgar.#GL
Samþykkt.
Tillögunni er vísað til vinnslu við endurskoðun á aðalskipulagi Reykjavíkur.

14. Fálkagötureitur, kæra (01.55) Mál nr. SN090288
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 7. ágúst 2009 ásamt kæru frá 31. júlí 2008 á ákvörðun borgarráðs þ. 28. maí 2008 um samþykkt deiliskipulags fyrir Fálkagötureit.
Vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu skipulags- og byggingarsviðs.

15. Kjalarnes, Útkot, kæra Mál nr. SN090287
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 30. júlí 2009 ásamt kæru frá 9. s.m. á synjun afgreiðslufundar byggingarfulltrúa þ. 9. júní 2009 á umsókn um sameiningu spildna D og E í landi Útkots í Kjalarnesi.
Vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu skipulags- og byggingarsviðs.

16. Nönnugata 10, kæra (01.186.5) Mál nr. SN090286
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 29. júlí 2009 ásamt kæru frá 7. s.m. á ákvörðun skipulagsráðs 10. júní 2009 um afturköllun byggingarleyfis vegna Nönnugötu 10.
Vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu skipulags- og byggingarsviðs.

17. Eddufell 8, dómur Héraðsdóms Reykjavíkur (04.683.0) Mál nr. SN090275
Lagður fram dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá 14. júlí 2009 varðandi Eddufell 8.

18. Laugavegur 76A, dómur Héraðsdóms Reykjavíkur(01.174.2) Mál nr. SN090274
Lagður fram dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá 16. júlí 2009 varðandi bílastæðaréttindi á lóð nr. 76A við Laugaveg.

19. Bryggjuhverfi, breyting á deiliskipulagi (04.0) Mál nr. SN080666
Björgun ehf, Sævarhöfða 33, 110 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 6. ágúst 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir Bryggjuhverfi.

20. Urðarstígsreitir, (01.186) Mál nr. SN070727
tillaga að deiliskipulagi. Reitir 1.186.0 og 1.186.4
Adamsson ehf-arkitektastofa, Laugavegi 32b, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 6. ágúst 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna auglýsingar á tillögu að deiliskipulagi fyrir Urðarstígsreiti.

Fundi slitið kl. 11.55.

Júlíus Vífill Ingvarsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Ragnar Sær Ragnarsson
Brynjar Fransson Sóley Tómasdóttir
Stefán Benediktsson Björk Vilhelmsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2009, þriðjudaginn 18. ágúst kl. 9.58 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 550. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Sigrún Reynisdóttir, Hjálmar Andrés Jónsson, Jón Hafberg Björnsson og Eva Geirsdóttir
Fundarritari var Magnús Sædal Svavarsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Austurbakki 2 (01.119.801) 209357 Mál nr. BN038930
Eignarhaldsfélagið Portus ehf, Pósthólf 709, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja 1. áfanga steinsteypts tveggja hæða neðanjarðar bílahús fyrir samtals 545 bíla upp að kjallara Tónlistar- og ráðstefnuhússins á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Bréf umsækjenda dags. 12. september 2008, bréf hönnuðar dags. 8. júní og 10. ágúst 2009, brunaskýrsla Verkfræðistofunnar Mannvit dags. sept. 2008 og júní 2009 og áritun brunahönnuðar (á uppdráttum) fylgja erindinu.
Stærð : Bílahús neðri kjallari (K2) ásamt anddyri að tónlistarhúsi og tæknirýmum 9383,6 ferm., kjallari (K1) 9324,1 ferm., samtals 18707,7 ferm., 72632,9 rúmm.
Aðkoma sorpbíls (B-rými) kjallari 307,4 ferm., 1137,4 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.700 + 5.680.313
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Austurberg 5 (04.663.701) 112063 Mál nr. BN040140
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum af viðbyggingu við Fjölbrautarskólann í Breiðholti á lóð nr. 5 við Austurberg.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

3. Álfheimar 2-6 (01.430.208) 105199 Mál nr. BN040263
Báxít ehf, Þórsstíg 4, 600 Akureyri
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í mhl 01 í verslunarhúsnæðinu 2 - 4 á lóð nr. 2 - 6 við Álfheima
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

4. Bakkagerði 6 (01.816.303) 108113 Mál nr. BN040306
Ingibjörg Hafstað, Bakkagerði 6, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta viðbyggingu á vesturhlið, breyta kvistum og skipta um glugga í öllu einbýlishúsinu á lóð nr. 6 við Bakkagerði.
Stækkun: XXX ferm og XXX rúmm.
Gjald kr. 7.700 + XXX
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

5. Drekavogur 4-4B (01.414.004) 192230 Mál nr. BN039458
Gerpir ehf, Laugavegi 22A, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta skrifstofuhúsnæði í íbúðarhúsnæði með ellefu íbúðum, byggja við og byggja hæð (3. hæð) úr steinsteypu ofan á húsið, klæða og einangra að utan með sléttri og báraðri álklæðningu ásamt því að koma fyrir lyftu og stækka og breyta fyrirkomulagi í kjallara hússins nr. 4 á lóðinni nr. 4, 4A og 4B við Drekavog.
Jafnframt eru erindi BN024696, BN024943 og BN034193 felld úr gildi.
Stækkun 371 ferm. og 1284,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 98.922
Frestað.
Skráningartafla óbreytt, þarfnast lagfæringar.

6. Faxafen 14 (01.466.201) 195611 Mál nr. BN040303
Heilsuborg ehf, Sunnuflöt 23, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi fyrir innri breytingum sem fela í sér að koma viðtalsherbergjum, nuddstofum og hráfæðueldhúsi með hringstiga upp á millgólf í húsnæðinu á lóð nr. 14 við Faxafen.
Samþykki eigenda húsnæðisins dags 10. ágúst 2009 og jákvæð fyrirspurn BN040222 dags. 21. júlí 2009 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

7. Fossaleynir 1 (02.456.101) 190899 Mál nr. BN040289
Borgarhöllin hf, Ránargötu 18, 101 Reykjavík
R-Höllin ehf, Austurstræti 11, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurinnrétta fyrir nýja starfsemi, sem er fyrir dagvist fatlaðra og fimleikadeild Fjölnis, og áður gerðu þaki yfir virkisrými í suður- og austurhúsi á lóð nr. 1 við Fossaleyni.
Bréf frá hönnuði dags 5. ágúst 2009 og 11. ágúst 2009 fylgir erindinu
Stækkun: 194,4 ferm. 455,8 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 35.097
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

8. Frakkastígur 7 (01.173.030) 101517 Mál nr. BN040299
101 hús ehf, Lokastíg 6, 101 Reykjavík
Linda Mjöll ehf, Laugavegi 11, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og opna kaffihús/bar í flokki II í húsi mhl. 3 á lóð nr. 7 við Frakkastíg
Jákvæð fyrirspurn BN39905 fylgir erindinu dags 2. júní 2009
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

9. Freyjugata 24 (01.186.601) 102297 Mál nr. BN040304
Spur ehf, Freyjugötu 24, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir minni háttar breytingum á innra skipulagi gistiheimilisins á lóð nr. 24 við Freyjugötu
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

10. Grandagarður 41- 99 (01.114.-99) 100043 Mál nr. BN040307
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir aksturshurð á vesturhlið hússins á lóð nr. 95 við Grandagarð.
Umsögn frá Húsafriðunarnefnd dags. 11. ágúst 2009
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 13. ágúst 2009
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

11. Kjalarnes, Mógilsá Landspilda 125736 (00.056.005) 125736 Mál nr. BN039887
Ragnheiður Jóna Jónsdóttir, Kársnesbraut 64, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt sumarhús, að hluta til á tveimur hæðum, aðalhús (Mhl.01) og gestahús (Mhl.02) tengd saman með yfirbyggðri verönd í landi Mógilsár á Kjalarnesi.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. júní 2009 fylgir erindinu og tölvupóst Veðurstofu Íslands dags. 21. júlí 2009
Stærð Mhl.01: 1. hæð 58,7 ferm., 2. hæð 77,5 ferm.
Mhl.02: 1. hæð 14,6 ferm., 2. hæð 70,7 ferm.
Samtals 206,9 ferm., 769,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 59.221
Frestað.
Ekki eru athugasemdir við málið en skipulagsferli ólokið, mun ljúka innan 14 daga.

12. Langholtsvegur 115 (01.414.003) 105096 Mál nr. BN040058
Snæland Grímsson ehf, Laugarnesvegi 60, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalaskýli úr málmi og perlugleri og bæta við gluggum á 2. hæð á austurhlið fjölbýlishússins á lóð nr. 115 við Langholtsveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 26. júní 2009 og 14. ágúst 2009 fylgja erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 7. ágúst 2009.Stækkun: 16,6 fem. og 40,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 3.126
Frestað.
Vísað er til bókunar skipulagsstjóra frá 7. ágúst sl.

13. Laugavegur 21 (01.171.108) 101374 Mál nr. BN039568
Festar ehf, Klapparstíg 29, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir fyrirkomulagsbreytingu innanhúss á verslun með kaffisölu í kaffihús þar sem boðið verður upp á ýmsan varning til sölu í húsi á lóð nr. 21 við Laugaveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 13. mars 2009 ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 12. mars 2009 fylgja erindinu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.

14. Lágmúli 5 (01.261.301) 103507 Mál nr. BN040181
Tóftir ehf, Bakkasmára 25, 201 Kópavogur
Lyfja hf, Bæjarlind 2, 201 Kópavogur
Sótt er um áður gerðar breytingar á innra fyrirkomulagi 1. hæðar vegna eignaskipta í húsinu á lóð nr. 5 við Lágmúla.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.

15. Leifsgata 26 (01.195.302) 102616 Mál nr. BN040245
Skúli Húnn Hilmarsson, Leifsgata 26, 101 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi BN029216 dags. 30. júní 2004 þar sem veitt var leyfi til að breyta þakgluggum og stækka kvisti á rishæð fjölbýlishússins á lóð nr. 26 við Leifsgötu.
Breytingarnar eru þegar gerðar.
Stærð: Stækkun kvistir 14,2 ferm. og 28,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 2.187
Frestað.
Ekki hefur verið byggt í samræmi við samþykkt frá 30. júní 2004. M.a. hafa kvistir verið stækkaðir, vegna þess er málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

16. Lokastígur 28 (01.181.309) 101779 Mál nr. BN040294
Þórólfur Már Antonsson, Lokastígur 28, 101 Reykjavík
Hrönn Vilhelmsdóttir, Lokastígur 28, 101 Reykjavík
Loki 28 ehf, Lokastíg 28, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta flokkun úr flokki I í flokk II í veitingahúsinu á lóð nr. 28 við Lokastíg.
Erindi fylgir bréf umsækjanda dags. 9. júlí og umboð meðeiganda dags. 19. janúar 2006.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

17. Lækjargata 2A (01.140.505) 100865 Mál nr. BN040317
Hugmyndasmiðjan ehf, Sólvallagötu 74, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að setja upp auglýsingadúk vegna kvikmyndar á norðurgafl húss nr. 2A við Lækjargötu, frá 21. ágúst í nokkrar vikur.
Samþykki Iðanda ehf. dags. 17. ágúst 2009 fylgir erindinu.
Frestað.
Vísað til skipulagsráðs.

18. Marargata 5 (01.137.302) 100662 Mál nr. BN040238
Ingibjörg Rannv Guðlaugsdóttir, Marargata 5, 101 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi BN020257 dags. 21. desember 1999, þar sem veitt var leyfi til að byggja svalir úr stáli við fyrstu, aðra og þriðju hæð, eldri steinsteyptar svalir við þriðju hæð fjarlægðar ásamt ýmsum áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi fyrstu og þriðju hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 5 við Marargötu.
Breytingarnar eru þegar gerðar.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufndar skipulagsstjóra frá 14. ágúst 2009 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

19. Marargata 7 (01.137.301) 100661 Mál nr. BN040280
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir, Marargata 7, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að gera stigagat milli 1. hæðar og kjallara og sameina þannig tvær íbúðir í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 7 við Marargötu.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 4. ágúst 2009 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 12. ágúst 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

20. Miðhús 44 (02.848.309) 109872 Mál nr. BN040279
Þór Símon Ragnarsson, Miðhús 44, 112 Reykjavík
Hólmfríður Þorsteinsdóttir, Miðhús 44, 112 Reykjavík
Sigurður Pálsson, Miðhús 44, 112 Reykjavík
Kolfinna Knútsdóttir, Miðhús 44, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja byggingarleyfið BN035846 dags. 26. júní 2007, þar sem veitt var leyfi til að grafa út sökkla, byggja sólstofu við jarðhæð, byggja yfir svalir á 2. hæð, afmarka sérnotaflöt á lóð og breyta innra skipulagi og útliti tvíbýlishússins á lóðinni nr. 44 við Miðhús.
Stækkun: 80,0 ferm., og 327,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 25.210
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

21. Nesvegur 49 (01.531.101) 106142 Mál nr. BN039932
Nanna Gunnarsdóttir, Nesvegur 49, 107 Reykjavík
Vigfús Ingvarsson, Nesvegur 49, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum á 1. og 2. hæð í íbúðarhúsi á lóð nr. 49 við Nesveg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

22. Njarðargata 25 (01.186.506) 102291 Mál nr. BN040075
Haukur Dór Sturluson, Njarðargata 25, 101 Reykjavík
Þóra Hreinsdóttir, Njarðargata 25, 101 Reykjavík
Sótt er um leyft til að byggja létta hæð og ris ofan á einbýlishúsið á lóð nr. 25 við Njarðargötu.
Erindi fylgir jákvæð fsp. BN039538
Stækkun: 59,1 ferm. 242,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 18.688
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Niðurstaða grenndarkynningar liggur ekki fyrir.

23. Selásbraut 98 (04.385.901) 111527 Mál nr. BN040297
Snorralaug ehf, Selásbraut 98, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja ofan á svalir með því að loka með léttri trégrind og gleri á suðvesturhlið atvinnuhússins á lóð nr. 98 við Selásbraut.
Jákvæð fyrirspurn BN039904 fylgir erindinu
Stækkun: 10,6 ferm og 26,5 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 2.040
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Sogavegur 164 (01.831.001) 108493 Mál nr. BN040302
Védís Sigurjónsdóttir, Sogavegur 164, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa eldra anddyri og byggja nýtt, léttbyggða efri hæð á steinsteyptum kjallara, til að byggja útigeymslu við vesturhlið, til að endurnýja stoðvegg á vestari lóðamörkum og byggja skjólveggi við einbýlishúsið á lóð nr. 164 við Sogaveg.
Erindi fylgir jákv. fsp. BN040157 dags. 14. júlí 2009.
Niðurrif: xx ferm., xx rúmm.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

25. Sundagarðar 2 (01.335.301) 103906 Mál nr. BN034872
Olíuverslun Íslands hf, Pósthólf 310, 121 Reykjavík
Sótt er um samþykkt á áorðnum breytingum á innréttingum, engar breytingar eru á útliti né lóð, í húsinu á lóðinni nr. 2 við Sundagarða.
Gjald kr. 6.100 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

26. Túngata 26 (01.137.201) 100655 Mál nr. BN039003
Landspítali, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að staðsetja 3.130 kg. súrefnisgeymi norðan við aðalbyggingu á baklóð Landakotsspítala á lóð nr. 26 við Túngötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. október 2008 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 24. október 2008.
Stærð: Geymslutankur 2,01 ferm. 8,8 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 678 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

27. Vesturberg 169-175 (04.660.802) 112026 Mál nr. BN040300
Jean Jensen, Vesturberg 175, 111 Reykjavík
Guðrún Ingibjörg Hlíðar, Vesturberg 175, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum geymsluskúr við vesturhlið einbýlishússins nr. 175 á lóð nr. 169-175 við Vesturberg.
Stærð: 19 ferm., 47,8 rúmm
Gjald kr. 7.700 + 3.681
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Vesturlandsv. Dælust. (05.17-.-79) 195207 Mál nr. BN040217
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja tvær nýjar hurðir á vesturhlið, loka hurð á milli núv. húss og viðbyggingar og stækka millilofti í stýrihúsi á Reynisvatnsheiði við Vesturlandsveg.
Stækkun milliloft 2,6 ferm.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

29. Vitastígur 18 (01.190.214) 102417 Mál nr. BN040206
Kathleen Chue-Ling Cheong, Vitastígur 18, 101 Reykjavík
Kristján Ingi Sveinsson, Vitastígur 18, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja og stækka úr timbri á steyptum kjallara einbýlishús, sem jafnframt er breytt í tvíbýlishús, á lóð nr. 18 við Vitastíg.
Meðfylgjandi er ódagsett skýrsla arkitekts og verkfræðings um uppbyggingu á lóðinni.
Einnig bréf Húsafriðunarnefndar dags. 24. júní 2009 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. ágúst 2009. Málinu fylgir brunatæknileg úttekt frá 17. júní 2009.
Stærðir: Niðurrif, xxx ferm., xx rúmm.
Nýbygging, kjallari 76,8 ferm., 1. hæð 68,1 ferm., 2. hæð 61,9 ferm., þakhæð 57,3 ferm.,
Samtals 264,1 ferm., 747,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 57.542
Synjað.
Með vísan til fyrri afgreiðslu frá 12. maí 2009

30. Vínlandsleið 12-14 (04.111.601) 208323 Mál nr. BN040305
Mótás hf, Stangarhyl 5, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta sérhæfðar rannsóknarstofur í kjallara , 1. 2. og 3. hæð í atvinnuhúsinu á lóð nr. 12-14 við Vínlandsleið.
Skýrsla brunahönnuðar dags. 11. ágúst 2009 fylgir.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Þarabakki 3 (04.603.702) 111729 Mál nr. BN040216
Icecurves ehf, Bæjarlind 12, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að innrétta heilsurækt á 1. hæð og í kjallara atvinnuhússins á lóð nr. 3 við Þarabakka.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

32. Þingvað 19 (04.773.802) 198726 Mál nr. BN040298
Auður Ögn Árnadóttir, Kambsvegur 35, 104 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á erindi BN035767 sem samþykkt var 22. maí 2007, þar sem veitt var leyfi til að byggja steinsteypt einbýlishús, að hluta til tveggja hæða, með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 19 við Þingvað. Einnig er sótt um leyfi til að hafa gólfkóta 50 cm hærri en skipulag kveður á um.
Stærð: Íbúð 244,5 ferm., bílgeymsla 35,9 ferm.
Samtals 280,4 ferm. og 1036,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 79.818
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

Fyrirspurnir

33. Grettisgata 28 (01.190.002) 102340 Mál nr. BN040288
Maríanna Clara Lúthersdóttir, Grettisgata 28, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að hækka þak, setja kvist sem snýr að götu, hækka stigahús sem snýr að garði og að setja upp svalir yfir inngang inn í fjölbýlishúsið á lóð nr. 28 við Grettisgötu.
Vísað er til umsagnar skipulagsstjóra á fyrirspurnarblaði.

34. Grjótháls 1-3 (04.302.401) 111016 Mál nr. BN040211
Grjótháls ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Spurt er hvort byggja megi tengibrýr við Grjótháls nr. 1-3 og Grjótháls nr. 5 sem mætist yfir lóðamörkum. Sama fyrirtækið leigir aðstöðu í báðum húsunum. Sbr. fsp. BN040033.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dagsett 7. júlí 2009 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. ágúst 2009, ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 14. ágúst 2009.
Jákvætt.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra frá 14. ágúst sl.

35. Hafnarstræti 1-3 (01.140.005) 100817 Mál nr. BN040278
Ásmundur Jóhannsson, Hraunteigur 9, 105 Reykjavík
Merlot ehf, Hafnarstræti 1-3, 101 Reykjavík
Spurt er hvort setja megi upp skjóltjald yfir útiveitingaaðstöðu við veitingahúsið á lóð nr. 1-3 við Hafnarstræti.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

36. Haukdælabraut 96 (05.114.102) 214817 Mál nr. BN040262
Rúnar Lárusson, Bjarkarás 27a, 210 Garðabær
Spurt er hvort leyft yrði að byggja einbýlishús eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum á lóð nr. 96 við Haukdælabraut.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. ágúst fylgir erindinu.
Nei.
Samræmist ekki deiliskipulagi sbr. umsögn skipulagsstjóra.

37. Kleppsvegur 18-24 (01.341.102) 103942 Mál nr. BN040286
Einar Rafn Þórhallsson, Kleppsvegur 24, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að gera 1,5 metra breitt og 2 metra hátt gat í burðavegg á milli eldhúss og stofu á 1. hæð fjölbýlishússins nr. 24 á lóð nr .18 - 24 við Kleppsveg
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem fylgi yfirlýsing burðarvirkishönnuðar og viðeigandi samþykki húsfélags.

38. Laugav 22/Klappars 33 (01.172.201) 101456 Mál nr. BN040281
Ólafur G Sveinbjörnsson, Goðatún 22, 210 Garðabær
Spurt er hvort leyfi fengist fyrir veitingahúsi með vínveitingaleyfi og yrði reksturinn í kjallara og á 1. hæð og um er að ræða Baskneskan/spænskan tapas veitingastað.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

39. Réttarholtsvegur 63-79 (01.834.003) 108598 Mál nr. BN040296
Ingibjörg Þórhallsdóttir, Réttarholtsvegur 77, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að koma fyrir 18 bílastæðum og að reisa stoðvegg á lóðarmörkum raðhúsins á lóð nr. 63-79 við Réttarholtsveg.
Jákvæð fyrirspurn BN39871 dags 2. júní 2009 fylgir erindinu
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

40. Skógargerði 3 (01.837.008) 108645 Mál nr. BN040194
Gunnar Örn Gunnarsson, Vallholt 7, 355 Ólafsvík
Spurt er hvort sækja þarf um leyfi til að breyta svalahurð sem sótt var um árið 1990 eða má fara í framkvæmd á einbýlishúsinu á lóð nr. 3 við Skógargerði.
Hægt er að sækja um endurnýjun á byggingarleyfi 624/90 án þess að leggja fram nýja uppdrætti.

41. Vesturberg 145-151 (04.661.204) 112035 Mál nr. BN040301
Gestur Guðjón Haraldsson, Vesturberg 149, 111 Reykjavík
Spurt er hvot leyfi fengist fyrir að skipta um alla glugga, stækka opnanlegu fögin um 10 cm, hafa þau hliðarhengt og fjarlægja pósta í glugga mót vestur á einbýlishúsinu
nr. 149 á lóð nr. 145 - 151 við Vesturberg.
Jákvætt.

42. Víðimelur 67 (01.524.104) 106019 Mál nr. BN040269
Edda Þórsdóttir, Grettisgata 83, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að hækka þak um 60-80 cm., að byggja nýjan kvist til suðurs og/eða vesturs og til að klæða af steyptar þakrennur á einbýlishúsinu á lóð nr. 67 við Víðimel.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. ágúst 2009 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem grenndarkynnt verður berist það.

Fundi slitið kl. 11.18.

Magnús Sædal Svavarsson
Sigrún Reynisdóttir Jón Hafberg Björnsson
Hjálmar A. Jónsson Eva Geirsdóttir