Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2009, miðvikudaginn 4. febrúar kl. 9.08, var haldinn 162. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12-14, 7. hæð Ráðssal. Viðstaddir voru: Júlíus Vífill Ingvarsson, Brynjar Fransson, Ragnar Sær Ragnarsson, Stefán Þór Björnsson, Stefán Benediktsson, Björk Vilhelmsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Magnús Skúlason. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Ágúst Jónsson, Ólafur Bjarnason og Marta Grettisdóttir.Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum:Bragi Bergsson, Björn Axelsson og Haraldur Sigurðsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 30. janúar 2009.

2. Kjalarnes, Melavellir, breyting á deiliskipulagi Mál nr. SN070734
Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbær
Arkþing ehf, Bolholti 8, 105 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Matfugls, dags. 21. nóv. 2007, um breytingu á deiliskipulagi á jörðinni Melavellir í Kjalarnesi skv. uppdr. Arkþings, dags. 20. feb. 2008. Í breytingunni felst að heimila byggingu fjögurra alifuglahúsa sunnan við þegar samþykkt alifuglahús á lóðinni. Lagt fram bréf Umhverfissviðs, dags. 25. janúar 2008, bréf Skipulagsstofnunar, dags. 28. janúar 2008, skýrsla Línuhönnunar, dags. janúar 2008, bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 29. okt. 2007 ásamt umsögn umhverfissviðs frá 23. s.m, bréf Skipulagsstofnunar dags. 27. mars 2008. Auglýsing stóð yfir frá 23. apríl til og með 7. júní 2008. Athugasemdir bárust frá ábúendum á Bakka, dags. 19. maí 2008 og Íbúasamtökum Kjalarness, dags. 21. maí 2008. Erindið er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Umhverfis- og samgöngusviðs dags. 8. október 2008, bréfi Þrastar Grétarssonar f.h. Efla, verkfræðiskrifstofu dags. 6. nóvember 2008 og tölvubréf Svövu S. Steinarsdóttur heilbrigðisfulltrúa f.h. heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 30. janúar 2009. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 30. janúar 2009.
Auglýst tillaga samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.

4. Víðidalur, Fákur, breyting á deiliskipulagi (04.76) Mál nr. SN080409
Landslag ehf, Skólavörðustíg 11, 101 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Landslags ehf., dags. 6. júní 2008 að breytingu á deiliskipulagi athafnasvæðis hestamannafélagsins Fáks í Víðidal. Tillagan var auglýst frá 23. október til og með 4. desember 2008. Einnig er lögð fram umsögn Umhverfis- og samgöngusviðs dags. 22. október 2008 þar sem gerðar eru athugasemdir við tillöguna. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Jón Valgeirsson, Melbæ 12, dags. 25. nóvember 2008, Veiðimálastofnun dags. 25. nóvember 2008, Ágúst Úlfar Sigurðsson, Lágabergi 3, dags. 30. nóvember 2008, Þórólfur Jónsson f.h. ráðgjafahóps um málefni Elliðaáa, dags. 3. desember 2008, Stangaveiðifélag Reykjavíkur, dags. mótt. 4.desember 2008, Versus lögm. f.h. Hallgerður Hauksdóttir dags. 4. desember 2008. einnig er lögð fram umsögn Umhverfis- og samgönguráðs dags. 14. janúar 2009.
Frestað.
Svandís Svavarsdóttir tók sæti á fundinum kl. 9:15

5. Holtsgöng, breyting á aðalskipulagi Mál nr. SN080245
Lögð fram drög skipulags- og byggingarsviðs dags. 29. janúar 2009 að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 vegna færslu Holtsganga.
Samþykkt að kynna framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi með vísan til 17. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 á vef skipulags- og byggingarsviðs.

Fulltrúi Vinstri grænna gerir ekki athugasemdir við kynningu á framlagðri tillögu um breytingu á aðalskipulagi. Þó er gerður fyrirvari um síðari tíma afstöðu í ljósi þeirrar heildarsýnar sem brýnt er að hafa á samgöngulausnir í aðalskipulagi til lengri framtíðar.

(B) Byggingarmál

7. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN039437
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 524 frá 3. febrúar 2009.

(D) Ýmis mál

9. Slippa- og Ellingsenreitur, (01.115.3) Mál nr. SN090031
bréf íbúasamtaka Vesturbæjar og Miðbæjar
Magnús Skúlason, Klapparstígur 1a, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf íbúasamtaka Vesturbæjar og Miðbæjar dags. í janúar 2009 varðandi skipulag Slippareits.

10. Gamla höfnin, hugmyndasamkeppni, stýrihópur(01.0) Mál nr. SN080373
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Lögð fram bréf Faxaflóahafna, dags. 19. maí 2008 og 11. júní 2008 varðandi hugmyndasamkeppni um þróun og framtíð skipulagssvæðis Gömlu hafnarinnar frá D-reit og Ingólfsgarði í austri að Eyjargarði í vestri. Einnig er lagt fram bréf Faxaflóahafna, dags. 19. janúar 2009, varðandi mögulega breytingu á afmörkun skipulagssvæðisins.
Ásdís Ingþórsdóttir, arkitekt, kynnti.

Stefán Þór Björnsson vék af fundi kl. 10:15, Zakaria Elías Anbari tók sæti á fundinum í hans stað.

11. Skúlagata 12-16, sjónlína niður Frakkastíg (01.152.2) Mál nr. SN090025
Elín Ebba Ásmundsdóttir, Laugavegur 53a, 101 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 23. janúar 2009 var lagt fram bréf Jon Kjell Seljeseth og Elínar Ebbu Ásmundsdóttur, dags. 22. desember 2008, varðandi skerðingu á sjónlínu frá Skólavörðuholti niður Frakkastíg vegna fyrirhugaðs háhýsis að Skúlagötu 12-16. Erindi var lagt fram að nýju á fund á skipulagsstjóra þann 30. janúar 2009 og vísað til skipulagsráðs.
Kynnt.

12. Gufunes, landfyllingar. (02.2) Mál nr. SN080736
mat á umhverfisáhrifum, framkvæmdaleyfi
Á fundi skipulagsráðs 17. desember 2008 var lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 4. des. 2008 vegna samþykktar borgarráðs s.d. um að vísa erindi ritara framkvæmda- og eignaráðs frá 25. f.m. varðandi mat á umhverfisáhrifum landfyllinga við Ánanaust til umsagnar skipulagsráðs.
Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri framkvæmda- og eignasviðs kynnti erindið.

13. Ánanaust landfyllingar, mat á umhverfisáhrifum (01.130) Mál nr. SN080734
Á fundi skipulagsráðs 17. desember 2008 var lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 4. des. 2008 vegna samþykktar borgarráðs s.d. um að vísa erindi ritara framkvæmda- og eignaráðs frá 25. f.m. varðandi mat á umhverfisáhrifum landfyllinga við Ánanaust til umsagnar skipulagsráðs.
Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri framkvæmda- og eignasviðs kynnti erindið.

14. Hólatorg 2, breyting á deiliskipulagi (01.160.3) Mál nr. SN080444
Katrín Lovísa Ingvadóttir, Hólatorg 2, 101 Reykjavík
Arkitektar Ólöf & Jón ehf, Mjóuhlíð 4, 105 Reykjavík
Páll Baldvin Baldvinsson, Hólatorg 2, 101 Reykjavík
Lögð fram að nýju samþykkt tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hólatorgsreits vegna lóðarinnar að Hólatorgi 2. Einnig er lagt fram bréf Sigrúnar Björnsdóttur dags. 6. nóvember 2008 f.h. 8 hagsmunaaðila við Hólatorg þar sem gerðar eru athugasemdir við afgreiðslu skipulagsráðs á erindi ásamt bréfi Skipulagsstofnunar dags. 23. október 2008 þar sem gerðar eru athugasemdir við að erindi verði auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Kynnt.

15. Vesturgata 24, kæra, umsögn. úrskurður (01.132.0) Mál nr. SN060664
Lagður er fram úrskurður Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 29. janúar 2009 í máli 57/2006, kæra á ákvörðun skipulagsráðs Reykjavíkur frá 17. maí 2006 um breytingu á deiliskipulagi reits 1.132.0, svonefnds Norðurstígsreits, er varðar lóðina nr. 24 við Vesturgötu í Reykjavík. Úrskurðarorð: Hin kærða ákvörðun skipulagsráðs Reykjavíkur frá 17. maí 2006, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.132.0, svonefnds Norðurstígsreits, er varðar lóðina nr. 24 við Vesturgötu í Reykjavík, er felld úr gildi.

16. Suður Mjódd, nýtt deiliskipulag (04.91) Mál nr. SN070148
Erum Arkitektar ehf, Grensásvegi 3-5, 108 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 23. janúar 2009 um samþykkt borgarráðs 22. janúar 2009 á nýju deiliskipulagi fyrir Suður Mjódd.

17. Borgartún - Skúlatún, Mál nr. SN080579
breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 23. janúar 2009 um samþykkt borgarráðs 22. janúar 2009 vegna auglýsingar á breytingu á aðalskipulagi fyrir Borgartún, aukið byggingarmagn.

18. Húsahverfi svæði C, (02.84) Mál nr. SN090006
breyting á skilmálum vegna húsagerðar E8 og E9
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 23. janúar 2009 um samþykkt borgarráðs 22. janúar 2009 vegna auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi fyrir Húsahverfi svæði C.

19. Skipulagsráð, nýr fulltrúi Mál nr. SN090035
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 21. janúar 2009 vegna samþykktar borgarstjórnar 20. s.m. að Ragnar Sær Ragnarsson taki sæti í skipulagsráði til loka kjörtímabilsins í stað Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur.

Fundi slitið kl. 11.50.

Júlíus Vífill Ingvarsson

Brynjar Fransson Ragnar Sær Ragnarsson
Zakaria Elías Anbari Svandís Svavarsdóttir
Stefán Benediktsson Björk Vilhelmsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2009, þriðjudaginn 3. febrúar kl. 10.12 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 524. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Sigrún Reynisdóttir, Þórður Búason, Björn Kristleifsson, Bjarni Þór Jónsson, Jón Hafberg Björnsson og Eva Geirsdóttir.
Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Austurstræti 12 (01.140.407) 100850 Mál nr. BN039295
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta íbúð þar sem áður voru skrifstofur og til að breyta eignamörkum á 5. hæð verslunar- og skrifstofuhússins á lóð nr. 12 við Austurstræti.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

2. Ásvallagata 21 (01.162.208) 101266 Mál nr. BN039413
Anna Svava Sverrisdóttir, Ásvallagata 21, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja byggingaleyfi BN033899 dags. 7. nóv. 2006 um að gera þaksvalir og aðkomurými úr gleri til að komast uppá svalirnar á húsinu á lóðinni nr. 21 við Ásvallagötu. Einnig er sótt um leyfi fyrir áður gerðum breytingum innanhúss og endurnýjun á byggingarleyfi frá 25. ágúst 1998 vegna byggingar áhaldaskúrs, skv uppdr. Ragnars Birgissonar, dags. 16. nóvember 1997.
Málinu fylgir eignaskiptayfirlýsing til yfirferðar dags. 11. maí 2006 og afsal vegna séreignar í kjallara innfært 3. desember 1993.
Málinu fylgja einnig undirritaðir uppdrættir með samþykki eigenda Ásvallagötu 19 nema eiganda 01 0101 og 01 0201, allra eigenda Ásvallagötu 21, Blómvallagötu 10 og Blómvallagötu 10A.
Stærð: Stækkun 2,2 ferm., 1,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 123
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

3. Bergstaðastræti 4 (01.171.307) 101407 Mál nr. BN039344
Gamma ehf, Smáraflöt 43, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að breyta aðgengi að efri hæð Mhl. 02 með því að byggja svalir, breytt er eignarhaldi og skráningu á geymslu og anddyri í matshluta 01, allt í húsi á lóð nr. 4 við Bergstaðastræti.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 13. janúar 2009.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

4. Blönduhlíð 23 (01.713.016) 107227 Mál nr. BN038703
Arnar Þorkell Jóhannsson, Blönduhlíð 23, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka kvisti og koma fyrir svölum og til að breyta innra skipulagi risíbúðar í fjölbýlishúsi á lóð nr. 23 við Blönduhlíð.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda 6.3. 2008 og staðfesting burðarvirkjahönnuðar dags. 3.11. 2008
Stækkun 20 ferm., 86 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.700 + 6.622
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

5. Bæjarflöt 1-3 (02.576.001) 172493 Mál nr. BN039419
Bæjarflöt 1 ehf, Laugateigi 14, 105 Reykjavík
Flugskóli Íslands ehf, Háteigsvegi 35, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi eignahluta 0102 í skrifstofur, kennslustofur og þálfunaraðstöðu og bæta 4 bílastæðum við í atvinnuhúsi á lóð nr. 1 við Bæjarflöt.
Mæli- og hæðarblað fylgir málinu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

6. Drekavogur 4-4B (01.414.004) 192230 Mál nr. BN039458
Gerpir ehf, Laugavegi 22A, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta skrifstofuhúsnæði í íbúðarhúsnæði með ellefu íbúðum, byggja við og byggja hæð (3. hæð) úr steinsteypu ofan á húsið, klæða og einangra að utan með sléttri og báraðri álklæðningu ásamt því að koma fyrir lyftu og stækka og breyta fyrirkomulagi í kjallara hússins nr. 4 á lóðinni nr. 4, 4A og 4B við Drekavog.
Jafnframt eru erindi BN024696, BN024943 og BN034193 felld úr gildi.
Stækkun 371 ferm. og 1284,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 98.922
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

7. Flókagata 18 (01.247.205) 103356 Mál nr. BN039154
Örnólfur Kristjánsson, Flókagata 18, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að hækka þak með kvistum og þakgluggum, rýmið verður stækkun á og hluti af íbúð á 2. hæð, sömuleiðis eru austursvalir á 2. hæð stækkaðar í íbúðarhúsi á lóð nr. 18 við Flókagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 9. janúar 2009 fylgir erindinu.
Tillagan var grenndarkynnt frá 20. nóvember 2008 til og með 18. desember 2008. Engar athugasemdir bárust.
Meðfylgjandi er fyrirspurn BN033012 dags. 10.1.2006,
Stækkun 54,4 ferm., 81,8 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.700 + 6.299
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

8. Garðastræti 17 (01.136.525) 100614 Mál nr. BN039337
Gestur Ólafsson, Garðastræti 15, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta í íbúð þeim hluta teiknistofunnar sem er á 1. hæð í íbúðar- og atvinnuhúsinu á lóð nr. 17 við Garðastræti.
Meðfylgjandi er samþykki húsfundar.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

9. Geirsgata 3a-7c (01.117.306) 100086 Mál nr. BN039446
Álar ehf, Verbúð 8,Geirsgötu, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á eldvarnarmerkingum á fiskbúð í húsi á lóð nr. 7 við Geirsgötu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

10. Gissurargata 3 (05.113.702) 214850 Mál nr. BN039297
Sigurður Ólafsson, Helluvað 11, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt einbýlishús á einni og hálfri hæð með innbyggðri tvöfaldri bílgeymslu á lóð nr. 3 við Gissurargötu.
Stærð: Kjallari íbúð 101 ferm., 2. hæð íbúð 179,3 ferm., bílgeymsla 59,2 ferm.
Samtals 339,5 ferm., 1549,2 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 119.288
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

11. Gnoðarvogur 44-46 (01.444.101) 105528 Mál nr. BN039436
Vogaver fasteignafélag ehf, Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi kjallara og 1. hæðar matshluta 02 og stækka fiskbúð í verslunarhúsinu á lóð nr. 44 - 46 við Gnoðavog.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

12. Grandagarður 8 (01.115.101) 100046 Mál nr. BN039356
Grandagarður 8 ehf, Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum af nýsamþykktu verslunar- og skrifstofuhúsi, BN034446 samþ. 25. september 2007, á lóð nr. 8 við Grandagarð.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

13. Gvendargeisli 96 (05.135.703) 190267 Mál nr. BN039304
Haukur Óskarsson, Gvendargeisli 96, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að taka í notkun óútgrafið rými í þegar byggðu húsi sbr. erindi BN028410 samþ. 26.10.2004 og stækka þannig einbýlishúsið á lóð nr. 96 við Gvendargeisla.
Stækkun: 18,8 ferm., 49,8rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.700 + 3.834,6
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

14. Haukdælabraut 2-8 (05.114.501) 214787 Mál nr. BN039459
S.S. Hellulagnir ehf, Þórðarsveig 34, 113 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir sökklum á lóðinni nr. 2-8 við Haukdælabraut.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

15. Hjallasel 55 (04.960.301) 113076 Mál nr. BN039066
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi norðvesturhluta og innrétta þar einstaklings- og hjónaíbúðir og í suðausturenda að innrétta skrifstofur lækna og hjúkrunarfræðinga í heimili fyrir aldraða á lóð nr. 55 við Hjallasel.
Íbúðafjöldi er óbreyttur.
Bréf hönnuðar dagsett 14.10.2008.
Gjald kr.7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

16. Hólatorg 2 (01.160.310) 101172 Mál nr. BN038176
Katrín Lovísa Ingvadóttir, Hólatorg 2, 101 Reykjavík
Páll Baldvin Baldvinsson, Hólatorg 2, 101 Reykjavík
Lilja Ragnhildur Einarsdóttir, Hólatorg 2, 101 Reykjavík
Davíð Másson, Hólatorg 2, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka rishæð með því að hækka þak viðbyggingar og breyta í mænisþak, byggja tvennar svalir á vesturhlið, koma fyrir hurð og tröppum út í garð á vesturhlið og endurbyggja skúr við tvíbýlishúsið á lóðinni nr. 2 við Hólatorg.
Erindi fylgir greinargerð eiganda, ódagsett og tíu númeruð fylgiskjöl ásamt umsögn Húsafriðunarnefndar ríkisins dags. 9. maí 2008 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. maí 2008.
Minnkun á geymsluskúr: 12,2 ferm.
Stækkun rishæðar: 20,8 ferm., 38 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 2.774
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

17. Kvistaland 1-7 (01.863.301) 108806 Mál nr. BN039445
Svava Þorgerður Johansen, Bakkaflöt 8, 210 Garðabær
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvinnu og aðstöðugerð í húsi nr. 1 á lóð nr. 1-7 við Kvistaland.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

18. Köllunarklettsvegur 10 (01.329.101) 199098 Mál nr. BN039434
Og fjarskipti ehf, Skútuvogi 2, 104 Reykjavík
Egilsson hf, Köllunarklettsvegi 10, 104 Reykjavík
Eignarhaldsfélagið Sigtún ehf, Köllunarklettsvegi 10, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að reisa tækjarými við norðurgafl og að auki staðsetja símamastur á norðurenda þaks núverandi iðnaðarbyggingar á lóð nr. 10 við Köllunarklettsveg.
Stækkun:. 6,8 ferm 20,8 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 1602
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

19. Langagerði 74 (01.832.208) 108565 Mál nr. BN039431
Kristinn Pálmason, Langagerði 74, 108 Reykjavík
Unnur Eir Björnsdóttir, Langagerði 74, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við úr steinsteypu og tengja bílskúr íbúðarhúsi, sameina matshluta 01 og 02, stækka svalir á austurhlið og byggja timburverönd við einbýlishús á lóð nr. 74 við Langagerði.
Stærðir stækkun: 91,6 ferm., 267,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 20.605
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

20. Laufásvegur 68 (01.197.207) 102722 Mál nr. BN039427
Stefán Hilmar Hilmarsson, Laufásvegur 68, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta hæðarlegu í suðvesturhorni lóðar, færa heitan pott í garði og bæta gönguhurð á bílgeymslu einbýlishúss á lóð nr. 68 við Laufásveg.
Meðfylgjandi er umboð frá Vegvísi, Helga Hrafni Hilmarssyni til Stefáns Hilmars Hilmarssonar vegna umsóknar um byggingarleyfi.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

21. Laugavegur 166 (01.242.102) 103032 Mál nr. BN039378
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta tölvuherbergi á 1. hæð. Breytingin hefur í för með sér útlitsbreytingu þar sem setja þarf lokun fyrir gluggaop og málmgrindur yfir kæliblásara í skrifstofuhúsi á lóð nr. 166 við Laugaveg.
Meðfylgjandi er bréf frá hönnuði dags 13.jan. og 27.jan 2009 . Bréf frá Tækniþjónustunni um upplýsingar um hljóðstig og val á staðsetningu kælikerfis dags. 22. jan. 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

22. Laugavegur 60A (01.173.115) 101532 Mál nr. BN039406
B.R.A.S.S ehf, Laugavegi 60a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir salerni í viðbyggingu úr timbri og léttan eldvarnarvegg á mörkum lóðar, gasgeymslu utanhúss á jarðhæð, sjónvarpsmóttökudisk og útloftunarháf frá eldhúsi upp úr þaki við veitingahús á lóð nr. 60A við Laugaveg.
Meðfylgjandi er samþykki eigenda húss á lóð nr. 60A dags. 21.1.2009 og samþykki meðlóðarhafa á Laugavegi 60 um aðgengi að lóð dags. 21.1.2009 og bréf frá byggingarfulltrúa varðandi óleyfisframkvæmd dags. 19. janúar 2009. Sömuleiðis er meðfylgjandi samþykki eigenda Lagavegs 60 og 60A vegna framkvæmda við Laugaveg 60A dags. 27.1.2009 og svarbréf B.R.A.S.S ehf dags. 30. janúar 2009.
Stærðir stækkunar xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xxx
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

23. Logafold 96 (02.877.203) 110465 Mál nr. BN037299
Þorsteinn S Ásmundsson, Logafold 96, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta sem geymslu útgrafna sökkla undir bílgeymslu einbýlishússins á lóðinni nr. 96 við Logafold.
Stækkun: 57,2 ferm., 142,4 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 10.965
Synjað.
Ekki í samræmi við ákvæði deiliskipulags þar sem mesta brúttóflatarmál húss má vera 300 ferm.

24. Lyngháls 4 (04.326.402) 180304 Mál nr. BN039432
Grjótháls ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta verslunarrými á 2. hæð í skrifstofurými í atvinnuhúsi á lóð nr. 4 við Lyngháls.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

25. Njálsgata 4B (01.182.204) 101856 Mál nr. BN039379
Austur-Indíafélagið ehf, Hverfisgötu 56, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir fellistiga og samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi húss þar sem gerð er grein fyrir þremur íbúðum, þ. á. m. ein ósamþykkjanleg íbúð í kjallara fjölbýlishússins á lóð nr. 4B við Njálsgötu.
Erindi fylgir tengiskýrsla Rafmagnsveitu Reykjavíkur dags. 22. ágúst 1956, virðingargjörð dags. 1. febrúar 1941 og 17. júlí 1947, þinglýstur skiptasamningur dags. 30. mars 1977, þinglýst afsöl af þremur eignarhlutum hússins dags. 21. mars 1972, 1. október 1986 og 1. júlí 1993 og íbúðarskoðun Byggingarfulltrúa dags. 20. nóvember 2008.
Ennfremur er erindi BN039148 dregið til baka.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Afmörkun ósamþykkjanlegrar íbúðar í kjallara 0001, fastanr. 200-6321 er gerð með vísan til ákvæða 15. gr. reglug. nr. 910/2000.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

26. Rofabær dælustöð (04.345.-99) 173364 Mál nr. BN039430
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta handriði úr láréttum stálprófílum í lóðrétt heitgalv. stálrör á þaki dælustöðvar á staðgreini nr. 01434599 mhl. 01 við Rofabæ.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

27. Sigluvogur 8 (01.414.113) 105108 Mál nr. BN039192
Guðmundur Ingi Jónsson, Sigluvogur 8, 104 Reykjavík
Sótt er um leyft til að breyta innra skipulagi, byggja við til norðurs og stækka bílskúr við einbýlishúsið á lóð nr. 8 við Sigluvog.
Málinu fylgir fyrirspurn BN03884 dags. 30.sept. 2008,
einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 19. september 2008, umsögn skipulagsstjóra dags. 19. september 2008 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. janúar 2009. Tillagan var grenndarkynnt frá 23. desember til og með 26. janúar 2009. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: kjallari 40,7 ferm. og 102,7 rúmm. 1. hæð 25,2 ferm. og 66 rúmm. Rishæð 18,2 ferm. og 55,1 rúmm. Bílgeymsla 45,6 ferm. og 121 rúmm. Samt. 129,7 ferm. og 344,8 rúmm.
Gjöld kr. 7.300 + 25.170
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

28. Skógarvegur 18-22 (01.793.501) 213551 Mál nr. BN039407
Félagsstofnun stúdenta, Háskólatorgi Sæmundar, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja tvö fjögurra hæða fjölbýlishús, Mhl. 01 og 02, nr. 18 og 22 með nítján íbúðum í hvoru, á sameiginlegum bílakjallara, Mhl. 03, sem í eru 35 bílastæði á lóð nr. 18-22 við Skógarveg.
Erindi fylgir brunahönnun frá EFLA dags. 20. janúar 2009 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. janúar 2009.
Stærðir: Mhl. 01 1529,7 ferm., 4478 rúmm., Mhl. 02 1572,2 ferm., 4583,1 rúmm., Mhl. 03 (bílakjallari) 1140,2 ferm., 3705,6 rúmm.
Samtals 4.242 ferm., 12.767 rúmm.
Gjöld kr. 7.700 + 983.036
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

29. Smáragata 3 (01.197.215) 102730 Mál nr. BN039143
Agla ehf, Brekkubyggð 69, 210 Garðabær
Emilía Sjöfn Kristinsdóttir, Smáragata 3, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, til að byggja einnar hæðar viðbyggingu við bílskúr og tveggja hæða viðbyggingu við tvíbýlishús ásamt því að fá samþykkta íbúð í kjallara og koma fyrir tveimur nýjum bílastæðum á lóð nr. 3 við Smáragötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. nóvember 2008 fylgir erindinu.
Erindi fylgir einnig virðingargjörð dags. 1. febrúar 1943 og íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 3. desember 2008.
Stækkun: 103,9 ferm., 358,6 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 26.178
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Íbúð í kjallara er ósamþykkjanleg samanber niðurstöðu skoðunarskýrslu og mun ekki hljóta samþykki sem séreign.

30. Snorrabraut 27-29 (01.240.011) 102978 Mál nr. BN039410
Iceland 101 ehf, Snorrabraut 29, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, fjölga herbergjum og endurskoða eldvarnir í gistiheimilinu á lóð nr. 27-29 við Snorrabraut.
Jafnframt er erindi BN035643 dregið til baka.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Spóahólar 12-20 (04.648.101) 111997 Mál nr. BN039429
Spóahólar 20,húsfélag, Spóahólum 20, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja fjögur opnanleg fög í tvo glugga í stigahúsi nr. 20 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 16-20 við Spóahóla.
Jákvæð fyrirspurn BN039257 fylgir. Samþykki hússtjórnar fylgir dags. 26. jan. 2009
Gjald kr.7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

32. Stigahlíð 45-47 (01.712.101) 107208 Mál nr. BN039447
HH, eignarhaldsfélag ehf, Stigahlíð 45-47, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til minni háttar breytinga á brunavörnum og gestafjölda v/lokaúttektar í veitingastaðnum á lóð nr. 45-47 við Stigahlíð.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

33. Tryggvagata 22 (01.140.004) 100816 Mál nr. BN039316
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum ( þar kemur fram að umsækjandi hefur dregið til baka óskir um færanlegt tjaldþak á svölum) af veitingahúsi á lóð nr. 22 við Tryggvagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 23. janúar 2009 fylgir erindinu.Gjald kr. 7.300 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

34. Veltusund 3B (01.140.420) 100860 Mál nr. BN039428
Balance ehf, Álagranda 27, 107 Reykjavík
Sótt er leyfi um að innrétta skyndibitastað í stað verslunar í atvinnuhúsi á lóð nr. 3B við Veltusund.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

35. Vesturgata 17 (01.136.008) 100511 Mál nr. BN039433
Vesturgata 17 ehf, Vesturgötu 17, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta palli og stiga frá svölum, innra skipulagi í setustofu og á snyrtingu 1. hæðar, eldhúsinnréttingar fjarlægðar á 2. hæð, innra skipulagi breytt og palli, svölum, stiga og björgunaropi á 3. hæð í gistiheimili á lóð nr. 17 við Vesturgötu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

Ýmis mál

36. Gerðuberg 3-5, 7, Keilufell, Hólaberg 84. Mál nr. BN039457
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að breyta mörkum lóða eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti dags. 20. janúar 2009. Breytingarnar eru þessar:
Hólaberg 84, ný lóð verður 9535 ferm. Gerðuberg 3-5, lóðin var 4996 ferm. Lóðin verður 5656 ferm.
Gerðuberg 7, lóðin var 1280 ferm. Lóðin verður 0 ferm. Bílastæðalóð fyrir borgarstofnanir, lóðin var 602 ferm. Lóðin verður 0 ferm. Keilufell 26, lóðin var 700 ferm. Lóðin verður 734 ferm. Keilufell 28, lóðin var 762 ferm. Lóðin verður 838 ferm. Keilufell 30, lóðin var 763 ferm. Lóðin verður 866 ferm.
Deiliskipulagið var samþykkt í skipulagsráði 1. október 2008 og í borgarráði 9. október 2008. Auglýsing um gildistökuna var birt í B-deild Stjórnartíðinda 16. desember 2008.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðarmarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.

Fyrirspurnir

37. Grundarstígur 10 (01.183.308) 101960 Mál nr. BN039424
1904 ehf, Kársnesbraut 64, 200 Kópavogur
Spurt er hvort byggja megi sal við kjallara einbýlishúss á lóð nr. 10 við Grundarstíg og breyta nýtingu þessa fyrrum íbúðarhúss Hannesar Hafstein í blandaða atvinnustarfsemi.
Bréf frá hönnuði dags 26.jan. 2009
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

38. Laugavegur 46B (01.173.104) 101521 Mál nr. BN039426
Sola Capital ehf, Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík
Spurt er hvort skipta megi í tvær íbúðir einbýlishúsinu á lóð nr. 46B við Laugaveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

39. Mosgerði 1 (01.815.507) 108029 Mál nr. BN039421
Eiríkur Ellertsson, Mosgerði 1, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja gróðurhús aftan við einbýlishúsið á lóð nr. 1 við Mosgerði.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

40. Sigtún 38 (01.366.001) 104706 Mál nr. BN039449
Húseignarfélagið Sigtún 38 ehf, Sigtúni 38, 105 Reykjavík
Spurt er hvort setja megi festingar fyrir utanáliggjandi gluggaþvottalyftu á hótel á lóð nr. 38 við Sigtún.
Frestað.
Svo unnt sé að taka afstöðu til erindisins þarf að taka fram fjölda lyftustóla og hvar þeir verða geymdir þegar þeir eru ekki í notkun.

Ýmis mál

41. Tímalengd afgreiðslufunda Mál nr. BN039461
Um langt skeið hefur byggingarnefnd tekið um 30 mín. matarhlé á fundum sínum. Sama hefur verið gert á afgreiðslufundum byggingarfulltrúa frá upphafi. Vegna breyttrar aðstöðu og aðstæðna er ákveðið að fella niður matarhlé frá og með næsta fundi. Þessi bókun er gerð til skýringar á breyttri tímalengd funda í framtíðinni.

Fundi slitið kl. 12.00.

Magnús Sædal Svavarsson
Björn Kristleifsson Sigrún Reynisdóttir
Bjarni Þór Jónsson Þórður Búason
Jón Hafberg Björnsson Eva Geirsdóttir