Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2008, miðvikudaginn 26. nóvember kl. 09:15, var haldinn 156. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12-14, 7. hæð Ráðssal. Viðstaddir voru: Júlíus Vífill Ingvarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Stefán Þór Björnsson, Svandís Svavarsdóttir, Stefán Benediktsson, Björk Vilhelmsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Magnús Skúlason. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Ágúst Jónsson og Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Haraldur Sigurðsson, Þórarinn Þórarinsson, Lilja Grétarsdóttir, Jóhannes Kjarval og Gunnhildur S Gunnarsdóttir. Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 21. nóvember 2008.

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir tók sæti á fundinum kl. 9:18

2. Suðurlandsvegur, tvöföldun. (05.8) Mál nr. SN080668
breyting á svæðisskipulagi höfðuborgarsvæðisins
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 21. nóvember 2008 að óverulegri breytingu á svæðisskipulagi höfðuborgarsvæðisins ásamt umhverfissmati vegna tvöföldunar á Suðurlandsvegi.
Samþykkt skv. 14. gr. 2. mgr. sem óveruleg breyting á svæðisskipulagi.

3. Stjörnugróf. (01.8) Mál nr. SN080598
breyting á deiliskipulagi vegna dreifistöðvar
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Ferdinand Alfreðsson, Láland 22, 108 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga Ferdinand Alfreðssonar dags. í júli 2008, br. 14. nóvember 2008 varðandi breytingu á deiliskipulagi við Stjörnugróf. Í breytingunni felst að afmörkuð er lóð fyrir nýja dreifistöð Orkuveitu Reykjavíkur samkv. meðfylgjandi uppdrætti dags. í júlí 2008. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. október til og með 4. nóvember 2008. Athugasemdir bárust þann 3. nóvember frá 9 íbúum búsettum í Blesugróf 13-21. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 14. nóvember 2008.
Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs

4. Árbær-Selás, breyting á skilmálum #GLgarðhús#GL Mál nr. SN080705
Lögð fram tillaga skipulagsstjóra dags 18. nóvember 2008 að breytingu á skilmálum deiliskipulags Árbær - Selás, vegna húsagerðarinnar #GLgarðhús#GL.
Breytingin felst í því að bætt er við texta í skilmálum varðandi heimild til byggingar garðskála.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.
5. Ánanaust, Sorpa, breyting á deiliskipulagi (01.130) Mál nr. SN080699
Arkþing ehf, Bolholti 8, 105 Reykjavík
SORPA bs, Gufunesi, 112 Reykjavík
Lögð fram umsókn og uppdráttur Arkþings f.h. Sorpu, dags. 18. nóv. 2008 vegna breytingar á deiliskipulagi lóðar Sorpu við Ánanaust.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð. Samþykkt að fella niður grenndarkynningu þar sem breytingin varðar einungis hagsmuni lóðarhafa og Reykjavíkurborgar.

6. Úlfarsárdalur, Halla- og Hamarhlíðarlönd, (02.6) Mál nr. SN080709
breyting á deiliskipulagi vegna íþróttahúss
Lögð fram tillaga VA arkitekta dags. 21. nóvember að breytingu á deiliskipulaginu við Halla- og Hamrahlíðalönd, Úlfarsárdalur hverfi 4. Í breytingunni felst að fella út af uppdrætti reit fyrir íþróttahús samkv. meðfylgjandi uppdrætti.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs

7. Úlfarsárdalur, útivistarsvæði, breyting á deiliskipulagi (02.6) Mál nr. SN080707
Landmótun sf, Hamraborg 12, 200 Kópavogur
Knattspyrnufélagið Fram, Safamýri 28, 108 Reykjavík
Lögð fram tillaga Landmótunar fh. knattspyrnufélagsins Fram dags. 20. nóvember 2008 að breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdal útivistarsvæði. Í breytingunni felst stækkun á deiliskipulagssvæði, stækkun á byggingarreit auk þess sem hámarkshæð á íþróttahúsi er hækkuð, nýr byggingarreitur fyrir geymslu, þakskýli yfir áhorfendur og flóðlýsing keppnisvallar samkv. meðfylgjandi uppdrætti Landmótunar dags. 20. nóvember 2008.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

8. Kirkjusandur 2/Borgartún 41, Glitnisreitur, Mál nr. SN080685
breyting á deiliskipulagi
Lómur ehf, Kirkjusandi 2, 155 Reykjavík
Lögð fram umsókn Lóms ehf. dags 10. nóvember 2008 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kirkjusands 2 vegna lóðanna að Kirkjusandi 2, Borgartúns 41, Glitnisreits. Sótt er um breytingu á deiliskipulagi á grundvelli fyrstu verðlauna samkeppnistillögu Monarken ab. Í tillögunni felst aukið byggingarmagn, aukið magn íbúðahúsnæðis og neðanjarðarbílageymslur samk. meðfylgjandi uppdráttum Arkitekthuset Monarken og batterísins dags. 15. október 2008. Einnig er lögð fram greinargerð Batterísins dags. 16. október 2008 og drög Efla verkfræðistofu að umferð og gatnakerfi dags. 14. október 2008 og niðurstöður hljóðvistarútreikninga dags. 15. október 2008.
Kynnt.

Bókun skipulagsráðs:
Skipulagsráð telur mikilvægt að skýra ýmsa þætti sem snúa að Glitnisreit en
á reitnum hefur verið gert ráð fyrir því að rísi höfuðstöðvar Glitnis.

Með tilliti til aðstæðna felur ráðið skipulagsstjóra að afla upplýsinga
varðandi eignarhald og uppbyggingaráform eiganda. Umsókn um breytt
deiliskipulag er í nafni Lóms ehf. en samkvæmt gögnum málsins er það félag
í eigu Glitnis Banka ehf. Óskað er upplýsinga um hver fari með stjórn
félagsins og hvert hún sæki umboð sitt. Jafnframt þarf að svara því hvort
enn sé gert ráð fyrir nýjum höfuðstöðvum bankans á þessum stað.

Samráð hefur ekki verið haft við Reykjavíkurborg um áætlað byggingarmagn og
aukningu á íbúðarhluta tillögunnar á kostnað skrifstofuhúnæðis.

Einnig felur skipulagsráð skipulagsstjóra að fara yfir lögfræðilega hlið
málsins með hliðsjón af breyttum forsendum

(B) Byggingarmál

9. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN039232
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 515 frá 25. nóvember 2008.

(D) Ýmis mál

10. Borgarvernd, húsvernd. Mál nr. SN070387
stefnumótun í borgar- og húsverndarmálum
Lögð fram að nýju 8. drög að skýrslu vinnuhóps um stefnumótun í borgar- og húsverndarmálum dags. 2. maí 2008.
Hjörleifur Stefánsson arkitekt kynnti

11. Vatnsstígur 8, 10a, 10b og 12., varðveislumat Mál nr. SN080693
Lögð fram skýrsla Minjasafns Reykjavíkur dags. 10. nóvember 2008 vegna endurskoðunar á varðveislumati húsanna að Vatnsstíg 8, 10a, 10b og 12.

Kristín Einarsdóttir aðstoðarsviðsstjóri Framkvæmda- og eignasviðs tók sæti á fundinum undir þessum lið

Kynnt.

12. Kjalarnes, Sigtún, skipting lóðar (03.24) Mál nr. SN080677
Valgeir Halldór Geirsson, Sigtún, 116 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 7. nóvember 2008 var lögð fram umsókn Valgeirs Geirssonar, dags. 5. nóvember 2008, varðandi skiptingu lóðarinnar Sigtún við Brautarholtsveg á Kjalarnesi samkv. meðfylgjandi uppdrætti dags. 20. júní 2008. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra Kjalarness og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 21. nóvember 2008.
Samþykkt með vísan til d-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð

13. Vatnsmýrin, (01.6) Mál nr. SN080703
sýning á tillögum um miðborgarbyggð
Lögð fram orðsending skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. nóv. 2008 ásamt erindi Samtaka um betri byggð frá 12. s.m. þar sem óskað er eftir að haldin verði sýning á tillögum um miðborgarbyggð í Vatnsmýri. Erindinu er vísað f.h. borgarráðs til meðferðar skipulagsráðs.
Málinu er vísað til frekari úrvinnslu embættis skipulagsstjóra í samráði við samtökin Betri byggð.

14. Erindisbréf, stefnumörkun Mál nr. SN080710
Lagðar fram tillögur skipulags- og byggingarsviðs dags. 24. nóvember 2008 að erindisbréfum vegna starfa vinnuhópa á vegum sviðsins starfsárið 2008-2009.
Frestað.

15. Skipulagsráð, fyrirkomulag funda 2008 Mál nr. SN080711
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 24. nóvember 2008 að fyrirkomulagi funda skipulagsráðs um jól og áramót 2008
Samþykkt að fella niður reglulega fundi skipulagsráðs sem koma upp á dögunum 24. og 31. desember nk. Fyrsti fundur ráðsins á nýju ári verður haldinn þann 7. janúar.

16. Njálsgata 28, (01.190.202) Mál nr. BN039230
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 14. nóvember 2008 vegna stöðvunar framkvæmda á lóð nr. 28 við Njálsgötu sbr. ákvæði 1. mgr. 56. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Bréf byggingarfulltrúa samþykkt

17. Ingólfsstræti 21B, kæra, umsögn, úrskurður (01.180.2) Mál nr. SN060168
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 19. nóvember 2008 vegna kæru á ákvörðun skipulagsráðs frá 25. janúar 2006 um að afturkalla samþykkt byggingarfulltrúa frá 22. febrúar 2005 og synja um samþykkt byggingarleyfis fyrir áður gerðum geymsluskúr á lóðinni nr 21b við Ingólfsstræti.
Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun skipulagsráðs Reykjavíkur frá 25. janúar 2006, sem staðfest var í borgarráði 26. sama mánaðar, um að afturkalla samþykkt byggingarfulltrúa frá 22. febrúar 2005 og synja um samþykkt byggingarleyfis fyrir áður gerðum geymsluskúr á lóðinni nr. 21b við Ingólfsstræti.

18. Hverfisgata 103, breyting á deiliskipulagi (01.154.4) Mál nr. SN080637
Plúsarkitektar ehf, Laugavegi 59, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 20. nóvember 2008 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna auglýsingar um breytingu á deiliskipulagi fyrir Hverfisgötu 103.

19. Hádegismóar, búddahof, breyting á deiliskipulagi, (04.41) Mál nr. SN080358
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 20. nóvember 2008 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir Hádegismóa vegna Búddahofs.

20. Hólmsheiði, jarðvegsfylling, endurauglýsing deiliskipulags(05.8) Mál nr. SN080657
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 20. nóvember 2008 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi Hólmsheiðar vegna jarðvegsfyllingar.

21. Ofanleiti 14, breyting á deiliskipulagi (01.746.2) Mál nr. SN080435
Hamborgarabúlla Tómasar ehf, Pósthólf 131, 121 Reykjavík
GP-arkitektar ehf, Litlabæjarvör 4, 225 Álftanes
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 20. nóvember 2008 um samþykkt borgarráðs s.d. á synjun skipulagsráðs frá 7. s.m. vegna breytinga á deiliskipulagi lóðar við Ofanleiti 14.

22. Sóleyjarimi 13, breyting á deiliskipulagi (02.534) Mál nr. SN080428
Laugarnes ehf - fasteignarfélag, Lækjartorgi 5, 101 Reykjavík
Arkitektastofa Pálma Guðm ehf, Hafnarstræti 20, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 20. nóvember 2008 um samþykkt borgarráðs s.d. á breytingu á deiliskipulagi fyrir Sóleyjarima 13.

Fundi slitið kl. 12:10.

Júlíus Vífill Ingvarsson

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Stefán Þór Björnsson Svandís Svavarsdóttir
Stefán Benediktsson Björk Vilhelmsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2008, þriðjudaginn 25. nóvember kl. 10:12 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 515. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Sigrún Reynisdóttir, Þórður Búason, Jón Hafberg Björnsson og Eva Geirsdóttir
Fundarritari var Magnús Sædal Svavarsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Aðalstræti 6 (01.136.502) 100592 Mál nr. BN039195
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi til undirbúnings breytinga á hluta verslunar og skrifstofuhúsanna í hótel á lóðum nr. 6 og 8 við Aðalstræti.
Erindi fylgja bréf hönnuðar dags. 11. nóvember 2008, fundargerð dags. 10. nóvember 2008, samkomulag milli Arkís fasteignir efh. og Landic Ísland ehf. dags. 17. október 2008, yfirlýsing um leigusamning dags. 11. nóvember 2008, samþykki um tengingu milli fasteigna að Aðalstræti 4, 6 og 8 dags. 7. nóvember 2008, umboð frá TM til Landic Properties dags. 12. nóvember 2008 og yfirlýsing eiganda Miðbæjarhótel/Centerhotels dags. 11. nóvember 2008.
Einnig fylgir erindinu samþykki meðeiganda dags. 7. nóvember 2008.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

2. Aðalstræti 6 (01.136.502) 100592 Mál nr. BN039194
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa #GLHéðinshús#GL, eignarhluta sem merktur er 0104 á baklóð og til að lækka jarðveg þar undir til samræmis við aðliggjandi rými hótelsins á lóð nr. 6 við Aðalstræti.
Erindi fylgja bréf hönnuðar dags. 11. nóvember 2008, fundargerð dags. 10. nóvember 2008, samkomulag milli Arkís fasteignir efh. og Landic Ísland ehf. dags. 17. október 2008, yfirlýsing um leigusamning dags. 11. nóvember 2008, samþykki um tengingu milli fasteigna að Aðalstræti 4, 6 og 8 dags. 7. nóvember 2008, umboð frá TM til Landic Properties dags. 12. nóvember 2008 og yfirlýsing eiganda Miðbæjarhótel/Centerhotels og yfirlýsing ANS ehf. vegna undirbúningsframkvæmda dags. 11. nóvember 2008.
Einnig fylgir erindinu samþykki meðeiganda dags. 7. nóvember 2008.
Niðurrif eignarhluti 0104: 186,7 ferm., og 452,7 rúmm.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

3. Álfab. 12-16/Þönglab. (04.603.503) 111722 Mál nr. BN038259
Faxar ehf, Kringlunni 5, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurinnrétta verslunareiningar skráðar nr. 0102, 0103 þar sem samnýting á starfsmannaðstöðu verður á milli apóteks og gleraugnaverslunar í verslunarmiðstöðinni Mjódd á lóð nr. 14 við Álfabakka.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

4. Barðavogur 9-15 (01.443.002) 105509 Mál nr. BN039219
Sigurður Sigurðsson, Barðavogur 9, 104 Reykjavík
Elín Gréta Kortsdóttir, Barðavogur 9, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja garðskála við suðurhlið, úr PVC plaststyrktum prófílum undir útkragandi þaki, einbýlishúss nr. 9 á lóð nr. 9 - 15 við Barðarvog.
Samþykki meðeigenda lóðar fylgir.
Stækkun: Garðskáli 17,2 ferm., 50,4 rúmm.
Gjöld kr. 7.300 + 3.679
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

5. Bæjarflöt 1-3 (02.576.001) 172493 Mál nr. BN039101
Matarkistan ehf, Skólastræti 5, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta 59 ferm. rými, sem samþykkt er sem skrifstofa á 2. hæð, í veitingaeldhús í atvinnuhúsi á lóð nr. 1 við Bæjarflöt
Erindi fylgir fyrirspurn BN038964, sem var svarað jákvætt 30. sept. 2008. Samþykki fyrir breytingum frá eigendum dags. 15.okt. 2008 fylgir málinu.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

6. Dalbraut 21-27 (01.350.506) 104155 Mál nr. BN039224
Félagsbústaðir hf, Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptar viðbyggingar til suðurs við báðar álmur ásamt minni háttar breytingum á innra skipulagi fyrstu hæðar. Austari viðbyggingin er þrjár hæðir og kjallari, tvær íbúðir, stækkun matsalar og geymslur í kjallara. Vestari viðbyggingin sem í eru tólf íbúðir og geymslur er tvær hæðir og kjallari ásamt stigahúsi með lyftu í þjónustu og fjölbýlishúsi fyrir aldraða á lóð nr. 17-27 við Dalbraut.
Jafnframt er sótt um að BN037719 samþ. 20. maí 2008 verði fellt úr gildi.
Eldra erindi sem var eins að undanskildum bílakjallara var grenndarkynnt frá 6. mars til og með 2. apríl 2008. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: Kjallari 420,8 ferm., 1. hæð 408,8 ferm., 2. hæð 394,9 ferm., 3. hæð 64,5 ferm.
Samtals 1285,0 ferm. og 4.210,5 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 307.367
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

7. Einimelur 17 (01.527.101) 106090 Mál nr. BN039197
Kristinn Hallgrímsson, Einimelur 17, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta salerni og gufubað í hluta bílskúrs, til að hækka bílskúr um 20 cm og til að breyta uppstigi á tröppum sjá nýsamþykkt erindi, BN037808 dags. 6. maí 2008, vegna einbýlishússins á lóð nr. 17 við Einimel.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

8. Elliðabraut 16 (04.791.102) 217282 Mál nr. BN039225
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvinnu og aðstöðugerð á lóðinni nr. 16 við Elliðabraut.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

9. Fiskislóð 15-21 (01.089.301) 209369 Mál nr. BN039214
Smáragarður ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að setja nýjar dyr á útvegg, flytja til pósta í glugga og setja loftræstirist á útvegg í verslunarhúsi á lóð nr. 15-21 við Fiskislóð.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

10. Framnesvegur 44 (01.133.416) 100294 Mál nr. BN038787
Grandahús ehf, Hólmaslóð 2, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta verslun og vörugeymslum á 1. hæð og í kjallara í íbúð sbr. fyrirspurn BN033690 dags.4.4.2006 í húsi á lóð nr. 44 við Framnesveg.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda á teikningum og á A4 fylgiblaði.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

11. Granaskjól 82-88 (01.515.207) 105837 Mál nr. BN039203
Helgi Bernódusson, Granaskjól 86, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka stofu og stofuglugga og rífa létta eldhúsveggi á 1. hæð, stækka svalir og færa þvottahús á 2. hæð í raðhúsi nr. 86 á lóð nr. 82 - 88 við Granaskjól.
Meðfylgjandi er samþykki nágranna á lóðum nr. 82, 84 og 88 við Granaskjól
Gjald kr. 7.300 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

12. Grandagarður 101 (01.114.101) 100042 Mál nr. BN039220
Sigurður R Gíslason, Sólvallagata 84, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að minnka hámarksfjölda gesta í veitingasal úr 70 gestum niður i 49, svo og að fjarlægja brunaslöngu og brunaviðvörunarkerfi úr veitingahúsi á lóð nr. 101 við Grandagarð.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

13. Kárastígur 1 (01.182.308) 101905 Mál nr. BN039106
Kaffismiðja Íslands ehf, Kárastíg 1, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta rýmisnúmerum, notkun á innra rými og húsnæði á 1. hæð í kaffihúsi og kaffibrennslu og leyfi fyrir uppsetningu reykrörs frá 1. hæð upp fyrir þak húss á lóð nr. 1 við Kárastíg.
Meðfylgjandi er yfirlýsing eigenda hússins. Einnig teikning verkfræðings, sem sýnir loftræsingu.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

14. Kistumelur 10 (34.533.601) 206618 Mál nr. BN039204
Húsbílahöllin ehf, Pósthólf 374, 212 Garðabær
Sótt er um leyfi til að færa langvegg um 150 mm í nýsamþykktu atvinnuhúsi, BN035351 dags. 20. mars 2007, á lóð nr. 10 við Kistumel.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

15. Kleppsvegur 66-68 (01.352.103) 104179 Mál nr. BN039218
Félagsbústaðir hf, Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að útbúa og innrétta íbúð í rými sem áður var hjóla- og vagnageymsla og innrétta nýja hjóla- og vagnageymslu í hluta þurrkrýmis fjölbýlishússins á lóð nr. 66-68 við Kleppsveg.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vantar skráningartöflu.

16. Kringlan 4-12 (01.721.001) 107287 Mál nr. BN039212
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á innra skipulagi salerna í suðurhúsi Kringlunnar á lóð nr. 4 - 12 við Kringluna.
Málinu fylgir yfirlýsing brunahönnuðar dags. 14. nóv. 2008.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

17. Laugavegur 19-19B (01.171.110) 101376 Mál nr. BN039135
Glætan bókakaffi ehf, Hjallabraut 70, 220 Hafnarfjörður
Sótt er leyfi til að opna kaffihús án vínveitinga með smá breytingum á afgreiðsluborði og í eldhúsi í húsi á lóð nr. 19 við Laugaveg.
Fyrirspurn nr. BN039088 dags. 4. nóvember 2008 fylgir málinu. Húsaleigusamningur fyrir Laugaveg 19 fylgir erindinu.
Einnig fylgir samþykki eiganda Laugavegs 19 ódagsett.
Gjald kr.7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

18. Laugavegur 60 (01.173.115) 101532 Mál nr. BN039124
B.R.A.S.S ehf, Laugavegi 60a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta indverskan veitingastað á þremur hæðum í atvinnuhúsinu á lóð nr. 60 við Laugaveg.
Með erindinu fylgir fyrirspurn BN038986.
Samþykki eiganda húseignarinnar fylgir ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. nóvember 2008 og umsögn skipulagsstjóra dags. 14. nóvember 2008.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Vakin er athygli á að umrætt húnæði er á svæði VI.II og því takmarkanir á sölutíma áfengis samanber umsögn skipulagsstjóra.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

19. Laugavegur 86-94 (01.174.330) 198716 Mál nr. BN039206
Anna Ólafsdóttir, Birkihlíð 48, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að sameina tvær íbúðir á 4. hæð í eina íbúð og stækka hana út á þak 3. hæðar í fjölbýlishúsi á lóð nr. 86 - 94 við Laugaveg.
Stækkun: 104,9 ferm., 342,5 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 25.003
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

20. Lofnarbrunnur 1-7 (05.055.401) 206120 Mál nr. BN039202
Stofnás ehf, Jónsgeisla 15, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja fjögurra íbúða staðsteypt, tveggja hæða raðhús með innbyggðum bílgeymslum á lóð nr. 1-7 við Lofnarbrunn.
Stærðir húss nr. 1: 1. hæð íbúð 114,2 ferm., bílgeymsla 26,9 ferm., 2. hæð íbúð 134,9 ferm.,
Hús nr. 3: 1. hæð íbúð 86,3 ferm., bílgeymsla 40,4 ferm.,2. hæð íbúð 120,5 ferm.,
Hús nr. 5: 1. hæð íbúð 108,5 ferm., bílgeymsla 85,9 ferm., 2. hæð íbúð 188,1 ferm.,
Hús nr. 7: 1. hæð íbúð 93,6 ferm., bílgeymsla 31,7 ferm., 2. hæð íbúð 120,7 ferm.
Lofnarbrunnur 1-7 samtals: 1151,7 ferm. og 3798,5 rúmm.
Gjöld kr. 7.300 + 277.290
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

21. Miðtún 78 (01.235.108) 102952 Mál nr. BN038963
Þórunn Sigurfinnsdóttir, Miðtún 78, 105 Reykjavík
Erla Berglind Einarsdóttir, Öldugata 15, 220 Hafnarfjörður
Anna Berglind Jónsdóttir, Öldugata 15, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til breytinga á innra skipulagi í kjallara og á 1. hæð, jafnframt er gerð grein fyrir áður gerðri íbúð í kjallara í íbúðarhúsi á lóð nr. 78 við Miðtún.
Virðingargjörð dagsett 12.12.1951, íbúðarskoðun dagsett 24.07.2008 og önnur dags. 18.11.2008 fylgja erindinu.
Einnig fylgir þinglýst afsal dags. 15. maí 1961 og þinglýstur kaupsamningur dags. 30. janúar 2008.
Gjald kr. 7.300 + 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

22. Norðurbrún 1 (01.352.401) 104190 Mál nr. BN039089
Félagsbústaðir hf, Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja eina hæð ofan á núverandi hús og fjölga íbúðum um 21, klæða allt húsið með málmklæðningu og einangra eldri hlutann undir klæðningu, stækka gluggaop á norður- og suðurhlið í kjallara, setja svalir yfir innganga á 2. og 3. hæð austurhlið, setja neyðarstiga í suðvesturálmu, bæta við lyftu, breyta fjórum íbúðum á 1. og 2. hæð í tvær, og á 2. hæð í suðvesturhorni hússins verði íbúð á 2. hæð breytt í salerni og búningsaðstöðu í fjölbýlishúsi á lóð nr. 1 við Norðurbrún.
Stærðir fyrir stækkun: 3.975,3 ferm., 12.633,1 rúmm.
Stækkun: 1.576,4 ferm., 4.345,3 rúmm.
Eftir stækkun: 5.551,7 ferm., 16.978,4 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.300 + 317.207
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

23. Reynimelur 37 (01.540.210) 106279 Mál nr. BN039223
Maríanna Garðarsdóttir, Reynimelur 37, 107 Reykjavík
Snorri Örn Guðmundsson, Reynimelur 37, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalir og opna frá þeim inn í íbúð á 1. hæð og tröppur niður í garð sbr. fyrirspurn til skipulagsstjóra dags. 7.5. 2008 á íbúðarhúsi á lóð nr. 37 við Reynimel.
Meðfylgjandi eru bréf skipulagsstjóra dags. 15.5. og 19.5 2008
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Sigluvogur 10 (01.414.114) 105109 Mál nr. BN038821
Guðlaug Jóhannesdóttir, Drekavogur 6, 104 Reykjavík
Hreinn Laufdal, Sigluvogur 10, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir stækkun íbúðar í kjallara með útbyggingu með svölum ofan á á efri hæðum og fyrir stækkun kvista á þaki sbr. fyrirspurn BN038120 dags.6.5.2008 í húsi á lóð nr. 10 við Sigluvog.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 19. september 2008 og 21. nóvember 2008 fylgja málinu.
Erindið var grenndarkynnt frá 23. október til og með 20. nóvember 2008. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun kjallari 16,5 ferm., 38,7 rúmm., 2. hæð 87 rúmm. Samtals stækkun 16,5 ferm., 125,7 rúmm.
Samtals eftir stækkun allt húsið 320,9 frm., 887,1 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.300 + 9.176
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

25. Síðumúli 24-26 (01.295.001) 103831 Mál nr. BN039216
Tryggingamiðstöðin hf, Pósthólf 182, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og útliti 1. og 2. hæðar og koma fyrir skiltum á atvinnuhúsinu á lóð nr. 24-26 við Síðumúla.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

26. Skólavörðustígur 42 (01.181.405) 101795 Mál nr. BN038151
R.Guðmundsson ehf, Pósthólf 1143, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja gluggalausan kjallara undir atvinnuhúsið á lóðinni nr. 42 við Skólavörðustíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 23. maí 2008 fylgir erindinu.Stækkun: 158,1 ferm., 382,2 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 7.300 + 27.901
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

27. Smáragata 3 (01.197.215) 102730 Mál nr. BN039143
Agla ehf, Brekkubyggð 69, 210 Garðabær
Emilía Sjöfn Kristinsdóttir, Smáragata 3, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, til að byggja einnar hæðar viðbyggingu við bílskúr og tveggja hæða viðbyggingu við tvíbýlishús ásamt því að fá samþykkta íbúð í kjallara og koma fyrir tveimur nýjum bílastæðum á lóð nr. 3 við Smáragötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. nóvember 2008 fylgir erindinu.
Erindi fylgir einnig virðingargjörð dags. 1. febrúar 1943.
Stækkun: 103,9 ferm., 358,6 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 26.178
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Stigahlíð 45-47 (01.712.101) 107208 Mál nr. BN039208
HH, eignarhaldsfélag ehf, Stigahlíð 45-47, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka Kjúklingastaðinn Suðurver, breyta innra fyrirkomulagi og gera nýjan stiga milli kjallara og 1. hæðar í stað þess sem fyrir er í verslunarhúsi á lóð nr. 45-47 við Stigahlíð.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

29. Suðurlandsbraut 58-64 (01.471.401) 198021 Mál nr. BN039064
Suðurlandsbraut 58-64 ehf, Austurstræti 11, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að sleppa uppsetningu ferkantaðra blómakerja við fjölbýlishús á lóð nr. 58, 60 og 62 við Suðurlandsbraut.
Meðfylgjandi er bréf hönnuðar dags. 28.okt.2008 og skýringaruppdráttur.
Gjald kr. 7.300 + 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

30. Tjarnargata 16 (01.141.303) 100907 Mál nr. BN039146
Hanna Christel Sigurkarlsdóttir, Hverfisgata 59, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi og notkun úr atvinnuhúsnæði í íbúð á 1. hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 16 við Tjarnargötu.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Tunguháls 8 (04.342.101) 179593 Mál nr. BN039209
AMG Byggingafélag ehf, Bíldshöfða 14, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að fjarlægja þakglugga sem eru ætlaðir fyrir reyklosun í húsi á lóð nr. 8 við Tunguháls.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

32. Vatnagarðar 12 (01.337.802) 103916 Mál nr. BN038387
Halldór Gústafsson, Stigahlíð 97, 105 Reykjavík
Mótorverk ehf, Stigahlíð 97, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta frá samþykktum teikningum dags. 13.sept.2005, fjarlægja bílskýli, stækka reyklosunarop, breyta hurðum og gluggum til samræmis við reynd, lagfæra aðstöðu starfsmanna og milliloft í atvinnuhúsi á lóð nr. 12 við Vatnagarða.
Gjald kr. 7.300 + 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

33. Vesturgata 25 (01.136.002) 100505 Mál nr. BN039222
Baldur E Jensson, Hringbraut 50, 107 Reykjavík
Eyjólfur Baldursson, Bjarmaland 24, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningar, núverandi ástand með áorðnum breytingum frá upphafi, af íbúðarhúsi á lóð nr. 25 við Vesturgötu.
Meðfylgjandi er bréf frá arkitekt.
Gjald kr. 7.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Vogaland 2 (01.880.601) 108859 Mál nr. BN039205
Guðríður Inga Sigurjónsdóttir, Vogaland 2, 108 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi BN034978 dags. 28. nóvember 2006, þar sem veitt var leyfi til að grafa út og innrétta áður óútgrafið rými í kjallara, að breyta innra skipulagi á efri og neðri hæð, að byggja tveggja metra háan stoðvegg á lóðamörkum að Vogalandi 4, að byggja lágan steyptan vegg á lóð og til að breyta útliti á norðausturhlið einbýlishússins á lóðinni nr. 2 við Vogaland.
Málinu fylgir samþykki eigenda Vogalands nr. 4 dags. 7. nóvember 2006.
Stærð: Stækkun 31 ferm., 79,3 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 5.789
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

35. Ægisgata 10 (01.131.213) 100182 Mál nr. BN039004
Frjálsi fjárfestingarbankinn hf, Lágmúla 6, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skiplagi íbúða 0102 og 0103 á 1. hæð svo og innrétta þrjár geymslur í staðinn fyrir tvær í kjallara í fjölbýlishúsi á lóð nr. 10 við Ægisgötu.
Umsögn gatna- og eignaumsýslu dgs. 21. nóv. 2008 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.300 + 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

Ýmis mál

36. Boðagrandi 9 (01.521.405) 105956 Mál nr. BN039226
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að sameina lóðirnar Boðagranda 9 og lóð, sem merkt er #GLgrenndarvöllur#GL á mæliblaði (hjá Fasteignamati ríkisins er hún skráð Boðagrandi 105953) í eina lóð eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti landupplýsingadeildar dags. 28. maí 2008. Deiliskipulagsbreytingin var samþykkt í skipulagsráði 16. apríl 2008, í borgarráði 25. apríl 2008 og var birt í B-deild stjórnartíðinda 19. maí 2008.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðarmarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.

Fyrirspurnir

37. Austurberg 28-38 (04.670.7--) 112108 Mál nr. BN038307
Hilmar Bjarnason, Esjugrund 18, 116 Reykjavík
Spurt er hvort taka megi gang í sameign á jarðhæð, þvottahús og geymslur og bæta við íbúðir á jarðhæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 34 við Austurberg.
Nei.
Rýrir gæði hússins í heild og er ekki í samræmi við ákvæði gr. 104.1 í byggingarreglugerð nr. 441/1998.

38. Gufunes Áburðarverksm (02.220.001) 108955 Mál nr. BN039198
Plúsarkitektar ehf, Laugavegi 59, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fáist fyrir endurvinnslu á heyrúlluplasti í skemmu sem er 1155,6 ferm. á lóð með staðgreini 2.220.001 í Gufunesi.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.
Fyrirspyrjandi hafi samband við heilbrigðiseftirlit.

39. Hverfisgata 37 (01.152.422) 101067 Mál nr. BN039199
Magnús Albert Jensson, Langagerði 88, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fáist til að fjarlægja núverandi tröppur sem eru steinsteyptar og illa farnar og setja timburtröppur í sömu stærð og í stíl hússins upp við hús á lóð nr. 37 við Hverfisgötu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og því fylgi jákvæðar umsagnir Húsafriðunarnefndar og Minjasafns Reykjavíkur.

40. Laugavegur 60 (01.173.115) 101532 Mál nr. BN039175
Pétur Heiðar Egilsson, Breiðvangur 2, 220 Hafnarfjörður
Rosita Yufan Zhang, Breiðvangur 2, 220 Hafnarfjörður
Spurt er hvort leyfi fáist fyrir skyndibitastað á jarðhæð í ca 100 ferm. rými í húsi á lóð nr. 60 við Laugarveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 21. nóvember 2008 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 20. nóvember 2008.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.
Athygli er vakin á að umrætt hús er á verslunarsvæði sem skráð er VI.II og því takmarkanir á sölutíma áfengis.

41. Laugavegur 86-94 (01.174.330) 198716 Mál nr. BN039207
Arnar Hannes Gestsson, Birkihlíð 48, 105 Reykjavík
Spurt er hvort setja megi glugga á austurgafl 4. hæðar fjölbýlishúss á lóð nr. 86 - 94 við Laugarveg.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og því fylgi tilskilin samþykki samanber fjöleigarhúsalög.

42. Skúlagata 42-46 (01.154.403) 101133 Mál nr. BN039180
Einar Pétur Heiðarsson, Skúlagata 46, 101 Reykjavík
Spurt er hvort sækja þurfi um byggingarleyfi vegna breytinga á skipulagi og akstursleiðum við fjölbýlishúsin á lóð nr. 42-46 við Skúlagötu.
Sækja verður byggingarleyfi samaber meðfylgjandi athugasemdir á fyrirspurnarblaði.

43. Skúlagata 64-80 (01.222.212) 102874 Mál nr. BN039213
Félagsbústaðir hf, Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík
Spurt er hvort setja megi lyftu við suðursvalir til að bæta aðgengi að íbúðum fjölbýlishúss á lóð nr. 64 - 66 við Skúlagötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

44. Varmadalur 2 (00.080.021) 125766 Mál nr. BN039215
Jón Sverrir Jónsson, Varmadalur 2, 116 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fáist til að byggja 300 ferm. vélaskemmu á landi sem er um 29.000 ferm. Umsækjandi er með rekstur á sviði jarðvinnu og vélaleigu og er aðstaða þessi nauðsynileg fyrir framþróun fyrirtæksins í landi Varmadals 2.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

45. Vitastígur Iðnskóli (01.192.001) 102508 Mál nr. BN039221
Plúsarkitektar ehf, Laugavegi 59, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fáist til að breyta innra fyrirkomulagi í kjallara og á 1. hæð svo og að byggja svalir á 1. hæð og setja nýjan glugga á vesturgafl Tækniskólans á lóð efst við Vitastíg, landnr. 102508.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

Fundi slitið kl. 12:17.

Magnús Sædal Svavarsson

Sigrún Reynisdóttir Þórður Búason
Jón Hafberg Björnsson Eva Geirsdóttir