Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulags- og byggingarnefnd

Ár 2004, miðvikudaginn 15. desember kl. 09:05, var haldinn 184. fundur skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 3, 4. hæð. Viðstaddir voru: Dagur B. Eggertsson, Anna Kristinsdóttir, Óskar Dýrmundur Ólafsson, Björn Ingi Hrafnsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Kristján Guðmundsson, Benedikt Geirsson og áheyrnarfulltrúinn Sveinn Aðalsteinsson. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Salvör Jónsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Helga Bragadóttir, Ágúst Jónsson, Ólafur Bjarnason, Jón Árni Halldórsson og Sigríður Kristín Þórisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Björn Ingi Sveinsson, Jóhannes Kjarval, Margrét Þormar, Nikulás Úlfar Másson, Margrét Leifsdóttir og Ólöf Örvarsdóttir. Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Reitur 1.240.3, Snorrabrautarreitur, deiliskipulag (01.240.3) Mál nr. SN030424
Að lokinni kynningu fyrir hagsmunaaðilum er lögð fram að nýju tillaga Gunnars og Reynis skipulagsráðgjafa, dags. 9.08.04 að deiliskipulagi Snorrabrautarreits. Eftirfarandi aðilar lögð fram athugasemdir: Saida El-Bouazzati, Grettisgötu 92, Ragnheiður Aradóttir, Flókagötu 14, dags. 03.09.04, ÁHÁ - byggingar ehf, dags. 01.09.04, Jón Kjartansson Grettisgötu 94, dags. 9.09.04, Haukur Haraldsson f.h. samtakanna #GLLifi Norðurmýrin! íbúasamtök#GL, dags. 10.09.04 og 12.10.04 ásamt undirskriftalista með nöfnum 83 íbúa.
Ahugasemdir kynntar. Frestað.

Aheyrnarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra Sveinn Aðalsteinsson óskaði bókað:
Frjálslyndir og óháðir leggjast gegn áformum um að reisa þriggja hæða íbúðarbyggingu á svonefndum Snorrabrautarreit, á lóðinni bakvið Austurbæjarbíó. Frjálslyndir og óháðir styðja nýtingu lóðarinnar sem græns svæðis, en að leiðum sé haldið opnum til styrkingar starfsemi Austurbæjarbíós sem menningar- og tónlistarhúss.

2. Borgartún 17, breyting á deiliskipulagi (01.217.7) Mál nr. SN040675
Lögð fram tillaga T.ark ehf, dags. 18.11.04, að breytingu á deiliskipulagi á lóðunum nr. 17 og 19 við Borgartún vegna stækkunar hússins á lóðinni nr. 19 við Borgartún og sameiningar lóðanna nr. 17 og 19. Einnig lagt fram afsal fyrir Borgartún 19 til Kaupþings Búnaðarbanka hf, dags. 1. desember 2004.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óskuðu bókað:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja að senda tillöguna í auglýsingu með öllum hefðbundnum fyrirvörum um endanlega afstöðu.

3. Smáragötureitir, deiliskipulag (01.197) Mál nr. SN040446
Að lokinni hagsmunaaðilakynningu er lögð fram tillaga Arkitektur.is ehf ásamt greinargerð og deiliskipulagsskilmálum, dags. í september 2004, að deiliskipulagi reita 1.197.2 og 1.197.3, Smáragötureita, sem afmarkast af Smáragötu, Njarðargötu, Laufásvegi og Einarsgarði. Eftirfarandi aðilar sendu inn athugasemdir: Stefán Matthíasson og Ásdís Ólöf Gestsdóttir, Smáragötu 13, dags. 3.10.04, skrifstofa forseta Íslands, dags. 14.10.04, Forsætisráðuneytið, dags. 14.10.04, Hans Jakob Beck, Smáragötu 11, dags. 17.10.04, Guðmundur Ósvaldsson, Burknabergi 8, f.h. eigenda Laufásvegi 60, dags. 21.10.04, Ögmundur Skarphéðinsson, dags. 15.10.04. Einnig lögð fram breytt tillaga dags. 11.11.04 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa við athugasemdum dags. 12.11.04.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óskuðu bókað:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja að senda tillöguna í auglýsingu með öllum hefðbundnum fyrirvörum um endanlega afstöðu.

Björn Ingi Hrafnsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

4. Pósthússtrætisreitur, forsögn (01.140) Mál nr. SN040497
Lögð fram forsögn að reit 1.140.5 Pósthússtrætisreits, dags. í september 2004.
Samþykkt að kynna forsögnina fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu.

5. Reitur 1.141.2, Kirkjutorgsreitur, (01.141.2) Mál nr. SN040659
Lögð fram forsögn að reit 1.141.2, Kirkjutorgsreit, dags. í desember 2004.
Samþykkt að kynna forsögnina fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu.

6. Lækjargata 12, frumathugun að Borgarhúsi (01.141.2) Mál nr. SN040624
Lagt fram bréf teiknistofu Halldórs Guðmundssonar, dags. 15.11.04 ásamt uppdr., dags. 12.11.04 og skuggavarpi, dags. 18.11.04, varðandi uppbyggingu á lóð nr. 12 við Lækjargötu.
Halldór Guðmundsson, arkitekt kynnti.

7. Blesugróf, stgr. 1.885 og 1.889, breyting á deiliskipulagi (01.885) Mál nr. SN040056
Að lokinni auglýsingu er lagður fram leiðréttur uppdráttur Eon arkitekta ásamt greinargerð, að breytingu á deiliskipulagi í Blesugróf, stgr. 1.885 og 1.889, dags. í desember 2004. Auglýsingin stóð yfir frá 18. ágúst til 29. september 2004. Eftirfarandi aðilar sendu inn athugasemdir: Lúther S. Kristjánsson, Jöldugróf 2, dags. 02.09.04, Benedikt Lund, Blesugróf 14, dags. 06.09.04, Árni Freyr Sigurlaugsson og Katrín Guðmundsdóttir, Bleikargróf 5, dags. 01.09.04, Bára Magnúsdóttir, Jöldugróf 18, dags. 31.08.04, Bergþóra Ögmundsdóttir Blesugróf 15, dags. 18.09.04, Halldór Zoega Bleikargróf 1, dags. 27.09.04, Magnús Jensson ark. f.h. eiganda Blesugrófar 27, dags. 27.09.04, Birgir Dýrfjörð Stjörnugróf 29, dags. mótt. 29.09.04, Guðrún Jakobsdóttir formaður samtaka íbúa í Blesugróf, dags. 16.09.04. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa um athugasemdir, dags. 9. desember 2004.
Auglýst tillaga samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa.
Vísað til borgarráðs.

8. Skeifan 5, breyting á deiliskipulagi (01.461.0) Mál nr. SN040462
Lögð fram tillaga Teiknistofunnar Traðar að breytingu á deiliskipulagi, dags. 10.12.04, á lóð nr. 5 við Skeifuna ásamt umboði lóðarhafa Skeifunnar 5, dags. 6.07.04.

Helga Bragadóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Málinu vísað til kynningar í samgöngunefnd og umhverfis- og heilbrigðisnefnd.

9. Sólheimareitur, deiliskipulag (01.433) Mál nr. SN010382
Lögð fram ný tillaga Arkibúllunar ehf, dags. 17. september 2004, að deiliskipulagi Sólheimareits. Eldri tillaga var í auglýsingu frá 17. maí til 28. júní 2002, athugasemdafrestur var til 28. júní 2002. Athugasemdabréf bárust frá Lögmönnum við Austurvöll, f.h. húseigenda að Sólheimum 35, dags. 28.05.02, stjórn Húsfélagsins Sólheimum 27, dags. 11.06.02, stjórn Húsfélagsins Sólheimum 25 f.h. 32 íbúa, dags. 26.06.02 og eigenda íbúða að Sólheimum 42, dags. 27.06.02. Einnig lagt fram samþykki Andrésar H. Hallgrímssonar, Sólheimum 38, dags. 24.06.02. Ennfremur lagðir fram minnispunktar af kynningarfundi með hagsmunaaðilum að Sólheimum 35 frá 27. maí 2002 og samantekt skipulagsfulltrúa, dags. 28.06.02.
Athugasemdir kynntar. Frestað á milli funda.

10. Fossaleynir, breyting á deiliskipulagi (02.46) Mál nr. SN040151
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Fossaleyni, dags. 19.03.04. Málið var í kynningu frá 14. apríl til 12. maí 2004. Einnig lagt fram athugasemdarbréf Sigurbjörns Þorbergssonar hdl. f.h. Borgarhallarinnar Fossaleyni 1, dags. 11.05.04. Lagður fram tölvupóstur rekstrarstjóra Nýsis h.f. rekstrarstjóra Borgarhallarinnar, dags. 10.12.04, varðandi göngustíg í lóðarmörkum Egilshallar. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 13. desember 2004.
Kynnt tillaga samþykkt.
Vísað til borgarráðs.

(B) Byggingarmál

11. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN030677
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 328 frá 14. desember 2004.

12. Kambsvegur 32, reyndarteikningar (01.383.006) Mál nr. BN030324
Torfi Rafn Hjálmarsson, Kambsvegur 32, 104 Reykjavík
Jónas Jónasson, Kambsvegur 32, 104 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsóknar er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 26. október 2004, þar sem sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi hússins á lóðinni nr. 32 við Kambsveg, samkv. uppdr. Sigríðar Sigurðardóttur arkitekts, dags. í september 2004.
Á teikningum er m.a. gerð grein fyrir fjölgun bílastæða á lóð, áður gerðri sólstofu og áður gerðri íbúð á neðri hæð hússins. Bréf hönnuðar dags. 14. október 2004 fylgir erindinu. Málið var í kynningu frá 9. nóvember til 7. desember 2004. Engar athugasemdir bárust.
Stærð: Stækkun sólstofa. xx
Gjald kr. 5.400 + xx
Nefndin gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

13. Krókavað 14-18, nýbygging (04.731.702) Mál nr. BN030667
Sparisjóður Hafnarfjarðar, Strandgötu 8-10, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til þess að byggja þrjú steinsteypt, tvílyft tvíbýlishús með sex íbúðum og þremur bílgeymslum á lóðinni nr. 14-16 við Krókavað.
Stærð: xx
Gjald kr. 5.400 + xx
Nefndin gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

14. Krókavað 2-12, nýbygging (04.731.802) Mál nr. BN030665
Sparisjóður Hafnarfjarðar, Strandgötu 8-10, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til þess að byggja sex steinsteypt, tvílyft tvíbýlishús með tólf íbúðum og sex bílgeymslum á lóðinni nr. 2-12 við Krókavað.
Stærð: xx
Gjald kr. 5.400 + xx
Nefndin gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

15. Laufásvegur Valur, stækkun Hlíðarenda (01.628.801) Mál nr. BN030664
Knattspyrnufélagið Valur, Laufásvegi Hlíðarenda, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja nýjan íþróttasal við Hlíðarenda ásamt áhorfendastúku áfast við suðurhlið salar, aðkomubyggingu og bætta aðstöðu fyrir Val á lóð félagsins við Laufásveg.
Brunahönnun VST dags. dessember 2004 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun samtals 3626 ferm., 21.335 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 1.152.090
Nefndin gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

16. Ránargata 36, smáhús, pottur og pallur (01.135.012) Mál nr. BN030090
Guðrún Karlsdóttir, Ránargata 36, 101 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsóknar er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 14. sepember 2004, þar sem sótt er um leyfi til að reisa smáhús úr timbri (bjálkakofa) og sólpall aftan við einbýlishúsið nr. 36 við Ránargötu, samkv. uppdr. Arkitektastofunnar Austurvöllur, dags. 15.08.04. Jafnframt verði komið fyrir setlaug í sólpalli. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 29. október 2004. Málið var í kynningu frá 9. nóvember til 7. desember 2004. Engar athugasemdir bárust.
Stærð: 5 ferm. og 12 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 648
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

(C) Fyrirspurnir

17. Blesugróf, stgr. 1.885 og 1.889, lóð fyrir sambýli (01.885) Mál nr. SN040679
Lögð fram fyrirspurn félagsmálaráðuneytis f.h. Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík, dags. 29.01.04, um lóð undir sambýli fyrir fatlaða. Einnig lögð fram fyrirspurn skrifstofustjóra borgarverkfræðings, varðandi lóð fyrir sambýli í Blesugróf.
Nefndin tekur jákvætt í að unnin verði tillaga að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við fyrirspurn.

18. Hrísateigur 6, (01.360.5) Mál nr. SN040544
Teiknistofa Ingimund Sveins ehf, Ingólfsstræti 3, 101 Reykjavík
Lögð fram fyrirspurn Ingimundar Sveinssonar arkitekts, dags. 14. október 2004, um leyfi fyrir byggingu þriggja parhúsa á lóðinni nr. 6 við Hrísateig og 2 á lóðunum nr. 4-6 við Hraunteig.

Anna Kristinsdóttir vék af fundi kl. 10:53 áður höfðu verið afgreiddir liðir nr. 1-7 og 17.

Frestað á milli funda.

(D) Ýmis mál

19. Afgreiðslufundir Skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa Reykjavíkur frá 10. desember 2004.

20. Kirkjuteigur 24, Laugarnesskóli, kæra (01.363.0) Mál nr. SN040556
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 9. desember 2004, vegna kæru á samþykkt skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur frá 11. ágúst 2004, um breytingu á deiliskipulagi fyrir Kirkjuteig 24, Laugarnesskóla.
Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur frá 11. ágúst 2004 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi á hluta Teigahverfis.

21. Mýrargötusvæði, (01.13) Mál nr. SN040566
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 2. desember 2004 á bókun skipulags- og byggingarnefndar frá 27. október s.l., varðandi breytingu á áður samþykktri tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna Mýrargötusvæðis, sbr. 15. liður borgarráðs 22. júní s.l., sbr. einnig samþykkt hafnarstjórnar 17. f.m.

22. Rauðagerði 25-27, breyting á deiliskipulagi (01.821.2) Mál nr. SN030387
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 2. desember 2004 á bókun skipulags- og byggingarnefndar frá 24. f.m. varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 25-27 við Rauðagerði.

23. Suðurhólar 35, deiliskipulag (04.645.9) Mál nr. SN020103
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 2. desember 2004 á bókun skipulags- og byggingarnefndar frá 24. f.m., varðandi auglýsingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 35 við Suðurhóla.

24. Þorláksgeisli 9, breyting á deiliskipulagi (05.136.2) Mál nr. SN040180
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarstjórnar um samþykkt borgarstjórnar 7. desember 2004, á breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 9 við Þorláksgeisla, sbr. 8. lið fundargerðar borgarráðs frá 18. nóvember s.l.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 11:15.

Dagur B. Eggertsson
Anna Kristinsdóttir Óskar Dýrmundur Ólafsson
Björn Ingi Hrafnsson Guðlaugur Þór Þórðarson
Kristján Guðmundsson Benedikt Geirsson

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. reglugerð nr. 558/2003
Árið 2004, þriðjudaginn 14. desember kl. 09:30 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 328. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulags- og byggingarnefndar. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 4. hæð Borgartúni 3. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Bjarni Þór Jónsson, Þórður Búason, Helga Guðmundsdóttir, Sigurður Pálmi Ásbergsson og Sigríður Kristín Þórisdóttir.
Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Austurstræti 17, br. verslun (01.140.308) Mál nr. BN030659
Eik fasteignafélag hf, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi í kjallara og í verslun á fyrstu hæð hússins á lóðinni nr. 17 við Austurstræti.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Álfaland 4, gluggar á suðausturhlið kjallara (01.847.106) Mál nr. BN030470
Guðbjörg Haraldsdóttir, Naustabryggja 26, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir gluggum á suðausturhlið geymslu og tómstundaherbergis í kjallara hússins nr. 2-4 við Álfaland.
Bréf meðumsækjenda dags. 25. nóvember 2004 fylgir erindinu.
Samþykki meðeigenda áritað á teikningu og dags. 8. desember 2004 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

3. Ármúli 26, þak, br. inni og úti (01.292.102) Mál nr. BN030259
Saxhóll ehf, Nóatúni 17, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi beggja hæða, byggja milliloft fyrir loftræstirými, breyta glerþaki yfir áður #GLgarði#GL á 2. hæð með upplyftu þaki, breyta gluggum og dyrum á 1. hæð, byggja skyggni yfir aðalinngang að verslun 1. hæð, fjölga bílastæðum um tvö og gerð er grein fyrir inntaksrými undir hluta 1. hæðar atvinnuhússins á lóð nr. 26 við Ármúla.
Erindið var grenndarkynnt frá 3. nóvember til 1. desember 2004. Engar athugasemdir bárust.
Bréf hönnuðar dags. 18. nóvember 2004 fylgir erindinu.
Stærð: Áður gerður kjallari 16,5 ferm., 38,8 rúmm., milliloft 52,3 ferm. og þar af 39,3 ferm. með salarhæð undir 1,8 m, rúmmálsaukning vegna breytts þaks 29,2 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 3.672
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

4. Ásvegur 10, kvistur (01.354.207) Mál nr. BN030638
Helgi Kristinn Eiríksson, Ofanleiti 3, 103 Reykjavík
Ingi Már Helgason, Vesturbrún 16, 104 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri áhaldageymslu við bílskýli og áður gerðum kvisti á norðurþekju hússins á lóðinni nr. 10 við Ásveg.
Stærð: Stækkun áhaldageymsla xx kvistur xx
Gjald kr. 5.400 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

5. Bakkastaðir 79-79B, 3 sólskálar (02.407.702) Mál nr. BN030623
Ólafur Már Ólafsson, Bakkastaðir 79, 112 Reykjavík
Pétur Jónsson, Bakkastaðir 79b, 112 Reykjavík
Guðlaugur Wium Hansson, Bakkastaðir 79, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja sólskála á norðursvalir 2. hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 79 við Bakkastaði.
Ath. erindi mjög svipaðs eðlis var samþykkt 16. október 2001, gluggapóstum hefur verið lítillega breytt.
Samþykki meðeigenda dags. 6. desember fylgir erindinu.
Stærð: Sólskálar (3 stk.) samtals 24,7 ferm., 58,9 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 3.181
Frestað.
Lagfæra skráningu.

6. Baldursgata 13, áður gerðar br. í kj.ósamþykkt íbúð (01.184.511) Mál nr. BN030420
Stefán Magnússon, Baldursgata 13, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir breyttu innra skipulagi kjallara þar með talið fyrir afmörkun ósamþykktrar íbúðar í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 13 við Baldursgötu.
Samþykki meðeigenda dags. 26. október 2004, umboð vegna undirskriftar ódags. ásamt afsali fyrir séreign í kjallara innfært 29. janúar 1988fylgja erindinu.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Afmörkun ósamþykktrar íbúðar er gerð með vísan til 15. gr. reglugerðar nr. 910/2000.

7. Bergstaðastræti 12, nr. 12A rífa ris, byggja hæð og ris (01.180.211) Mál nr. BN030627
Hraunbær 107 ehf, Tangarhöfða 6, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypta viðbyggingu sem er þrjár hæðir og ris að suðurhlið húss og rífa rishæð og byggja í hennar stað hæð og ris ofan á húsið nr. 12A (matshl. 01) við Bergstaðastræti.
Eftir breytinguna verða tólf íbúðir í húsinu en eru nú þrjár.
Stærð: xx
Gjald kr. 5.400 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

8. Bergstaðastræti 12B, viðbygging 4 íbúðir (01.180.211) Mál nr. BN030583
Hraunbær 107 ehf, Tangarhöfða 6, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa framhlið hússins nr. 12B á lóðinni nr. 12 við Bergstaðatræti og byggja þess í stað viðbyggingu meðfram allri hliðinni. Jafnframt verði komið fyrir fjórum íbúðum í húsinu og átta bílastæðum á lóðinni.
Samkvæmt samþykktum teikningum eru vinnustofa og íbúð í húsinu.
Stækkun: xx
Gjald kr. 5.400 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

9. Bollagata 8, reyndarteikningar (01.247.802) Mál nr. BN030647
Axel Viðar Hilmarsson, Bólstaðarhlíð 36, 105 Reykjavík
Ari Þráinsson, Bollagata 8, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum í kjallara þar með talið fyrir afmörkun ósamþykktrar íbúðar (0002) í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 8 við Bollagötu.
Samþykki meðeigenda dags. 3. desember 2004 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

10. Borgartún 34 og 36, breytingar (01.232.002) Mál nr. BN030651
Guðmundur Jónasson ehf, Borgartúni 34, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi í húsi nr. 34 (matshl. 01) á lóðinni nr. 34-36 við Borgartún.
Gerð er grein fyrir breytingum á eldvörnum hússins og breytingum á innra fyrirkomulagi gistiheimilis á annarri, þriðju og fjórðu hæð.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

11. Brautarholt 22, reyndarteikn.veitingahús (01.250.101) Mál nr. BN026043
Vesturgata 4 ehf, Helluhrauni 14, 220 Hafnarfjörður

Sótt er um samþykki fyrir leiðréttum teikningum af innra fyrirkomulagi fyrstu hæðar hússins á lóðinni nr. 22 við Brautarholt.
Gerð er grein fyrir breytingu á kæli- og frystigeymslu og einnig er sýnt skýli fyrir loftpressu undir húsvegg á austurhlið.
Samþykki meðeigenda og samþykki eigenda Skipholts 21 (á teikn.) fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

12. Dugguvogur 7, áður gerðar br.,gistih. (01.454.114) Mál nr. BN029903
K-2 ehf, Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi hússins, úr verkstæði í gistiheimili með samtals 8 gistirýmum, á annarri og þriðju hæð ásamt útlitsbreytingu á vesturhlið atvinnuhússins á lóð nr. 7 við Dugguvog.
Jafnframt er erindi 25546 dregið til baka.
Ljósrit af eignaskiptayfirlýsingu dags. 1. júní 1979 og fundargerð húsfundar dags. 19. nóvember 2004 fylgja erindinu.
Gjald kr. 5.400 + 5.400
Frestað.
Lagfæra skráningu.

13. Efstaleiti 1, reyndarteikningar (01.745.401) Mál nr. BN030561
Ríkisútvarpið, Efstaleiti 1, 150 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri stækkun eldhúss í áður óráðstafað rými á 1. hæð, fyrir breytingu áður bílastæða á norðvesturhluta 1. hæðar í leikmyndageymslu, breytingu á innra skipulagi vinnuaðstöðu á 2. hæð ásamt samþykki fyrir uppfærðri afstöðumynd sem sýnir 29 viðbótar bílastæði svipað og samþykkt var 2001 norðan við Útvarpshúsið á lóð nr. 1 við Efstaleiti.
Jafnframt er erindi 22278 dregið til baka.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

14. Einholt 2, br. á íbúðum 3. h (01.244.101) Mál nr. BN030661
E2 ehf, Einholti 2, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi íbúða á 3. hæð, breyta skiptingu milli íbúða 3. hæðar og stærð stigahúsa sömu hæðar fjöleignarhússins á lóð nr. 2 við Einholt.
Bréf hönnuðar dags. 7. desember 2004 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

15. Esjugrund 62, byggja bílskúr (32.475.310) Mál nr. BN030616
Magnús Kristinsson, Esjugrund 62, 116 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja bílskúr úr steinsteypu á lóðinni nr. 62 við Esjugrund.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. desember 2004 fylgir erindinu.
Stærð: Bílskúr 34,3 ferm. og 113,2 rúmm.
Gjald kr. 5.400 +6.113
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

16. Flókagata 62, sólstofa, reyndarteikning (01.270.105) Mál nr. BN030644
Bjarni Már Bjarnason, Flókagata 62, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi í kjallara og leyfi til þess að byggja sólhýsi á hluta svala efstu hæðar íbúðarhússins á lóð nr. 62 við Flókagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa (v. fyrirspurnar) frá 16. apríl 2004 fylgir erindinu. Umboð eins eiganda dags. 3. júní 2004 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun sólhýsi 15,3 ferm. og 36,7 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 1.982
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Að þeim uppfylltum verður málið sent skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu.

17. Flugvallarv. Keiluh., skrifstofubygging (01.751.201) Mál nr. BN030653
Aðhald ehf, Aftanhæð 1, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til þess að byggja við núverandi sorpgeymslu og byggja 2. hæð fyrir skrifstofu þar ofan á, minnka nýsamþykkta viðbyggingu við suðurhlið og fjölga bílastæðum á lóð Keiluhallarinnar við Flugvallaveg.
Stærð: Nýsamþykkt viðbygging var samtals 590,9 ferm. verður xxx
Gjald kr. 5.400 + xxx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

18. Grenimelur 39, svalir ofl. (01.524.406) Mál nr. BN030150
Margrét Sigurðardóttir, Grenimelur 39, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja svalir við suðvesturhlið 3. hæðar ásamt leyfi fyrir minniháttar breytingum á innra skipulagi íbúðar 3. hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 39 við Grenimel.
Erindið var grenndarkynnt frá 28. september til 26. október 2004. Engar athugasemdir bárust.
Samþykki meðeigenda dags. 13. september 2004 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400 + 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

19. Grettisgata 2, br. atvinnuh.í íb. (01.182.102) Mál nr. BN030457
Snóker- og Poolstofan ehf, Lágmúla 5, 108 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri viðbyggingu við suðvesturhorn bakhúss nr. 2B, leyfi til þess að sameina matshluta 02 og 03 og breyta núverandi matshluta 04 í matshluta 03, sótt er um leyfi til þess að bæta brunaþol veggja áður gerðrar viðbyggingar og loka glugga á suðurhlið ásamt leyfi til þess að innrétta íbúð í atvinnuhúsinu nr. 2B (matshl. 02) á lóð nr. 2 við Grettisgötu.
Samþykki meðlóðarhafa dags. 23. ágúst og 28. október 2004 fylgir erindinu.
Stærð: Áður gerð stækkun 16 ferm., 40,7 rúmm. Áður gerð stækkun útigeymslu (matshl. 03) 2,4 ferm., 5,2 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 2.479
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

20. Guðríðarstígur 2-4, atvinnuhúsnæði (04.121.301) Mál nr. BN030148
Fróðengi ehf, Hamravík 62, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja þriggja hæða steinsteypt skrifstofu- og verslunarhús allt einangrað að utan og klætt að mestu með glerklæðningu og grásvörtum veggflísum á lóð nr. 2-4 við Guðríðarstíg.
Bréf verkfræðistofunnar Ferils ódags., samþykki lóðarhafa Guðríðarstígs 6-8 vegna nálægðar skábrautar innfært 19. nóvember 2004 og bréf hönnuðar ódags. fylgja erindinu.
Stærð: 1. hæð 864,1 ferm., 2. hæð 858,2 ferm., 3. hæð 858,2 ferm., samtals 2580,5 ferm., 10556,8 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 570.067
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Vottun þakeininga skal skila fyrir úttekt á botnplötu.

21. Guðrúnargata 3, stækka svalir á 1. og 2.h (01.247.407) Mál nr. BN030575
Eggert Bjarni Thorlacius, Guðrúnargata 3, 105 Reykjavík
Þorbjörg Eva Erlendsdóttir, Guðrúnargata 3, 105 Reykjavík
Pálína Jóhannsdóttir, Guðrúnargata 3, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja stærri svalir úr stáli í stað núverandi steinsteyptra svala á 1. og 2. hæð, frá nýjum svölum 1. hæðar koma tröppur niður í garð við íbúðarhúsið á lóð nr. 3 við Guðrúnargötu.
Samþykki meðeigenda dags. 18. nóvember 2004 fylgir erindinu. Jafnframt lögð fram úrskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. desember 2004.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

22. Haðarstígur 8, reyndarteikningar (01.186.620) Mál nr. BN030573
Þór Sigurbjörnsson, Garðaflöt 7, 210 Garðabær
Þuríður Björnsdóttir, Garðaflöt 7, 210 Garðabær
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi hússins á lóðinni nr. 8 við Haðarstíg.
Útlit þaks og kvista á norðvesturhlið er breytt, svalir á suðausturhlið eru dýpri en samþykkt var áður, útlit glugga á suðvesturgafli og suðausturhlið er breytt og kjallari hefur verið stækkaður í óuppfyllt rými.
Stærð: Stækkun kjallari 28,1 ferm. og 45,3 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 2.446
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

23. Hallsvegur 13, steyptir veggir, hlið (02.550.201) Mál nr. BN030634
Kirkjugarðar Reykjavíkur, Suðurhlíð, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að reisa steypta veggi og hlið (sáluhlið) við heimreið að Gufuneskirkjugarði á lóðinni nr. 13 við Hallsveg.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

24. Háagerði 23, stækkun kjallara (01.815.212) Mál nr. BN029545
Björn Ólafur Hallgrímsson, Sigluvogur 13, 104 Reykjavík
Fanney Helgadóttir, Hraunbær 166, 110 Reykjavík
Skarphéðinn Skarphéðinsson, Háagerði 23, 108 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri stækkun kjallara í sökkulrými og áður gerðum kjallaratröppum við suðurhlið íbúðarhúss á lóð nr. 23 við Háagerði vegna gerðar eignaskiptayfirlýsingar.
Afsalsbréf (v. íbúðar 0201) dags. 24. nóvember 1967 fylgir erindinu. Samþykki meðeiganda dags. 9. desember 2004 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun kjallari 7,9 ferm. og 18,2 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 983
Frestað.
Lagfæra skráningu.

25. Hólaberg 82, reyndarteikningar (04.673.405) Mál nr. BN029769
Jónas Guðlaugsson, Hólaberg 82, 111 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum gluggalausum kjallara undir íbúðarhúsi (matshluta 01) ásamt áður gerðum útitröppum sem aðkomu að kjallaranum og fyrir áður gerðum kjallara undir framhúsi (matshluta 02) ásamt breyttu innra skipulagi þess húss á lóð nr. 82 við Hólaberg.
Jafnframt lögð fram útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. júlí 2004.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 23. ágúst 2004 fylgir erindinu.
Stærð: Áður gerður kjallari (matshl. 01) 111,8 ferm., 275,7 rúmm., (matshl. 02) 90 ferm., 234,9 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 27.572
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

26. Hólmaslóð 10, br. á hluta 1. h (01.110.502) Mál nr. BN030668
Skeljungur hf, Hólmaslóð 8, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta hluta lagers á 1. hæð í dæluverkstæði frá norðurhlið og skrifstofur frá suðurhlið með niðurteknu lofti yfir og gluggum í stað vörudyra á atvinnuhúsinu á lóð nr. 10 við Hólmaslóð.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Lagfæra skráningu.

27. Hraunbær 103-105, svalaskýli á 11 íbúðir nr. 103 (04.331.102) Mál nr. BN030662
Gísli Þór Sigurðsson, Hraunbær 103, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja svalaskýli á svölum ellefu íbúða í húsinu nr. 103 á lóðinni nr. 103-105 við Hraunbæ.
Eignanúmer íbúða sem sækja um svalalokun eru:
Íbúð 0204, 0205, 0206, 0301, 0406, 0506, 0603, 0701, 0703, 0704 og 0901.
Stærð: Svalaskýli xx
Gjald kr. 5.400 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Hringbraut 92, byggja pall og brunastiga (01.139.210) Mál nr. BN030646
Sylvía Hilmarsdóttir, Hringbraut 92, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að setja upp flóttapall með tröppum niður í garð undir björgunaropi á suðurhlið 1. hæðar tvíbýlishússins á lóð nr. 92 við Hringbraut.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vantar samþykki meðeigenda.

29. Hæðargarður 56, br innra frkl og skráningu (01.819.108) Mál nr. BN030585
Katrín Gunnarsdóttir, Hæðargarður 56, 108 Reykjavík
Hreiðar Ögmundsson, Hæðargarður 56, 108 Reykjavík
Birgir Ögmundsson, Hæðargarður 56, 108 Reykjavík
Guðrún Jónsdóttir, Hæðargarður 56, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að beyta innra fyrirkomulagi og eignarhaldi notaeininga í kjallara hússins nr. 56 við Hæðargarð.
Bréf hönnuðar dags. 7. desember 2004 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Kárastígur 9A, br. og áður gerðar svalir (01.182.303) Mál nr. BN029721
Kárastígur 9a,húsfélag, Kárastíg 9a, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum svölum á suðausturhlið 2., 3. og 4. hæðar, áður gerðum breytingum á innra skipulagi þannig að ein íbúð er nú á hverri hæð hússins eða samtals fjórar íbúðir ásamt áður gerðum breytingum á geymsluskúr á baklóð sem nú er skráður sem matshluti 02 í stað 70 áður á lóð nr. 9A við Kárastíg.
Samþykki meðeigenda dags. 21. júní 2004, samþykki eigenda Kárastígs 11 dags. 21. júní 2004 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. desember 2004 fylgja erindinu.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Kvistaland 9-15, nr. 13, br. anddyri o.fl. (01.863.302) Mál nr. BN030656
Gunnar Sigurðsson, Kvistaland 13, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta áður gerðri stækkun anddyris, innrétta gestasnyrtingu, stækka gat í loftaplötu og koma þar fyrir fellistiga, byggja létt skyggni framan við aðalinngang, setja glugga og garðdyr á suðurhlið og koma fyrir þakgluggum á suður og austurhlið hússins nr. 13 á lóðinni nr. 9-15 við Kvistaland.
Stærð: Stækkun anddyri 15,9 ferm. og 42,9 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 2.317
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

32. Langagerði 36, inngangur, gluggar (01.832.018) Mál nr. BN030305
Óskar Ármannsson, Langagerði 36, 108 Reykjavík
Bára Elíasdóttir, Langagerði 36, 108 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri stækkun bílskúrs, ásamt leyfi til þess að breyta lóðarfrágangi milli bílskúrs og íbúðarhúss, fjölga bílastæðum á lóð, koma fyrir nýjum inngangi í kjallara á norðurhlið, setja glugga á suðurhlið kjallara og breyta innra skipulagi kjallara einbýlishússins á lóð nr. 36 við Langagerði.
Samþykki eigenda Langagerðis 38 vegna lóðafrágangs dags. 30. október 2004 fylgir erindinu.
Stærð: Áður gerð stækkun bílskúrs 2,6 ferm., 6,4 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 346
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

33. Laufásvegur Valur, niðurrif (01.628.801) Mál nr. BN030663
Knattspyrnufélagið Valur, Laufásvegi Hlíðarenda, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að rífa hluta af núverandi íþróttahúsi ásamt anddyri tengibyggingar á lóð Vals (Hlíðarenda) við Laufásveg.
Stærð: Niðurrif íþróttahús (matshluti 05), fastanúmer 224-2024, samtals 1295,4 ferm., 12809 rúmm. Anddyri (matshluti 04) 18 ferm., 55,8 rúmm.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

34. Laugarásvegur 8, reyndarteikningar (01.380.301) Mál nr. BN030595
Haukur Lárus Hauksson, Laugarásvegur 8, 104 Reykjavík
Hrefna Líneik Jónsdóttir, Norðurbrún 1, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á bílskúr (matshl. 02), bílskúr hefur stækkað og sýndur er áður gerður kjallari það sem starfrækt er fótaaðgerðastofa á lóðinni nr. 8 við Laugarásveg.
Ljósrit af leyfi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 5. júní 2001 fylgir erindinu.
Stærð: Samtals áður gerð stækkun 34,1 ferm. og 75 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 4.050
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

35. Laugavegur 168, br. hluti 2. h (Hekla) (01.250.001) Mál nr. BN030541
Mænir ehf, Hlíðasmára 15, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi austasta hluta 2. hæðar, breyta útliti suðurhliðar 2. hæðar, fjölga keyrsludyrum á húsi nr. 170 að bílaplani og breyta bílastæðum á suðurhluta lóðar nr. 168 við Laugaveg.
Samþykki meðlóðarhafa dags. 16. nóvember 2004 (og á teikningu) ásamt samkomulagi um umferð frá aðlægri lóð innfært 22. apríl 1996 fylgja erindinu.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

36. Laugavegur 170-172, br. á 1. og 2. h nr. 170 (01.250.201) Mál nr. BN030542
Mænir ehf, Hlíðasmára 15, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi verslunarhluta 1. hæðar húss nr. 170, breyta útlit 1. hæðar norðurhliðar og setja upp tvö 4,8 ferm. skilti á skyggni, breyta innra skipulagi núverandi varahlutalagers og hólfa frá hluta verkstæðis á 2. hæð með opnun að suðurhluta aðlægrar lóðar, fella niður stiga í lager 2. hæðar, byggja milliloft inn í verkstæðisrými 2. hæðar, breyta bílastæðum norðan við hús nr. 170 og fjölgar bílastæðum í porti, samtals fjölgar bílastæðum um 14 bílastæði á lóð nr. 170-174 við Laugaveg.
Stærð: Milliloft 56,3 ferm.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

37. Laugavegur 170-174, stækkun þvottaaðstöðu (01.250.201) Mál nr. BN030493
Hekla hf, Laugavegi 170-174, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að stækka þvottaklefa (rými 0112) í matshluta 01 á lóðinni nr. 170-174 við Laugaveg.
Samþykki meðlóðarhafa (á teikn.) fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun þvottaaðstaða. 7,1 ferm. og 28,5 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 1.539
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

38. Laugavegur 55, veitingahús (01.173.020) Mál nr. BN030309
Kolbrún S Guðmundsdóttir, Holtagerði 37, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til þess að breyta notkun vörugeymsluhúsnæðis (matshl. 03) í veitingahús fyrir samtals 35 gesti á báðum hæðum bakhússins, byggja svalir við vesturhlið 2. hæðar og lækka gólf bakhússins á lóðinni nr. 55 við Laugaveg.
Erindið var í hagsmunaaðilakynningu frá 29. október til 12. nóvember 2004. Athugasemdir bárust.
Stærð: Matshluti 03 verður samkvæmt nýrri skráningu 94,5 ferm., 267,1 rúmm. Rúmmálsaukning vegna lækkunar gólfs 18,5 rúmm.
Gjald. kr. 5.400 + 999
Frestað.
Lagfæra skráningu. Gera grein fyrir lækkun gólfplötu.

39. Nýlendugata 10, stækkun á íbúðum (01.132.010) Mál nr. BN030412
Búafl ehf, Lækjarási 6, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á áður samþykktu (22. júní 2004) fjölbýlishúsi á lóðinni nr. 5 við Ægisgötu. Meðal breytinga er stækkun á íbúðum og minnkun á svölum, breyting á loftræsingu og fyrirkomulagi hljóðeinangrunar og niðurfelling vatnsúðakerfis í bílgeymslum.
Stækkun: Húsið var áður skráð svo:
Bílgeymsla 459,8 ferm. og 1235,7 rúmm. Íbúðarhús 970,3 ferm. og 2889,5 rúmm. Samtals 1430,1 ferm. og 4125,2 rúmm.
Skráning hússins verður nú:
Bílgeymsla 459,8 ferm. og 1235,7 rúmm. Íbúðarhús 1117,0 ferm. og 3310,9 rúmm. Samtals 1576,8 ferm. og 4546,6 rúmm.
Stækkun hússins er 146,7 ferm. og 421,4 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 5.400 + 22.756
Frestað.
Lagfæra skráningu.

40. Nýlendugata 5A, flutningsh. frá Lindargt. 13 Mál nr. BN030401
Stella Sæmundsdóttir, Lindargata 11, 101 Reykjavík
Sveinn Sigurður Kjartansson, Lindargata 11, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteyptan kjallara og setja á hann tveggja hæða timburhús með portbyggðu risi (flutningshús frá Lindargötu 13), endurnýja hús og breyta gluggum á suðvesturhlið í svaladyr á 1. og 2. hæð, byggja svalir á 2. hæð og breyta innra skipulagi til notkunar sem einbýlishús á lóð nr. 5A við Nýlendugötu.
Bréf umsækjenda dags. 25. október 2004, umsögn Húsafriðunarnefndar ríkisins dags. 29. október 2004 fylgja erindinu.
Stærð: Kjallari 60,4 ferm., 1. hæð 58,4 ferm., 2. hæð 58,4 ferm., rishæð 58,4 ferm. (þar af 12,5 ferm. m. salarh. undir 1,8 m, samtals 235,6 ferm., 682,7 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 36.866
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Skipulagsferli ólokið.

41. Rafstöðvarvegur 31, viðb. og bílskúr (04.257.202) Mál nr. BN030307
Hjördís Hendriksdóttir, Rafstöðvarvegur 31, 110 Reykjavík
Margrét Arnljótsdóttir, Rafstöðvarvegur 31, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja viðbyggingu við austurhlið tvíbýlishússins ásamt leyfi til þess að byggja tvöfaldan steinsteyptan bílskúr með geymslukjallara undir hluta á norðausturhluta lóðar nr. 31 við Rafstöðavarveg.
Stærð: Viðbygging 63 ferm., 183,6 rúmm. Bílskúr (matshl. 02) 44,9 ferm., geymslukjallari 24,4 ferm., samtals 69,3 ferm., 211,7 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 5.400 + 21.346
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

42. Ránargata 12, reyndarteikn., sambýli (01.136.021) Mál nr. BN030666
H.G. Meyer ehf, Hjallvegi 15, 104 Reykjavík
Sótt er um áður gerðar breytingar íbúðarhúsnæðis fyrir sambýli í matshluta 02 á lóð nr. 12 við Ránargötu.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

43. Saurbær 125746, tækjaslýli og stálmastur (00.066.000) Mál nr. BN030422
Og fjarskipti hf, Síðumúla 28, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja tækjaskýli úr timbri og stáli ásamt 16 m háu fjarskiptamastri úr stálröri á óafmarkaðri lóð rétt utan helgunarsvæðis Vesturlandsvegar í landi Saurbæjar á Kjalarnesi. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. desember 2004 fylgir erindinu.
Erindinu fylgir umboð landeiganda dags. 30. sept. 2004, bréf Og fjarskipta hf. dags. 22. okt. 2004.
Stærð: xx
Gjald kr. 5.400 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

44. Seljabraut 54, reyndarteikning 1. hæð (04.970.002) Mál nr. BN030402
Símon Sigurður Sigurpálsson, Þingás 3, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi í verslun á fyrstu hæð hússins nr. 54 við Seljabraut.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

45. Sigtún 38, Stækk. v. gafla, br. hótelh. o.fl. (01.366.001) Mál nr. BN030633
Húseignarfélagið Sigtún 38 ehf, Sigtúni 38, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja ofan á 3. hæð suðausturhluta Grand Hótels (D-álma) samtals 9 hótelherbergi, lengja hótelálmur við gafla í norður og suður, stækka 1.-3. hæð við suðvesturhorn hótels (A-álma), setja dyr á vesturhlið salar á 4. hæð, færa dyr á lyftuhúsi á 5. hæð, breyta hluta hótelherbergja, fjölga snyrtingum við ráðstefnumiðstöð, breyta sal í kjallara og fjarlægja hárgreiðslustofu í kjallara hótelsins á lóð nr. 38 við Sigtún.
Stærð: Stækkun xxx ferm., xxx rúmm.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

46. Síðumúli 16-18, reyndarteikningar (01.293.103) Mál nr. BN030657
Gutenberg ehf, Síðumúla 16-18, 108 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir leiðréttum uppdráttum af innra fyrirkomulagi hússins á lóðinni nr. 16-18 við Síðumúla.
Innra fyrirkomulagi er breytt og milligólfi komið fyrir við stiga í austur- og vesturenda hússins.
Stækkun milligólf xx
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

47. Síðumúli 20, áðurgerðar breytingar (01.293.105) Mál nr. BN030660
Öndvegi ehf, Síðumúla 20, 108 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi hússins á lóðinni nr. 20 við Síðumúla.
Á teikningum er einnig gerð grein fyrir breytingum á fyrirkomulagi bílastæða á lóðinni.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

48. Skeifan 5, 0104 hjólbarðaverkstæði (01.460.102) Mál nr. BN030535
Eik fasteignafélag hf, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að koma fyrir hjólbarðaverkstæði í notaeiningu 0104, hluti núverandi geymslulofts er rifið og milliloft sett í annari hæð frá aðalgólfi í einingu 0104 á lóðinni nr. 5 við Skeifuna.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

49. Skógarhlíð 14, ofanábygging (01.705.-97) Mál nr. BN030587
SHS Fasteignir ehf, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi kjallara syðsta hluta húss SHS, hækka stigahús upp á 3. hæð milli húshluta, breyta útliti glugga stigahúss, breyta innra skipulagi hluta 3. hæðar, byggja 2. hæðina ofan á syðsta hluta hús (C-hús) og fjölga bílastæðum á lóð nr. 14 við Skógarhlíð.
Stærð: Ofanábygging 538,1 ferm., 1802,6 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 97.340
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

50. Skúlagata 21, teikningar lagfærðar (01.154.202) Mál nr. BN030620
Sætún ehf, Lækjarbergi 2, 221 Hafnarfjörður
Sótt er um samþykki fyrir lagfærðum útlitsteikningum og teikningum af kjallara og fyrstu hæð hússins á lóðinni nr. 21 við Skúlagötu.
Gerð er grein fyrir handriðum og lítils háttar breytingum á innra fyrirkomulagi.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

51. Skútuvogur 14-16, stækka og breyta (01.426.402) Mál nr. BN030652

Húsasmiðjan hf, Súðarvogi 3-5, 104 Reykjavík
Lýsing hf, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja viðbyggingar að norður- og suðurhlið, rífa milliloft og breyta innra fyrirkomulagi í verslun Húsasmiðjunnar í húsi nr. 16 á lóðinni nr. 14-16 við Skútuvog.
Stækkun 336 ferm. og xx rúmm.
Gjald kr. 5.400 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

52. Skútuvogur 2, breytingar (01.420.001) Mál nr. BN026209
Barðinn ehf, Skútuvogi 2, 104 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir endurskoðuðum teikningum af húsinu á lóðinni nr. 2 við Skútuvog vegna breytinga á byggingartíma.
Innra skipulagi á fyrstu hæð er breytt og sýnd eru milligólf yfir hluta fyrstu hæðar.
Stækkun: Milligólf 168,8 ferm.
Gjald kr. 4.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

53. Smiðjustígur 4, ofanábygging (01.171.114) Mál nr. BN029046
Sverrir Agnarsson, Smiðjustígur 4, 101 Reykjavík
Ómar Sverrisson, Smiðjustígur 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja hæð og ris ofan á húsið á lóðinni nr. 4 við Smiðjustíg.
Fjórða hæð (áður ris) og ný rishæð yrði ein íbúð, geymslur og sameiginlegt þvottahús.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. júlí 2003 (v. fyrirspurnar) fylgir erindinu.
Samþykki meðeigenda dags. 18. febrúar 2004 fylgir erindinu.
Samþykki nágranna Laugavegi 13 og Smiðjustíg 6 fylgir erindinu.
Jafnframt lögð fram útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. apríl 2004 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2004.
Stærð: Stækkun 108,9 ferm. og 232,6 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 12.560
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

54. Sólheimar 29-35, bráðabirgða skólahúsnæði (01.433.503) Mál nr. BN030582
Fasteignastofa Reykjavíkurborg, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að innrétta áður atvinnuhús og íbúðarhús sem bráðabirgða skólahúsnæði (2 ár) fyrir Vogaskóla, á 1. hæð yrði lokað af inndregið rými með gluggavegg til að opna milli matshluta, á 2. hæð yrði skólastjórnun og námsver og í hluta kjallara kæmi frístundarheimili ÍTR á lóð nr. 29-35 við Sólheima.
Bréf hönnuðar dags. 23. nóvember 2004 fylgir erindinu.
Stærð: Tengigangur 22,1 ferm., 74,5 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 4.023
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 1-5 dags. 10. desember 2004.

55. Spítalastígur 4 , Færa vegg (11.840.08) Mál nr. BN022304
Fugl og fiskur ehf,Garðabæ, Spítalastíg 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að færa vegg við anddyri og stækka þannig og breyta íbúð í viðbyggingu (matshl. 02) í húsinu nr. 4 á lóðinni nr. 4-4B við Spítalastíg.
Afsal dags. 11. október 1994 fylgir erindinu. Endurrit úr dómabók héraðsdóms Reykjavíkur frá 10. júní 2004 fylgir erindinu.
Gjald kr. 4.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

56. Spítalastígur 6, 3 áðurg íbúðir, eignaskipti, stærð og niðurr. (01.184.009) Mál nr. BN029345
Sighvatur Snæbjörnsson, Spítalastígur 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir núverandi innra fyrirkomulagi og skráningu matshluta 01 (framhús) þ.e. fyrir fjórum áður gerðum íbúðum og fyrir leiðréttri skráningu áður gerðs geymsluskúrs á baklóð (matshl. 02) á lóð nr. 6 við Spítalastíg.
Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. maí 2004, virðingargjörð dags. 1. apríl 1942, tilkynningar til R.R. dags. 17. febúar 1949, 9. júní 1949 og 14. janúar 1952, afsal dags. 1. september 1952, íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 7. maí og endurskoðað 22. nóvember 2004 og bréf hönnuðar dags. 9. september 2004 fylgja erindinu.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

57. Stóragerði 23, áður gerðar breytingar (01.804.003) Mál nr. BN030444
Guðrún Ingibjörg Ólafsdóttir, Stóragerði 23, 108 Reykjavík
Birgir Vilhelmsson, Stóragerði 23, 108 Reykjavík
Sigrún Björnsdóttir, Stóragerði 23, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta áður skráðum kjallara í 1. hæð og stækka íbúð neðstu hæðar á kostnað annarra íbúða í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 23 við Stóragerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. desember 2004 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400 + 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

58. Stórhöfði 25-27, br á innraskip. 4.h (04.084.701) Mál nr. BN028931
Íslenskir aðalverktakar hf, Keflavíkurflugvelli, 235 Keflavíkurflugvöllu
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi 4. hæðar atvinnuhúsanna á lóð nr. 25-27 við Stórhöfða.
Samþykki eigenda húsanna nr. 25 og 27 við Stórhöfða (á teikningu) fylgja erindinu.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

59. Sölvhólsgata 13, brunav. og raunteikn. (01.150.303) Mál nr. BN030286
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að setja nýja flóttaleið frá 4. hæð norðurhliðar, breyta flóttastiga við norðurhlið, klæða vesturgafl með báruðu m aluzinkplötum, ásamt samþykki fyrir breyttu innra skipulagi leiklistardeildar og tónlistardeildar Listaháskóla Ísland með innfærðum brunakröfum í matshluta 01 á lóð nr. 13 við Sölvhólsgötu.
Brunahönnun verkfræðistofunnar HNIT hf. dags. 5. október 2004, samþykki eigenda Sölvhólsgötu 11 dags. 7. desember 2004 og bréf fyrir hönd umsækjenda dags. 7. desember 2004 fylgja erindinu.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Nýjum uppdráttum vegna útitrappa vísað til umsagnar gatnamálastjóra.
Setja skal fólksflutningalyftu í húsið.

60. Sörlaskjól 16, áðurgerð íbúð reyndarteikningar rishæð (01.532.215) Mál nr. BN029649
Magnús Antonsson, Hagamelur 52, 107 Reykjavík
Tryggvi Þór Herbertsson, Sörlaskjól 16, 107 Reykjavík
Sigurveig María Ingvadóttir, Sörlaskjól 16, 107 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri íbúð á rishæð (2. h.) hússins á lóðinni nr. 16 við Sörlaskjól.
Samþykki meðeigenda og samþykki eigenda húss nr. 14 við Sörlaskjól dags. 14. maí 2004 fylgir erindinu.
Virðingargjörð dags. 18. mars 1947 og afsal dags. 24. júní 1947 fylgja erindinu.
Bréf hönnuðar dags. 21. október fylgir erindinu.
Skoðunarskýrsla byggingarfulltrúa dags. 14. júlí 2004 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400 + 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

61. Tjarnargata 35, breyting inni (01.142.302) Mál nr. BN030404
Meiður ehf, Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að innrétta skrifstofuhúsnæði í húsinu á lóðinni nr. 35 við Tjarnargötu. Umsagnir Árbæjarsafns dags. 29. nóvember 2004 og Húsafriðunarnefndar dags. 25. nóvember 2004 fylgja erindinu.
Ný skráningartafla fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til umsagnar Húsafriðunarnefndar og Árbæjarsafns.
Þessi samþykkt kemur í stað fyrri samþykktar frá 16. nóvember 2004.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

62. Tómasarhagi 31, áður gerð stækk. kj. (01.554.001) Mál nr. BN030621
Gísli Halldórsson, Tómasarhagi 31, 107 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri stækkun kjallara, fyrir gluggum á kjallara á suðurhlið og fyrir áður gerðri breytingu bílgeymslu í matshluta 02 í starfsmannaaðstöðu fyrir teiknistofu á lóð nr. 31 við Tómasarhaga.
Stærð: Áður gerð stækkun kjallara 73,9 ferm., 184,7 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 9.974
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

63. Tryggvagata 16, 14 biðskýli (01.132.104) Mál nr. BN030671
AFA JCDecaux Ísland ehf, Vesturvör 30b, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til þess að setja upp sex ný biðskýli við Bæjarháls, fjögur ný biðskýli við Sæbraut, tvö ný biðskýli við Skeiðarvog, eitt nýtt biðskýli við Hringbraut ásamt leyfi fyrir tilfærslu á biðskýli nr. 251 frá gatnamótum við Laugalæk á nýjan stað við Sundlaugaveg.
Bréf Gatnamálastofu dags. 6. desember 2004 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Málinu vísað til umfjöllunar starfshóps um staðsetningu götugagna AFA JCDecaux Ísland ehf.

64. Tryggvagata 16, br. skrifstofuh. í íb. (01.132.104) Mál nr. BN029107
KBO ehf, Tryggvagötu 16, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta skrifstofum 0302 og 0303 á 3. hæð í íbúðir í fjöleignarhúsinu á lóð nr. 16 við Tryggvagötu.
Ljósrit af innfærðri eignaskiptayfirlýsingu og samkomulag meðeigenda dags. 7. desember 2004 fylgja erindinu.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Þinglýsa skal samkomulagi meðeigenda frá 6. desember 2004.

65. Urðarstígur 11A, reyndarteikningar (01.186.509) Mál nr. BN030618
Erlendur Blöndahl Cassata, Urðarstígur 11a, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi í húsi og fyrir áður gerðum geymsluskúr á lóðinni nr. 11A við Urðarstíg.
Stærð: Geymsluskúr 15,5 ferm. og 37,7 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 2.036
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

66. Vesturgata 21, sameining íbúða (01.136.005) Mál nr. BN030643
Jón Hafnfjörð Ævarsson, Vesturgata 21, 101 Reykjavík
Rafnar Steingrímsson, Vesturgata 21, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta lítillega innra fyrirkomulagi og skrá sem eina eign húsið (matshluta 01) á lóðinni nr. 21 við Vesturgötu.
Ný skráningartafla fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

67. Vesturgata 57, reyndarteikningar (01.133.219) Mál nr. BN030655
Baldur Geirsson, Vesturgata 57, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi hússins á lóðinni nr. 57 við Vesturgötu.
Gerð er grein fyrir breytingum á innra fyrirkomulagi, breytingu á notkun bílskúrs, áður gerðri sólstofu á baklóð og áður gerðri stækkun á norðausturhlið húss.
Jafnframt er sótt um leyfi til þess að sameina matshluta 01 og matshluta 70 á lóðinni.
Stærð: Stækkun sólstofa xx, viðbygging xx.
Gjald kr 5.400 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

68. Vitastígur 10, reyndarteikningar (01.173.117) Mál nr. BN030645
Halldór Ægir Tryggvason, Hjaltabakki 22, 109 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi hússins nr. 10 á lóðinni nr. 10-10A við Vitastíg.
Gerð er grein fyrir gasgeymslu á lóð og loftræstistokki á vesturhlið húss.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

69. Þorláksgeisli 1-3, fjölbýlish. 4 h samt. 16 íb (05.136.101) Mál nr. BN030613
JB Byggingafélag ehf, Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til þess að byggja fjórlyft steinsteypt fjölbýlishús með tveimur stigahúsum, samtals sextán íbúðum og bílgeymslu fyrir 16 bíla á lóð nr. 1-3 við Þorláksgeisla.
Stærð: Íbúð 1. hæð 350,5 ferm., 2. hæð 624,8 ferm., 3. hæð 621,9 ferm., 4. hæð 621,9 ferm., bílgeymsla 455,6 ferm., samtals 2674,7 ferm., 8079,4 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 436.288
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

70. Þorláksgeisli 52-54, nr. 52 breyting inni (04.135.401) Mál nr. BN030649
Ingvar Ingvarsson, Barmahlíð 33, 105 Reykjavík
Pálmar Guðmundsson, Bleikjukvísl 12, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi hússins nr. 52 á lóðinni nr. 52-54 við Þorláksgeisla.
Þvottaherbergi á neðri hæð er stækkað og baðherbergi á efri hæð er stækkað.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

71. Þórðarsveigur 2-6, br. innr. verslunar m. grilli (05.133.501) Mál nr. BN030631
Fjárfestingafél Eignaleiga ehf, Laugavegi 19, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að innrétta rými 0101 á 1. hæð í matshluta 03 sem verslun með matvöru ásamt myndbandaleigu og grilli á lóð nr. 2-6 við Þórðarsveið.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

72. Þönglabakki 6, br. rými 0106 - skyndibiti (00.000.000) Mál nr. BN030529
E.Gullborg ehf, Köldulind 8, 201 Kópavogur
Gissur og Pálmi ehf, Staðarseli 6, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að innrétta skyndibitastað í rými 0106 á fyrstu hæð hússins nr. 6 við Þönglabakka á lóðinni nr.12-16 við Álfabakka og nr. 1 og 6 við Þönglabakka.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

Ýmis mál

73. Hallsvegur 13, Lóðamarkabreyting (02.550.201) Mál nr. BN030680
Lögð fram tillaga mælingadeildar borgarverkfræðings, dags. 10. desember 2004, að breytingu á lóðamörkum Gufuneskirkjugarðar á lóðinni nr. 13 við Hallsveg.
Lóðin er 295074 ferm., sbr. mæliblað útgefið 10. mars 1992. Bætt við lóðina 25992 ferm.
Lóðin verður 321066 ferm.
Sjá samþykkt fundar skipulagsfulltrúa 20. ágúst 2004.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

74. Ljótaland sumarbúst 123802, skipting lands (00.074.004) Mál nr. BN030681
Lögð fram tillaga mælingadeildar, dags. 10. desember 2004, að skiptingu Ljótalands.
Ljótaland (landnúmer 123802):
Landið reynist 57231 ferm. Tekið undir nýja lóð umhverfis lögbýlið Birkihlíð (Úlfarsfellsvegur 20) 3224 ferm.
Landið verður 54007 ferm.
Birkihlíð ný lóð:
Lóðin verður 3224 ferm. Sjá samþykkt skipulags- og byggingarnefndar 8. desember 2004.
Tölusetning íbúðarhúa við Úlfarsfellsveg, sjá samþykkt afgreiðslufundar byggingarfulltrúa 13. ágúst 2002.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

75. Skólavörðustígur 25, greinargerð (01.182.242) Mál nr. BN030167
Lögð fram greinargerð lögfræði- og stjórnsýslu dags. 3. september 2004.
Í henni er lagt til að afgreiðsla á byggingarleyfisumsókn Þorsteins Steingrímssonar sem tekin var á fundi byggingarfulltrúa þann 14. janúar s.l. um byggingu skúrs á baklóð að Skólavörðustíg 25 verði endurupptekin skv. 24. gr. stjórnsýslulaga og meðlóðarhafa gefinn kostur á að tjá sig um endurupptöku málsins og ofangreinda niðurstöðu áður en tekin verður ákvörðun um afgreiðslu umsóknarinnar.
Jafnframt lagt fram bréf LOGOS, dags. 25. október 2004, f.h., Sjafnar Haraldsdóttur og umsögn lögfærði- og stjórnsýslu dags. 10. desember 2004.
Samþykkt að heimila Þorsteini Steingrímssyni að sækja um byggingarleyfi fyrir bakhúsum á lóðinni nr. 25 við Skólavörðustíg að nýju.

Fyrirspurnir

76. Flókagata 5, (fsp) breyta þaki o.fl (01.243.607) Mál nr. BN030527
Þráinn ehf, Laugavegi 34a, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að breyta þaki hússins nr. 5 við Flókagötu í samræmi við meðfylgjandi teikningar.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. desember 2004 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

77. Hábær 38, (fsp) bílskúr o.fl (04.353.014) Mál nr. BN030648
Arnar Snorrason, Hábær 38, 110 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu sem er bílskúr og sólstofa að suður- og vesturhlið hússins á lóðinni nr. 38 við Hábæ.
Í erindinu er gerð grein fyrir tveimur tillögum að viðbyggingunni.
Tillaga 1 sýnir tveggja hæða viðbyggingu þar sem bílskúr er niðurgrafinn og sólstofa byggð ofan á hann.
Tillaga 1.2 sýnir viðbygginguna á einni hæð.
Bréf fyrirspyrjanda (ódags.) fylgir erindinu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

79. Kvisthagi 6, (fsp) bílskúr (01.543.207) Mál nr. BN030658
Sigurður Karlsson, Kvisthagi 6, 107 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr ásamt geymslu í samræmi við meðfylgjandi uppdrætti á lóðinni nr. 6 við Kvisthaga.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

80. Laugavegur 34B, (fsp) br. í ósamþ. íbúð (01.172.217) Mál nr. BN030670
Sigurður Páll Sigurðsson, Jórusel 6, 109 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að skrá eign 0001 (vinnustofa) sem ósamþykkta íbúð í húsinu á lóðinni nr. 34B við Laugaveg.
Yfirlit Fasteignamats ríkisins dags. 15. október 2003 fylgir erindinu.
Nei.
Ekki hefur verið sýnt fram á sölu eignarinnar sem ósamþykktrar íbúðar hvorki með kaupsamningi né öðrum þinglýstum gögnum.

81. Látrasel 11, (fsp) stækkun sólstofu (04.928.411) Mál nr. BN030597
Eysteinn Leó Jónsson, Látrasel 11, 109 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að stækka sólstofu við suðausturhlið 1. hæðar í líkingu við fyrirliggjandi teikningar íbúðarhússins á lóð nr. 11 við Látrasel.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. desember 2004 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Með vísan til útskriftar úr gerðabók skipulagsfulltrúa.
Fyrirliggjandi tillaga fer húsi afar illa og staðsetning eldhúss orkar mjög tvímælis.

82. Miklabraut 76, (fsp) br. á kvistum 74-78 (01.710.005) Mál nr. BN030630
Miklabraut 74-76-78,húsfélag, Miklubraut 74-76-78, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði 1. að setja kvist á austur- og vesturgafl, 2. að stækka kvisti á miðju húsi (nr. 76) og setja svalir við tvo af þremur kvistum suðurhliðar og 3. að stækka alla kvisti á suður- og norðurþekju í líkingu við fyrirliggjandi teikningu fjölbýlishússins á lóðunum nr. 74, 76 og 78 við Miklabraut.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

83. Seljavegur 2, (fsp) fjölnota salur (01.130.105) Mál nr. BN030639
Björn Helgason, Látraströnd 30, 170 Seltjarnarnes
Loftkastalinn ehf, Seljavegi 2, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta rými 0201 í matshluta 03 sem fjölnota sal fyrir leikhús, tónleika og kvikmyndatökur með færanlegum áhorfendapöllum og sviði, en anddyri, veitingasala og snyrtingar yrðu samnýttar með Loftkastalanum í matshluta 02 á lóðinni nr. 2 við Seljaveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

84. Skólavörðustígur 43, (fsp) ofanábygging (01.182.314) Mál nr. BN030654
Erla Þórarinsdóttir, Skólavörðustígur 43, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að hækka um eina hæð húsið sem er matshluti 02 á lóðinni nr. 43 við Skólavörðustíg.
Fyrirhugað er að innrétta vinnustofu listamanns á jarðhæð og íbúð á nýrri efri hæð hússins.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

85. Súðarvogur 32, (fsp) breyta í íbúð og vinnustofu (01.454.111) Mál nr. BN030550
Sólrún Jónsdóttir, Súðarvogur 36, 104 Reykjavík
Ingrid Herdís Jónsdóttir, Súðarvogur 36, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að breyta notkun þriðju hæaðar hússins nr. 32 við Súðarvog úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði og vinnustofu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. desember 2004 og umsögn skipulagsfulltrúa frá 6. desember 2004 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum opg með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, enda verði sótt um byggingarleyfi.

86. Vatnagarðar 4, (fsp) viðb. á hluta skábr. (01.337.701) Mál nr. BN030674
Vilhjálmur Hjálmarsson, Laufásvegur 3, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu fyrir vörumóttöku yfir hluta skábrautar við norðurhlið kjallara atvinnuhússins á lóð nr. 4 við Vatnagarð.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 13:40.

Magnús Sædal Svavarsson
Bjarni Þór Jónsson Þórður Búason
Helga Guðmundsdóttir Sigurður Pálmi Ásbergsson
Sigríður Kristín Þórisdóttir