Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 370

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2026, miðvikudaginn 11. febrúar, kl. 9:03 var haldinn 370. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Hjálmar Sveinsson, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Andrea Jóhanna Helgadóttir, Kjartan Magnússon, Magnús Davíð Norðdahl, Stefán Pálsson og áheyrnarfulltrúinn Einar Sveinbjörn Guðmundsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Hildur Björnsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Brynjar Þór Jónasson, Hjördís Sóley Sigurðardóttir, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Inga Rún Sigurðardóttir og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 3. febrúar 2026. USK22120094
     

    Fylgigögn

  2. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 3. febrúar 2026. USK24070166
     

    Fylgigögn

  3. Lögð fram umsókn Mannverks ehf., dags. 2. desember 2025, ásamt bréfi Glámu-Kím, dags. 2. desember 2025, um breytingu á deiliskipulagi fyrir Laufásveg 19 og 21-23 og Þingholtsstræti 34. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilað er niðurrif áður byggðra viðbygginga á lóð, heimilað er niðurrif veggjar á lóðarmörkum við Þingholtsstræti, byggingarreitur fyrir nýbyggingu við Þingholtsstræti er skilgreindur og nýtingarhlutfall lóðar eykst, samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti Glámu-Kím, dags. 2. febrúar 2026, og skuggavarps- og skýringaruppdráttum Glámu-Kím, dags. 2. desember 2025. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 6. janúar 2026. 
    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs.

    Sigríður Maack tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25120032
     

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf götunafnanefndar Reykjavíkurborgar, dags. 4. febrúar 2026, þar sem lögð er fram tillaga að nýju götuheiti nýrrar vistgötu á Kringlureit sem nú er í uppbyggingu. Götunafnanefnd leggur til að heiti götunnar verði Mjóamýri.
    Samþykkt.
    Vísað til borgarráðs. USK25120304
     

    Fylgigögn

  5. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar samgöngustjóra dags. 4. febrúar 2026 ásamt fylgigögnum. USK26010164

    -    Kl. 9:26 víkur Hjördís Sóley Sigurðardóttir af fundi.
     

    Fylgigögn

  6. Lögð fram umsögn Reykjavíkurborgar um tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun dags. 4. febrúar 2026. MSS26010135
     

    Fylgigögn

  7. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 8. október 2025 ásamt kæru nr. 152/2025, dags. 27. september 2025, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar þann 10. júlí 2025 um að hafna kröfu kærenda um afturköllun byggingarleyfis (USK25020149) Haukahlíð 18. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 12. nóvember 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 5. febrúar 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um að ógilda þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 10. júlí 2025 að synja beiðni um afturköllun byggingarleyfis Haukahlíðar 18. USK25100136
     

    Fylgigögn

  8. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 13. október 2025 ásamt kæru nr. 155/2025, dags. 11. október 2025, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkur hinn 25. ágúst 2025 um útgáfu byggingarleyfis fyrir áður gerðum breytingum á fasteigninni að Snorrabraut 29. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 11. nóvember 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 5. febrúar 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að ógilda þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 26. ágúst 2025 að samþykkja umsókn um byggingarleyfi fyrir áður gerðum breytingum á fasteigninni að Snorrabraut 29. USK25100203
     

    Fylgigögn

  9. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 20. nóvember 2025 ásamt kæru nr. UUA2511055, dags. 19. nóvember 2025, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík, dags. 20 október 2025, um að fjarlægja beri smáhýsi af lóð Vogalands 7 eða færa það 3 m. frá lóðarmörkum Vogalands 9. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 8. janúar 2026. Jafnframt er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 24. nóvember 2025. Úrskurðarorð: Frestað er réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 20. október 2025 um að gera kærendum að fjarlægja smáhýsi á lóð þeirra að Vogalandi 7 eða færa það 3,0 m. frá lóðarmörkum Vogalands 9. USK25110373
     

    Fylgigögn

  10. Lögð fram tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um aðgerðir til að bregðast við fáliðun í leikskólum Reykjavíkurborgar, sbr. 4. liður fundur borgarstjórnar dags. 13. janúar 2026. Liður 4 af tillögunni var vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til meðferðar. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, Vinnuskóla Reykjavíkur, dags. 6. febrúar 2026. MSS26010082
    Tillögunni er vísað frá með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins greiða atkvæði gegn frávísuninni.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna:

    Tillaga Framsóknarflokksins um fjölgun vinnuskólastarfsfólks í leikskólum borgarinnar er vísað frá þar sem hún virðist byggja á þeim misskilningi að Vinnuskólinn sjálfur skilgreini þann fjölda ungmenna sem fái störf á leikskólum. Raunin er sú að leikskólunum er í sjálfsvald sett hvort og þá hversu mörgum ungmennum þeir taki á móti og mikilvægt er að leikskólastjórnendur haldi faglegu sjálfstæði sínu í þeim efnum.
     

    Fylgigögn

  11. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um vinnuskólann, sbr. 22. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 28. janúar 2026. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, mannauðsskrifstofu, dags. 5. febrúar 2026. USK26010438

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins þakka fyrir greinargott svar við fyrirspurn um laun í Vinnuskóla Reykjavíkur á tímabilinu 2022-2026. Í svarinu kemur skýrt fram að kjör unglinga í Vinnuskólanum hafa verið skert verulega á kjörtímabilinu. Þáverandi vinstri meirihluti í borgarstjórn ákvað að skerða laun unglinganna með því að halda launum þeirra óbreyttum milli áranna 2022-2023. Núverandi vinstri meirihluti hefur fest kjaraskerðinguna í sessi og fellt tillögur Sjálfstæðisflokksins og Reykjavíkurráðs ungmenna um að launin verði leiðrétt í samræmi við vísitölu. Á árunum 2022-2025 hækkaði landsvísitala launa um 31,6% en á sama tíma hækkuðu laun í Vinnuskólanum aðeins um 14,5% að meðaltali. Laun 8. bekkjar hafa hækkað um 8%, 9. bekkjar um 18% og 10. bekkjar um 17,6% á tímabilinu.  Fyrirhugað er að laun unglinganna hækki aðeins um 3,5% milli áranna 2025-2026 þrátt fyrir að ársverðbólga mælist nú 5,2%. Kjaraskerðingin er augljós og hún byggist á pólitískri ákvörðun vinstri flokkanna í borgarstjórn. Er afar ósanngjarnt að fyrsta reynsla margra unglinga af vinnumarkaði, felist í því að verða fyrir slíku óréttlæti.
     

    Fylgigögn

  12. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um almenningssamgöngur í Gufuneshverfi, sbr. 14. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 4. febrúar 2026.
    Vísað til umsagnar Strætó bs. USK26020049
     

    Fylgigögn

  13. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um umferðaröryggi við Fylkissel, sbr. 15. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 4. febrúar 2026.
    Hluti tillögunnar um lýsingu á bílastæði vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og fasteigna. Að öðru leyti, vísað inn í vinnu við umferðaröryggisáætlun. USK26020050
     

    Fylgigögn

  14. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um lýsingu við Langholtskirkju, sbr. 16. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 4. febrúar 2026.
    Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu borgarlandsins. USK26020051
     

    Fylgigögn

  15. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um lýsingu við Austurvöll, sbr. 17. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 4. febrúar 2026.
    Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs. USK26020052
     

    Fylgigögn

  16. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Lagt er til að ráðist verði í viðgerð á ljóskerjum meðfram gönguleið, sem liggur meðfram norðurbakka Tjarnarinnar milli Ráðhúss Reykjavíkur og Lækjargötu. Öll ljósker á umræddri gönguleið eru óvirk, um fjörutíu talsins.

    Frestað. USK26020164
     

  17. Lögð fram tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Lagt er til að ráðist verði í átak við að bæta merkingar á biðstöðvum og skiptistöðvum strætisvagna í Reykjavík, farþegum til upplýsingar og glöggvunar. 1. Gild leiðarkort verði sett upp á öllum biðstöðvum og skiptistöðvum strætisvagna. Úreltum leiðarkortum, sem prentuð voru fyrir breytingar á leiðakerfinu í júní 2024, verði skipt út, þar sem þau er að finna, og uppfærð kort sett í staðinn. 2. Á leiðaspjöldum á biðstöðvum verði allar stöðvar sýndar, sem fram undan eru. 3. Bæta þarf merkingar á skiptistöðvum, t.d. í Mjódd og Skúlagötu með því að setja þar upp kort af leiðakerfi Strætó í heild sinni. 4. Bæta þarf merkingar á Lækjartorgi. Um er að ræða þrjár biðstöðvar, sem aðgreindar eru með bókstöfunum A, B og C. Rúmlega hundrað metrar og fjórar akreinar skilja að biðstöðvar A og C við Lækjargötu en biðstöð B er við Hverfisgötu. Æskilegt er að hver biðstöð á Lækjartorgi verði merkt viðeigandi bókstaf með áberandi hætti en nú eru merkingar ekki áberandi. 5. Æskilegt er að upplýsingar um biðstöðvar leiða, séu sýndar með skýrum, línulegum merkingum í viðkomandi strætisvögnum, eins og tíðkast víða erlendis, farþegum til glöggvunar. 6. Gera þarf við sjónvarpsskjá í skiptistöðinni í Mjódd, sem veitir farþegum rauntímaupplýsingar um komur og brottfarir strætisvagna. Skjárinn hefur óvirkur um hríð.

    Frestað. USK26020165

    -    Kl. 10:05 víkur Magnús Davíð Norðdahl af fundi.
     

Fundi slitið kl. 10:10

Hjálmar Sveinsson Aðalsteinn Haukur Sverrisson

Andrea Helgadóttir Hildur Björnsdóttir

Kjartan Magnússon Stefán Pálsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 11. febrúar 2026