Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 252

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2022, miðvikudaginn 14. desember, kl. 09:12 var haldinn 252. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Alexandra Briem, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Birkir Ingibjartsson, Kjartan Magnússon, Pawel Bartoszek og áheyrnarfulltrúarnir Andrea Helgadóttir og Helga Þórðardóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Líf Magneudóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Björn Axelsson, Borghildur Sölvey Sturludóttir, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson, Harpa Dögg Kristinsdóttir Inga Rún Sigurðardóttir og Dagný Alma Jónasdóttir.
Fundarritari var Harri Ormarsson.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 18. nóvember 2022 þar sem óskað er eftir ábendingum frá fagnefndum sveitarfélaga við tillögu að loftlagsstefnu höfuðborgarsvæðisins. Einnig er lögð fram skýrsla Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu dags. september 2022; Loftlagsstefna höfuðborgarsvæðisins og minnisblað samtaka sveitarfélaga dags. 5. september 2022.

    Jón Kjartan Ágústsson, svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins tekur sæti undir þessum lið með rafrænum hætti. Hrönn Hrafnsdóttir sérfræðingur tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs. USK22010115

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Eftir lestur loftslagsstefnunnar vill Flokkur fólksins minna á tillögu flokksins um skógrækt  til kolefnisjöfnunar frá  Rauðavatni og langleiðina að Hengli. Þar eru mörg svæði sem henta til skógræktar. Tillagan var ekki aðeins felld heldur kaus meirihlutinn að misskilja hana illilega. Sektir bíða til Evrópu ef ekki er staðið við lofaða losun. Skógrækt reiknast sem kolefnisbinding svo og endurheimt votlendis.  Á öllum Reykjanesskaga er skógrækt nærtækur kostur. Leggja þarf áherslu á að minnka sóun. Endurnýting kolefnis þarf að vera virk. Þannig á t.d. að nýta allt metan sem myndast á svæðinu sem orkugjafa. Sömuleiðis á að nýta allan glatvarma og sóun frá matvælageiranum, hefja söfnun á endurnýjanlegum úrgangi svo sem fitu sem brenna mætti í stað olíu. Landbúnaður eins og hann er stundaður hér veldur verulegri losun en kemur Reykjavík lítið við. Framleiðsla á lífeldsneyti er mjög orkukrefjandi þar sem orkunýting er aðeins um 20 % og er ofmetinn kostur. Mikið er talað um orkuskipti en minna  gert eða vitað um þau. Miklu betra er að nota rafmagnið beint og t.d. reyna að vera með beintengda strætisvagna við rafmagns loftlínu. Samgöngur eru lítill hluti orkunotkunar, en ástæða er til að breyta vali á samgöngumátum með tilliti til losunar. 

    Fylgigögn

  2. Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dags. 1. desember 2022 þar sem lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að veita heimild fyrir áframhaldandi undirbúningi, verkhönnun og gerð útboðsgagna vegna umferðaröryggisbætandi aðgerða í tengslum við tímabundið skólahúsnæði við Ármúla. Tillögunni fylgir greinargerð.

    Samþykkt með vísan til c liðar 1. gr. í viðauka 1.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs í samræmi við 1. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. USK22120002

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Það er mikilvægt að bæta umferðaröryggi í kringum þá staði þar sem börn koma saman og gildir einu hvort um sé að ræða til náms eða leikja. Tillaga meirihlutans  gerir ráð fyrir að setja tvær malbikaðar öldur í götuna og gera miðeyju. Hugsanlega  væri nægjanlegt að hafa þessa hefðbundnu kodda. Hér er um að ræða umfangsmiklar breytingar og spurning hvort þær séu gerðar á réttum forsendum. Ármúli telst ekki til íbúðagötu. Hefur verið haft samráð við atvinnurekendur í þessari götu um þessar fyrirhuguðu breytingar? Hraðabreytingar þurfa alltaf að hafa augljósan tilgang og ákvarðanir um slíkt þurfa að vera teknar í samráði við íbúa. Hvort sem þarf að auka eða minnka hraða þá þarf samráð.  Margt annað í aðstæðum þarf að taka inn í myndina. Þegar horft er til hraðalækkunar og hraðahindrana  þá togast á tveir þættir sem stundum er erfitt að samræma. Annars vegar  því minni hraði því færri óhöpp.  Hins vegar því hægar sem er ekið því minni er afkastageta gatnakerfisins, meiri umferðartafir og svifryksmengun. Umferðaröryggi þar sem börn fara um er þó ávallt forgangsatriði hvernig sem á það er litið.

    Fylgigögn

  3. Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dags. 29. nóvember 2022 þar sem lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki eftirfarandi sérákvæði fyrir umferð:

    Hafnarstræti, milli Kolasunds og Tryggvagötu verð i göngugata með undantekningu fyrir vörulosun kl. 07-11 á virkum dögum en kl. 08-11 á laugardögum og sunnudögum.
    Ofangreindar ráðstafanir verði merktar með viðeigandi umferðarmerkjum og yfirborðsmerkingu þar sem það á við, í samræmi við reglugerð 289/1995 um umferðarmerki og notkun þeirra ásamt áorðnum breytingum. 

    Tillögunni fylgir greinargerð.

    Samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna með vísan til c liðar 1. gr. í viðauka 1.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs í samræmi við 1. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá. USK22010020

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fyrir liggur tillaga skipulagsyfirvalda um göngugötu í Hafnarstræti, milli Kolasunds og Tryggvagötu. Fulltrúi Flokks fólksins hefur alltaf sagt að hann er ekki á móti göngugötum. Vandinn er bara alltaf sá sami og það er aðkoman að göngugötum fyrir þá sem koma akandi og þá sem eiga erfitt með gang. Nýleg könnun Maskínu sýnir vandann svart á hvítu. Eftir því sem fólk er eldra þeim mun neikvæðara er það gagnvart göngugötum. Þeir sem búa fjær miðbænum eru neikvæðari gagnvart göngugötum en þeir sem búa nálægt. Þessar niðurstöður koma ekki  á óvart. Flokkur fólksins lítur á þetta með þeim hætti að þeir sem búa lengst frá miðbænum eiga  í basli með að komast í bæinn til að njóta göngugatna. Almenningsvagnar virka ekki vel fyrir alla hópa og þeir sem vilja koma á bílum sínum óttast að fá ekki bílastæði. Ákveðinn hópur treystir sér ekki í bílastæðahúsin og má þar nefna einna  helst eldra fólk og öryrkja.  Miðbærinn með sínum ágætu göngugötum sem nú á að fjölga þjóna einna helst íbúum miðbæjarins  og ferðamönnum. Verslun, almenn og fjölbreytt verslun eins og hún var er ekki lengur í miðbænum sem skartar einna helst veitingastöðum, krám, börum og verslunum fyrir ferðamenn.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dags. 7. desember 2022 þar sem lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð veiti heimild fyrir áframhaldandi undirbúningi, verkhönnun og gerð útboðsgagna fyrir eftirtaldar stígaframkvæmdir:

    Gufunes
    Kringlumýrarbraut/Borgartún - gatnamót
    Vegmúli
    Suðurhlíðar
    Höfðabakki,
    Hamrastekkur að höfðabakkabrú
    Rafstöðvarvegur – Bæjarháls.
    Elliðaárdalur 3. áf., Grænagróf - Dimma, stígagerð og brú.

    Tillögunni fylgir greinargerð. USK22120063
    Samþykkt.

    Kristinn Jón Eysteinsson byggingartæknifræðingur tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 9:40 víkur Líf Magneudóttir af fjarfundi.
    -    Kl. 9:51 tekur Líf Magneudóttir sæti á fundinum í gegnum fjarfundarbúnað. 

    Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Þökkum góða kynningu. Auk þeirra verkefna sem hér eru nefnd teljum við mikilvægt að skoða stór umbreytingarverkefni í tengslum við borgargötur á borð við Hofsvallagötu, Nesveg, Snorrabraut, Sundalaugarveg, Lönguhlíð-norður eða Grensásveg-norður.

    Fylgigögn

  5. Laugavegur, forhönnun.

    Edda Ívarsdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 10:44 tekur Stefán Pálsson sæti á fundinum í fjarfundarbúnaði.
    -    Kl. 10:45 víkur Líf Magneudóttir af fjarfundi.
    -    Kl. 10:45 víkur Hildur Björnsdóttir af fundi og Björn Gíslason tekur sæti með fjarfundarbúnaði. USK22120090

    Fylgigögn

  6. Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofa samgöngustjóra og borgarhönnunar dags. 6. desember 2022 um sérákvæði fyrir umferð í hverfum Reykjavíkur og að þær ráðstafanir verði merktar með viðeigandi umferðarmerkjum og yfirborðsmerkingu þar sem það á við, í samræmi við reglugerð 289/1995 um umferðarmerki og notkun þeirra ásamt áorðnum breytingum.

    Samþykkt með vísan til c liðar 1. gr. í viðauka 1.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs í samræmi við 3. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. USK22010020

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Það eru götur í borginni þar sem það er lífsspursmál að hraði verði lækkaður  og það kyrfilega merkt hver  hámarkshraðinn er. Í þessu sambandi  má nefna Laugarásveginn sem er sérstök gata fyrir þær sakir að hún er löng, breið og tengir saman hverfi. Sú gata er einstaklega hættuleg. Það er mikil mildi að ekki hafi  orðið alvarlegt slys þar. Það verður að lækka hraða í íbúðagötum, götum sem  liggja að skólum og þar sem  börn eru á ferð. Þær götur  sem engir skólar eða íbúðarhús standa beint við er hins vegar engin nauðsyn að lækka hraðann niður í 30 eða 40 km/klst. Hraðabreytingar þurfa alltaf að hafa augljósan tilgang og ákvarðanir um slíkt þarf að taka í samráði við íbúa, hvort sem eigi að auka  eða minnka hraða. Margt annað í aðstæðum hverju sinni þarf að taka inn í myndina. Þegar horft er til hraðalækkunar og hraðahindrana  þá togast á tveir þættir sem stundum er erfitt að samræma. Annars vegar  því minni hraði því færri óhöpp.  Hins vegar því hægar sem er ekið því minni er afkastageta gatnakerfisins, meiri umferðartafir og svifryksmengun. Umferðaröryggi þar sem börn fara um er þó ávallt forgangsatriði hvernig sem á það er litið.

    Fylgigögn

  7. Lögð fram skýrsla um greiningu með aðferðafræði kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar fyrir bílastæðasjóð dags. nóvember 2022.

    Hreinn Ólafsson fjármálastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK22120089

    Fylgigögn

  8. Lögð fram fundargerð embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. desember 2022. USK22120094

    Fylgigögn

  9. Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Vesturbæjarlaugar. Í breytingunni felst að lóðarmörk við Einimel 18-26 eru færð út sem nemur 3,1 m og minnkar lóð Vesturbæjarlaugar sem því nemur, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Eflu dags. 27. janúar 2022, br. 30. nóvember 2022. Tillagan var auglýst frá 2. mars 2022 til og með 13. apríl 2022. Eftirtaldir sendu athugasemdir/ábendingu: Þórhallur Ólafsson dags. 25. febrúar 2022, Jónína Ólafsdóttir dags. 2. mars 2022, Guðný Kjartansdóttir dags. 2. mars 2022, Ólafur Jóhannsson dags. 2. mars 2022, Daði Þorsteinn Sveinbjörnsson dags. 8. mars 2022, A. Hlín Brynjólfsdóttir dags. 17. mars 2022, Andri Ólafsson dags. 18. mars 2022, Sigríður Guðmundsdóttir dags. 21. mars 2022, Jón Gunnar dags. 21. mars 2022, Jónas Þór Snæbjörnsson dags. 21. mars 2022, Filipus Th Ólafsson dags. 21. mars 2022, Rósa Björk Gunnarsdóttir dags. 21. mars 2022, Ævar Rafnsson dags. 21. mars 2022, Gylfi Garðarsson dags. 22. mars 2022, Ólafur Örn Jónsson dags. 22. mars 2022, Árni Snævarr dags. 23. mars 2022, Snorri Þór Sigurðsson dags. 23. mars 2022, Björn B. Björnsson dags. 29. mars 2022, Teitur Atlason dags. 9. apríl 2022, Örn Úlfar Sævarsson dags. 12. apríl 2022 og Stefán A. Svensson f.h. íbúa Einimels 22, 24 og 26 dags. 13. apríl 2022. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. nóvember 2022.

    Frestað. SN220054

  10. Lagður er fram skipulagsuppdráttur og leiðbeiningar frá JVST og Teiknistofunni Tröð, dags. 9. desember 2022, fyrir svæði 3 í Vogabyggð. Svæðið sem afmarkast af Dugguvogi til vestur, Tranavog til norðurs, Súðarvogi og strandsvæði Elliðaárvogs frá austurs til suðurs.  Skipulagssvæði Vogabyggðar er eitt af þeim svæðum sem skilgreint er  sem þróunarsvæði með breyttri landnotkun, iðnaðar- og athafnasvæði verður miðsvæði og íbúðarbyggð. Þar er stefnt að blöndun byggðar, íbúðar og atvinnustarfsemi með heimildum fyrir atvinnustarfsemi í íbúðarbyggð og íbúðum á miðsvæði. Lögð er rík áhersla á fjölbreytta byggð í manneskjulegum mælikvarða, góð almenningsrými og tengsl við aðliggjandi útivistarsvæði. Þannig verður hverfið eftirsóttur valkostur fyrir fólk sem kýs að búa og starfa í umhverfi sem einkennist af hvoru tveggja í senn, borgarbrag og nálægð við náttúru. Skipulagssvæði Vogabyggðar er hluti af stærra þróunarsvæði við Elliðaárvogs og Ártúnshöfða. Markmið skipulagstillögu: Varðveita og styrkja hið heildstæða yfirbragð sem byggðin býr yfir í dag og stuðla að manneskjuvænu umhverfi innan svæðisins í Kænuvogi, með áherslu á aukinn gróður og vandaðri hönnun þegar byggð er við eða ofan á byggingar. Lagt er til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu.

    Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs.

    -    Kl. 11:29 víkur Kjartan Magnússon af fundi.
    -    Kl. 11:37 tekur Sandra Hlíf Ocares sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði. SN220729

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Bílastæði eru ekki heimil innan lóða íbúðabygginga. Heimilt er að vera með bílakjallara frá götuhæð. Þetta er galli að mati Flokks fólksins og munu margir þeir sem eru háðir bílum til að komast leiðar sinnar ekki geta búið þarna. Bílastæði fyrir fólk með hreyfihömlun eru staðsett við Kænuvog og Súðarvog. Hvernig á fólk að komast frá stæði og að útidyrum sínum? Mörg þessara nýju hverfa  eru aðeins fyrir ákveðna hópa samfélagsins þ.e. þá sem geta lifað bíllausum lífsstíl. Hér er verið að mismuna fólki að. Fordómar í garð fólks sem þarf eða vill nota bíl hafa aukist á vakt síðasta og þessa meirihluta.

    Fylgigögn

  11. Lögð fram umsókn Batterísins ehf. dags. 14. september 2022, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.171.4 vegna lóðarinnar nr. 12B og 16 við Laugarveg. Í breytingunni sem lögð er lagt til að sameina lóðirnar í eina lóð þ.e. Laugaveg 14-16, samkvæmt uppdr. Batterísins dags. 25. ágúst 2022. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. desember 2022. Lagt er til að tillögunni verði synjað.

    Synjað, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 2. desember 2022.
    Vísað til borgarráðs.

    Birkir Ingibjartsson víkur af fundi undir þessum lið. SN220565

  12. Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufundar byggingarfulltrúa frá 29. nóvember 2022 og 6. desember 2022. BN045423

    Fylgigögn

  13. Lagt fram málskot Dagbjarts H. Guðmundssonar dags. 14. nóvember 2022 vegna neikvæðra afgreiðslna skipulagsfulltrúa frá 15. september 2022 og 3. nóvember 2022 vegna Blesugrófar 30. Einnig eru lagðar fram umsagnir skipulagsfulltrúa dags. 15. september 2022 og 3. nóvember 2022.

    Umsögn skipulagsfulltrúa staðfest. SN220728

  14. Árshlutauppgjör umhverfis- og skipulagssviðs fyrir janúar til september 2022 ásamt bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins fært úr trúnaðarbók umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 30. nóvember 2022, þar sem árshlutauppgjörið hefur verið lagt fram á fundi borgarráðs. US220302

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Nettó útgjöld sviðsins voru 10.327 m.kr. eða 511 m.kr. umfram fjárheimildir eða um 5,2%. Það sem er síst ásættanlegt er ef stjórnsýslan er að fara mikið umfram fjárheimildir því það gefur til kynna að að árangursríkari fjármálastjórnun er ábótavant. Hér er verið að vísa í alls kyns kostnað í tengslum skrifstofu. Sameina þarf skrifstofur og verkefni, einfalda ferla og þjónustuleiðir. Hugsa þarf hvert skref út frá “kúnnanum”, hvernig er hægt aðkoma betur á móts við þarfir borgarbúa? Sviðið á að veita framúrskarandi þjónustu, svara öllum skeytum og erindum og um fram allt að geta sett sig í spor þeirra sem nota þjónustu umhverfis- og skipulagssviðs. Sorphirðan (þ.m.t. viðhaldskostnaður) fer umfram fjárheimildir. Flokkur fólksins hefur lagt til að bjóða út eitt póstnúmer í sorphirðu til að kanna hvort það sé hagkvæmara en það fyrirkomulag sem nú ríkir. Reykjavík er eitt sveitarfélaga sem ekki bjóða út þennan rekstur. Flokkur fólksins hefur ákveðinn skilning á að vetrarþjónustan fór fram úr heimildum. Veturinn í fyrra var óvenju snjóþungur eins og allir vita.

    Fylgigögn

  15. Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dags. 2. desember 2022 um 60. mál, þingsályktunartillaga 152. löggjafarþing 2022-2023, Sundabraut. USK22110156

    Fylgigögn

  16. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 18. nóvember 2022 ásamt kæru dags. 15. nóvember 2022 þar sem kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 26 við Kvistaland. SN220758

  17. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 30. nóvember 2022 ásamt kæru ódags. þar sem kærð er ákvörðun umhverfis- skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, dagsett 15. nóvember 2022, um að borgaryfirvöld muni ekki aðhafast í máli er varðar kvartanir kæranda vegna aðgengismála og brota varðandi algilda hönnun í byggingu að Kugguvogi 15, á lóð nr. 1 við Trilluvog. SN220799

  18. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 2. desember 2022 ásamt kæru dags. 2. desember 2022 þar sem kærð er ákvörðun um breytingu á deiliskipulagi fyrir Reynimel 66, sbr. auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda nr. 1218/2022, útgefin 8. nóvember 2022. SN220800

  19. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 4. nóvember 2022 ásamt kæru dags. 28. október 2022 þar sem sem kærður er óeðlilegur dráttur á afgreiðslu máls kæranda hjá byggingarfulltrúa Reykjavíkur og varðar eign kæranda að Hólmaseli 2. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 8. desember 2022. () SN220750

  20. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 9. júní 2022 ásamt kæru dags. 9. júní 2022 þar sem kærð er afgreiðsla byggingarfulltrúa um synjun á breytingu á skrifstofuhúsnæði í íbúðir við Höfðabakka 1. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 1. september 2022. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 25. nóvember 2022. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 12. maí 2022 um að synja umsókn um leyfi til að breyta innra skipulagi hússins að Höfðabakka 1, matshluta 02. () SN220369

  21. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 20. október 2022 ásamt kæru dags. 18. október 2022 þar sem kærður er dráttur sem orðið hefur á því að Reykjavíkurborg afhendi kæranda gögn í máli vegna fjölgunar bílastæða á lóð Furugerðis 2 í Reykjavík samkvæmt beiðni þar um 15. júlí sl. Einnig er lagður fram tölvupóstur skrifstofu stjórnsýslu og gæða, dags. 16. nóvember 2022, til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 5. desember 2022. Úrskurðarorð: Máli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni. () SN220679

  22. Lagt fram bréf borgarstjóra dags 1. desember 2022 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Háskólans í Reykjavík vegna lóðarinnar nr. 83-89 við Nauthólsveg. () SN220421

    Fylgigögn

  23. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um Lönguhlíð, sbr. 16. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 19. október 2022. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dags. 21. nóvember 2022.

    Tillagan er felld með fjórum atkvæðum fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúi Vinstri grænna situr hjá. USK22100082

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ítreka þá skoðun sína að ráðast eigi í almennar endurbætur á sunnanverðri Lönguhlíð í því skyni að styrkja hlutverk hennar sem borgargötu í miðju Hlíðahverfis. Að lágmarki þarf að ráðast í þær umferðaröryggisaðgerðir, sem tilgreindar eru í tillögu Sjálfstæðisflokksins. 

    Fylgigögn

  24. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um flugelda, sbr. 15. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 9. nóvember 2022. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu þjónustu og samskipta, dags. 7. desember 2022.

    Tillögunni er vísað frá með fimm atkvæðum fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúi Vinstri grænna situr hjá. USK22110060

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins lagði til að umhverfis- og skipulagsráð hvetji borgarbúa til að styrkja starf björgunarsveita án þess að kaupa flugelda. Hér er aðeins talað um hvatningu með það að markmiði að draga úr flugeldum í desember og janúar. Svifryk frá flugeldum er talið varasamt og heilsuspillandi vegna efna sem eru í því. Bent hefur verið á af ýmsum sérfræðingum að loftmengun af völdum flugelda hefur neikvæð áhrif á þá sem fyrir henni verða, sérstaklega viðkvæma hópa. Í umsögn er ljóst að ekki á að gera neitt við þessa tillögu heldur talað um að halda á áfram að vara fólk við hættunni og segja því að gæta sín og dýra sinna.  Umsögnin tekur í raun ekki á tillögunni sem var skýr og skorinorð. Í umsögninni er talað um hreinsun og förgun flugelda sem kemur þessari tillögu ekkert við. Málið er að það þarf að finna leiðir til að fá fólk til að draga úr kaupum á flugeldum á sama tíma og tryggt sé að slysavarnafélögin fái fjármagn til að halda úti sínu góða starfi. Ef um væri að ræða eitt kvöld væri málið ekki eins alvarlegt. Skotið er upp flugeldum  fyrir áramót og ekki hætt  fyrr en mörgum vikum eftir áramót.

    Fylgigögn

  25. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um Fossvogsbrú, sbr. 32. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 26. október 2022. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dags. 29. nóvember 2022. USK22100138

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks þakka fyrir svarið en benda á að sú kostnaðartala, sem þar kemur fram getur ekki talist ábyggileg. Sá áætlaði kostnaður sem þar er nefndur, 2,25 milljarðar króna, byggist á tveggja ára gömlum upplýsingum, þ.e.a.s frumdrögum að fyrstu lotu borgarlínu, sem gefin voru út í ársbyrjun 2021 eða áður en brúin fór í hönnunarsamkeppni! Er með nokkrum ólíkindum að notast sé við svo gamlar upplýsingar í svari við fyrirspurn í opinberu ráði um stóra opinbera framkvæmd. Með einfaldri netleit má auðveldlega finna mun nýrri upplýsingar t.d. í frétt á mbl.is 8. desember 2021, þar sem fjallað er um vinningstillögu vegna brúarinnar. Þar er haft eftir einum forsvarsmanna vinningstillögunnar að kostnaðarmat vegna hennar nemi um þremur milljörðum króna. Ekki er þó ljóst hvort það mat byggðist á formlegri kostnaðaráætlun. Verður vart öðru trúað en að fyrir liggi formleg kostnaðaráætlun eða a.m.k. nýrra kostnaðarmat vegna umrædds verkefnis en frá ársbyrjun 2021, ekki síst í ljósi þess að áformað er að hefja framkvæmdir fyrir árslok 2022 eða eftir nokkra daga. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fossvogsbrú hefur tafist von úr viti m.a. vegna útboðsmistaka og þurfti Reykjavíkurborg að greiða skaðabætur ásamt Kópavogi. Það er mat Flokks fólksins að skoða eigi þann möguleika hvort ekki mætti aka almennum bifreiðum yfir brúna. Þar sem það er ákveðin hætta á umferðarvanda verði nýi Skerjafjörður einhvern tímann að veruleika.  Umferð um Hringbraut er löngu sprungin. Fram kemur í svari að  framkvæmdir við Fossvogsbrú hefjist í lok árs 2022 með gerð fyllinga. Flokkur fólksins mótmælir að eyðileggja eigi fjörur sem eru orðnar fágætar í borgarlandinu. Svo er alveg óvíst hvort nýr Skerjafjörður verði yfir höfuð að veruleika í ljósi þess að flugvöllurinn er ekki á förum þar sem  ekki hefur fundist ný staðsetning fyrir hann.

    Fylgigögn

  26. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um kostnað vegna byggingar Gaju, gas- og jarðgerðarstöð Sorpu, sbr. 16. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 9. nóvember 2022. Einnig er lagt fram svar SORPU bs., dags. 2. desember 2022. USK22110063

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framkvæmdir vegna GAJU hafa frá upphafi kostað 5.406 mkr. Kostnaður vegna ráðgjafar er hingað til um 15,1 milljónir króna og kostnaður vegna úrbóta um 8,4 milljónir króna, samtals um 23,5 milljónir króna. Viðgerðum á GAJU er ekki lokið og er áætlaðar kostnaður vegna úrbóta 60 milljónir króna. GAJA, gas- og jarðgerðarstöð hlýtur að vera framkvæmd sem flokkast sem hrakfallasaga. Hún hefur kostað um 4,5 milljarða en hefur verið  ónothæf. Nú eru dýrar  endurbætur í gangi. SORPA hefur tapað málaferlum við byggingarverktaka upp á 90 milljónir, hækkað gjaldskránna úr öllu hófi og þurft að greiða fyrrum framkvæmdastjóra háar skaðabætur. Stjórnun hefur ekki verið í lagi sem erfitt er að bæta úr sem  er hætta þegar um byggðasamlag er að ræða. Vert er að skoða að Reykjavíkurborg stígi út úr samkeppnisrekstri sem þessum. Ekki er að sjá að þessi rekstur gangi vel né sé íbúum Reykjavíkur hagkvæmur, undir stjórn b.s. Kerfisins sem er meingallað fyrirkomulag sérstaklega þegar eigendur eru misstórir eins og raun ber vitni þegar horft er til sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.

    Fylgigögn

  27. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um heildarfjölda íbúða, sbr. 30. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 30. nóvember 2022. Einnig er lögð fram umsókn skrifstofu stjórnsýslu og gæða dags. 5. desember 2022. US220313

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Sú fyrirspurn sem hér er lögð fram er eðlileg og við henni er nauðsynlegt að fá gott svar. Spurt er um hvernig íbúðirnar sem eru tæpar 60 þúsund skiptast í eignaríbúðir annars vegar og leiguíbúðir hins vegar. Einnig er óskað eftir fjölda ósamþykktra íbúða sem vitað er að búið er í eða grunur leikur á að sé búið í. Segir í svari að þessar upplýsingar séu ekki til. Það er afleitt að borgin hafi ekki upplýsingar um hve mikill fjöldi íbúða er ósamþykktur. Skemmst er að minnast hins hræðilega bruna á Bræðraborgarstíg. Taldi Flokkur fólksins þá víst að Reykjavíkurborg ásamt Slökkviliðinu og HMS færu í að gera úttekt á ósamþykktum íverustöðum í borginni. Var þetta allt kannski misskilningur? Vitað er að ákveðinn hópur býr í ótryggu húsnæði þegar kemur að brunavörnum og í sumum tilfellum ósamþykktu húsnæði. Í þeirri erfiðu tíð sem ríkir á húsnæðismarkaði eru fátækir og efnaminna fólk nauðbeygt til að leita sér skjóls í húsnæði sem jafnvel telst ekki vera mannabústaðir. Því erfiðari sem húsnæðismarkaðurinn er þá aukast líkur á því að fólk finni sér skjól í ósamþykktu, hættulegu húsnæði þar sem brunavörnum er ábótavant. Þetta er mikið áhyggjuefni í ljósi vaxandi fátæktar í borginni.

    Fylgigögn

  28. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um talningar á nagladekkjum, sbr. 19. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 9. nóvember 2022. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dags. 30. nóvember 2022. USK22110068

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Svarið er án nokkurs rökstuðnings. Efla á að sjá um talningar og ræður til þess háskólanema. Kostnaður er trúnaðarmál. Háskólanemendum virðist vera stýrt með símtölum sem kosta 7-8 þúsund krónur hvert.  Er hér verið að spara fyrir borgina? En fyrirspurnin beindist að því hvort þetta vinnulag væri hagkvæmt. Enn er óskað eftir svari við því. Það vakti undrun Flokks fólksins þegar í ljós kom að  verkfræðistofa var fengin til að sjá um talningar á nagladekkjum með tilheyrandi umsjónarkostnaði. Nú þegar fjárhagur borgarinnar er á heljarþröm kemur í ljós að áfram á að greiða verkfræðistofunni háa upphæð fyrir það eitt að telja nagladekk. Flokkur fólksins telur  að starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs geti annast verkefni af þessu tagi. Fjárhæðin sem EFLA fær fyrir talningarvinnuna er  trúnaðarmál sem þýðir væntanlega að Sviðið óttast að upplýsa um upphæðina af því hún er há. Hvað er að frétta af  gagnsæinu sem meirihlutinn boðar?. Það er  ekki boðlegt að upplýsingum sé haldið leyndum fyrir borgarbúum. Það þarf ekki að ráða sérfræðinga á háum töxtum til að „telja“. Bent er á að einingarverð verkfræðistofunnar er tæpar 15 þúsund/klst. Hver hálftími sem er skráður á samskipti- sennilega eitt símtal, kostar sitt, eða rúmar sjö þúsund krónur.

    Fylgigögn

  29. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um að íbúðir standi ekki auðar, sbr. 26. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 30. nóvember 2022.

    Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir að vinna með umhverfis- og skipulagssviði að mótun reglna sem komi í veg fyrir að íbúðarhúsnæði standi autt til lengri tíma. Þar verði kveðið á um að ef íbúð hefur verið laus í 6 mánuði þurfi eigandi hennar að gera borginni ljóst fyrir að svo sé. Jafnframt verði kveðið á um að ef enginn hafi haft búsetu í húsnæðinu í síðustu 12 mánuði leiði það til sektargreiðslna, allt að 300.000 krónum. Í kjölfarið munu borgaryfirvöld hafa samband við viðkomandi eiganda og leita leiða til að íbúðin verði nýtt aftur. Sem lokaúrræði, eftir 12 mánuði getur borgin skilgreint íbúðina sem óhagnaðardrifna leigueiningu. Nánari útlistun á reglum fylgir í greinargerð.  

    Tillögunni fylgir greinargerð.
    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu stjórnsýslu og gæða. USK22120005

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Tillagan gengur út á að móta reglur sem komi í veg fyrir að  íbúðarhúsnæði standi autt til lengri tíma og gildir þá einu hvort íbúðin er eignaríbúð, leiguíbúð eða félagslegt leiguhúsnæði á vegum borgarinnar. Standi húsnæði autt í meira en 6 mánuði leggur Sósíalistaflokkurinn til að beita skuli sektum. Flokkur fólksins telur að gera þurfi greinarmun á hvort íbúð sé t.d. eignaíbúð einstaklings eða félagslegt húsnæði á vegum borgarinnar.  Erfitt er að fylgjast með hvort eigendur séu með íbúðir auðar. Öðru máli gegnir ef íbúðin er í eigu borgarinnar. Ítrekað hefur verið bent á að íbúðir Félagsbústaða standi auðar og sumar svo mánuðum skiptir. Fulltrúi Flokks fólksins hefur spurt um þetta og fengið þau svör að verið sé að standsetja þær. Árið 2018 fékk Flokkur fólksins það svar að 90 íbúðir Félagsbústaða væru auðar vegna standsetningar. Vert væri að spyrja um hvað þær eru margar nú. Flokkur fólksins hefur einnig bent á óbyggðar lóðir í Úlfarsárdal. Brögð eru af því að lóðareigendur byggi ekki á lóðum. Dæmi eru um að lóðir hafi staðið  auðar í 15-16 ár. Hér er mikilvægt að setja kvaðir þannig að lóðarhafi fái ákveðinn tímaramma  til að byggja á lóðinni ella skili hann henni.

    Fylgigögn

  30. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um bætt útsýni í Reykjavík fyrir borgarbúa, sbr. 25. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 30. nóvember 2022.

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, deildarstjóra aðalskipulags. USK22120004

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þetta er góð tillaga. Það er sorglegt að sjá hvað búið er að byggja há hús við ströndina og víða búið að fylla fjörur til að koma fyrir háum húsum. Þetta er skemmdarverk. Það þarf að setja ný viðmið í aðal- og deiliskipulagi sem kveður á um að því nær sem byggingar eru strandlengju þeim mun lægri skuli þær vera. Með því að láta háar byggingar standa fjær strandlengju og þær lægri nær tryggjum við að sem flestir hafi útsýni frá heimili sínu. Þetta ætti að tryggja í öllum nýbyggingum í hverfum borgarinnar. Í þessu samhengi má minnast á að fyrirhugað er að skemma einn fallegasta útsýnisstað yfir borgina, Vatnsendahvarfið og koma þar fyrir hraðbraut, (3. Áfanga Arnarnesvegar),  Þarna verður mikið skemmdarverkið unnið sem er óafturkræft og byggja á þessa risa framkvæmd á tæpu 20 ára umhverfismati. Víða í borginni eru komin skuggahverfi, þar sem þétting byggðar hefur farið út í öfgar. Kirkjusandur er eitt dæmi þess. Þar eru nýjar blokkir skyggja á útsýni og lægri blokkir frá Bjargi íbúðafélagi eru látnar dvelja í skugganum án útsýnis. Hér hefði mátt snúa dæminu við. Að taka af fólki útsýni og birtu hefur neikvæð áhrif á heilsu. Þetta hafa rannsóknir ítrekað sýnt.

    Fylgigögn

  31. Á fundi skóla- og frístundaráðs þann 5. desember 2022 var lögð fram fyrirspurn skóla- og frístundarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins frá fundi skóla- og frístundarráðs 21. nóvember 2022. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds. SFS22110190

    Fylgigögn

  32. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um eldri fyrirspurn, sbr. 27. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 30. nóvember 2022.
    Fyrirspurn var svarað á fundi umhverfis- og skipulagsráðs dags. 16. nóvember 2022, liður 10. USK22120010

    Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fyrirspurninni var svarað á fundi ráðsins 16. nóvember.

    Fylgigögn

  33. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um saltgeymslur, sbr. 28. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 30. nóvember 2022.

    Um áratuga skeið hafa saltgeymslur Reykjavíkurborgar staðið við Þórðarhöfða. Staðsetningin er miðsvæðis og því til þess fallin að lágmarka akstur vegna hinnar umfangsmiklu saltdreifingar, sem fer fram á götum borgarinnar á vetri hverjum. Nú er fyrirhugað að loka umræddum saltgeymslum. Óskað er eftir upplýsingum um framtíðarfyrirkomulag saltgeymslu og saltdreifingar í borginni. Verða nýjar saltgeymslur einnig staðsettar miðsvæðis í því skyni að halda akstri vegna saltdreifingar í lágmarki og stuðla þannig að því að hún verði bæði hagkvæm og umhverfisvæn? Hvernig verður núverandi húsnæði og lóð við Þórðarhöfða ráðstafað?

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu reksturs og umhirðu borgarlands. USK22120011

  34. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um umhverfissálfræði í skipulagsmálum borgarinnar, sbr. 31. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 30. nóvember 2022.

    Með hvaða hætti er unnið eftir umhverfissálfræði þegar kemur að skipulagsmálum í Reykjavík? Hverjir sinna þeirri vinnu, ef hún er unnin og undir hvaða starfsheiti?

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, deildarstjóra aðalskipulags. USK22120014

  35. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um bækling Nordic Safe, sbr. 22. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. nóvember 2022.

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu stjórnsýslu og gæða. USK22110144

  36. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um eftirlitsdeild umhverfis- og skipulagssviðs, sbr. 24. lið fundargerðar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 23. nóvember 2022.

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu stjórnsýslu og gæða. USK22110147

  37. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:

    Ábendingar hafa borist um að skólabörn hafi ítrekað verið hætt komin á gangbraut yfir Álftamýri vestan megin við Álftamýrarskóla. Lagt er til að úrbætur verði gerðar sem fyrst á umræddri gangbraut, t.d. með upphækkun, betri merkingum, þrengingu og/eða upplýstri snjallgangbraut. Þá verði séð til þess að ekki sé unnt að leggja bílum alveg við gangbrautina þar sem þeir birgja sýn bílstjóra til hennar. USK22122898

    Frestað.

  38. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:

    Lagt er til að ráðist verði í viðeigandi úrbætur á gangbraut yfir Norðlingabraut, við eystri enda göngubrúar yfir Breiðholtsbraut, á árinu 2023. Umræddar úrbætur felist t.d. í betri merkingum á og við gangbrautina, upphækkun, lýsingu, þrengingu og/eða upplýstri snjallgangbraut. Mikil brögð eru að hraðakstri á þessum stað en leiðin er fjölfarin af börnum og unglingum á leið í og úr skóla eða íþróttastarfi. USK22122899

    Frestað.

  39. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Eins og flestir vita þá er húsnæðismarkaðurinn gríðarlega erfiður og því mikilvægt að nýta íbúðir Félagsbústaða sem best. Í þeirri erfiðu tíð sem nú ríkir á húsnæðismarkaði er viðkvæmasti hópurinn, innflytjendur,öryrkjar,eldri borgarar og einstæðar mæður í erfiðustu stöðunni og neyðast oft á tíðum til að leita sér skjóls í húsnæði sem jafnvel telst ekki vera mannabústaðir. Ítrekað hefur verið bent á að íbúðir Félagsbústaða standi auðar og sumar svo mánuðum skiptir. Fulltrúi Flokks fólksins spurði árið 2018 hversu margar íbúðir væru auðar hjá Félagsbústöðum og þá voru 90 íbúðir auðar vegna standsetningar. Flokkur fólksins spyr hvað margar íbúðir séu auðar núna hjá Félagsbústöðum vegna standsetningar eða vegna annarra ástæðna? USK22122900

  40. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hvernig ætlar meirihlutinn að taka á áskorun fjölmargra að hætta við að loka Siglunesi eins og meirihlutinn hefur lagt til? Flokkur fólksins minnir á tal um samráð og að hlusta á fólk. Starfsemi Siglunes er einstök, fyrst og fremst fyrir þær sakir að þar er ekki rekið hefðbundið íþróttastarf. Iðkendur stunda ekki æfingar, keppa ekki og þar er engin afreksstefna. Þar fá öll börn, og sér í lagi þau sem ekki finna sig í hefðbundnu afreksstarfi íþróttafélaganna, að finna kröftum sínum farveg til að eflast og þroskast á jafningja grundvelli. Skorað hefur verið á meirihlutann að taka mál Siglunes til skoðunar áður en ákveðið verður að loka 55 ára farsælli starfseminni endanlega. Má þar meðal annars skoða stofnun hollvinasamtaka sem létt gætu róðurinn til að afstýra því slysi sem fylgdi því að leggja starfsemina af fyrir þau þúsundir barna sem Siglunes þjónar. USK22122901

Fundi slitið kl. 12:32

Alexandra Briem

Aðalsteinn Haukur Sverrisson Birkir Ingibjartsson
Björn Gíslason Pawel Bartoszek
Sandra Hlíf Ocares Stefán Pálsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 14. desember 2022