Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 197

Umhverfis- og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2017, miðvikudaginn 28. júní kl. 9.11, var haldinn 197. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12-14, 7. hæð, Ráðssal.Viðstödd voru: Hjálmar Sveinsson, Karl Sigurðsson, Herdís Anna Þorvaldsdóttir, Áslaug María Friðriksdóttir, Sveinbjörg B. Sveinbjörnsdóttir og Torfi Hjartarson áheyrnarfulltrúi. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Örn Sigurðsson, Björn Axelsson, Stefán Agnar Finnsson, Gunnar Már Jakobsson, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson og Helena Stefánsdóttir.

Fundarritari var Erna Hrönn Geirsdóttir.

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð   Mál nr. SN010070

Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, dags. 20. og 23. júní 2017.

2. Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Kópavogsgöng, stofnbraut felld út   Mál nr. SN170317

Lögð fram drög að tillögu að breytingu á aðalskipulagi, dags., júní 2017, sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, ásamt umhverfisskýrslu, dags. júní 2017, sbr. lög nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.

Vinnslutillaga ásamt umhverfisskýrslu samþykkt til kynningar og umsagnar sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til umsagnar Skipulagsstofnunar, hverfisráðs Háaleitis og Bústaða, hverfisráðs Breiðholts, Vegagerðarinnar, Umhverfisstofnunar, Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins.

Vinnslutillaga verður aðgengileg á vef umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Herdís Anna Þorvaldsdóttir og Áslaug María Friðriksdóttir og fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina Sveinbjörg B. Sveinbjörnsdóttir bóka: „Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsókna og flugvallarvina samþykkja að senda framkomna tillögu í auglýsingu enda felur það ekki í sér samþykki á henni. Mikilvægt er að fullkomið umferðarmódel liggi fyrir við framtíðarákvarðanir um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu. Á fundi borgarstjórnar 21. mars 2017 var samþykkt að vísa svohljóðandi tillögu til umhverfis- og skipulagsráðs: “Borgarstjórn samþykkir að hefja innleiðingu á fullkomnu umferðarmódeli sem mæli alla samgöngumáta hvor sem það eru einkabílar, almenningssamgöngur, hjólreiðar, gangandi umferð, fyrirhuguð borgarlína eða aðrir mögulegir samgöngumátar. Leitað verði samstarfs við önnur sveitarfélög og Vegagerðina við kaup og innleiðingu á umferðarmódeli.” Teljum við mikilvægt að umferðarmódelið liggi fyrir áður en lokaákvörðun verður tekin um þetta mál.“ 

Haraldur Sigurðsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Kl. 9.22 tekur Sverrir Bollason sæti á fundinum.

3. Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Gufunes, Breytt landnotkun atvinnusvæðis. Þróun blandaðrar byggðar  (02.2) Mál nr. SN170527

Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, dags. júní 2017, að verklýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér breytta landnotkun atvinnusvæðis að Gufunesi.

Verklýsing samþykkt til kynningar og umsagnar sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt að vísa verklýsingunni til umsagnar hverfisráðs Grafarvogs, íbúasamtaka Grafarvogs, skóla- og frístundasviðs, svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins, aðliggjandi sveitarfélaga, Skipulagsstofnunar og Sorpu.

Lýsingin verður aðgengileg á vef umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur.

Vísað til borgarráðs.

Haraldur Sigurðsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

4. Gufunes, áfangi 1, lýsing  (02.2) Mál nr. SN170476

Lögð fram lýsing umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. 9. júní 2017, um nýtt deiliskipulag fyrir Gufunessvæðið, 1.áfanga. Stærð svæðis er um 12,5 hektarar og markmiðið er að skipuleggja áhugaverðar og spennandi lóðir tengdar kvikmyndaþorpi í tengslum við blandaða byggð á svæðinu. Jafnframt að huga að tengingum innan og utan svæðis og hafa í huga heildarsýn á skipulagssvæðið og nýta þann grunn sem vinningstillaga úr hugmyndasamkeppni um svæðið leiddi í ljós.

Lýsing samþykkt til kynningar og umsagnar með vísan til 1. mgr. sbr. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt að vísa lýsingunni til umsagnar hverfisráðs Grafarvogs, íbúasamtaka Grafarvogs, Skipulagsstofnunar, Faxaflóahafna, Vegagerðarinnar, Umhverfisstofnunar, Náttúrufræðistofnunar, Minjastofnunar Íslands Borgarsögusafns Reykjavíkur, Orkuveitu Reykjavíkur/Veitna, og Sorpu

Lýsingin verður aðgengileg á vef umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur.

Vísað til borgarráðs.

Björn Ingi Edvardsson verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

5. Bíldshöfði 18, breyting á deiliskipulagi  (04.065.0) Mál nr. SN170477

Riverside ehf., Logafold 144, 112 Reykjavík

Teiknir ehf., Logafold 144, 112 Reykjavík

Lögð fram umsókn Marvins Ívarssonar, mótt. 8. júní 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða vegna lóðarinnar nr. 18 við Bíldshöfða. Í breytingunni felst að hafa fjölbreytta blandaða atvinnustarfsemi í mannvirkjum á lóðinni í formi skrifstofuhúsnæðis, verslunar og þjónustu, matvælaframleiðslu, veitingahúsa, gististaða í flokki I-III, heildsölu, lagerhúsnæðis, létts iðnaðar og verkstæða fyrir létta iðnaðarstarfsemi., samkvæmt uppdr. Teiknir ehf., dags. 26. júní 2017.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Vísað til borgarráðs.

Halldóra Hrólfsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

6. Þ59 Sprengisandur, deiliskipulag  (01.826.1) Mál nr. SN150638

Arkís arkitektar ehf., Kleppsvegi 152, 104 Reykjavík

Lögð fram tillaga Landslags ehf. og Arkís arkitekta ehf., dags. 26. júní 2017, að deiliskipulagi fyrir svæðið Þ59 Sprengisandur. Í tillögunni felst uppbygging atvinnuhúsnæðis á þremur lóðum þar sem nú er Bústaðavegur 151. Einnig eru lögð fram minnisblöð verkfræðistofunnar Eflu, dags. 20. febrúar 2017, varðandi hljóðvist og 23. febrúar 2017, varðandi umferðarreikninga og húsakönnun Landslags, dags. 15. maí 2017.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Vísað til borgarráðs.

Halldóra Hrólfsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

7. Njálsgötureitur, breyting á skilmálum deiliskipulags  (01.190.3) Mál nr. SN170268

Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 23. mars 2017, að breytingu á skilmálum deiliskipulags Njálsgötureits, reitur 1.190.3. Í breytingunni felst að heimilað er að hafa gististarfsemi við Barónsstíg sem er skilgreind sem aðalgata samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Tillagan var auglýst frá 10. apríl 2017 til og með 22. maí 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Guðrún Dalía Salómonsdóttir, dags. 15. maí 2017, Catharine Fulton, dags. 15. maí 2017, Þórarinn M. Baldursson, dags. 15. maí 2017, Tania Sif Te Maiharoa, dags. 15. maí 2017, Snæbjörn Pálsson, dags. 19. maí 2017, Þórdís Gísladóttir, dags. 19. maí 2017, Alexander Dan Vilhjálmsson, dags. 19. maí 2017, Sigurður Ingi Ævarsson, dags. 19. maí 2017, Hildigunnur Rúnarsdóttir, dags. 19. maí 2017, Vésteinn Snæbjarnarson, dags. 19. maí 2017, Vigdís Gunnarsdóttir, dags. 19. maí 2017, Hilda G. Birgisdóttir, dags 21. maí 2017, Petrina Rós Karlsdóttir, dags. 21. maí 2017, Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir, dags. 22. maí 2017, Benóný Ægisson f.h. Íbúasamtaka Miðborgar, dags. 22. maí 2017, Hermann Karlsson, dags. 22. maí 2017, Catharine Fulton, samþ íbúasamt., dags. 22. maí 2017, Ásta Lilja Ásgeirsdóttir, dags. 22. maí 2017, Hlynur Johnsen, f.h. foreldrafélags Grænuborgar, dags. 22. maí 2017, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, dags. 22. maí 2017, Bjarki Gunnar Halldórsson, dags. 22. maí 2017 og Aðalsteinn Jörundsson, dags. 22. maí 2017. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. júní 2017.

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 16. júní 2017.

Vísað til borgarráðs.

Fulltrúi Samfylkingarinnar Sverrir Bollason, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Herdís Anna Þorvaldsdóttir og Áslaug María Friðriksdóttir og fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina Sveinbjörg B. Sveinbjörnsdóttir sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Halldóra Hrólfsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

8. Holtavegur 23, Langholtsskóli, breyting á deiliskipulagi  (01.430.1) Mál nr. SN170523

Reykjavíkurborg - eignasjóður, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík

Lögð fram umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, mótt. 22. júní 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Langholtsskóla að Holtavegi 23. Í breytingunni felst að núverandi byggingarreitur fyrir færanlegar stofur á suðausturhluta lóðarinnar sunnan við álmu C færist nær álmu C, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 22. júní 2017.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Vísað til borgarráðs.

Jón Kjartan Ágústsson verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

9. Bauganes 1A, breyting á deiliskipulagi  (01.672.0) Mál nr. SN170205

Hildur Bjarnadóttir, Hofteigur 20, 105 Reykjavík

Einar Sævarsson, Bauganes 1a, 101 Reykjavík

Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Hildar Bjarnadóttur, mótt. 8. mars 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Einarsness vegna lóðar nr. 1A við Bauganes. Í breytingunni felst að auka byggingarmagn á lóðinni, þar sem gert er ráð fyrir að byggja ofan á bílskúr og tengja hann við húsið, og byggja við eldhús sem snýr til austurs, samkvæmt uppdr. Hildar Bjarnadóttur, dags. 2. mars 2017. Tillagan var grenndarkynnt frá 24. apríl 2017 til og með 22. maí 2017.  Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Björk Einarsdóttir, dags. 16. maí 2017. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. júní 2017.

Leiðrétt bókun frá fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 21. júní 2017. Rétt bókun er: Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. júní 2017.

10. Hlíðarendi 2, breyting á deiliskipulagi  (01.629.8) Mál nr. SN160971

Valsmenn hf., Laufásvegi Hlíðarenda, 101 Reykjavík

ALARK arkitektar ehf, Dalvegi 18, 201 Kópavogur

Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Kristjáns Ásgeirssonar, mótt. 23. desember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda vegna lóðarinnar nr. 2 við Hlíðarenda. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit og aukning á byggingarmagni á reit A, samkvæmt uppdr. ALARK arkitekta ehf., dags. 22. desember 2016. Einnig er lagður fram skýringaruppdráttur og greinargerð ALARK arkitekta ehf., dags. 22. desember 2016. Einnig er lagður fram tölvupóstur Jóhanns Halldórssonar f.h. lóðarhafa Hlíðarenda H-reit, dags. 27. apríl 2017, og tölvupóstur Bjarna Más Bjarnasonar f.h. Hlíðarenda 1-7, 28 og 34, dags. 27. apríl 2017, þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdafresti. Tillagan var auglýst frá 20. mars til og með 15. maí 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Lex lögmannsstofa f.h. NH eigna ehf., dags. 12. maí 2017, Lex lögmannsstofa f.h. Dalhúss ehf., dags. 12. maí 2017, og Jóhann Halldórsson hrl. f.h. O1 ehf. dags. 14. maí 2017.

Athugasemdir kynntar.

Áslaug María Friðriksdóttir víkur af fundi undir þessum lið.

Hildur Gunnarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

(B) Byggingarmál

11. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð   Mál nr. BN045423

Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 930 frá 27. júní 2017.

Fundi slitið kl. 11.30.

Hjálmar Sveinsson

Karl Sigurðsson Sverrir Bollason

Herdís Anna Þorvaldsdóttir  Áslaug María Friðriksdóttir

Sveinbjörn B. Sveinbjörnsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2017, þriðjudaginn 27. júní kl. 09:50 hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 930. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Skúli Þorkelsson, Áróra Árnadóttir, Nikulás Úlfar Másson, Halldóra Theódórsdóttir, Erna Hrönn Geirsdóttir, Jón Hafberg Björnsson og Sigríður Maack

Fundarritari var Erna Hrönn Geirsdóttir

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Aðalstræti 4  (01.136.501) 100591 Mál nr. BN053029

Best ehf., Pósthólf 5378, 125 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að skipta út útidyrahurð í móttöku og koma fyrir rafdrifinni snúningshurð með flóttahurð til hliðar í hóteli á lóð nr. 4 við Aðalstræti.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits á umsóknarblaði.

2. Arngrímsgata 5  (01.550.701) 221201 Mál nr. BN052975

Framkvæmdasýsla ríkisins, Borgartúni 7, 150 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja "Hús íslenskra fræða" sem verður þrjár hæðir og kjallari auk bílakjallara fyrir 60 bíla, staðsteypt og klætt cortenstáli, ásamt því að innrétta veitingastað í flokki l - tegund c, á lóð nr. 5 við Arngrímsgötu.

Erindi fylgir brunahönnun frá Eflu dags. 16. maí 2017 og skýringasett sem sýnir breytingar frá áður samþykktu erindi BN044048.

Erindi fylgir hljóðvistargreinargerð frá Eflu dags. 12.05.2017.

Stærð, A-rými:  6.464,5 ferm., 28.415,4 rúmm.

B-rými:  2.271,3 ferm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

3. Ármúli 42  (01.295.104) 103836 Mál nr. BN053098

Glófaxi ehf., Ármúla 42, 108 Reykjavík

Sótt er um leyf til að breyta flokki veitingarstaðarins úr flokki I tegund A í flokk II  tegund A í pizzastaðnum á 1. hæð í húsinu á lóð nr. 42 við Ármúla.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

4. Árskógar 1-3  (04.912.101) 224212 Mál nr. BN053116

Félag eldri borgara, Stangarhyl 4, 110 Reykjavík

Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir uppsteypu kjallaraveggja og plötu yfir kjallara fjölbýlishúsa og bílageymslu á lóð nr. 1-3 við Árskóga sbr. erindi BN051288.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

5. Ásvallagata 28  (01.162.017) 101243 Mál nr. BN053056

TD á Íslandi ehf., Ásvallagötu 28, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að hækka þak á viðbyggingu og framlengja yfir þaksvalir á austurhlið og innrétta fimm gistieiningar sem verða gististaður í flokki II, teg. gistiheimili í einbýlishúsi á lóð nr. 28 við Ásvallagötu.

Stækkun:  xx rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

6. Básbryggja 51  (04.024.102) 178662 Mál nr. BN053019

Þorbjörn Sigurðsson, Básbryggja 51, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í því að íbúðir 0303 og 0304 hafa verið sameinaðar og rými 0402 og 0403, sem áður tilheyrðu íbúðum á neðri hæð, eru sameinuð íbúð 0401 samhliða því að óskað er eftir að áður samþykkt erindi BN052370 verði fellt úr gildi í húsi á lóð nr. 51 við Básbryggju.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrgðaraðilar.

Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.   

7. Bergstaðastræti 4  (01.171.307) 101407 Mál nr. BN053000

Gamma ehf., Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki II tegund C sem verður tengdur matvinnslu sem er á annarri hæð hússins á lóð nr. 4 við Bergstaðastræti.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

8. Borgartún 8-16A  (01.220.107) 199350 Mál nr. BN053048

Höfðahótel ehf., Stórhöfða 34-40, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja geymslu í bílakjallara á hæð -1 við norðvestur hlið hótels á lóð nr. 1 við Þórunnartún.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

9. Dalaland 1-11 2-16  (01.850.201) 108757 Mál nr. BN052978

Guðmundur Benedikt Friðriksson, Rauðalækur 71, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi í kjallara ásamt því að breyta mörkum eignarhluta í húsi nr. 4 á lóð nr. 1-16 við Dalaland.

Samþykki meðeigenda dags. 01.06.2017 fylgir erindi.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

10. Efstaland 26  (01.850.101) 108756 Mál nr. BN052972

Reitir I ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN052228, um er að ræða breytingar á texta um brunavarnir v/lokaúttektar á gististað í flokki II, teg. gistiheimili í húsi á lóð nr. 26 við Efstaland.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

11. Efstasund 50  (01.357.219) 104445 Mál nr. BN053047

Tryggvi Hallvarðsson, Efstasund 75, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að rífa einbýlishús á lóð nr. 50 við Efstasund.

Mhl. 01: 67,5 ferm., 277,0 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

12. Eggertsgata 2-34  (01.634.-99) 106682 Mál nr. BN053096

Félagsstofnun stúdenta, Háskólatorgi Sæmundar, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta 8 íbúðum í mhl. 18 og 19 í fjórar sjálfstæðar leikskóladeildir, byggja við mhl. 18 og 19, tengja þá viðbygginu við mhl. 17 og breyta skipulagi í eldhúsi og kaffistofu starfsmanna á leikskóla í mhl. 17 sem er starfandi leikskóli  í húsunum  nr. 30, 32 og 34 á lóð nr. 2 -34 við Eggertsgötu.

Hljóðvistargreinargerð dags. 14.06.2017 fylgir.

Stækkun á mhl. er: Mhl. 17 stækkar um XX ferm., XX rúmm.

Mhl. 18 stækkar um XX ferm., XX rúmm.

Mhl. 19 stækkar um XX ferm., XX rúmm.

Samtals stækkun alla mhl. er: 229,6 ferm., 701,3 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

13. Eldshöfði 10  (04.035.303) 110540 Mál nr. BN053094

Eignarhaldsfélagið Partur ehf, Eldshöfða 10, 110 Reykjavík

Sótt er um breytingu á erindi BN051405 sem felst í lækkun gólfkóta húss um 1,0 m og breytingu á fyrirkomulagi bílastæða á lóð nr. 10 við Eldshöfða.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Eyjarslóð 1  (01.111.502) 100028 Mál nr. BN052195

GT 2 ehf., Fiskislóð 31, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja nýja inndregna 3. hæð yfir mhl. 01 og 02 úr stáli og timburgrind, fjölga eignum í báðum matshlutum, breyta innra skipulagi 2. hæðar í mhl. 2, koma fyrir burðarsúlum og nýrri steyptri loftplötu yfir 2. hæð í mhl. 01 og nýjum inngangi á 1. hæð í húsi á lóð nr. 1 við Eyjarslóð.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. júní 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. júní 2017.

Bréf frá hönnuði dags. 03 feb. 2017 og samþykki frá Hólmaslóð 2a. 6. febr. 2017 fylgir.

Stækkun mhl. 01:  178,2 ferm. XX. rúmm.

Mhl. 02: 334,0 ferm., XX rúmm.

Samtals stækkun: 512,2ferm., XX rúmm.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 22. júní 2017.

15. Eyjarslóð 1  (01.111.502) 100028 Mál nr. BN052779

Klapparvör ehf, Tryggvagötu 11, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða viðbygginu úr járnbentri steinsteypu, einangrað að utan á byggingareit sem er merktur sem mhl. 03 á loð nr. 1 við Eyjarslóð.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. júní 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. júní 2017.

Stærð hús er: 1.088,3 ferm., 4.291,5 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 22. júní 2017.

16. Fiskislóð 27  (01.089.203) 209691 Mál nr. BN052945

S.K.Ó. ehf., Lindarbraut 9, 170 Seltjarnarnes

Sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða skrifstofuhús úr forsmíðuðum einingum, klætt sementsbundnum plötum á staðsteyptum sökkli á lóð nr. 27 við Fiskislóð.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. júní 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2017.

Erindi fylgja greinargerð um brunavarnir og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 22. maí 2017.

Stærð:  2.545,7 ferm., 9.510,7 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2017.

17. Fiskislóð 37B  (01.086.501) 224291 Mál nr. BN052515

Brimrún ehf., Hólmaslóð 4, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt 4. hæða skrifstofu-, verslunar- og lagerhúsnæði á lóð nr. 37B við Fiskislóð.

Skýrsla brunahönnuðar dags. 1 nóv. 2016 og varmatapsútreikningar dags. 21 nóv. 2016 fylgir erindinu.

Stærð hús:  A rými  1. hæð 847,0 ferm., 3.248,0 rúmm. 2. hæð 576,9 ferm., 1.863,5 rúmm. 3. hæð 576,9 ferm., 1922,8 rúmm. 4. hæð 367,8 ferm., 1.315,0 ferm.  Samtals. 2.368,6 ferm.,  samtals 8.523,4 rúmm.  B rými 380,7 ferm og 1195,6 rúmm.  Samtals A og B: 2.632,4 ferm og 9730,4 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

18. Fiskislóð 49-51  (01.087.602) 100012 Mál nr. BN053090

Kaðall ehf., Hellulandi 12, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN052100 þannig að breytt er herbergjaskipan á 2. hæð, salerni fyrir fatlaða og sturtum í búningsklefa, skráningartafla er uppfærð og texta í byggingalýsingu breytt hvað varðar brunamál, loftræstingu og sorp í húsi á lóð nr. 51 við Fiskislóð.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

19. Fjölnisvegur 9  (01.196.507) 102663 Mál nr. BN052946

Jónas Hagan Guðmundsson, Fjölnisvegur 9, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við bílskúr að lóðarmörkum til austurs ásamt skyggni með þaksvölum framan við bílskúr að lóðarmörkum til vesturs og skyggni á 2. hæð á suðvestur gafli í húsi á lóð nr. 9 við Fjölnisveg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. júní 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2017.

Stækkun:

A-rými x ferm., x rúmm.

B-rými x ferm., x rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2017.

20. Frakkastígur 8  (01.172.109) 101446 Mál nr. BN052781

Blómaþing ehf., Pósthólf 8814, 128 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN047643 þar sem innra skipulagi í 1. áfanga er breytt og útidyr, geymslur, sorpgeymslur og hjóla- og vagnageymsla færðar til og í 2. áfanga innréttað lagnarými í stað jarðvegsfyllingar, fyrirkomulagi baðherbergja breytt og gluggar stigahúss gerðir opnanlegir, ásamt því að þakformi lyftustokka í 1. og 2. áfanga er breytt í fjölbýlishúsum á Frakkastígsreit á lóð nr. 8 við Frakkastíg.

Stærðarbreyting:  30,7 ferm., -382,6 rúmm.

Erindi fylgir greinargerð hönnuðar dags. 25. apríl 2017.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits á umsóknarblaði.

21. Friggjarbrunnur 32  (05.053.304) 205957 Mál nr. BN052533

Bjartmar Örn Arnarson, Gvendargeisli 42, 113 Reykjavík

Litla tré ehf., Gvendargeisla 42, 113 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN036790 þannig að innra skipulagi í kjallara er breytt með því að koma fyrir salerni og aðstöðu til eldunar og koma fyrir gluggum á suðaustur hlið kjallara og minnka pall á lóð nr. 32 við Friggjarbrunn.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. júní 2017 fylgir erindinu.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

22. Friggjarbrunnur 53  (02.693.103) 205831 Mál nr. BN052833

RED ehf., Garðastræti 37, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi stæða í bílgeymslu, breyta skiptingu svala á 5. hæð ásamt því að breyta frágangi þaka, sjá erindi BN048621, í fjölbýlishúsi að Skyggnisbraut 2 á lóð nr. 53 við Friggjarbrunn.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

23. Grandagarður 11  (01.115.206) 100053 Mál nr. BN052968

Reykjavík Napólí ehf., Hverfisgötu 50, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í fl. II tegund C með 30 gestum í rými 0101 í nr. 11 og loka á milli húsa nr. 9 og 11 á lóð nr. 11 við Grandagarð.

Samþykki eiganda dags. 18 maí 2017 fylgir.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

24. Grandagarður 9  (01.115.205) 100052 Mál nr. BN053020

Reykjavík Napólí ehf., Hverfisgötu 50, 101 Reykjavík

Grandagarður ehf., Sæviðarsundi 96, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að loka á hurð milli á fyrstu hæða á húsa á nr. 9 og 11 á lóð nr. 9 við Grandagarð.

Samþykki eiganda dags. 18 maí 2017 fylgir. Sbr. BN052968

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

25. Grenimelur 8  (01.541.308) 106338 Mál nr. BN052433

Hrefna Ólafsdóttir, Grenimelur 8, 107 Reykjavík

Stefán Sigurðsson, Grenimelur 8, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að hækka og endurgera þakhæð ásamt því að setja nýjar svalir á 1. og 2. hæð í húsi á lóð nr. 8 við Grenimel.

Stækkun: 80,2 ferm., 145,8 rúmm.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. mars 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. mars 2017.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

26. Haukdælabraut 10  (05.114.502) 214788 Mál nr. BN053084

Lilja Leifsdóttir, Ásvegur 17, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á lóð nr. 10 við Haukdælabraut.

Stærðir: x ferm., x rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

27. Hverafold 78  (02.862.501) 110237 Mál nr. BN053055

Magnús Magnússon, Hverafold 78, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja anddyri á milli íbúðarhúss og bílskúrs og sameina matshluta 01 og 02 í einn á lóð nr. 78 við Hverafold.

Stækkun x ferm., x rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

28. Hverfisgata 85  (01.154.315) 101129 Mál nr. BN053106

Rauðsvík ehf., Skúlagötu 30, 101 Reykjavík

Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir undirstöðum, botnplötu og lögnum í grunn fyrir fjölbýlishús á lóð nr. 85-93 við Hverfisgötu sbr. erindi BN52367.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

29. Hverfisgata 88A  (01.174.003) 101559 Mál nr. BN052505

Rauðsvík ehf., Skúlagötu 30, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að flytja hús sem áður stóðu á Hverfisgötu 90 og 92, endurbyggja á nýrri 1. hæð og kjallara og innrétta verslun á jarðhæð og tvær íbúðir á efri hæðum á lóð nr. 88A við Hverfisgötu.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar umhverfis- og skipulagsráðs frá 21. júní 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags.  19. júní 2017.

Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 22. mars 2017 og umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 30. mars 2017.

Stækkun:  xx ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. júní 2017.

30. Hverfisgata 90  (01.174.006) 101562 Mál nr. BN052899

Rauðsvík ehf., Skúlagötu 30, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að rífa hús, í stað þess að flytja það, á lóð nr. 90A við Hverfisgötu.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar umhverfis- og skipulagsráðs frá 21. júní 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. júní 2017.

Stærðir: Mhl.02 79,7 ferm.

Erindi fylgir tölvupóstur umsækjanda dags. 03.05.2017 og minnisblað Lotu verkfræðistofu dags. 14.03.2017.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. júní 2017.

31. Hverfisgata 90  (01.174.006) 101562 Mál nr. BN052504

Rauðsvík ehf., Skúlagötu 30, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, byggja kvist á götuhlið og fjarlægja stigahús á bakhlið fjölbýlishúss á lóð nr. 90 við Hverfisgötu.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar umhverfis- og skipulagsráðs frá 21. júní 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. júní 2017.

Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 22. mars 2017 og umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 30. mars 2017.

Stækkun:  xx ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. júní 2017.

32. Hverfisgata 92  (01.174.007) 101563 Mál nr. BN052898

Rauðsvík ehf., Skúlagötu 30, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að rífa hús, í stað þess að flytja það, á lóð nr. 92 við Hverfisgötu.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar umhverfis- og skipulagsráðs frá 21. júní 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. júní 2017.

Stærðir: Mhl.01 154,1 ferm.

Erindi fylgir tölvupóstur umsækjanda dags. 03.05.2017 og minnisblað Lotu verkfræðistofu dags. 14.03.2017.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. júní 2017.

33. Keilugrandi 1  (01.513.301) 105790 Mál nr. BN053062

Búseti húsnæðissamvinnufélag, Síðumúla 10, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja fimm ný fjölbýlishús með alls 78 íbúðum ásamt því að rífa núverandi hús á lóð nr. 1-11 við Keilugranda.

Stærðir:

Mhl. 01 A-rými x ferm., x rúmm. B-rými x ferm., x rúmm.

Mhl. 02 A-rými x ferm., x rúmm. B-rými x ferm., x rúmm.

Mhl. 03 A-rými x ferm., x rúmm. B-rými x ferm., x rúmm.

Mhl. 04 A-rými x ferm., x rúmm. B-rými x ferm., x rúmm.

Mhl. 05 A-rými x ferm., x rúmm. B-rými x ferm., x rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Kirkjustétt 2-6  (04.132.201) 188525 Mál nr. BN052287

M fasteignir ehf., Bæjarlind 14-16, 200 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1. og 2. hæð og innrétta sjálfstæðar vinnustofur á efri hæð í mhl. 02 ásamt því að fjölga eignarhlutum úr 8 í 18 í húsi á lóð nr. 2-6 við Kirkjustétt.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. mars fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. mars 2017.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

35. Klettháls 5  (04.342.501) 188539 Mál nr. BN053052

Stilling hf, Kletthálsi 5, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja 2. áfanga, sem er viðbygging á steyptum sökkli með burðarvirki úr stáli og hýsa mun lager, við hús á lóð nr. 5 við Klettháls.

Stærðir: x ferm., x rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

36. Kringlan 4-12  (01.721.001) 107287 Mál nr. BN053049

Arion banki hf., Borgartúni 19, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi bankaútibús, sem felst í því að koma fyrir kynningarsal og fundarherbergi og fækka skrifstofum þjónustufulltrúa, í verslunarmiðstöð á lóð nr. 4-12 við Kringluna.

Samþykki Rekstrarfélags Kringlunnar er áritað á teikningu.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

37. Kringlan 4-12  (01.721.001) 107287 Mál nr. BN052894

Reitir VII ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við Mhl.01 undir núverandi skyggni á norðurgafli ásamt því að breyta innra fyrirkomulagi í einingu 151 sem er verslun Hagkaupa á 1. hæð í verslunarmiðstöð á lóð nr. 4-12 við Kringluna.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. júní 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2017.

Stækkun: A-rými 24,5 ferm., 90,6 rúmm.

Bréf brunahönnuðar dags. 16.05.2017 fylgir erindi.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

38. Laugarnesvegur 39  (01.360.010) 104502 Mál nr. BN052813

Sigurbjörg Jónsdóttir, Laugarnesvegur 39, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að fá ósamþykkta íbúð í kjallara, rými 0002, samþykkta sem íbúð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 39 við Laugarnesveg.

Jákvæð fyrirspurn BN05778 dags. 20. júní 2016 fylgir.

Samþykki meðeigenda ódags. fylgir.

Greiða þarf fyrir eitt bílastæði í flokki III

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

39. Laugavegur 28  (01.172.206) 101461 Mál nr. BN053024

Hengill Fasteignir ehf., Síðumúla 29, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN050215, breytt er fyrirkomulagi í eldhúsi og innra skipulagi í glerskála á bakhlið hótels á lóð nr. 28 við Laugaveg.

Erindi fylgir uppfærð brunahönnun dags. 8. júní 2017.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda umhverfis- og heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.

40. Laugavegur 55  (01.173.020) 101507 Mál nr. BN051430

L55 ehf., Amtmannsstíg 1, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja nýbyggingu með verslun á jarðhæð og gististað í flokki IV, teg. a - hótel á efri hæðum fyrir 104 gesti í 58 herbergjum og veitingastað í flokki II á lóð nr. 55 við Laugaveg.

Stærð A-rými: 1.938,1 ferm., 6.441,4 rúmm.

B-rými 87,1 ferm.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. október 2016 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. október 2016 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 27. maí 2016.

Einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. mars og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. mars 2017.

Umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 26.06.2017 varðandi kvaðir um aðkomu fylgir.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

41. Laugavegur 86-94  (01.174.303) 101639 Mál nr. BN052941

Sjöstjarnan ehf., Suðurlandsbraut 46, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki I tegund C fyrir 15 gesti í rými 0101 í mhl. 01 á lóð nr. 86-94 við Laugaveg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. júní 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. júní 2017.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

42. Lautarvegur 32  (01.794.607) 213582 Mál nr. BN052920

Vetrarfell ehf., Seljavegi 2, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða raðhús úr forsmíðuðum timbureiningum á steinsteyptum kjallara með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 32 við Lautarveg.

Stærð, A-rými:  341,9 ferm., 1.183,1 rúmm.

B-rými:  8,4 ferm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

43. Lautarvegur 34  (01.794.608) 213583 Mál nr. BN052921

Vetrarfell ehf., Seljavegi 2, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða raðhús úr forsmíðuðum timbureiningum á steinsteyptum kjallara með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 32 við Lautarveg.

Stærð, A-rými:  341,9 ferm., 1.183,1 rúmm.

B-rými:  8,4 ferm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

44. Nökkvavogur 11  (01.441.113) 105435 Mál nr. BN051458

Jeannette Castioni, Nökkvavogur 11, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að síkka glugga í stofu á suðurhlið, koma fyrir svalahurð við hlið hans ásamt stigapalli og tröppum út í garð, síkka glugga í kjallara á suður- og vesturhlið og koma fyrir nýjum glugga í kjallara á austurhlið í húsi á lóð nr. 11 við Nökkvavog.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. október 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. október 2016.

Samþykki frá meðeigendum lóðar dags. 28. Júní 2016 og umsögn Burðarvirkishönnuðar dags. 21. sept. 2016 fylgir

Gjald kr. 10.100 + 10.100

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

45. Skarphéðinsgata 6  (01.243.203) 103100 Mál nr. BN053001

Jakobína Edda Sigurðardóttir, Hlaðhamrar 34, 112 Reykjavík

Gunnar Eiríksson, Hlaðhamrar 34, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að endurnýja og hækka ásamt því að breyta gluggum og hurðum á bílskúr lóð nr. 6 við Skarphéðinsgötu.

Samþykki fylgir ódags. og umboð frá Gunnhildi Hörpu Gunnarsdóttir sem veitir Gunnari þór umboð til að fara með atkvæði í hússtjórn.

Stækkun: 19,1 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

46. Skipholt 31  (01.251.004) 103433 Mál nr. BN053036

Víðsjá-kvikmyndagerð ehf, Birkihlíð 13, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að gera bruggverksmiðju í mhl. 02 rými 0101 sem í dag er vörugeymsla og fá samþykkta útitröppur og áður útfærða gönguhurð á austur hlið á húsinu á lóð nr.  31 við Skipholt.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

47. Skúlagata 3  (01.150.101) 173294 Mál nr. BN053006

Plan 21 ehf, Álakvísl 134, 110 Reykjavík

Veitur ohf., Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN049674, þannig að í stað glers verður sett stál í fallvörnum á dælustöð á lóð nr. 3 við Skúlagötu.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

48. Snorrabraut 37  (01.240.301) 102987 Mál nr. BN052999

MSG ehf, Háuhlíð 10, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að koma fyrir skiltum á norðvesturhorni Austurbæjarbíós á lóð nr. 37 við Snorrabraut.

Bréf frá hönnuði dags 22. júní 2017 og Minjastofnun Íslands dags. 22. júní 2017 fylgir.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

49. Sogavegur 73-75  (01.811.201) 107823 Mál nr. BN052836

SV737 ehf., Borgartúni 24, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að rífa mhl.01, fastanúmer 203-4337, og mhl.04, fastanúmer 203-4339, á lóð nr. 73-75 við Sogaveg.

Niðurrif:

Mhl. 01: 581,6 ferm.

Mhl. 04:   48,3 ferm.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

50. Sogavegur 73-75  (01.811.201) 107823 Mál nr. BN052684

S73-77 ehf., Borgartúni 24, 105 Reykjavík

SV737 ehf., Borgartúni 24, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja 3ja hæða fjölbýlishús, auk kjallara, með 19 íbúðum ásamt því að rífa núverandi hús á lóð nr. 73-75 við Sogaveg.

Stærðir:

A-rými: 2.512,4 ferm., 8.643,9 rúmm.

B-rými: x ferm., x rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

51. Sogavegur 77  (01.811.202) 186150 Mál nr. BN052837

SV737 ehf., Borgartúni 24, 105 Reykjavík

S73-77 ehf., Borgartúni 24, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða fjölbýlishús með 26 íbúðum auk bílgeymslu í kjallara á lóð nr. 77 við Sogaveg.

Stærðir:

A-rými 3.676,3 ferm., 12.041,9 rúmm.

B-rými 37,9 ferm., x rúmm.

Greinargerð um hljóðvist dags. desember 2016 fylgir erindi.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

52. Stigahlíð 33A  (01.712.003) 223987 Mál nr. BN053023

Veitur ohf., Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík

Sótt er um breytingu á erindi BN051279 vegna lokaúttektar sem felst í því að í staðinn fyrir torf og grjót eru settir völusteinar á þak á lokahúsi fyrir Veitur á lóð nr. 33A við Stigahlíð.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

53. Sæbraut 101  (01.340.401) 173289 Mál nr. BN052990

Plan 21 ehf, Álakvísl 134, 110 Reykjavík

Veitur ohf., Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN052990, þannig að í stað glers er notað stál í fallvörnum á dælustöð á lóð nr. 101 við Sæbraut.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

54. Úlfarsbraut 34-36  (02.698.304) 205715 Mál nr. BN053075

Bjarni Þór Pálsson, Úlfarsbraut 34, 113 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum framkvæmdum vegna lokaúttektar á erindi BN035801 þannig að gert er grein fyrir svalalokunun á mhl. 01 og 02 sem eru á kerfi sem saman stendur af málmbraut og glerflekum úr öryggisgleri á parhúsinu lóð nr. 34-36 við Úlfarsbraut.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

55. Varmahlíð 1  (01.762.501) 107476 Mál nr. BN053095

Eignasjóður Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík

Veitur ohf., Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja anddyri með burðarvirki úr eldvörðu stáli og nýrri og stærri hringhurð við núverandi aðalinngang Perlunnar á lóð nr. 1 við Varmahlíð.

Stækkun : XX ferm., XX rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu verður vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa þegar nýjar teikningar berast embættinu.

56. Vesturbrún 10  (01.380.205) 104743 Mál nr. BN053088

Snorri Már Skúlason, Vesturbrún 10, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja geymslu, mhl. 03, fyrir aftan núverandi bílskúr og stækka svalir á vesturhlið á mhl.01 í húsi á lóð nr. 10 við Vesturbrún.

Nýbygging, mhl. 03:  57,2 ferm., 160,7 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

57. Ægisíða 48  (01.555.004) 106619 Mál nr. BN052157

Kári Guðjón Hallgrímsson, Bretland, Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu á tveimur hæðum, ásamt því að rífa núverandi bílskúr og byggja nýjan við einbýlishús á lóð nr. 48 við Ægisíðu.

{Stækkun: 162,3 ferm., 496,6 rúmm.

Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa við fyrirspurn SN150475 dags. 09.11.2015.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Málinu verður vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu þegar nýjar teikningar berast embættinu.

58. Öldugata 53  (01.134.305) 100354 Mál nr. BN052952

Öldugata 53,húsfélag, Öldugötu 53, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja svalir á bakhlið 2., 3. og 4. hæðar, gera sérnotaflöt fyrir íbúð 1. hæðar og koma fyrir fellistiga á fjölbýlishúsi á lóð nr. 53 við Öldugötu.

{Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. júní 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. júní 2017.

{Jafnframt er erindi BN046007 dregið til baka.

Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 21. maí 2017.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 22. júní 2017.

Fyrirspurnir

59. Vesturhús 1  (02.848.001) 109839 Mál nr. BN053101

Gerður Björk Kjærnested, Miðhús 48, 112 Reykjavík

Spurt er hvort leyfi fáist til að gera nýjan glugga, 120 X 120 cm að stærð, í kjallara á suðurgafli svo hægt verði að nota núverandi geymslu sem svefnherbergi eða skrifstofu í einbýlishúsi á lóð nr. 1 við Vesturhús.

Jákvætt.

Samanber umsögn á fyrirspurnarblaði. Sækja þarf um byggingarleyfi.

Fleira gerðist ekki.

Fundi slitið kl. 12.17

Erna Hrönn Geirsdóttir

Nikulás Úlfar Másson Jón Hafberg Björnsson

Sigríður Maack Skúli Þorkelsson

Halldóra Theódórsdóttir Áróra Árnadóttir