Umhverfis- og skipulagsráð - 63. fundur samgöngunefndar

Umhverfis- og skipulagsráð

Fundargerð samgöngunefndar

Ár 2003, föstudaginn 7. nóvember kl. 10:30 var haldinn 63. fundur samgöngunefndar Reykjavíkur í sal borgarráðs í Ráðhúsinu.

Þessir sátu fundinn: Árni Þór Sigurðsson, Gísli Marteinn Baldursson, Haukur Logi Karlsson og Steinunn V. Óskarsdóttir.

Einnig komu á fundinn: Ágúst Jónsson, Björn Ingi Sveinsson, Ólafur Bjarnason og Stefán Haraldsson. 

Fundarritari var Þórhildur Lilja Ólafsdóttir.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram breytt útgáfa að starfsáætlun Bílastæðasjóðs Reykjavíkur fyrir árið 2004. Stefán Haraldsson framkvæmdastjóri kynnti. Starfsáætlun Bílastæðasjóðs samþykkt með 2 samhljóða atkvæðum. Fulltrúi Sjálfstæðisflokks í samgöngunefnd sat hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir kom á fundinn kl. 10:40.

2. Lögð fram starfsáætlun skrifstofu borgarverkfræðings og Verkfræðistofu RUT fyrir árið 2004. Björn Ingi Sveinsson og Ágúst Jónsson kynntu. Samþykkt. með 3 samhljóða atkvæðum. Fulltrúi Sjálfstæðisflokks sat hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.

3. Formaður samgöngunefndar lagði fram svar við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokks.
Lögð fram í nefndinni greinargerð um Evrópsku samgönguvikuna og þar verður að finna efnisleg svör við fyrirspurn 1. og 2.

Foringja D-listans í samgöngunefnd verður ekki legið á hálsi fyrir að fara hefðbundnar leiðir í störfum sínum í borgarstjórn. Í framlagðri fyrirspurn freistar hann þess að gera formann samgöngunefndar tortryggilegan og draga heilindi hans varðandi breyttan ferðamáta í borginni í efa. Fyrirspurnin hefur að sjálfsögðu ekkert með málefnið að gera en efni hennar og þeim tóni, sem greina má í henni, er fyrst og fremst ætlað að veitast að persónu formanns nefndarinnar. Fyrirspyrjanda til upplýsinga skal það þó tekið fram að formaður samgöngunefndar notar iðulega ýmsa ferðamáta í daglegum störfum, hann fer ferða sinna ýmist fótgangandi, akandi eða í strætó, auk þess að nýta reiðhjólið stöku sinnum. Í samræmi við hugmyndafræði Evrópsku samgönguvikunnar nýtti formaður samgöngunefndar einmitt hina fjölbreyttu ferðamáta þá daga sem vikan stóð eins og endra nær. Í þeim samanburði á borgarfulltrúi Kjartan Magnússon ekki úr háum söðli að detta, þó það sé efni þessa máls óviðkomandi. Sú aðferð sem borgarfulltrúi Kjartan Magnússon velur við að reyna að koma höggi á formann samgöngunefndar er líklega fordæmalaus innan borgarstjórnar. Hann kýs að leggjast á kaf í forarpytt í þeim tilgangi en verður sér um leið til minnkunar. Formaður samgöngunefndar þolir vel persónulegt skítkast af hálfu Kjartans Magnússonar, en með vinnubrögðum sínum dregur hann einnig félaga borgarstjórnarflokks D-listans með sér inn á sömu braut. Ekki vex vegsemd þeirra fyrir vikið.
Fleira gerðist ekki og var fundi slitið kl. 10:50

Árni Þór Sigurðsson
Haukur Logi Karlsson
Gísli Marteinn Baldursson
Steinunn V. Óskarsdóttir