Umhverfis- og heilbrigðisráð - Fundur nr. 9

Umhverfis- og heilbrigðisráð

Ár 2018, miðvikudaginn 14. nóvember kl. 13:04 var haldinn 9. fundur umhverfis- og heilbrigðisráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Ráðssal. Viðstödd voru: Líf Magneudóttir, Kristín Soffía Jónsdóttir, Dóra Magnúsdóttir, Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, Egill Þór Jónsson, Marta Guðjónsdóttir og fulltrúi atvinnulífsins, Ólafur Jónsson. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Örn Sigurðsson, Rósa Magnúsdóttir, Óskar Ísfeld Sigurðsson, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson, Þórólfur Jónsson, Guðmundur Benedikt Friðriksson og Sigurjóna Guðnadóttir.

Fundaritari er Erna Hrönn Geirsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Sundahöfn, breyting á aðalskipulagi, stækkun hafnarsvæðis         Mál nr. SN180358

    Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju drög að tillögu umhverfis- og skipulagssviðs dags. í september 2018 að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Í breytingunni felst að stækka hafnarsvæðið (H4) í Sundahöfn með landfyllingum við Klettagarða og Skarfabakka-Kleppsbakka ásamt umhverfisskýrslu VSÓ ráðgjafar dags. í september 21018. Drög að tillögu voru kynnt til og með  7. nóvember 2018. Eftirtaldir aðilar sendu umsagnir: Bláskógabyggð dags. 1. nóvember 2018, Garðabær dags. 6. nóvember 2018 og Veitur dags. 7. nóvember 2018.
    Einnig er lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags í nóvember 2018 ásamt umhverfisskýrsla  VSÓ ráðgjöf dags. í september 2018. 
    Kynnt.
    Umhverfis- og heilbrigðisráð bókar: Umhverfis- og heilbrigðisráð felur skrifstofu umhverfisgæða að gera umsögn um breytingu á aðalskipulagi vegna hafnarsvæðis við Sundahöfn og umsögn um drög að breytingu á aðalskipulagi vegna iðnaðar og annarrar landfrekrar starfssemi á Esjumelum. 

    Haraldur Sigurðsson tekur sæti undir þessum lið.

    Fylgigögn

  2. Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, iðnaður og önnur landfrek starfssem, drög að breytingu         Mál nr. US180359

    Lagt er fram drög að breytingu að iðnaði og annarri landfrekri starfsemi. Einnig eru lögð fram umhverfisskýrsla.
    Kynnt.
    Umhverfis- og heilbrigðisráð bókar: Umhverfis- og heilbrigðisráð felur skrifstofu umhverfisgæða að gera umsögn um breytingu á aðalskipulagi vegna hafnarsvæðis við Sundahöfn og umsögn um drög að breytingu á aðalskipulagi vegna iðnaðar og annarrar landfrekrar starfssemi á Esjumelum. 

    Haraldur Sigurðsson tekur sæti undir þessum lið.

    Fylgigögn

  3. Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, iðnaðarsvæði við Álfsnesvík, drög að breytingu         Mál nr. US180367

    Lagt er fram drög að tillögu að breytingu á iðnaðarsvæði við Álfsnesvík. 
    Kynnt.

    Umhverfis- og heilbrigðisráð bókar: Umhverfis- og heilbrigðisráð felur skrifstofu umhverfisgæða að gera umsögn um breytingu á aðalskipulagi vegna hafnarsvæðis við Sundahöfn og umsögn um drög að breytingu á aðalskipulagi vegna iðnaðar og annarrar landfrekrar starfssemi á Esjumelum. 

    Haraldur Sigurðsson tekur sæti undir þessum lið.

    Fylgigögn

  4. Tillögur Náttúrufræðistofnunar, B-hluti náttúruminjaskrár         Mál nr. US180372

    Kynntar tillögur Náttúrufræðistofnunar að svæðum í Reykjavík til B-hluta náttúruminjaskrár.
    Kynnt.

    Snorri Sigurðsson verkefnastjóri tekur sæti á fundi undir þessum lið.

  5. Umhverfis- og heilbrigðisráð, jól 2018         Mál nr. US180351

    Lagt er til að fundur umhverfis- og heilbrigðisráðs falli niður 19. desember 2018. 
    Samþykkt.

  6. Umhverfis- og skipulagssvið, innkaupaskýrsla (USK2015020003)         Mál nr. US130045

    Lagt fram yfirlit yfir viðskipti umhverfis- og skipulagssviðs við innkaupadeild í október 2018.
    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Marta Guðjónsdóttir og Egill Þór Jónsson bóka: Sjálfstæðisflokkurinn leggur mikla áherslu á að framkvæmdir sem koma fram í innkaupaskýrslu standist áætlun. Ábyrgðaraðili skal tryggja að ekki verði um framúrkeyrslu á verkefnum að ræða eins og áður hefur þekkst í öðrum verkefnum Reykjavíkurborgar. 

    Fylgigögn

  7. Umhverfis- og heilbrigðisráð, samþykktir         Mál nr. US180349

    Kynnt drög að samþykktum fyrir umhverfis- og heilbrigðisráð og lagðar fram athugasemdir frá skrifstofu sviðstjóra.
    Athugasemdir samþykktar með þeim breytingum sem komu fram á fundinum.

    Fleira gerðist ekki.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 14:20

Líf Magneudóttir Marta Guðjónsdóttir