Umhverfis- og heilbrigðisráð - Fundur nr. 60

Umhverfis- og heilbrigðisráð

Ár 2021, miðvikudaginn 17. nóvember 2021, kl. 10:00 var haldinn 60. fundur umhverfis- og heilbrigðisráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi.

 

Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Líf Magneudóttir, Rannveig Ernudóttir og fulltrúi Samtaka atvinnulífsins Ólafur Jónsson.

Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Skúli Þór Helgason, Sabine Leskopf, Björn Gíslason, Jórunn Pála Jónasdóttir og Baldur Borgþórsson.

 

Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Rósa Magnúsdóttir, Guðmundur Benedikt Friðriksson og Jóhanna Guðjónsdóttir.

 

Fundarritari var Glóey Helgudóttir Finnsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Skipulags- og samgönguráð og umhverfis- og heilbrigðisráð 2018-2022, fundadagatal 2022         Mál nr. SN130008

    Lögð fram drög að fundadagatali skipulags- og samgönguráðs og umhverfis- og heilbrigðisráðs fyrir árið 2022.

    Samþykkt.

    -    Kl. 10:02 tekur fulltrúi Samtaka atvinnulífsins Ólafur Jónsson sæti á fundinum

        Heilbrigðisnefnd,          Mál nr. US210013

    Fylgigögn

  2. Lögð fram umsagnarbeiðni umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, dags. 8. október 2021, um ósk um undanþágu frá kröfu um lágmarkslofthæð á veitingastaðnum Devitos Pizza að Laugavegi 126. Einnig er lagt fram bréf frá arkitekt FAÍ, dags. 27. september 2021, til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, uppdráttur að Laugavegi 126, Devitos pizza, dags. 10. október 2021 og umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 15. október 2021. 

    Rúnar Ingi Tryggvason heilbrigðisfulltrúi tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  3. Lögð fram fundargerð framkvæmdastjórnar um vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins nr. 136, frá 28. október 2021.

    Fylgigögn

  4. 4.    Lagt fram erindi verkefnastjórnar svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs 2021 til 2032 á Suðvesturlandi, ásamt fylgigögnum. Einnig er lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 27. október 2021.  

    Guðjón Ingi Eggertsson heilbrigðisfulltrúi tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram drög að reglugerð um áfyllingarstöðvar fyrir vélknúin ökutæki, dags. nóvember 2021, ásamt umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 1. nóvember 2021.

    Guðjón Ingi Eggertsson heilbrigðisfulltrúi tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  6. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu, um ákvarðanir Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur vegna skotsvæðis: Lagt er til að fundin verði lausn á ágöllum á birtingu ákvarðana Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, sbr. ákvarðanir úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 51 og 56/2021. Nýr vettvangur fyrir birtingu verði tilbúinn fyrir 20. janúar 2022. Einnig er lagt fram svar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 12. nóvember 2021.

    Tillögunni er vísað frá. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins greiða atkvæði gegn frávísun.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Á grundvelli upplýsinga um að málið sé í vinnslu og að það hylli undir lausn í birtingu ákvarðana Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er tillögunni vísað frá.

    Fylgigögn

  7. Lagður fram listi dags. 17. nóvember 2021 yfir samþykkt tóbaks- og starfsleyfi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.

        Að loknum málum Heilbrigðisnefndar víkur Ólafur Jónsson af fundi.

    (E) Umhverfismál

    Fylgigögn

  8. SORPA bs., fundargerð         Mál nr. US130002

    Lagðar fram fundargerðir stjórnar Sorpu Bs. nr. 457 dags. 8. október 2021, nr. 458 dags. 13. október 2021 og nr. 459 dags. 15. október 2021 ásamt fylgigögnum.

    Fylgigögn

  9. Úthlutun úr styrktarsjóði fyrir fjöleignarhús, til uppsetningar á hleðslustöðvum fyrir rafbíla, tillaga         Mál nr. US200386    

    Lögð fram til afgreiðslu tillaga umhverfis- og skipulagssviðs um úthlutun á styrkjum til húsfélagsins Aflagranda 40 og húsfélagsins Vættaborgum úr styrktarsjóði til uppsetninga á hleðslustöðvum fyrir rafbíla við fjöleignarhús, ásamt fylgigögnum.

    Samþykkt. 

    (D) Ýmis mál

    Fylgigögn

  10. Gróðursetning við Kirkjusand, umsagnarbeiðni, R21100099, USK2021110020         Mál nr. US210326

    Lögð fram umsagnarbeiðni borgarráðs, dags. 8. nóvember 2021, vegna styrkumsóknar Guðmundar Kristjáns Bjarnasonar, dags. 30. september 2021, til Borgarsjóðs fyrir hönd húsfélagsins að Kirkjusandi 1, 3 og 5 þar sem sótt er um styrk til að gróðursetja og fegra umhverfið við gatnamót Kirkjusands og Sæbrautar á lóðamörkum við þessar götur. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða, dags. 11. nóvember 2021. 

    Samþykkt.
    Vísað til borgarráðs.

    Fylgigögn

  11. Andrými félagsrými, félagasamtök, umsagnarbeiðni, R21100148, USK2021110019
             Mál nr. US210327
    Lögð fram umsagnarbeiðni borgarráðs, dags. 8. nóvember 2021, vegna styrkumsóknar Andrýmis félagsrýmis, félagasamtök, dags. 29. september 2021, til Borgarsjóðs þar sem sótt er um styrk til að halda uppi rými fyrir einstaklinga til að læra og rækta ávexti og grænmeti. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða, dags. 11. nóvember 2021.

    Samþykkt.
    Vísað til borgarráðs.

    (E) Umhverfismál

    Fylgigögn

  12. Vöktun á fuglalífi í Reykjavík sumarið 2021, kynning         Mál nr. US210296

    Lagt fram til kynningar minnisblað umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða, dags. 14. október 2021, um vöktun mikilvægra fuglasvæða í Reykjavík ásamt viðauka.

    Freydís Vigfúsdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundabúnaði.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Reykjavík var fyrst sveitarfélaga til að setja sér stefnu um líffræðilega fjölbreytni og er að mörgu að hyggja til að skapa umhverfi og búsvæði fyrir lífverur í borginni. Fuglvöktun er mikilvægur liður í því að sjá hvernig megi vernda, styðja og styrkja fjölbreytt fuglalíf í Reykjavík í ólíku og fjölbreyttu umhverfi borgarinnar. Það er því mikilvægt að rannsaka og afla gagna þar að lútandi bæði til að framfylgja stefnu Reykjavíkur um líffræðilega fjölbreytni en líka til að móta nýja stefnu og grípa til aðgerða svo Reykjavík haldi sannarlega áfram að vera umhverfisvæn og lífvænleg borg fyrir allar lífverur.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Miðflokks þakka góða kynningu. Þeir kalla þó eftir að talning varðandi Árbæjarlón og Elliðarárdal verði birt ráðinu, bæði fyrir og eftir tæmingu lónsins fyrir ofan stíflu. Leitt er að ekki hafi verið skoðað betur hver áhrif tæming lónsins kynni að hafa á fuglalíf á svæðinu en ásýndin er sú að það sé ekki svipur hjá sjón.

    Fylgigögn

  13. Votlendissjóður, bréf         Mál nr. US210319

    Lagt fram bréf Votlendissjóðs, dags. 25. október 2021, þar sem óskað er eftir  samstarfi við Reykjavíkurborg um endurheimt votlendis í landi borgarinnar. 

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða.

    Fylgigögn

  14. Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021 til 2032 á Suðvesturlandi, skýrsla, umsögn         Mál nr. US210332

    Lagt fram erindi verkefnastjórnar svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs 2021 til 2032 á Suðvesturlandi, ásamt fylgigögnum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða, dags. 1. nóvember 2021.

    Friðrik Klingbeil Gunnarsson ráðgjafaverkfræðingur tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundabúnaði.

    (D) Ýmis mál

    Fylgigögn

  15. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins, leggja fram svohljóðandi fyrirspurn, varðandi jarðvegsmengun         Mál nr. US210336

    Er heimilt að byggja leik- og grunnskólahúsnæði og íbúðarhús á lóð þar sem þungmálmar eru yfir leyfilegum mörkum í jörðu? Óskað er eftir skriflegu svari á næsta reglubundna fundi ráðsins.

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, Heilbrigðiseftirlits og skipulagsfulltrúa.

Fundi slitið klukkan 11:47

Líf Magneudóttir Sabine Leskopf

Skúli Helgason

PDF útgáfa fundargerðar
umhverfis_og_heilbrigdisrad_1711.pdf