Stjórnkerfis- og lýðræðisráð - Fundur nr. 77

Stjórnkerfis- og lýðræðisráð

Ár 2018, 7. maí, var haldinn 77. fundur stjórnkerfis- og lýðræðisráðs. Fundurinn var haldinn í Tjarnarbúð og hófst kl. 13:36. Fundinn sátu, Halldór Auðar Svansson, Diljá Ámundardóttir, Eva Einarsdóttir, Eva Baldursdóttir, Elín Oddný Sigurðardóttir, Skúli Helgason, Örn Þórðarson, Herdís Anna Þorvaldsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Jón Ingi Gíslason. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Óskar J. Sandholt, Tinna Garðarsdóttir, Stefán Eiríksson. Fundarritari var Theódóra Sigurðardóttir.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á málum hjá umboðsmanni borgarbúa á fyrsti ársfjórðungur ársins 2018.

    Ingi B. Poulsen tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning á kosningaverkefninu, Ég kýs. 

    Anna Kristinsdóttir, Helga Björk Laxdal og Hrefna Hallgrímsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 14:41 tekur Eva Einarsdóttir sæti á fundinum og Diljá Ámundardóttir víkur.
     

    Fylgigögn

  3. Lögð fram tillaga stjórnkerfis- og lýðræðisráðs, dags. 7. maí 2018, um stöðu hverfisráða í skipuriti Reykjavíkurborgar og drög að nýjum samþykktum hverfisráða,sbr. 3. lið fundargerðar stjórnkerfis- og lýðræðisráðs frá 24. apríl 2018 og 14. lið fundargerðar borgarráðs frá 12. apríl 2018. 
    Samþykkt og vísað til forsætisnefndar. 

    Fylgigögn

  4. Fram fer umræða um síðasta fund stjórnkerfis- og lýðræðisráðs á kjörtímabilinu. 

Fundi slitið klukkan 15:35

Skúli Helgason