Stjórnkerfis- og lýðræðisráð - Fundur nr. 57

Stjórnkerfis- og lýðræðisráð

Ár 2017, mánudaginn 24. apríl, var haldinn 57. fundur Stjórnkerfis- og lýðræðisráð. Fundurinn var haldinn í Tjarnabúð og hófst klukkan 14:08. Viðstödd voru Halldór Auðar Svansson, Inga Auðbjörg Kristjánsdóttir, Eva Einarsdóttir, Herdís Anna Þorvaldsdóttir, Björn Gíslason, Jón Ingi Gíslason, Gísli Garðarsson. Eftirtaldir gestir sátu fundinn: Ingi Rafn Sigurðsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Stefán Eiríksson, Oddrún Helga Oddsdóttir, Óskar Jörgen Sandholt og Sandra Dröfn Gylfadóttir sem ritaði fundargerð

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á verkefni Karolina Fund með forsætisráðuneyti Finnlands sem svipar til verkefnisins Hverfið mitt.

    Ingi Rafn Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

     

    Kl. 13.37 tekur Gísli Garðarsson sæti á fundinum.

     

    Kl. 13.42. tekur Herdís Anna Þorvaldsdóttir sæti á fundinum.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram verkefnistillaga Capacent vegna vinnustofu með hverfisráðum þann 15. maí 2017.

    Fylgigögn

  3. Lögð fram tilkynning til stjórnkerfis- og lýðræðisráðs, dags. 6. apríl 2017, um staðsetningu umboðsmanns borgarbúa, stjórnskipulega stöðu embættisins og samstarf á sviði eftirlits með stjórnsýslu Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram ábending innri endurskoðunar, dags. 18. apríl 2017, er snýr að stjórnkerfis- og lýðræðisráði vegna útgáfu úttektarskýrslu á stjórnun upplýsingatæknimála, ásamt fylgiskjölum.

    Skrifstofu borgarstjóra og borgarritara er falið að skrá viðbrögð við ábendingu innri endurskoðunar.

    Stjórnkerfis- og lýðræðisráð leggur fram svohljóðandi bókun:

     

    Stjórnkerfis- og lýðræðisráð telur tillögu um formlegan starfshóp upplýsingatæknimála jákvæða og tímabæra og tekur undir hana. Stefnumótandi ákvarðanir á þessu sviði eru mikilvægur liður í starfsemi borgarinnar og nauðsynlegt er að tryggja að þær styðji við aðra stefnumótun hennar og meginmarkmið. Borgin hefur til að mynda sett sér upplýsingastefnu og þjónustustefnu þar sem skilvirk nýting upplýsingatækni í þágu gagnsæis og þjónustuveitingu eru lykilmarkmið. Þó er bent á að nauðsynlegt er að tryggja að störf slíks starfshóps séu skilvirk í framkvæmd, með því að huga að því hvernig hann er mannaður með tilliti til fjölda fulltrúa og hversu hægt þeir eiga með að sækja fundi. Þannig mætti hugsa sér að í stað þess að skipa skrifstofustjóra fagsviða og miðlægra skrifstofa í hópinn gætu þau tilnefnt aðra fulltrúa úr sínum röðum.

     

  5. Lögð fram til kynningar ósk um kynningu á starfsemi og verkefnum stjórnkerfis- og lýðræðisráðs fyrir sendinefnd frá sveitastjórnarráðuneyti Lettlands.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan :