Skóla- og frístundaráð - og frístundaráð

Skóla- og frístundaráð

Menntaráð

Ár 2006, 2. febrúar kl. 15:10 var haldinn 27. fundur menntaráðs í fundarherbergi ráðsins að Fríkirkjuvegi 1. Fundinn sátu Þorlákur Björnsson, varaformaður, Heiða Björg Pálmadóttir, Svandís Svavarsdóttir, Guðrún Ebba Ólafsdóttir Guðlaugur Þór Þórðarson og Hanna Birna Kristjánsdóttir. Auk þeirra sátu fundinn Gísli Helgason, áheyrnarfulltrúi F- lista, Hólmfríður Guðjónsdóttir fulltrúi skólastjóra, Þorgerður Laufey Diðriksdóttir frá Kennarafélagi Reykjavíkur, Ingibjörg Kristleifsdóttir, fulltrúi leikskólastjóra, Alla Dóra Smith og Sigrún Sigurðardóttir, fulltrúar leikskólakennara, Jóhanna Rósa Arnardóttir frá samtökunum Börnin okkar og Bergþóra Valsdóttir fulltrúi SAMFOKs. Jafnframt sátu fundinn Gerður G. Óskarsdóttir, sviðsstjóri, Anna Kristín Sigurðardóttir, Arthur Morthens, Birna Sigurjónsdóttir, Hildur Skarphéðinsdóttir, Kolbrún Vigfúsdóttir og Runólfur Birgir Leifsson.
Fundargerð ritaði Laura Bergs.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram bréf um embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa menntaráði, eitt mál (fskj.1.1).

2. Lagt fram minnisblað frá deildarstjóra gagnadeildar um fjölda barna og fjölda rýma í leikskólum Reykjavíkurborgar, nýtingarhlutfall leikskóla, fjölda biðvistaðra barna og barna á skráningarbið (fskj. 2.1).
Ákveðið var að framvegis verði sambærilegar upplýsingar lagðar fram á fundi menntaráðs einu sinni í mánuði.

Kl. 15:25 tók Sigrún Elsa Smáradóttir sæti á fundinum.

3. Staða sérkennslumála í grunnskólum Reykjavíkur.
Lagt fram svar við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokks frá 23. fundi um framkvæmd stefnu um grunnskóla án aðgreiningar í Reykjavík (fskj. 3.1).
Gerð var nánari grein fyrir svarinu og fyrirspurnum svarað.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks þakka fyrir svör við fyrirspurnum þeirra um skóla án aðgreiningar. Samkvæmt svarinu telja 27#PR skólanna í Reykjavík að stefnan hafi að einhverju leyti komist til framkvæmda. Þá er rétt að vekja athygli á því að í svarinu kemur ekki fram hvaða vandamál tengjast stefnunni, sbr. orð borgarstjóra í Morgunblaðinu 1. desember sl. Ennfremur er mikilvægt að árétta að svörin byggjast á könnun meðal skólastjórnenda en ekki kennara og nemenda.
Lagt fram minnisblað frá skrifstofustjóra grunnskólaskrifstofu um niðurstöður fundar fulltrúa menntaráðs með fulltrúum Félags grunnskólakennara um skóla án aðgreiningar (fskj. 3.2).
Lögð fram til kynningar úttekt Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands Um líðan, nám og kennslu heyrnarlausra og heyrnarskertra nemenda í Hlíðaskóla (fskj. 3.3).
Skrifstofustjóri grunnskólaskrifstofu kynnti úttektina og Kristrún G. Guðmundsdóttir, skólastjóri Hlíðaskóla sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Áheyrnarfulltrúi SAMFOKs lagði fram eftirfarandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi þakkar ítarlegt og faglegt mat á sameiningu Vesturhlíðarskóla og Hlíðaskóla. Mikilvægt er að niðurstöðurnar verði skoðaðar vel og nýttar til úrbóta. Áheyrnarfulltrúi foreldra leggur áherslu á mikilvægi þess að nemendur jafnt og foreldrar heyrnarlausra, heyrnarskertra og heyrandi nemenda taki þátt í þeirri vinnu.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks taka undir bókun áheyrnarfulltrúa SAMFOKs en hvetja auk þess til þess að líðan allra nemenda, heyrnarskertra og heyrandi, verði könnuð.

4. Lagt fram svar skrifstofustjóra grunnskólaskrifstofu og forstöðumanns upplýsinga-tækniþjónustu við fyrirspurn fulltrúa SAMFOKs á 25. fundi ráðsins varðandi tölvumál í grunnskólum (fskj. 4.1).
Áheyrnarfulltrúi SAMFOKs lagði fram eftirfarandi fyrirspurnir:
1. Er til ítarleg, tímasett, áætlun um innleiðingu Tölvutaka í grunnskólum Reykjavíkur?
2. Hvað er gert ráð fyrir að innleiðing Tölvutaka kosti?
3. Hvenær var fræðsluráði/menntaráði kynnt að kaup á fjarkennsluumhverfi væri forsenda fyrir gangsetningu og notkun á Tölvutökum?
4. Hvaða fjarkennsluumhverfi var keypt, hvað kostaði það og hver er rekstarkostnaðurinn?
5. Á vegum menntamálaráðuneytisins starfar hópur sem fjallar um staðla í kennslukerfum. Hefur fulltrúi Menntasviðs tekið þátt í þeirri vinnu? Ef svo er ekki, af hverju?
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks fara fram á eftirfarandi:
a) Upplýsingar um samning við Línu.net, þ.m.t. kostnaður sundurliðaður eftir árum.
b) Hvaða forsendur voru fyrir þessum samningi.
c) Eintak af stefnu grunnskóla Reykjavíkur í tölvumálum.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:
Það er löngu ljóst að þróun tölvumála í grunnskólum Reykjavíkur hefur ekki verið með þeim hætti sem nauðsynlegt hefði verið. Sú staðreynd sem fram kemur m.a. í svari við fyrirspurn fulltrúa SAMFOKs „að skortur á almennum tölvubúnaði í skólum og fjármagni til reksturs og framfylgni nýrra verkefna hefur hægt á öllum verkefnum sem byrjað hefur verið á” hefur staðið mikilvægri þróun í skólastarfi fyrir þrifum.

5. Lagt fram minnisblað frá verkefnisstjóra á grunnskólaskrifstofu um niðurstöður könnunar á vímuefnaneyslu grunnskólanemenda (fskj. 5.1).
Forvarnaráætlun Reykjavíkurborgar lögð fram til kynningar (fskj. 5.2).

6. Lögð fram tillaga skrifstofustjóra grunnskólaskrifstofu um upphaf skólastarfs og vetrarfrí hjá nemendum í grunnskólum Reykjavíkur skólaárið 2006 – 2007 (fskj. 7.1).
Samþykkt með 4 samhljóða atkvæðum.

7. Lögð fram drög að þriggja ára fjárhagsáætlun Menntasviðs (fskj. 8.1).
Fjármálastjóri gerði grein fyrir málinu.
Áheyrnarfulltrúi SAMFOKS lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:
Hversu mikið fjármagn mun menntaráð eyrnamerkja á árinu 2006 til að mæta þörf á táknmálstúlkun í grunnskólum Reykjavíkur, sbr. nýfallinn dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar að lútandi ?

8. Styrkir menntaráðs 2006.
Lagt fram yfirlit yfir fjármagn sem til ráðstöfunar er vegna styrkja menntaráðs til fræðslu- og þróunarverkefna í leikskólum, grunnskólum og tónlistarskólum skólaárið 2006 – 2007 (fskj.8.1).
Lögð fram tillaga um að eftirtaldir aðilar hljóti almenna styrki menntaráðs: (fskj. 8.2)

Nafn umsækjanda; Tilefni umsóknar: Upphæð

Berta L. Faber Verkrammi fyrir kennslu í Víkurskóla #GLInternational Primary Curriculum IPC#GL 150.000
GRUNNSKÓLI

Myndhöggvarafélagið í Reykjavík Staðarvitund sérkenni landa, samvinna 6 Evróðuþjóða. 1.163.000
Rósa Sigrún Jónsdóttir
GRUNNSKÓLI

Áki Árnason Handbók fyrir leikskólakennara um mikilvægi þess að fjallað sé um fjölskyldugerðir á opinskáan hátt í leikskólum 300.000
Áki Árnason
LEIKSKÓLI

Heimili og skóli Verkefni sem hefur það markmið að hvetja til umræðu um heimanám innan skólasamfélagsins 250.000
Elín Thorarensen
GRUNNSKÓLI

Samfok, Heimili og skóli og Símenntunarst. KHÍ Fræðslukvöld fyrir foreldra 300.000
Bergþóra Valsdóttir
GRUNNSKÓLI

LAUF-Samtök áhugafólks um flogaveiki Fræðslubæklingur um flogaveiki barna á skólaaldri 200.000
GRUNNSKÓLI

Vísindavefurinn Efla áhuga barna á þekkingu og vísindum nútímans, kynna þeim Vísindavefinn sem uppsprettu þekkingar og sem tæki í skólastofu og námi 500.000
Þorsteinn Vilhjálmsson
GRUNNSKÓLI

Samtök áhugafólks um skólaþróun Til undirbúnings stofnun samtaka um skólaþróun 150.000
Ingvar Sigurgeirsson
LEIK-OG GRUNNSKÓLI

Guðrún Eiríksdóttir Tölvuleikur sem ætlaður er til að kynna yngstu kynslóðinni #GLTákn með tali#GL 700.000
Guðrún Eiríksdóttir
LEIKSKÓLI

Móðurmál Endumenntunarnámskeið um móðurmálskennslu og tvítyngi fyrir starfandi kennara 700.000
Barbara J. Kristvinsson
GRUNNSKÓLI

KASA hópurinn Tónleikar í leikskólum borgarinnar 500.000
Nína Margrét Grímsdóttir
LEIKSKÓLI

Landssamband slökkviliðs-og sjúkraflutn.manna Eldvarnarvika í grunnskólum sem er fræðsla 8 ára barna um eldvarnir. 500.000
Sigurlaug Indriðadóttir
GRUNNSKÓLI

Ungmennafélag Íslands Leikþættir fyrir börn á grunnskólaaldri sem fræða þá um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi 400.000
Svava Björnsdóttir
GRUNNSKÓLI

Sigrún Grendal Magnúsdóttir Rannsókn á notkun Tákna með tali tjáskiptaaðferðinni í leikskólum landsins 400.000
Jóna G. Ingólfsdóttir
LEIKSKÓLI

Jóhanna Einarsdóttir Rannsókn með þann tilgang að skoða breytingar sem verða á lífi barna þegar þau fara úr leikskóla í grunnskóla 600.000
Jóhanna Einarsdóttir
LEIK-OG GRUNNSKÓLI

Myndlistaskólinn í Reykjavík Verkefnið Listbúðir 1.000.000
Ingibjörg Jóhannsdóttir
GRUNNSKÓLI

Kennaraháskóli Íslands Rannsókn sem miðar að því að kanna líkamsástand barna í 2. bekk í grunnskólum í Reykjavík 600.000
Erlingur Jóhannsson
GRUNNSKÓLI

Jóhanna Einarsdóttir Þróun kennslumyndbands við að greina og mæla stam barna á leikskólaaldri 300.000
Jóhanna Einarsdóttir
LEIKSKÓLI

Heimili og skóli Endurprentun á bæklingi: SAFT netheilræði fyrir foreldra 150.000
Anna Margrét Sigurðardóttir
GRUNNSKÓLI

Junior Achievement á Íslandi Útbreiðsla og innleiðingu þriggja námskeiða JAI-Ungra frumkvöðla 400.000
Gunnar Jónatansson
GRUNNSKÓLI

Íþróttafélag fatlaðra Þjónustusamningur milli ÍFR og Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur - styrkja og efla sundkennslu fatlaðra 650.000
Þórður Ólafsson
GRUNNSKÓLI

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti Stærðfræðikeppni grunnskólanema í Breiðholti 200.000
Gunnar Páll Jóakimsson
GRUNNSKÓLI

Höfundamiðstöð rithöfundasamb. Bókmenntakynningar í grunnskólum Reykjavíkur 600.000
Ragnheiður Tryggvadóttir
GRUNNSKÓLI

Tugafmæli skóla árið 2006 1.000.000

Þjónustusamningar í gildi:

Kennaraháskóli Íslands Almenningsfræðsla á Íslandi 1880-2007 600.000
Svanhildur Kaaber
Myndlistaskólinn í Reykjavík Til að styrkja og efla myndlistarnám grunnskólanemenda í Reykjavík 10.400.000
Þóra Sigurðardóttir
GRUNNSKÓLI

Samfok Til að byggja upp tengsl foreldra og skóla 4.900.000
Bergþóra Valsdóttir

Eymundur Matthíasson Hljóðfærakynningar og námskeið í leikskólum Reykjavíkurborgar 250.000
Eymundur Matthíasson
LEIKSKÓLI

Börnin okkar, samtök foreldrafélaga leikskóla í
Reykjavík. Börnin okkar árið 2006 300.000
Böðvar Sveinsson
LEIKSKÓLI
28.163.000

Tillagan samþykkt einróma.
Einnig voru lagðar fram tillögur um að eftirtaldir aðilar hljóti styrk úr þróunarsjóðum leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla (fskj. 8.3, 8.4, 8.5).
Úthlutun styrkja úr þróunarsjóði leikskóla 2006
Skóli: Nafn umsækjanda Heiti verkefnis Upphæð
Fellaborg Sólveig Dögg Larsen Mannauður í margbreytileika 1.200.000
Garðaborg Sophie Marie Schoonjans Tónlistarheimur leikskólabarna 200.000
Hulduheimar Bryndís Markúsdóttir Fram, Fram, Fylking (Samvinna grunnskóla og leikskóla) 700.000
Jörfi Sæunn Elfa Karlsdóttir Tilfinningatjáning - Lífsleikni í Leikskólanum Jörfa 550.000
Kennaraháskóli Íslands Elsa Sigríður Jónsdóttir Efling - samræður og samvinna um fjölbreyttan barnahóp 900.000
Leikskólar Ingibjörg Hafstað Bætt samskipti – betri leikskóli 1.200.000
Leikskólar Elfa Lilja Gísladóttir Hring eftir hring - námsefni í tónlist og hreyfingu fyrir elstu börn leikskóla 600.000
Lindarborg, Barónsborg og Njálsborg Ragnheiður Halldórsdóttir Að brúa bilið milli menningarheima. 1.500.000
Reynisholt Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir Líf og leikni 1.000.000
Rofaborg, Árborg og Árbæjarskóli Þórunn Gyða Björnsdóttir Að vera öllum hnútum kunnugur - samstarfsverkefni 700.000
Sjónarhóll Bergljót Jóhannsdóttir Gagnavinnsla 250.000
Sólborg Jónína Konráðsdóttir Verkefni sem byggir á því að kenna börnum á leikskólaaldri ensku 350.000
Sólhlíð Guðrún Rafnsdóttir Gaman saman, Samfélagið okkar
Samstarf við hjúkrunarheimilið Droplaugarstaði 350.000
Samtals: 9.500.000

Úthlutun styrkja úr þróunarsjóði grunnskóla 2006
Skóli: Nafn umsækjanda Heiti verkefnis Upphæð
Austurbæjarskóli Nína Magnúsdóttir Austurbæjarskóli - fjölmenningarlegur skóli 700.000
Álftamýrarskóli Brynhildur Ólafsdóttir Samkennsla, aldursblöndun og fjölbreyttir kennsluhættir 300.000
Árbæjarskóli Una Björg Bjarnadóttir Kennsla náttúruvísinda í 8. - 10. bekk, efling verklegrar kennslu 750.000
Ártúnsskóli Kristín Unnsteinsdóttir Áhrif sandleiks og sögugerðar á sjálfsmynd og lestrargetu nemenda með frávik í lestrarfærni 350.000
Borgaskóli Árdís Ívarsdóttir Námsmat í ljósi einstaklingsmiðaðs náms og sveigjanlegs skólastarfs 400.000
Fellaskóli Auður Aðalsteinsdóttir og Hrönn Harðardóttir Stuðningur við jákvæða hegðun í skóla (PBS) 250.000
Fellaskóli Kristín Jóhannesdóttir Fellaskóli - heilsuskóli 300.000
Fellaskóli Kristín Jóhannesdóttir Nám og kennsla nemenda af erlendum uppruna, einkum í yngstu bekkjum grunnskólans 750.000
Fellaskóli Þorsteinn Hjartarson / Magnús Salberg OR Betra Breiðholt - tækifæri í nýju ljósi 300.000
Fossvogsskóli Guðrún María Ólafsdóttir Útikennsla 233.400
Fossvogsskóli Magnea Antonsdóttir Tungumálakennsla yngri barna 500.000
Grandaskóli Valgeir Gestsson Vefbanki Valla 250.000
Hamraskóli Sigurlaug Hrund Svavarsdóttir Jákvæð hegðun í Hamraskóla 250.000
Háskólinn í Reykjavík Inga Dóra Sigfúsdóttir Stærðfræði er skemmtileg 1.500.000
Háteigsskóli Ása Helga Ragnarsdóttir Leiklist gefur ótal námsmöguleika - 4. ár 600.000
Háteigsskóli Ásgeir Beinteinsson Verkhringurinn 365.000
Háteigsskóli Sigríður Ólafsdóttir Miðlun kennslu í íslensku sem öðru tungumáli til grunnskólabarna með megináherslu á kennslufræði 300.000
Hlíðaskóli Kristrún G. Guðmundsdóttir og Anna Flosadóttir Móðurskóli listgreina - 4 ár 600.000
Hólabrekkuskóli Hólmfríður G. Guðjónsdóttir Bráðger börn í hugkvæmni og handverki 800.000
Ingunnarskóli/
Norðlingaskóli Eygló Friðriksdóttir og Þóranna Rósa Ólafsdóttir Móðurskólar í uppbyggingu einstaklingsmiðaðs námsmats 1.350.000
Ingunnarskóli Lilja Ármannsdóttir Þróun námssvæða í Ingunnarskóla 250.000
Íslenskuskólinn á Netinu Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir Stoðnám á neti í íslensku fyrir nemendur sem búið hafa erlendis í lengri tíma 600.000
Korpuskóli Svanhildur María Ólafsdóttir Teymiskennsla í Korpuskóla 650.000
Langholtsskóli Sesselja Árnadóttir Námsmat í sveigjanlegu skólastarfi 400.000
Laugalækjarskóli Jón Páll Haraldsson Breytt skipulag á námi og kennslu í ungingaskóla með áherslu á forystu kennara og sjálfstæði, einstaklingsmiðað nám og samvinnu nemenda 500.000
Myndverið Marteinn Sigurgeirsson Stuttmyndagerð í skólum. Gerð heimilda- og stuttmynda í skólastarfi 250.000
Réttarholtsskóli Guðný S. Marinósdóttir Einstaklingsmiðað gagnvirt nám 400.000
Rimaskóli Helgi Árnason Vísindadagur Rimaskóla 350.000
Seljaskóli Anna Sveinsdóttir Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun. PBS 250.000
Vesturbæjarskóli Hrefna Birna Björnsdóttir Montessori og einstaklingsmiðað nám - samstarfsverkefni við Öskjuhlíðarskóla. 700.000
Víkurskóli Árný Inga Pálsdóttir Einstaklingsmiðað námsmat 500.000
Víkurskóli Árný Inga Pálsdóttir Einstaklingsmiðuð skólabyrjun. Samstarfsverkefni leik- og grunnskóla 1.000.000
Öskjuhlíðarskóli Kristín Harðardóttir Einstök verkefni í verkgreinum 250.000
Öskjuhlíðarskóli Ólafur B. Ólafsson Fjársjóðurinn 350.000
Vesturbæjarskóli Nanna Kristín Christiansen Móðurskóli: Drengir og grunnskólinn - 2. ár 900.000
Vogaskóli Margrét Eiríksdóttir og Sigrún Björnsdóttir Móðurskólaverkefni: Nemendalýðræði, lífsleikni og mannréttindafræðsla - 3. ár 900.000
Stefmennt Stefán Stefánsson Tónmenntavefurinn 500.000
Ýmsir skólar Olweus 3.500.000
Samtals: 23.098.400

Úthlutun styrkja úr þróunarsjóði tónlistarskóla 2006
Skóli: Nafn umsækjanda Heiti verkefnis Upphæð
Skólahljómsveit Austurbæjar Vilborg Jónsdóttir Kammersveit með þátttöku grunnskólanemenda 710.000
Tónlistarskólar Sigrún Valgerður Gestsdóttir Tilraun til notkunar langspils í forskólakennslu 350.000
Tónlistarskóli Árbæjar Stefán S. Stefánsson Samstarf Tónlistaskóla Árbæjar og Skólalúðrasveitar Árbæjar og Breiðholts 1.400.000
Tónlistarskólinn í Reykjavík / Skólahljómsveitir Reykjavíkur Þórir Þórisson Hlustun og greining í grunnnámi tónlistarskóla 578.000
Tónskóli Hörpunnar Kjartan Eggertsson Hljóðfærakennsla (forskólakennsla, blokkflautukennsla) í frístundaheimilum grunnskólanna, - frjálst val 1.000.000
Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar Sigursveinn Magnússon Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna 320.000
Samtals: 4.358.000

Tillögurnar samþykktar einróma.

9. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks ítreka ósk um að ræða sérstaklega málefni mötuneyta í leik- og grunnskólum. Einnig er farið fram á upplýsingar um fjölda starfsmanna í mötuneytum skólanna og að upplýst verði um fjölda nemanda á hvern starfsmann.

10. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja áherslu á að á Menntasviði verði m.a. leitast við að nýta starfskrafta fólks sem þiggur örorkubætur. Farið er fram á upplýsingar um þróun þeirra mála á sviðinu.

Fundi slitið kl. 18:10

Þorlákur Björnsson
Heiða Björg Pálmadóttir Sigrún Elsa Smáradóttir
Guðrún Ebba Ólafsdóttir Guðlaugur Þór Þórðarson
Hanna Birna Kristjánsdóttir