Skóla- og frístundaráð - og frístundaráð

Skóla- og frístundaráð

96. fundur

Fræðsluráð

Ár 1999, mánudaginn 25. október, kl. 12.00, hélt fræðsluráð Reykjavíkur fund í Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og var þetta 96. fundur ráðsins. Fundinn sátu: Sigrún Magnúsdóttir, formaður, Margrét Björnsdóttir, Sigrún Elsa Smáradóttir, Guðrún Pétursdóttir og Eyþór Arnalds. Auk þeirra sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Erna Sveinbjarnardóttir frá Skólastjórafélagi Reykjavíkur, Finnbogi Sigurðsson frá Kennarafélagi Reykjavíkur og Óskar Ísfeld Sigurðsson, fulltrúi SAMFOKs. Einnig sátu fundinn Gerður G. Óskarsdóttir, fræðslustjóri, Arthur Morthens, forstöðumaður þjónustusviðs, Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður þróunarsviðs, Ólafur Darri Andrason, forstöðumaður fjármálasviðs, Áslaug Brynjólfsdóttir, umboðsmaður foreldra og skóla, og Steinunn Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi, sem ritaði fundargerð.

1. Lagt fram bréf fræðslustjóra, dags. 22. október sl., um embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa fræðsluráði.

2. Lagt fram minnisblað fræðslustjóra, dags. 22. október sl., um mat í hádegishléi í skólum. Fræðslustjóri gerði grein fyrir minnisblaðinu. Vísað til afgreiðslu starfsáætlunar.

3. Lagt fram yfirlit fræðslustjóra um umsækjendur vegna stöðu forstöðumanns fjármálasviðs á Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og álit þar um, dags. 22 október sl. Fræðsluráð styður ráðningu Runólfs Birgis Leifssonar í starfið.

4. Lögð fram að nýju drög að starfsáætlun ársins 2000 ásamt nýjum drögum að viðmiðum um skóladagvist. Umræðu um starfsáætlun verður haldið áfram á næsta fundi.

Fundi slitið kl. 14.05

Sigrún Magnúsdóttir
Margrét Björnsdóttir Sigrún Elsa Smáradóttir
Guðrún Pétursdóttir Eyþór Arnalds