Skóla- og frístundaráð
Ár 2026, 9. febrúar, var haldinn 307. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 13.15.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Helga Þórðardóttir formaður (F), Ásta Björg Björgvinsdóttir (B), Friðjón R. Friðjónsson (D), Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns (P), Marta Guðjónsdóttir (D), Sabine Leskopf (S) og Stefán Pálsson (V). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Albína Hulda Pálsdóttir, foreldrar barna í leikskólum; Andrea Sigurjónsdóttir, starfsfólk í leikskólum; Árni Jónsson, framkvæmdastjórar frístundamiðstöðva; Guðrún Gunnarsdóttir, leikskólastjórar; Indriði Nökkvi Þóreyjarson, Reykjavíkurráð ungmenna; Lilja Margrét Möller, kennarar í grunnskólum, og Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjórar í grunnskólum. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Arndís Steinþórsdóttir, Frans Páll Sigurðsson, Hjörtur Ágústsson, Ólafur Brynjar Bjarkason, Soffía Pálsdóttir og Guðrún Sigtryggsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning og umræða um barnvæn sveitarfélög, réttindaskóla og réttindafrístund UNICEF. SFS25120041
Unnur Helga Ólafsdóttir, Eva Bjarnadóttir og Sölvi Karlsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Áheyrnarfulltrúi Reykjavíkurráðs ungmenna leggur fram svohljóðandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi Reykjavíkurráðs ungmenna telur að það sé mjög mikilvægt að Reykjavík verði barnvænt sveitarfélag. Kostnaður við verkefnið er lítill og það er mikið sem þarf að bæta fyrir ungmenni í Reykjavík. Til dæmis er ungmennum ekki greitt fyrir fundarsetu í Reykjavíkurráðinu og lítið samstarf er við önnur svið og skrifstofur Reykjavíkurborgar. Nágrannasveitarfélög Reykjavíkurborgar eru barnvæn sveitarfélög og ætti Reykjavík að vera það líka. Samráð við börn þarf að vera rauður þráður í gegnum sveitarfélagið. Ef UNICEF á að ná markmiði sínu um að 80% barna verði í barnvænu sveitarfélagi þá þarf Reykjavík að vera með.
Áheyrnarfulltrúi framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva leggur fram svohljóðandi bókun:
Áheyrnafulltrúi þakkar fyrir góða kynningu frá skrifstofu UNICEF um Barnvænt sveitarfélag. Frístundastarfið lýsir yfir fullum stuðningi við áframhaldandi vinnu við að fá viðurkenningu á Barnvænu sveitarfélagi hjá UNICEF.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Framsókn hefur ítrekað lagt til að Reykjavík verði barnvænt samfélag með því að taka upp innleiðingu laga um barnasáttmálann og fylgja þeim gagnreyndu aðferðum og skrefum sem þarf til að hljóta vottun sem barnvænt sveitarfélag UNICEF. Reykjavíkurborg ætti að vera til fyrirmyndar í því að innleiða hann inn í starfsemi skóla- og frístundasviðs. Framsókn telur að slíkt myndi bæði vera börnum, starfsfólki og samfélaginu í heild til heilla. Öll svið borgarinnar hafa áhrif á líf barna með einhverjum hætti og sem barnvænt sveitarfélag erum við nær því að ná utan um börn og barnafjölskyldur og vinna að velferð og öryggi þeirra. Ásamt því að gefa börnum ríkari rödd í samfélaginu. Fulltrúi Framsóknar vill ítreka að borgin taki upp innleiðinguna og fái til liðs og ráðgjafar fulltrúa UNICEF á Íslandi.
-
Fram fer kynning og umræða um leikskólatölfræði, þróun og stöðu. SFS26010166
Guðrún Mjöll Sigurðardóttir og Edda Lind Styrmisdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Áheyrnarfulltrúar leikskólastjóra og starfsfólks í leikskólum leggja fram svohljóðandi bókun:
Innritun eða aðlögun í leikskóla ræðst að verulegu leyti af því að hægt sé að tryggja mönnun með hæfum framtíðar leikskólakennurum, að starfsemin hafi aðgang að heilnæmu og hentugu húsnæði og að starfsfólki séu tryggðar góðar starfsaðstæður. Fáliðun er íþyngjandi aðgerð fyrir bæði leikskóla og fjölskyldur og er aldrei gripið til hennar af léttúð. Þegar til fáliðunar kemur hefur starfsemin fallið undir ásættanleg öryggismörk vegna skorts á starfsfólki. Oftast eru ástæður þess erfiðleikar við að ráða starfsfólk/kennara, skammtíma- eða langtímaveikindi. Fjárfesting í fjölgun kennara til framtíðar, ásamt bættum starfsaðstæðum, er lykillinn að því að laða að hæft starfsfólk/kennara, tryggja samkeppnishæfni og koma þannig í veg fyrir flótta úr stéttinni.
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 16. janúar 2026, þar sem svohljóðandi tillögum borgarfulltrúa Framsóknarflokksins frá fundi borgarstjórnar 13. janúar 2026 er vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs ásamt minnisblaði sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 29. janúar 2026, um tillögurnar:
Samstarf við menntastofnanir um fjölgun leikskólastarfsfólks: Reykjavíkurborg óski eftir samstarfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og framhaldsskóla sem bjóða upp á nám til leikskólaliða, með það að markmiði að fjölga leikskólastarfsfólki. Skoða þarf hvort Reykjavíkurborg geti orðið að liði þegar kemur að því að fjölga starfsfólki leikskóla.
Samtal við menntastofnanir um vinnu með námi: Reykjavíkurborg hefji formlegt samtal við framangreinda skóla um hvernig borgin geti stuðlað að fjölgun nema. Skoðað verði sérstaklega hvort skipuleggja megi kennslu í leikskólakennslufræði og námi til leikskólaliða með þeim hætti að nemendur geti samhliða námi starfað í hlutastarfi á leikskólum borgarinnar.Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn þremur atkvæðum skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. MSS26010082
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Lagt er hér til að Reykjavíkurborg hefji formlegt samtal við menntastofnanir með það að markmiði að fjölga leikskólastarfsfólki. Nú þegar er á skóla- og frístundasvið virkt og formlegt samstarf við Menntavísindasvið Háskóla Íslands (MVS). Stór hluti nema í leikskólakennarafræðum við MVS eru í vinnu samhliða námi. Námið er að verulegu leyti hannað með það í huga að hægt sé að samþætta nám og starf í leikskóla. Reglulega eru haldnar kynningar fyrir starfsfólk leikskóla og annars starfsfólks skóla- og frístundasviðs á námi við MVS og þeim námsleyfum sem í boði eru. Það er hins vegar ekkert formlegt samstarf við framhaldsskóla um leikskólaliðanámið, þrátt fyrir að slíkir skólar séu mikilvægur hlekkur í að fjölga starfsfólki í leikskólum. Fulltrúar samstarfsflokkanna hvetja skóla- og frístundasvið til að hefja formlegt samstarf við framhaldsskóla um leikskólaliðanámið.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Framsóknar í skóla- og frístundaráði leggur áherslu á mikilvægi þess að efla áfram samstarf skóla- og frístundasviðs við menntastofnanir með það að markmiði að fjölga leikskólastarfsfólki og styrkja tengingu náms og starfs. Ljóst er að til að ná utan um þann vanda sem blasir við þarf skýra stefnu, samtal og samvinnu fleiri aðila en Reykjavíkurborg ein getur veitt og því skiptir svona samstarf öllu máli. Fulltrúi Framsóknar fagnar því að samstarf eigi sér stað að hluta og að skóla- og frístundastarf taki virkan þátt í því samstarfi og samtali en harmar það að ekki sé unnt að samþykkja tillögu þegar hún er aðeins framkvæmd að hluta enda skýrt að rými sé fyrir aukinn fókus og aukið samtal við alla háskóla sem eru með kennaramenntun sem og samvinnu við framhaldskólana og endurmenntunarstofnanir.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sbr. 19. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 25. ágúst 2025:
Lagt er til að fallið verði frá þeirri ákvörðun að útvega ekki lengur þeim grunnskólanemum strætókort sem búa í Ártúnsholtinu og stunda nám í Árbæjarskóla. Um er að ræða töluverða vegalengd í skólann fyrir nemendur sem búa í Ártúnsholtinu. Það samræmist ekki hugmyndafræðinni um 15 mínútna hverfi og því eðlilegt að komið verði til móts við nemendur áfram með því að þeir fái frítt í strætó til og frá skóla. Töluverður kostnaður mun falla á foreldra sem þurfa að kaupa árskort fyrir börn sín í strætó fyrir 56000 kr. á barn.
Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn tveimur atkvæðum skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðsluna. SFS25080259
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Það er til marks um óskilvirka og ógagnsæja stjórnsýslu hversu langan tíma tekur að afgreiða tillögur sem lagðar eru fyrir ráðið. Hér er um tillögu að ræða sem lögð var fyrir ráðið 25. ágúst 2025 og ekki tekin til afgreiðslu fyrr en nú 9. febrúar 2026.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 29. janúar 2026, um embættisafgreiðslur sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, eitt mál. SFS22080009
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fréttir af vettvangi skóla- og frístundastarfs. SFS24080154
Kl. 14:59 víkur Lilja Margrét Möller af fundinum.
-
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:
Í ljósi þess að neðangreind tillaga var lögð fram á síðasta fundi skóla- og frístundaráðs og ekki var orðið við þeirri beiðni að málefni Vinagerðis yrðu sett á dagskrá fundarins í dag er neðangreind tillaga ítrekuð.
Lagt er til að málefni leikskólans Vinagerðis verði sett á dagskrá næsta reglulegs fundar skóla- og frístundaráðs.
Frestað. SFS26010127
-
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:
Þar sem svör við neðangreindri fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins á síðasta reglulega fundi skóla- og frístundaráðs liggja ekki fyrir fundinum er óskað eftir að svör verði lögð fram á næsta reglulega fundi skóla- og frístundaráðs.
Leikskólanum Vinagerði var lokað í lok október vegna slæms ástands og starfsemin flutt í Safamýri þannig að 130 börn þurfa að sækja leikskóla utan hverfis með tilheyrandi álagi og mikilli óvissu um framhaldið. Foreldrar hafa ekki fengið enn upplýsingar um áætlanir borgarinnar um framkvæmdir við leikskólann og hvenær þeim muni ljúka. Samkvæmt svörum til foreldra frá borginni í desember kemur fram að málefni Vinagerðis sé í skoðun og ekki búið að taka ákvörðun um framhaldið. Þá kemur jafnframt fram í svarinu að foreldrar verði upplýstir eins fljótt og hægt er. Nú er langt liðið á janúarmánuð og enn hafa foreldrar ekki fengið nein svör um áætlanir borgarinnar varðandi leikskólann. Óskað er eftir að svör fáist sem allra fyrst um áætlanir um leikskólann.SFS26010128
-
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:
Óskað er eftir að lagður verði fram listi hið fyrsta um hvaða leikskólar og grunnskólar verði lokaðir á næstunni vegna viðhaldsframkvæmda og hversu lengi er gert ráð fyrir lokun þeirra. Einnig verði gerð grein fyrir því hvaða ráðstafanir verði gerðar fyrir börnin í þeim leikskólum sem loka.
SFS26020043
-
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi tillögu:
Framsókn leggur til að skóla- og frístundasviði verði falið í samvinnu við umhverfis- og skipulagssvið að finna bráðabirgðahúsnæði fyrir leikskólann Vinagerði vegna fyrirhugaðrar lokunar leikskólans. Sviðin kanni einnig fýsileika þess að koma upp færanlegum einingum fyrir leikskólann við leik- eða grunnskólalóð í hverfinu. Markmiðið er að tryggja samfellda skólagöngu leikskólabarna sem stunda nám í Vinagerði.
Frestað. SFS26020044
Fundi slitið kl. 15:10
Helga Þórðardóttir Ásta Björg Björgvinsdóttir
Friðjón R. Friðjónsson Marta Guðjónsdóttir
Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Sabine Leskopf
Stefán Pálsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 9. febrúar 2026