Skóla- og frístundaráð
Ár 2025, 23. júní, var haldinn 295. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 13.20.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Helga Þórðardóttir formaður (F), Alexandra Briem (P), Árelía Eydís Guðmundsdóttir (B), Birna Hafstein (D), Helgi Áss Grétarsson (D) og Stefán Pálsson (V). Eftirtalinn fulltrúi tók sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Sabine Leskopf (S). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Albína Hulda Pálsdóttir, foreldrar barna í leikskólum; Guðrún Kaldal, framkvæmdastjórar frístundamiðstöðva; Jónína Einarsdóttir, leikskólastjórar; Linda Ósk Sigurðardóttir, starfsfólk í leikskólum og Leona Iguma, Reykjavíkurráð ungmenna. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Arndís Steinþórsdóttir, Frans Páll Sigurðsson, Ólafur Brynjar Bjarkason, Sigrún Sveinbjörnsdóttir og Guðrún Sigtryggsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram kynning á niðurstöðum foreldrakönnunar leikskóla, dags. 2025. SFS25060169
Guðrún Mjöll Sigurðardóttir, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Það er ótrúlega ánægjulegt að sjá hversu góð upplifun foreldra reykvískra barna af leikskólastarfi í borginni er. Starfsfólk og stjórnendur eiga mikið hrós skilið fyrir það hversu öflugt starf á leikskólunum er og hversu stöðugt það mælist milli ára.Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Framsóknar vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem starfa innan leikskóla Reykjavíkur. Ljóst er að mikil ánægja er með starfið og að árangur er mikill sem skilar sér í ánægju og öryggistilfinningu foreldra. Það bendir til þess að börnum borgarinnar líður vel hjá okkur. Þá vill fulltrúi Framsóknar þakka teymi árangurs og gæðamats á skóla- og frístundasviði. Sérstaklega teymisstjóra þess Guðrúnu Mjöll fyrir framúrskarandi starf sem er mikilvægt að standa vörð um. Til fyrirmyndar á landsvísu.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Niðurstöður þessarar könnunar eru ánægjulegar fyrir starfsfólk leikskóla borgarinnar. Vísbendingar eru um að foreldrar, sem hafi barn í leikskóla í Reykjavík, séu ánægðir með starf leikskólanna. Vandinn í leikskólamálum borgarinnar felst aðallega í því að foreldrar fái ekki pláss í leikskólunum og það eru þeir foreldrar sem eru óánægðir með starfsemi borgarinnar á þessu sviði. Einnig er ástæða til að benda á tölfræði sem lýsir vandamálum er varðar fáliðun á leikskólum borgarinnar.Fylgigögn
-
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 6. júní 2025, og drög að viðauka við samning milli skóla- og frístundasviðs og tónlistarskóla Árbæjar.
Samþykkt. Vísað til borgarráðs. SFS22030264
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 19. júní 2023, um breytingar á reglum um þjónustusamninga Reykjavíkurborgar við tónlistarskóla ásamt reglum um þjónustusamninga Reykjavíkurborgar við tónlistarskóla með breytingum og núgildandi reglum um þjónustusamninga Reykjavíkurborgar við tónlistarskóla.
Greinargerð fylgir. Breyting á reglunum tekur gildi frá samþykkt borgarráðs.
Samþykkt. Vísað til borgarráðs. SFS22060110
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 19. júní 2025, varðandi endurnýjun og framlengingu samninga við tónlistarskóla í Reykjavík vegna neðri stiga tónlistarnáms og endurnýjun samninga vegna efri stiga tónlistarnáms ásamt viðauka við þjónustusamning við tónlistarskóla vegna neðri stiga tónlistarnáms, þjónustusamningur vegna neðri stiga tónlistarnáms, þjónustusamningur við tónlistarskóla vegna efri stiga tónlistarnáms, drög að reglum um þjónustusamninga Reykjavíkurborgar við tónlistarskóla, núgildandi reglur um þjónustusamninga Reykjavíkurborgar við tónlistarskóla, samkomulag mennta- og barnamálaráðherra, innviðaráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga um stuðning við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms, dags. 29. mars 2022 auk viðauka, dags. 5. maí 2025, reglur um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til stuðnings við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda, dags. 31. ágúst 2016:
Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs leggur til að samningar Reykjavíkurborgar verði endurnýjaðir til þriggja ára við fjóra tónlistarskóla á neðri stigum tónlistarnáms sem uppfylla skilyrði reglna um þjónustusamninga Reykjavíkurborgar um lágmarksfjölda nemenda vegna tónlistarnáms á neðri stigum. Samningar við tónlistarskólana renna út 31. júlí 2025.
Jafnframt er lagt til að framlengdir verði með viðauka samningar við þrettán tónlistarskóla til eins árs vegna tónlistarnáms á neðri stigum sem ekki uppfylla ofangreint skilyrði um lágmarksfjölda nemenda. Samningar við tónlistarskólana renna út 31. júlí 2025.
Upplýsingar um samningsaðila og kennslumagn er að finna í fylgiskjölum 1 og 2 sem birt eru með fyrirvara um endanlega útreikninga. Lagt er til að sviðsstjóra verði falið að gera samninga um tónlistarnám á neðri stigum í samræmi við endanlega útreikninga og fjárheimildir sviðsins.
Ennfremur er lagt til að heimilt verði að gera samninga við 13 tónlistarskóla í Reykjavík vegna efri stiga tónlistarnáms á grundvelli þeirra upplýsinga sem berast munu frá Jöfnunarsjóði haustið 2025. Samningar renna út þann 31. ágúst 2025 og er því lagt til að gildistími verði 1. september 2025 til 31. ágúst 2026. Hlutverk Reykjavíkurborgar er að miðla framlagi Jöfnunarsjóðs í samræmi við reglur sjóðsins og gera samninga við þá aðila sem falla undir samkomulag um eflingu tónlistarnáms. Sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs verði því falið að ganga frá samningum við hlutaðeigandi aðila á grundvelli upplýsinga frá Jöfnunarsjóði þegar þær berast. Samningsaðilar í fylgiskjali 3 eru birtir með fyrirvara um greiðslur frá Jöfnunarsjóði og byggja á eldri upplýsingum frá Jöfnunarsjóði og taka breytingum í samræmi við ákvarðanir frá sjóðnum.
Lagt er til að synjað verði beiðnum tónlistarskóla sem óskað hafa eftir auknu kennslumagni/fjölgun nemenda þar sem ekki er gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun skóla- og frístundasviðs. Sama gildir um beiðnir um lengra samningstímabil eins og nánar er lýst í greinargerð með tillögu þessari.
Gerður er fyrirvari um að tónlistarskólarnir uppfylli skilyrði reglna um þjónustusamninga Reykjavíkurborgar við tónlistarskóla og samningsbundnar skyldur þeirra samkvæmt núgildandi samningum.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt og vísað til borgarráðs með fimm atkvæðum skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá. SFS22050078
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá í þessu máli þar eð hætta er á að raskað sé um of starfsgrundvelli of margra tónlistarskóla. Á hinn bóginn liggur fyrir að frá sjónarhóli borgarinnar þarf að nýta opinbert fé í þessum geira með skynsamlegum hætti. Fyrirliggjandi útfærsla þarf ekki að vera sú heppilegasta eins og sakir standa. Einnig vantar í gögnum málsins að tekið sé saman með skýrum hætti hvaða hugmyndir forsvarsmenn tónlistarskólana hafa í þessum efnum.
Fylgigögn
- Tillaga
- Drög að viðauka
- Þjónustusamningur við tónlistarskóa - Neðra stig
- Þjónustusamningur við tónlistarskóa - Efra stig
- Reglur um þjónustusamning_með breytingum í júní 2025
- Reglur um þjónustusamning - núgildandi
- Samkomulag um stuðning við tónlistarnám
- Viðauki um samkomulag við tónlistarnám
- Reglur um framlög úr jöfnunarsjóði
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 22. maí 2025, varðandi breytingu á rekstrarleyfi leikskóla Félagsstofnunar stúdenta, rekstrarleyfi vegna Mánagarðs, dags. 19. janúar 2019 og rekstrarleyfi vegna Sólgarðs, dags. 15. janúar 2024. SFS25040139
Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs leggur til að rekstrarleyfi leikskólanna Mánagarðs og Sólgarðs sem reknir eru af Félagsstofnun stúdenta verði breytt með þeim hætti að heimilt verði að sameina leikskólana undir stjórn eins leikskólastjóra. Rekstrarleyfi Félagsstofnunar stúdenta nái til reksturs sameinuðu leikskólanna Mánagarðs og Sólgarðs. Rekstrarleyfið kveði á um 124 börn á Mánagarði, á aldrinum 12 mánaða til 6 ára, þar af að hámarki 24 börn á ungbarnadeildum og 115 börn á ungbarnaleikskólanum Sólgarði, á aldrinum 9 mánaða til 36 mánaða. Við sameiningu leikskólanna eru ekki breytingar á fjölda- og aldursviðmiðum.
Lagt er til að breytingin taki gildi 1. ágúst 2025. Frá sama tíma falla úr gildi rekstrarleyfi dags. 9. janúar 2019 og dags. 15. janúar 2024.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt. Vísað til borgarráðs.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 6. júní 2025, varðandi framlengingu þjónustusamnings við leikskólann Lund og drög að viðauka við samning um framlag skóla- og frístundasviðs vegna Lundar. SFS24100141
Lagt er til að skóla- og frístundaráð samþykki að fela sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs að framlengja þjónustusamning Reykjavíkurborgar við leikskólann Lund til samræmis við meðfylgjandi fyrirmynd að viðauka.
Gildistími núgildandi samnings er til og með 30. júní 2025. Lagt er til að gildistími verði framlengdur með viðauka og verði frá 1. júlí 2025 til 31. desember 2027. Gerður er fyrirvari um að uppfyllt séu skilyrði til reksturs leikskóla og samningsbundnar skyldur.
Samþykkt. Vísað til borgarráðs.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sbr. 6 lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 7. apríl 2025 um að fá kynningu frá fulltrúum Ásgarðsskóla. SFS25040024
Lagt er til að Kristrún Lind Birgisdóttir, sem er í forsvari fyrir Ásgarðsskóla, verði fengin til að mæta á fund skóla- og frístundaráðs mánudaginn 5. maí 2025 til að kynna starf skólans.
Lögð fram svohljóðandi málsmeðferðartillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna:Samþykkt er að fresta umfjöllun í skóla- og frístundaráði varðandi tillögu um að fá kynningu frá fulltrúum Ásgarðsskóla þar til skólinn hefur fengið starfsleyfi mennta- og barnamálaráðuneytis.
Samþykkt.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sbr. 13. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 24. mars 2025. SFS25030126
Lagt er til að skóla- og frístundasviði verði falið að skoða kosti þess og galla að það svið taki yfir allt samstarf við MemmmPlay, sem starfrækir opna leikskólann, í stað þess að samstarfið velti á ákvörðunum velferðarráðs/velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
Samþykkt.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Það er afar ánægjulegt að skóla- og frístundaráð hafi samþykkt þessa tillögu en minnt er á að MemmmPlay starfar að sænskri fyrirmynd sem hefur reynst vel bæði hérlendis og erlendis. Í Memmmplay skapast vettvangur til að kynnast í nærumhverfinu, svo sem fyrir alla þá sem koma nýir í hverfi borgarinnar. Þannig má koma í veg fyrir að börn einangrist heima. Í starfinu sameinast sem sagt gott foreldrasamstarf og samstarfsvettvangur í hverfum þar sem fólk getur kynnst og styrkt böndin.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sbr. 19. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 10. mars 2025, um að húsnæðismál Hjallastefnunnar verði tekin á dagskrá. SFS25030053
Þar sem húsnæðisvandi Hjallastefnunnar hefur á þessu kjörtímabili ekki verið til umræðu í skóla- og frístundaráði telja fulltrúar Sjálfstæðisflokksins nauðsynlegt að á næsta fundi ráðsins verði lagðar fram þær tímabundnu lausnir sem unnið er að á vettvangi skóla- og frístundasviðs. Á sama fundi leggi sviðið einnig fram framtíðarlausn fyrir húsnæðisvanda skólastarfs Hjallastefnunnar.
Vísað frá með fimm atkvæðum skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Aðgerðir vegna húsnæðismála Hjallastefnunnar eru komnar í farveg. Þann 5. júni sl. samþykkti borgarráð að taka tímabundið þátt í leigugreiðslum Hjallastefnunnar vegna leigu á viðbótarhúsnæði í Arnarhlíð fyrir starfsemi skólans. Einnig var lagt til að skipaður verði starfshópur sem móti stefnu og geri tillögu að reglugerð um aðkomu Reykjavíkurborgar að húsnæðismálum sjálfstætt starfandi leik- og grunnskóla. Það er þó rétt að fram komi að þó svo skóla- og frístundasvið sé eftir atvikum til ráðgjafar þegar kemur að því að finna lausn á húsnæðismálum sjálfstætt starfandi skóla, þá eru húsnæði skóla í eigu borgarinnar á forræði eignasjóðs, og úthlutanir á lóðum eru afgreiddar í borgarráði, réttur vettvangur til þess að fá upplýsingar um gerða lóðasamninga eða yfirstandandi viðræður um lóðir er því í borgarráði.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 19. júní 2025, um viðmið um hámarksfjölda reykvískra grunnskólanemenda sem heimilt er að greiða framlag vegna til sjálfstætt starfandi grunnskóla utan Reykjavíkur skólaárið 2025-2026 verði eftirfarandi auk umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar, dags. 18. júní 2025:
Waldorfskólinn Lækjabotnum 74
Alþjóðaskólinn á Íslandi 50
Barnaskóli Hjallastefnunnar,Garðabæ og Hafnarfirði 8
Grunnskólinn NÚ, Framsýn 20Ákvörðun um viðmið verði tímabundinn og gildi til 1. júlí 2026, fyrir þann tíma verði tekin ákvörðun um framlengingu eða endurskoðun á fyrirkomulaginu. Með samþykkt viðmiða um hámarksfjölda er ekki fallið frá óskilyrtum rétti sveitarfélagsins til að synja einstaka umsóknum foreldra um skólavist í grunnskóla utan lögheimilis sveitarfélags. Gerður er fyrirvari af hálfu Reykjavíkurborgar um að fjárveitingar skóla- og frístundasviðs eru gerðar með fyrirvara um fjárheimildir skv. fjárhagsáætlun á hverju ári.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt. Vísað til borgarráðs. SFS22040100
Fylgigögn
-
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 5. júní 2025, um eftirlit með daggæslu barna í heimahúsum á árinu 2024. SFS25060037
Elísabet Helga Pálmadóttir situr fundinn undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 26. maí 2025 um Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs vegna skólaársins 2024-2025. SFS25060084
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 12. júní 2025, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um aðgerðir sem borgaryfirvöld hyggjast grípa til vegna alvarlegra ofbeldis- og eineltismála. MSS25030016
Fylgigögn
-
Lagðar fram viðbótarupplýsingar um embættisafgreiðslur sviðsstjóra skóla og frístundasviðs, trúnaðarmál. SFS22080009
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Á fundi skóla- og frístundaráðs 20. febrúar 2023 lögðu skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins til að „ráðningar æðstu stjórnenda í borgarreknum grunn- og leikskólum verði tekið til endurskoðunar, m.a. í því skyni að auka gegnsæi með hvaða hætti stöður eru auglýstar, hverjir sækja um slíkar stöður og með hvaða hætti upplýsingar séu veittar kjörnum fulltrúum um ráðningar í slíkar stöður.“ Rúmu ári síðar var þessari tillögu vísað frá ráðinu, sbr. fund ráðsins frá 26. febrúar 2024. Á fundum ráðsins á þessu ári hefur verið rætt um að nýtt verklag yrði tekið upp og rýmri upplýsingar yrðu veittar þegar tilkynnt væri um ráðningar stjórnenda. Það er því mikið fagnaðarefni að sviðsstjóri skóla- og frístundasvið hefur núna undir embættisafgreiðslum veitt frekari upplýsingar um ráðningar stjórnenda á skóla- og frístundasvið á tímabilinu 1. janúar 2025 til 31. maí 2025. Vonandi mun þetta verklag festast í sessi en ástæða er til að tryggja gegnsæi um þessi atriði, sem dæmi veita upplýsingarnar í dag til kynna að of fáir sækja um stöður af þessu tagi.
-
Fram fer umræða um fréttir af vettvangi skóla- og frístundastarfs. SFS22080009
-
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:
Hvaða gögn eru tiltæk um viðhorf foreldra/forsjáraðila barna á leikskólaaldri, 12 mánaða og eldri, sem eru með lögheimili í Reykjavík en hafa hvorki dvalarpláss í leikskóla né hjá dagforeldrum?
SFS25060171
Fundi slitið kl. 15:55.
Helga Þórðardóttir Alexandra Briem
Árelía Eydís Guðmundsdóttir Sabine Leskopf
Stefán Pálsson Birna Hafstein
Helgi Áss Grétarsson
PDF útgáfa fundargerðar
295. fundur skóla- og frístundaráðs 23. júní 2025