Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 98

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, mánudaginn 1. mars, var haldinn 98. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:30. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Regína Ásvaldsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Lóa Birna Birgisdóttir, Óskar J. Sandholt, Bjarni Brynjólfsson, Helgi Grímsson, Þorsteinn Gunnarsson, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Ólöf Örvarsdóttir, Óli Jón Hertervig, Ebba Schram, Ómar Einarsson, Arna Schram, Helga Benediktsdóttir, Anna Kristinsdóttir og Dagný Ingadóttir. Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur 24. til 28. febrúar 2021, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 á tímabilinu, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins. Einnig var rætt um mögulegar breytingar á tíðni þrifa m.a. í skólahúsnæði. 

  2. Jón Viðar Matthíasson fer yfir stöðu mála vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga og hættustig almannavarna. Einnig var rætt um rýmingaráætlun höfuðborgarsvæðisins. 

Fundi slitið 9:54.

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 1.3.2021 - prentvæn útgáfa