Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 95

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, mánudaginn 8. febrúar, var haldinn 95. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:30. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Regína Ásvaldsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Lóa Birna Birgisdóttir, Óskar J. Sandholt, Bjarni Brynjólfsson, Helgi Grímsson, Þorsteinn Gunnarsson, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Ólöf Örvarsdóttir, Óli Jón Hertervig, Ebba Schram, Ómar Einarsson, Arna Schram, Halldóra Káradóttir, Anna Kristinsdóttir og Dagný Ingadóttir. Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur 2. til 7. febrúar 2021, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Rætt um undirbúning framkvæmdar fjöldabólusetningar m.a. í Laugardalshöll.

  3. Rætt um ákvæði nýrrar reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem tók gildi 8. febrúar 2021 og gildir til og með 3. mars 2021.

  4. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 

    a.    Helgi Grímsson fer yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði.
    b.    Regína Ásvaldsdóttir fer yfir stöðu mála á velferðarsviði.
    c.    Ómar Einarsson fer yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði.
    d.    Arna Schram fer yfir stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði, fer yfir breytingar á menningarhúsum vegna rýmkunar á fjöldatakmörkunum og framkvæmd vetrarhátíðar. 
    e.    Árný Sigurðardóttir fer yfir mögulegar tilslakanir á  reglum varðandi aðgang að Höfðatorgi og Ráðhúss. 

  5. Rætt um fyrirkomulag funda ráða og nefnda Reykjavíkurborgar. Á meðan núverandi samkomutakmarkanir eru í gildi er ráðsmönnum boðið að taka sæti á fundum með fjarfundabúnaði ef þeir kjósa svo.

Fundi slitið 9:50.