Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 90

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, mánudaginn 4. janúar, var haldinn 90. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:37. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Anna Kristinsdóttir, Arna Schram, Árný Sigurðardóttir, Ebba Schram, Bjarni Brynjólfsson, Dagný Ingadóttir, Helgi Grímsson, Halldóra Káradóttir, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Óli Jón Hertervig, Óskar Sandholt, Ólöf Örvarsdóttir, Pétur Ólafsson, Þorsteinn Gunnarsson og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir.
Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 3. janúar 2021, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Fram fer umræða um framkvæmd bólusetninga á höfuðborgarsvæðinu og áætlaða afhendingu bóluefnis í janúar.

  3. Rætt um breytingar á starfi grunnskóla í Reykjavík næstu tvo mánuði vegna ákvæða reglugerða um takmarkanir á skólahaldi vegna farsóttar. 

  4. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 

    a.    Helgi Grímsson fer yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði. 
    b.    Regína Ásvaldsdóttir fer yfir stöðu mála á velferðarsviði. 
    c.    Ómar Einarsson fer yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði. 
    d.    Ólöf Örvarsdóttir fer yfir stöðu mála á umhverfis- og skipulagssviði. 

Fundi slitið 9:56

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 4. janúar 2021 - prentvæn útgáfa