Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 84

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2020, mánudaginn 7. desember, var haldinn 84. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:30. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Anna Kristinsdóttir, Arna Schram, Árný Sigurðardóttir, Bjarni Brynjólfsson, Ebba Schram, Dagný Ingadóttir Halldóra Káradóttir, Helgi Grímsson, Huld Ingimarsdóttir, Lóa Birna Birgisdóttir, Óli Jón Hertervig, Ólöf Örvarsdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Óskar Sandholt, Ómar Einarsson, Pétur Ólafsson, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson. 
Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 6. desember 2020, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Jón Viðar Matthíasson rekur helstu verkefni slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í vikunni og samstarf við heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. 

  3. Rætt um ákvæði sóttvarnarreglugerðar varðandi áramótabrennur og afgreiðslu á mögulegum undanþágubeiðnum. 

  4. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 

    a.    Regína Ásvaldsdóttir upplýsir um stöðu mála á velferðarsviði. 
    b.    Helgi Grímsson upplýsir um stöðu mála í grunn- og leikskólum. 
    c.    Óskar Sandholt og Dagný Ingadóttir fara yfir stöðu mála varðandi stjórnsýsluhúsin, stefnt að því að opna í siðasta lagi 10. desember ef sóttvarnarreglur leyfa. 

Fundi slitið 9:46

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðrastjórn Reykjavíkur 7.12.2020 - prentvæn útgáfa