Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 82

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2020, mánudaginn 30. nóvember, var haldinn 82. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:30. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Anna Kristinsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Bjarni Brynjólfsson, Ebba Schram, Dagný Ingadóttir Halldóra Káradóttir, Helgi Grímsson, Huld Ingimarsdóttir, Lóa Birna Birgisdóttir, Óli Jón Hertervig, Ólöf Örvarsdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Óskar Sandholt, Ómar Einarsson, Pétur Ólafsson og Þorsteinn Gunnarsson. 
Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 29. nóvember 2020, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Rætt um fyrirkomulag væntanlegrar bólusetningar í Reykjavík í samstarfi við heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Fundir haldnir vegna undirbúnings á miðvikudaginn og svo fundar almannavarnarráð á föstudaginn kemur.

  3. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 

    a.    Regína Ásvaldsdóttir upplýsir um stöðu mála á velferðarsviði og smit sem upp hafa komið. Rætt um reglur sem gilda um gesti sem eru í sóttkví inni á heimilum. 
    b.    Helgi Grímsson upplýsir um stöðu mála í grunn- og leikskólum, farið yfir umræðu um tilmæli um tvöfalda skimun í framhaldi af jólaleyfi grunnskóla. 
    c.    Óskar Sandholt og Dagný Ingadóttir fara yfir stöðu mála varðandi stjórnsýsluhúsin, ef húsið verður opnað þá þarf að setja starfsfólk í að telja inn og út. Beðið með ákvörðun þar til nýjar reglur verða birtar en mikill vilji til að opna húsin. 

Fundi slitið 10:00

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar 30.11.2020 - prentvæn útgáfa