Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 113

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, mánudaginn 15. nóvember, var haldinn 113. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 09:00. Viðstödd voru auk borgarstjóra, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, Huld Ingimarsdóttir, Steinþór Þorsteinsson, Regína Ásvaldsdóttir, Halldóra Káradóttir, Lóa Birna Birgisdóttir, Helgi Grímsson, Óli Jón Hertervig, Óskar Jörgen Sandholt, Dagný Ingadóttir, Theódór Kjartansson, Óskar Ísfeld Sigurðsson, Ólöf Örvarsdóttir, Pétur Ólafsson og Þorsteinn Gunnarsson.
Einnig sat fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal. 

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur síðustu daga, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19, hlutfall landamærasmita, hlutfall höfuðborgarsvæðisins og hlutfall innan sóttkvíar. 

  2. Kynnt var staða á fagsviðum Reykjavíkurborgar: 

    a.    Helgi Grímsson fór yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði. 
    b.    Regína Ásvaldsdóttir fór yfir stöðu mála á velferðarsviði.  
    c.    Steinþór Þorsteinsson fór yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði. 
    d.    Huld Ingimarsdóttir fór yfir stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði. 
    e.    Dagný Ingadóttir og Óskar Sandholt fóru yfir stöðu mála varðandi útfærslu samkomutakmarkana í Höfðatorgi og Ráðhús. 

  3. Fram fer umræða um mögulegar frestanir á viðburðum á vegum Reykjavíkurborgar. 

Fundi slitið 09:30

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 15.11.2021 - prentvæn útgáfa