Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 112

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, þriðjudaginn 9. nóvember, var haldinn 112. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 17:00. Viðstödd voru Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, Huld Ingimarsdóttir, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Helgi Grímsson, Óli Jón Hertervig, Óskar Jörgen Sandholt, Dagný Ingadóttir og Þorsteinn Gunnarsson.
Einnig sat fundinn Jón Viðar Matthíasson. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal. 

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur síðustu daga, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19, hlutfall landamærasmita, hlutfall höfuðborgarsvæðisins og hlutfall innan sóttkvíar. 

  2. Kynnt var staða á fagsviðum Reykjavíkurborgar: 

    a.    Regína Ásvaldsdóttir fór yfir stöðu mála á velferðarsviði.  
    b.    Helgi Grímsson fór yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði. 
    c.    Ómar Einarsson fór yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði. 
    d.    Huld Ingimarsdóttir fór yfir stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði. 

  3. Rætt um breytingar á fyrirkomulagi og grímuskyldu í mötuneytum Höfðatorgs og Ráðhúss. 

  4. Lögð fram drög neyðarstjórnar að áréttingu reglna vegna gildandi takmarkana og stöðu faraldurs dags. í dag.  
    Samþykkt. 

Fundi slitið 17:35

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 09.11.2021 - prentvæn útgáfa