Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 111

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, föstudaginn 20. ágúst, var haldinn 111. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 10:00. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, Huld Ingimarsdóttir, Ólöf Örvarsdóttir, Óskar Ísfeld Sigurðsson, Halldóra Káradóttir, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Helgi Grímsson, Óli Jón Hertervig, Óskar Jörgen Sandholt, Pétur Ólafsson, Ebba Schram, Helga Björk Laxdal og Þorsteinn Gunnarsson.
Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Dagný Ingadóttir. 

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur síðustu daga, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19, hlutfall landamærasmita og hlutfall innan sóttkvíar. 

  2. Samþykkt að stjórnendum á skóla- og frístundasviði sé heimilt að gæta sóttvarna umfram það sem reglugerð kveður á um, að því marki að þær ráðstafanir takmarki starfið eins lítið og kostur er. Gefnar verða út samræmdar leiðbeiningar fyrir skóla- og frístundastarf á höfuðborgarsvæðinu í upphafi skólaárs undir forystu almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins.

  3. Kynnt var staða á fagsviðum Reykjavíkurborgar: 

    a.    Helgi Grímsson fór yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði. 
    b.    Regína Ásvaldsdóttir fór yfir stöðu mála á velferðarsviði.  
    c.    Lóa Birna Birgisdóttir fór yfir stöðu mála varðandi leiðbeiningar til starfsmanna varðandi sóttkví.
    d.    Halldóra Káradóttir fór yfir stöðu mála á fjármála- og áhættustýringarsviði, m.a. vegna aukins kostnaðar sem fylgir aðgerðum vegna COVID-19.
    e.    Huld Ingimarsdóttir fór yfir stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði. 

Fundi slitið 10:28

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 20.08.2021 - prentvæn útgáfa