Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 109

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, föstudaginn 13. ágúst, var haldinn 109. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:00. Viðstödd voru Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, Dagný Ingadóttir, Huld Ingimarsdóttir, Ólöf Örvarsdóttir, Óskar Ísfeld, Halldóra Káradóttir, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir, Helgi Grímsson, Óli Jón Hertervig, Pétur Ólafsson og Þorsteinn Gunnarsson.
Einnig sat fundinn Jón Viðar Matthíasson. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur síðustu viku, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19, hlutfall landamærasmita og hlutfall innan sóttkvíar. Einnig er kynnt efni nýrra reglna um samkomutakmarkanir í skólastarfi. 

  2. Kynnt var staða á fagsviðum Reykjavíkurborgar: 

    a.    Regína Ásvaldsdóttir fór yfir stöðu mála á velferðarsviði. Einnig var rætt um verkaskiptingu meðal stjórnenda í yfirstandandi bylgju faraldursins.
    b.    Helgi Grímsson fóru yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði. 
    c.    Ómar Einarsson fór yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði.
    d.    Huld Ingimarsdóttir fór yfir stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði. 
    e.    Ólöf Örvarsdóttir fór yfir stöðu mála á umhverfis- og skipulagssviði. 
    f.    Lóa Birna Birgisdóttir fór yfir stöðu mála varðandi leiðbeiningar og upplýsingar til starfsmanna. 

Fundi slitið 9:34.

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 13.08.2021 - prentvæn útgáfa