Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 107

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, föstudaginn 6. ágúst, var haldinn 107. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:00. Viðstödd voru Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Theódór Kjartansson, Ólöf Örvarsdóttir, Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, Dagný Ingadóttir, Huld Ingimarsdóttir, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Halldóra Káradóttir, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Berglind Magnúsdóttir, Óskar Ísfeld Sigurðsson, Karen María Jónsdóttir, Hanna Halldóra Leifsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson.
Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur síðustu daga, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19, hlutfall landamærasmita og hlutfall innan sóttkvíar. Rætt um stöðuna og framhald aðgerða vegna fjölgunar smita.

  2. Kynnt var staða á fagsviðum og næstu skref í starfsemi Reykjavíkurborgar vegna fjölgunar smita: 

    a.    Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir og Hanna Halldóra Leifsdóttir fóru yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði.
    b.    Berglind Magnúsdóttir fór yfir stöðu mála á velferðarsviði. 
    c.    Ómar Einarsson fór yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði.
    d.    Huld Ingimarsdóttir fór yfir stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði. 
    e.    Ólöf Örvarsdóttir og Óskar Ísfeld Sigurðsson fóru yfir stöðu mála á umhverfis- og skipulagssviði.

  3. Samþykkt að senda út til starfsfólks frekari leiðbeiningar með áréttingum til stjórnenda varðandi almennar reglur um sóttkví, grímunotkun og reglur varðandi endurkomu til vinnu eftir ferðalög til útlanda. Rætt um mikilvægi þess að hvetja óbólusetta starfsmenn til að fara í bólusetningu. 

Fundi slitið 9:50.

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 06.08.2021 - prentvæn útgáfa