Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 105

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, fimmtudaginn 29. júlí, var haldinn 105. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:00. Viðstödd voru Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, Theódór Kjartansson, Huld Ingimarsdóttir, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Halldóra Káradóttir, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Berglind Magnúsdóttir, Óskar Ísfeld Sigurðsson, Ásdís Ásbjörnsdóttir, Karen María Jónsdóttir, Haraldur Sigurðsson, Hanna Halldóra Leifsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson.
Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Dagný Ingadóttir.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur síðustu daga, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19, hlutfall landamærasmita og hlutfall innan sóttkvíar. 

  2. Kynnt var staða á fagsviðum Reykjavíkurborgar:

    a.    Berglind Magnúsdóttir fór yfir stöðu mála á velferðarsviði. 
    b.    Haraldur Sigurðsson og Hanna Halldóra Leifsdóttir fóru yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði. 
    c.    Ómar Einarsson fór yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði.
    d.    Huld Ingimarsdóttir fór yfir stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði og fer yfir þau atriði sem þarf að taka til hliðsjónar vegna Menningarnætur. 
    e.    Ásdís Ásbjörnsdóttir fer yfir stöðu mála á umhverfis- og skipulagssviði. 
    f.    Lóa Birna Birgisdóttir og Karen María Jónsdóttir fara yfir stöðu starfsmannamála og stöðu mála varðandi stjórnsýsluhús borgarinnar. 

Fundi slitið 9:40.

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 29.07.2021 - prentvæn útgáfa