Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 104

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, mánudaginn 26. júlí, var haldinn 104. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:00. Viðstödd voru Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, Theódór Kjartansson, Dagný Ingadóttir, Huld Ingimarsdóttir, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Halldóra Káradóttir, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Berglind Magnúsdóttir, Óskar Ísfeld Sigurðsson, Ólöf Örvarsdóttir, Karen María Jónsdóttir, Haraldur Sigurðsson, Hanna Halldóra Leifsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson.
Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur síðustu daga, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19, hlutfall landamærasmita og hlutfall innan sóttkvíar. Rætt um efni reglugerðar sem tók gildi á miðnætti sl. sunnudag og gildir a.m.k. fram til 13. ágúst nk. 

  2. Kynnt var staða á fagsviðum og mögulegar breytingar á starfsemi Reykjavíkurborgar á næstu dögum vegna fjölda smita: 

    a.    Haraldur Sigurðsson og Hanna Halldóra Leifsdóttir fóru yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði. 
    b.    Berglind Magnúsdóttir fór yfir stöðu mála á velferðarsviði. 
    c.    Ómar Einarsson fór yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði.
    d.    Huld Ingimarsdóttir fór yfir stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði og vekur athygli á því að það þurfi að taka afstöðu á næstu dögum vegna Menningarnætur. 
    e.    Lóa Birna Birgisdóttir fer yfir stöðu mála varðandi leiðbeiningar og upplýsingagjöf til starfsmanna Reykjavíkurborgar.
    f.    Dagný Ingadóttir fór yfir stöðu mála varðandi stjórnsýsluhús borgarinnar, aðgang að spritti og aukin þrif. 

Fundi slitið 9:45.

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 26.07.2021 - prentvæn útgáfa