Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 103

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, mánudaginn 19. apríl, var haldinn 103. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:30. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Bjarni Brynjólfsson, Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, Ebba Schram, Dagný Ingadóttir, Helgi Grímsson, Halldóra Káradóttir, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Óli Jón Hertervig, Óskar Sandholt, Ólöf Örvarsdóttir, Pétur Ólafsson og Þorsteinn Gunnarsson.
Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 18. apríl sl. og smittölur síðustu viku, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins. Rætt um smit sem upp komu um helgina sem tengjast leikskólum Reykjavíkur.

  2. Kynnt var staða á fagsviðum og breytingar á starfsemi Reykjavíkurborgar í framhaldinu: 

    a.    Helgi Grímsson fer yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði og atburði helgarinnar vegna hópsmits á leikskólanum Jörfa. 
    b.    Regína Ásvaldsdóttir fer yfir stöðu mála á velferðarsviði og rekur þær varúðarráðstafanir sem gripið hefur verið til vegna nýlegra hópsmita. 

  3. Samþykkt að uppfæra leiðbeiningar til starfsmanna Reykjavíkurborgar varðandi sóttkví og ítreka tilmæli um að starfsmenn mæti ekki til vinnu ef fólk finnur fyrir einkennum.

Fundi slitið 9:50.

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 19.04.2021 - prentvæn útgáfa