Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 102

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, miðvikudaginn 14. apríl, var haldinn 102. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 8:30. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Bjarni Brynjólfsson, Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, Dagný Ingadóttir, Helgi Grímsson, Ólöf Marín Úlfarsdóttir, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Dís Sigurgeirsdóttir, Óli Jón Hertervig, Óskar Sandholt, Ólöf Örvarsdóttir, Óskar Ísfeld Sigurðsson, Pétur Ólafsson og Þorsteinn Gunnarsson. Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Farið er yfir breyttar sóttvarnaráðstafanir vegna COVID-19 og nýjar reglur til þess að stemma stigu við fjölgun smita sem kynntar voru á fundi ríkisstjórnar í gær.  Almennar fjöldatakmarkanir eru nú 20 manns.

  2. Kynnt var staða á fagsviðum og breytingar á starfsemi Reykjavíkurborgar í framhaldinu: 

    a.    Helgi Grímsson fer yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði og áhrif breyttra takmarkana á starfsemi leikskóla og yngstu bekki grunnskóla.
    b.    Dís Sigurgeirsdóttir fer yfir stöðu mála á velferðarsviði breyttra vegna samkomutakmarkana. 
    c.    Ómar Einarsson fer yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði m.a. vegna opnunar sundlauga á fimmtudaginn.
    d.    Dagný Ingadóttir og Óskar Sandholt fara yfir áhrif breyttra takmarkana í stjórnsýsluhúsum Reykjavíkurborgar að Höfðatorgi og Ráðhúsi. 

Fundi slitið 8:40.

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 14.04.2021 - prentvæn útgáfa