Menningar- og íþróttaráð - Fundur nr. 22

Menningar- og íþróttaráð - Fundur nr. 22

Menningar- og íþróttaráð

Ár 2026, föstudaginn 13. febrúar var haldinn 22. fundur menningar- og íþróttaráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 09:03.  Viðstödd voru:  Skúli Helgason formaður, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Birkir Ingibjartsson varamaður fyrir Kristinn Jón Ólafsson, Friðjón R Friðjónsson, Kjartan Magnússon, Sara Björg Sigurðardóttur og Stefán Pálsson.  Jafnframt: Jóna Hlíf Halldórsdóttir áheyrnarfulltrúi BÍL og Frímann Ari Ferdinandsson.  Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Atli Steinn Árnason, Helga Friðriksdóttir, Arnfríður S. Valdimarsdóttir, Elín Hrefna Ólafsdóttir og Helga Björnsdóttir sem skrifaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á Myrkum músikdögum, sem er ein af borgarhátíðunum. MIR26020004.

    Gunnhildur Einarsdóttir listrænn stjórnandi Myrkra músikdaga situr fundinn undir þessum lið.

  2. Lagðar fram hagræðingartillögur menningar- og íþróttasviðs vegna ársins 2026 ásamt minnisblaði dags. 12. febrúar 2026. MIR25080006. Trúnaðarmál.
    Samþykkt. 
    Fulltrúar Sjálfstæðiflokksins og Framsóknarflokksins sátu hjá.

    Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna leggja fram bókun sem lögð er í trúnaðarbók.

  3. Lagt fram erindisbréf starfshóps vegna aðgerðaráætlunar menningar- og íþróttasviðs í jafnréttis- og mannréttindamálum borgarinnar. MIR26020018.
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram eftirfarandi tillaga um stofnun starfshóps um menningarmerkingar ásamt erindisbréfi.  MIR26020005.

    Lagt er til að stofnaður verði starfshópur um menningarmerkingar. Starfshópinn skipa fulltrúar frá Listasafni Reykjavíkur, Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO, Borgarsögusafni Reykjavíkur og umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur. Ábyrgðaraðili er safnstjóri Borgarsögusafns.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.

    Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Menningarmerkingar í almannarými í borgarlandinu eru öflug og góð leið til að miðla sögu og menningu til íbúa jafnt sem ferðamanna. Enginn hörgull er á merkilegum fyrirbærum sem vert er að draga fram með þessum hætti. Til þessa hafa ákvarðanir um tilhögun menningarmerkinga þó verið tilviljanakenndar og löngu tímabært að útbúa skýrar reglur og verkferla varðandi gerð þeirra, staðsetningar og þess sé gætt að samræmi sé í útliti og hönnun. Stofnun starfshópsins miðar að þessu.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram eftirfarandi tillaga um stofnun starfshóps um framtíðarfyrirkomulag varðveislurýma fyrir listasöfn. MIR26020006.

    Lagt er til að stofnaður verði starfshópur um framtíðarfyrirkomulag varðveislurýma fyrir listasöfn. Starfshópinn skipa fulltrúar frá Listasafni Reykjavíkur, Nýlistasafninu, Listasafni Íslands, Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu og menningar- og íþróttasviði Reykjavíkur. Ábyrgðaraðili er skrifstofustjóri menningarborgar.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.

    Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Góð varðveislurými eru einhver mikilvægasti þáttur í rekstri safna, en um leið sá hluti sem helst vill gleymast eða vera vanræktur þar sem safngeymslur eru alla jafna ekki opnar almenningi. Mörg lykilsafna þjóðarinnar búa við slæman aðbúnað í geymslumálum og gildir það jafnt um söfn á vegum ríkis og sveitarfélaga. Með stofnun starfshópsins er fyrirhugað að leita lausnar sem leyst gæti á einu bretti úr brýnum vanda Listasafns Reykjavíkur, Nýlistasafnsins og Listasafns Íslands. Mikil samlegðaráhrif yrðu með slíkri lausn sem ætti að gagnast við forvörslu og rannsóknir, auk þess að stuðla að varðveislu ómetanlegra menningarminja.

    Fylgigögn

  6. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um menningarkort sbr. 5. lið fundargerðar menningar- og íþróttaráðs frá 23. janúar 2026. MIR2600021.    
    Samþykkt að vísa tillögunni í vinnu gjaldskrárhóps.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Framsóknar vill árétta mikilvægi þess a að bjóða upp á námsmannaafslátt eða aðrar útfærslur sem geta stuðlað að aukinni þátttöku ungs fólks í menningarlífi Reykjavíkurborgar. Niðurstaða um að vísa tillögunni inní stýrihóp vegna gjaldskrábreytinga er því rökrétt skref.

  7. Fram fer umræða um meðferð tillögu Framsóknarflokksins um hestamennsku í Reykjavík sbr. 4. lið fundargerðar menningar- og íþróttaráðs frá 9. janúar 2026.   MSS25110069
    Samþykkt að vísa tillögunni til sviðsstjóra til meðferðar.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mikilvægt er að tryggja að hestaíþróttir fái heildstæða umræðu innan MÍR. Reykjavík sem stærsta sveitarfélag landsins með fjölda iðkenda hestaíþrótta má gera betur í að móta stefnu með hagaðilum. Fulltrúi Framsóknar fagnar því að tillögunni verði vísað til sviðstjóra MÍR til úrvinnslu og að hún fái þar skilvirka afgreiðslu.

  8. Lagt fram svar skrifstofu stjórnsýslu hjá menningar- og íþróttasviði dags. 11. febrúar við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um aðkomuleiðir að Laugardalsvelli sbr. 12. liður fundargerðar menningar- og íþróttaráðs frá 14. nóvember 2025. MIR26020003.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í menningar- og íþróttaráði vilja taka eftirfarandi fram vegna svars við fyrirspurn um aðkomuleiðir að Laugardalsvelli í tengslum við skólaþorp við Reykjaveg. Laugardalur er eitt mikilvægasta íþrótta- og viðburðasvæði landsins og fellur undir verksvið ráðsins hvað varðar starfsemi, aðgengi og aðstæður til íþróttaiðkunar og stórviðburða. Samgöngumat verkefnisins tekur þó eingöngu mið af þörfum skólaþorpsins en ekki heildarnotkun svæðisins. Engin heildstæð greining liggur fyrir um áhrif breytinganna á aðgengi, öryggi og burðargetu svæðisins við stærri viðburði. Til að mæta athugasemdum um aðkomu hefur þurft að ráðast í viðbótarlausnir, þar á meðal uppsetningu rafstýrðra polla og aðgangsstýrðrar innkeyrslu. Slíkar breytingar fela í sér kostnaðarauka sem rekja má beint til skorts á heildstæðri greiningu á upphafsstigi málsins. Í svörum kemur fram að framkvæmdin sé ekki ætluð varanleg, en jafnframt að engar heimildir séu fyrir tímabundnum skipulagsbreytingum í aðal- eða deiliskipulagi. Það þýðir að skipulagsbreytingin sjálf er varanleg þar til ný ákvörðun verður tekin. Án skýrra tímamarka ríkir óvissa um framtíðarskipulag og þróun íþróttasvæðisins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja að slíkar breytingar á aðkomu að Laugardalsvelli verði að byggja á heildarsýn fyrir Laugardal og taka fullt tillit til hagsmuna íþróttastarfs, stórviðburða og ábyrgðar í meðferð opinbers fjármagns.

    Fylgigögn

  9. Lagt fram svar skrifstofu menningar- og íþróttasviðs dags. 5. febrúar 2025 við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins um framkvæmdir við sundlaugar árið 2025 sbr. 6. liður fundargerðar menningar- og íþróttaráðs frá 31. október 2025.

    Fylgigögn

  10. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn: MIR26020009

    Óskað er eftir því að fjallað verði um málefni menningarminja við Grímsstaðavör á næsta fundi menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkur.
    1.    Hvert er ástand mannvirkjanna og hvernig hefur verið unnið að viðhaldi þeirra undanfarin ár?
    2.    Hvaða fjárveitingar hafa runnið til verkefnsisins?
    3.    Að hve miklu leyti hafa tillögur starfshóps um menningarminjar við Grímsstaðavör náð fram að ganga?
    4.    Hver er skipulagsleg staða svæðisins í og við Grímsstaðavör? Hvernig gengur vinna við gerð deiliskipulags?
    5.    Er ekki skýrt að grásleppuskúrarnir við Grímsstaðavör eru í eigu Reykjavíkurborgar og að umsjón þeirra er á ábyrgð hennar?
    6.    Hefur Reykjavíkurborg gefið samþykki sitt fyrir staðsetningu hjólhýsis við grásleppuskúrana og er því ætlað að vera þar til framtíðar?

Fundi slitið kl. 11:06.

Skúli Helgason Birkir Ingibjartsson

Sara Björg Sigurðardóttir Stefán Pálsson

Aðalsteinn Haukur Sverrisson Friðjón R. Friðjónsson

Kjartan Magnússon

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð menningar- og íþróttaráðs 13.02.2026 - Prentvæn útgáfa