Menningar- og ferðamálaráð - Fundur nr. 299

Menningar- og ferðamálaráð

Ár 2018, mánudaginn 26. febrúar var haldinn 299. fundur menningar- og ferðamálaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst hann kl. 13.30. Viðstaddir: Elsa Hrafnhildur Yeoman, Þórgnýr Thoroddsen, Eva Indriðadóttir, Aron Leví Beck, Marta Guðjónsdóttir, Börkur Gunnarsson og Auður Alfífa Ketilsdóttir. Áheyrnarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina: Magnús Arnar Sigurðsson. Áheyrnarfulltrúar BÍL: Jóna Hlíf Halldórsdóttir og Erling Jóhannesson. Áheyrnarfulltrúi SAF: Þórir Garðarsson. Af hálfu starfsmanna: Signý Pálsdóttir, Arna Schram, Huld Ingimarsdóttir og Inga María Leifsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Tilkynnt að Erling Jóhannesson taki sæti sem áheyrnarfulltrúi Bandalags íslenskra myndlistamanna í stað Kolbrúnar Halldórsdóttur. RMF18020016

  2. Lagt fram til kynningar boðsbréf á fund menningarmálanefnda í Osló 23. -25. maí 2018. RMF18020018

    Fylgigögn

  3. Lagður fram til samþykktar samstarfssamningur við Samband íslenskra myndlistarmanna um fjárstuðning Reykjavíkurborgar við Mugg – tengslasjóð fyrir myndlistarmenn. RMF18020013

    Samþykkt. Samningnum vísað til borgarráðs til samþykktar.

    Fylgigögn

  4. Fram fer kynning á Ráðstefnuborginni Reykjavík (Meet in Reykjavik). RMF15120011

    Þorsteinn Örn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ráðstefnuborgarinnar Reykjavíkur, og Sigurjóna Sverrisdóttir, sýninga- og viðburðastjóri hjá Ráðstefnuborginni Reykjavík, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  5. Fram fer kynning á verkefninu Iceland Naturally. RMF18020002

    Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður stjórnar Iceland Naturally, og Margrét Helga Jóhannsdóttir, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    - Kl. 15.02 víkur Þórir Garðarsson af fundinum.

  6. Fram fer kynning á dagskrá Hönnunarmars 2018, sem fram fer 15.-18. mars nk. RMF18020015

    Sara Jónsdóttir, stjórnandi Hönnunarmars, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  7. Fram fer kynning á Vetrarhátíð 2018, sem fram fór 1.-4. febrúar sl. RMF17100004

    Guðmundur Birgir Halldórsson og Björg Jónsdóttir, verkefnastjórar Vetrarhátíðar, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Menningar- og ferðamálaráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Menningar- og ferðamálaráð vill koma á framfæri þakklæti til þeirra sem komu að því að skipulegga og vinna að Vetrarhátíð 2018. Þrátt fyrir rysjótt veðurfar var hátíðin vel sótt og setti fallegan og menningarlegan blæ á höfuðborgarsvæðið.

    Fylgigögn

  8. Lögð fram til samþykktar tilnefning SÍM á Unnari Erni Jónassyni Auðarsyni í innkaupanefnd Listasafns Reykjavíkur. RMF14110010

    Samþykkt.

    Fylgigögn

  9. Lögð fram að nýju tillaga Framsóknar og flugvallarvina um áhorfendabekki við Sæbraut frá 11. desember 2017. Einnig lögð fram umsögn Hjalta J. Guðmundssonar, skrifstofustjóra reksturs og umhirðu borgarlandsins á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. RMF17120005

    Felld með fimm atkvæðum Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Vinstri grænna. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.

    Fylgigögn

  10. Lögð fram til samþykktar tillaga sviðsstjóra að skipan í hússtjórn Iðnó ásamt erindisbréfi. Stjórnina skipa Signý Pálsdóttir fulltrúi Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar (MOF), Óli Jón Hertervig fulltrúi Skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar (SEA) og René Boonekamp fulltrúi Gómsætt ehf., leigutaka Iðnó. . RMF171060011

    Samþykkt.

       

      Fylgigögn

    1. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

      Óskað er eftir yfirliti yfir tillögur, bókanir og fyrirspurnir fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í menningar- og ferðamálaráði frá upphafi þessa kjörtímabils til dagsins í dag. Jafnframt er óskað eftir að fram komi í yfirlitinu hvaða meðferð viðkomandi tillögur hlutu, þ.e. hvort þær voru samþykktar, felldar eða vísað eitthvað.

    Fundi slitið klukkan 15:43

    Marta Guðjónsdóttir