Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð - Fundur nr. 10

Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð

Ár 2023, fimmtudaginn 12. janúar var haldinn 10. fundur mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi, Tjarnarbúð og hófst kl. 13.02. Fundinn sátu Magnús Davíð Norðdahl, Þorvaldur Daníelsson, Sabine Leskopf, Friðjón R. Friðjónsson, Unnur Þöll Benediktsdóttir og Kolbrún Baldursdóttir. Einnig sat fundinn Anna Kristinsdóttir.
Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram fundardagatal mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs vor 2023. MSS22060205 

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning á fræðslu samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar við Samtökin 78. MSS22020125 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fræðsla samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar við Samtökin 78. Fulltrúi Flokks fólksins þakkar Samtökunum ómetanlegt starf þeirra. Samningur við Reykjavíkurborg hefur staðið í stað. Mikilvægt er að styðja vel við bakið á Samtökunum enda treysta margir á þau með fræðslu og stuðningi. Reykjavík er stærst sveitarfélaga og á að vera leiðandi og að vera auðvitað góð fyrirmynd. Hægt er að gera betur enda eru áskoranir margar og má nefna helst hatursorðræðu. Mikilvægt er að vera á vaktinni og gera mælingar til að átta sig á hver þróunin er á hatursorðræðu og ofbeldi gagnvart hinsegin fólki. Flokkur fólksins hvetur til þess að skoðuð verði meiri miðlægni. Í því sambandi má byrja á að nota meiri hvatningu og tilmæli til skóla og annarra stofnanna borgarinnar að meðtaka fræðslu og í framhaldi að fylgja því eftir. Ekki síður mikilvægt að fræða starfsfólk skóla og íþrótta- og félagsmiðstöðva á vegum Reykjavíkurborgar.

    Daníel E. Arnarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

  3. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 10. janúar 2023, þar sem óskað er staðfestingar á erindisbréfi starfshóps um áætlun Reykjavíkurborgar í jafnréttismálum. MSS23010102  
    Samþykkt. 

    Fylgigögn

  4. Lögð fram að nýju tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um stofnun stýrihóps sem kortleggur aukinn vopnaburð eggvopna meðal ungmenna, sbr. 3. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 8. desember 2022 
    Greinargerð fylgir tillögunni. MSS22100160
    Frestað.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um samvinnu vegna aukins ofbeldis ungmenna þar sem eggvopn koma við sögu, sbr.4. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 8. desember 2022. MSS22090060 
    Frestað. 

    Fylgigögn

  6. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um auknar forvarnir, sbr. 5. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 8. desember 2022. MSS22090179
    Tillagan er felld. 
    Fulltrúi Flokks fólksins situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Ekki þykir við hæfi að taka stjórnsýslulegar ákvarðanir út frá einstaklingsmálum. Fram hefur farið metnaðarfullt starf varðandi fjölmenningu og jákvæðan fjölbreytileika í skólum í Breiðholti og í forvörnum og fjölmenningu. Nauðsynlegt er að tala ekki einstök hverfi í borginni niður með þessum hætti.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Tillagan er tilkomin vegna alvarlegra ofbeldisatburða innan Breiðholts þar sem börnum er ógnað með hnífum innan og utan skólalóða í hverfinu. Tillagan gengur út á að farið verði í sérstakar forvarnir til að vinna með fjölmenningu í Breiðholtinu og árekstra tengda börnum frá mismunandi menningarheimum. Flokkur fólksins telur að almennt verði Reykjavíkurborg að stíga fast til jarðar og hafna öllu ofbeldi í hvaða mynd sem það birtist. Ástæður ofbeldis eru margar en ofbeldi er aldrei réttlætanlegt. Aðalatriðið er að brugðist verði hratt og vel við þessum rauðu flöggum sem þarna birtast. Það má gera með fjölbreyttum hætti. Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð er í sterkri stöðu til að beita sér og hefur til þess ýmsar leiðir. Mikilvægt er að hafa gott samstarf við Suðurmiðstöðina sem er þjónustumiðstöð borgarinnar í Breiðholti.

    -    Kl. 14.25 víkur Unnur Þöll Benediktsdóttir af fundinum.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs við fyrirspurn fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um efnahagslegan ójöfnuð, sbr 8. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 8. september 2022. MSS22080187 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Hér er verið að svara fyrirspurn um hvort ráðist hefur verið í greiningu á efnahagslegum ójöfnuði í Reykjavík t.d. síðustu tíu árin. Svarið er skýrt, “nei” Fjármála- og áhættustýringarsvið hefur ekki ráðist í greiningar á efnahagslegum ójöfnuði í Reykjavík né greiningu á hvað borgin geti gert til þess að stuðla að jöfnuði. Þetta er sláandi að mati fulltrúa Flokks fólksins. Engar skýrslur eru til með slíkum úttektum og þar með engar upplýsingar hvorki frá miðlægri stjórnsýslu né frá sviðunum. Það liggur fyrir að ójöfnuður hefur aukist í Reykjavík. Hópur þeirra sem skilgreina má sem fátækt hefur stækkað. Hér er vísað til hóps fólks, einstaklinga og fjölskyldna sem mælast undir velferðarviðmiði velferðarráðuneytis. Efnahagslegur ójöfnuður hefur tengsl við margar slæmar félagslegar afleiðingar og viðheldur fátækt að stóru leyti. Það er afar brýnt að mati Flokks fólksins að ráðist verði í að gera úttekt á stöðunni og reynt að kortleggja efnahagslegan ójöfnuð í Reykjavík og hver þróunin hefur verið síðustu árin.

    Fylgigögn

  8. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Flokks fólksins:

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð fari í fundarröð með helstu hagsmunasamtökum minnihlutahópa til að heyra frá fyrstu hendi hvað brennur á þeim. Lagt er til að fundað verði með Öryrkjabandalagi Íslands ÖBI, Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni FEB,  Þroskahjálp og Geðhjálp sem og fleiri félögum sem eru aðildarfélög t.d. að ÖBI. MSS23010140
    Frestað.

  9. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Flokks fólksins

    Í umræðunni upp á síðkastið hefur verið rætt um ofbeldi gagnvart fötluðu fólki. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð bregðist við þessari umræðu með einhverjum sérstökum hætti og grípi til aðgerða s.s. Fræðslufundar, málþings eða annað í þeim dúr. Orð eru til alls fyrst en að mati Flokks fólksins þarf að huga að aðgerðum í þessum sambandi. Hvað getur Reykjavíkurborg gert, eða hvernig getur borgin beitt sér til að spyrna við að fatlað fólk verði fyrir ofbeldi? MSS23010141
    Frestað.

Fundi slitið kl. 14:52

Magnús Davíð Norðdahl Þorvaldur Daníelsson

Sabine Leskopf Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir

Friðjón R. Friðjónsson

PDF útgáfa fundargerðar
10. Fundargerð mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 12. janúar 2023