Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð
Ár 2022, fimmtudaginn 7. apríl var haldinn 59. fundur, mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs. Fundurinn var haldinn í Tjarnarbúð og hófst kl. 15.02. Fundinn sátu Dóra Björt Guðjónsdóttir, Diljá Ámundadóttir, Þorkell Heiðarsson, Kolbrún Baldursdóttir og Anna Wojtynska. Eftirtaldir fulltrúar mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Örn Þórðarson. Einnig sat fundinn Anna Kristinsdóttir og Óskar J. Sandholt sat fundinn með rafrænum hætti.
Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á tillögum starfshóps um aukið gagnsæi styrkveitinga. FAS22030033
Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Tillaga um aukið gagnsæi styrkveitinga var samþykkt í mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráði árið 2019. Síðan þá var unnin umfangsmikil skýrsla með tillögum sem samþykktar voru í ráðinu og hafa verið í undirbúningi hjá teymi á fjármála- og áhættustýringarsviði. Stefnt er að því að setja á laggirnar nýja styrkjagátt með betra yfirliti yfir veitta styrki sem og samninga. Með því færist utanumhaldið frá handvirkni yfir í meiri sjálfvirkni með miklu hagræði og þægindaauka bæði fyrir starfsfólk og styrkjaumsækjendur um leið og þetta mun auka gagnsæi í kringum veitta styrki. Sérstakur verkefnastjóri heldur nú utan um verkefnið sem er búið að tryggja fjármagn í og næsta skref er að smíða lausnina.
Halldóra Káradóttir, Hörður Hilmarsson og Ólöf Marín Úlfarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 8. febrúar 2022, þar sem óskað er umsagnar mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs um tillögu borgarstjóra um samkomulag við Almannaheill um fund fólksins. Einnig er lögð fram umsögn mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs dags. 2. apríl 2022. MSS22020108
Samþykkt.Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Lýðræðishátíðin Fundur fólksins er komin aftur til Reykjavíkur eftir að hafa verið haldin undir formerkjum LÝSU á Akureyri í nokkur skipti og er það breyting sem Reykjavíkurborg hefur stutt dyggilega við. Stefnt er að því að halda hátíðina í Reykjavík næstu árin og liggur nú fyrir samningur þess efnis. Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð fagnar því en leggur enn fremur til að tengja hátíðina við eina aðgerð nýsamþykktar lýðræðisstefnu og halda samhliða lýðræðishátíð ungs fólks byggt á fyrirmynd nágrannalandanna. Það væri hægt að hafa fyrsta dag hátíðarinnar á fimmtudegi eða föstudegi tileinkaðan ungu fólki og tengja það við skólana og þeirra tímalínu og takt. Lýðræði unga fólksins var einmitt skýrt þema þegar síðasta hátíð var haldin hér í Reykjavík eftir samtal milli Almannaheilla og Reykjavíkurborgar en það er mælst til þess að það verði fest í sessi í samningi. Er það ávarpað í umsögn ráðsins.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa ungmennaráðs Breiðholts um kynjalaust skólaumhverfi í grunnskólum Reykjavíkur, sbr. 1. lið fundargerðar mannréttinda-, nýsköpunar og lýðræðisráðs frá 10. mars 2022. Einnig eru lagðar fram umsagnir skóla- og frístundasviðs dags. 23. mars s.l. og mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 31. mars 2022. MSS22020117
Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs:
Lagt er til að skóla- og frístundasvið vinni að því að endurskoða og draga úr kynjaskiptingu í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar samhliða því að auka þekkingu og meðvitund um áhrif kynjakerfisins, stöðu allra kynja og hinseginleika. Í þessari vinnu skal huga að því við hvaða tilefni og með hvaða hætti kynjaskipting getur stuðlað að auknu jafnrétti og valdeflingu án þess þó að hún sé útilokandi. Einnig skal tryggja að í kynjablöndun sé hugað að áhrifum kyns og jafnrétti allra. Útfærsla verði í höndum Jafnréttisskóla þar sem sérstök áhersla er á fræðslu, ráðgjöf, miðlun upplýsinga og gerð námsefnis varðandi kynja- og hinsegin málefni. Nánara skipulag verður eftir því sem þarf í samráði við skólaráð í grunnskólum og foreldraráð í leikskólum.
Greinargerð fylgir tillögunni. MSS22020117
Samþykkt.Tillagan er samþykkt svo breytt.
Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Breytingartillaga á flottri tillögu fulltrúa ungmennaráðs Breiðholts hefur verið unnin út frá umsögn skóla- og frístundasviðs og mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu og í samráði við sérfræðinga í málaflokknum. Óskað er eftir kynningu á framvindu málsins komandi haust 2022.
- Kl. 16.00 víkur Diljá Ámundadóttir af fundinum og Alexandra Briem tekur sæti.
Fylgigögn
-
Lögð fram drög að bæklingi mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu um lýðræði og kosningaþátttöku á auðskildu máli. MSS22030280
Fylgigögn
-
Lögð fram drög að bæklingi mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu um fordóma og ofbeldi gegn fötluðu fólki á auðskildu máli – Saga Steinunnar Ásu. MSS22030281
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 31. mars 2022, þar sem óskað er staðfestingar á erindisbréfi starfshóps um endurskoðun stefnu Reykjavíkurborgar í túlka- og þýðingarþjónustu. MSS22030274
Samþykkt.Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að starfshópurinn skoði fyrir alvöru að nota símatúlkun. Símatúlkun er þjónusta á sér stað milli þjónustuveitanda og þjónustuþega í gegnum síma. Sennilega er hægt að gera slíka samninga við allnokkra aðila bæði hérlendis og erlendis. Að eiga þess kost að hafa símatúlkun er mikilvægt. Sumir þjónustuþegar velja það umfram að fá túlk á staðinn og geta ástæður fyrir því verið af ýmsum toga. Gott er að bjóða þjónustuþega upp á þetta val og iðulega eru aðstæður þar sem ekki fæst túlkur til að túlka ákveðið tungumáli og þá kemur samningur við símatúlkunarfyrirtæki sér vel.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu og nýsköpunarsviðs dags. 16. febrúar 2022, um kynningu á mælaborði borgarbúa 2.0. ÞON22020010
Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:
Mælaborð borgarbúa er á góðri leið og kemur á næstunni fram í nýrri útgáfu. Mælaborðið á eftir að valda byltingu í aðgangi borgarbúa að upplýsingum um rekstur borgarinnar. Það er mikilvægt að öll gögn borgarinnar sem varða borgarbúa séu aðgengileg út á við í viðmóti sem er þægilegt og gegnsætt, og þar sem framsetning er með sama hætti þvert á málaflokka. Borgarbúar eiga að geta fundið öll gögn um rekstur og stöðu borgarinnar á einum stað. Upplýsingar eru forsenda góðrar ákvarðanatöku.
Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins er orðin ýmsu vanur þegar kemur að stafrænum kynningum Þjónustu-og nýsköpunarsviðs. Fulltrúi Flokks fólksins hefur rætt við allmarga sérfræðinga bæði innan borgarkerfis og utan um vegferð borgarinnar í stafrænni umbreytingu, ferli stafrænna lausna og forgangsröðun og þykir mörgum að borgin hafi misst fótanna í þessum málum, ekki sýnt ábyrgð í meðhöndlun fjármagns og hafi færst of mikið í fang. Fjármagn í málaflokkinn er um 13 milljarðar á 2-3 árum. Lausnir sem oftast er rætt um eru mælaborð af ýmsu tagi og dagatöl. Þetta er að koma í ljós núna þegar þær lausnir sem beðið er sárlega eftir, eru ýmist ókomnar eða virka ekki nógu vel. Sviðið virðist hafa loksins áttað sig á því að það hefur verið á villigötum með Qlick Sense til þess að sjá um birtingu gagna í mælaborðum borgarinnar og kynnir til leiks Power BI samhliða Microsoft Office 365 innleiðingu. Power BI hefur nú þegar verið innleitt af Ríkinu og komið í notkun hjá stofnunum þess út um allt land ásamt Microsoft Office 365. Að mati óháðra sérfræðinga er Stafræna Ísland (SÍ) komið lengra í stafrænni umbreytingu og hefði borgin haft fjárhagslegan hag af því að leita frá byrjun eftir stöðluðum lausnum og samstarfi við Stafræna Ísland.
Inga Rós Gunnarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 14. febrúar 2022, um samstarf í stafrænni umbreytingu sveitarfélaga 2022. ÞON22020017
Samþykkt.
Fulltrúi Flokks fólksins situr hjá við afgreiðslu málsins.Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins fagnar samstarfi sveitarfélaga varðandi stafræna umbreytingu. Þetta hefði átt að gerast miklu fyrr vegna þess að samlegðaráhrif slíks samstarfs eru mikil. Fulltrúi Flokks fólksins hefur í langan tíma gagnrýnt þá einangrunar stefnu sem ríkt hefur í stafrænum málum undir forystu Þjónustu- og nýsköpunarsviðs. Búseta fólks í sveitarfélögum er ekki meitluð í stein og fólk flytur á milli. Þess vegna gefur það auga leið að með miðlægri þjónustugátt allra sveitarfélaga ásamt sameiginlegri þróun og innleiðingu miðlægra lausna, næst mikil hagræðing og sparnaður sem allir njóta góðs af. Fulltrúi Flokks fólksins vill taka það fram að í rúmt ár hefur hann ítrekað kallað eftir því að Reykjavíkurborg efli til muna stafrænt samstarf sitt við bæði önnur sveitarfélög sem og Stafræns Íslands ríkisins. Það er vel að loksins virðist eitthvað vera að gerast á þeim vettvangi þrátt fyrir það hversu tregt Þjónustu-og nýsköpunarsvið hefur verið gagnvart öllum tillögum um samstarf við aðra opinbera aðila í innleiðingu stafrænna lausna og leyfamála. Dæmi um þetta eru sér samningar sem Reykjavíkurborg hefur gert upp á eigin spýtur þrátt fyrir að hafa fengið boð frá Ríkiskaupum um að taka þátt í útboði ríkis og sveitarfélaga um kaup á MS leyfum. Það er eitthvað sem þarf að skoða frekar.
Karen María Jónsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 17. mars 2022, um fjárfestingaráætlun þjónustu- og nýsköpunarsviðs 2023. ÞON22030019
Samþykkt.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Flokks fólksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fjárfestingaráætlun Þróunar- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar fyrir árin 2022 – 2026 hefur verið lögð fram. Samtals hljóðar fjárfestingaráætlunin upp á tæplega 13 milljarða eða nánar til tekið 12.568 milljónir króna. Kostnaður við tæplega 2/3 fjárfestingaráætlunarinnar fellur til á fyrstu tveimur árum tímabilsins eða um 8 milljarðar kr. Miðað við þær upplýsingar sem koma fram í áætluninni er erfitt að fá heildaryfirsýn yfir verkefni sviðsins og þær áætlanir sem byggt er á við þróun þeirra og verkefni komandi ára. Ekki er sett upp forgangsröðun eða verkefni flokkuð eftir forgangsröðun eða mikilvægi þeirra. Ekki er að heldur að finna stöðumat fyrir stöðu einstakra verkefni á annan hátt en sem kemur fram í fjárframlögum til þeirra. Engu að síður er þess getið í neðanmálsgreinum að verkefni ársins 2023 sé háð forgangsröðun fagsviða og framgangi verkefna á árinu 2022. Flokkur fólksins leggur áherslu á að verkefni sviðsins séu skilgreind eftir mikilvægi þeirra og niðurstaða þess kynnt fyrir kjörnum fulltrúum Reykjavíkurborgar. Einnig leggur Flokkur fólksins áherslu á að gerður sé greinarmunur á efnislegum eignum sviðsins í fjárfestingaráætluninni og óefnislegum eignum. Slík flokkun er forsenda þess að hægt sé að færa reikningsskil borgarinnar á þann hátt sem samræmist alþjóðlegum reikningsskilastöðum sem opinberir aðilar skulu miða reikningsskil sín við.
Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Hér er verið að leggja fram drög að fjárfestingaráætlun 2023 sem verður þriðja ár átaks í stafrænni umbreytingu borgarinnar. Heildartölur þær sem lagðar eru fram í bókuninni eru því ekki réttar en áætlun yfirstandandi árs var samþykkt á síðasta ári eins og kunnugt er. Þau verkefni sem kynnt eru á áætluninni eru að langmestu leyti framhald verkefna sem hafa verið ítarlega kynnt á fundum ráðsins sem og á vettvangi borgarráðs. Þær aðferðir sem notaðar eru til að forgangsraða þeim fjölmörgu verkefnum sem fyrir liggja hafa einnig verið kynntar ítarlega og ítrekað. Stöðumat er unnið fyrir hvert verkefni áður en það hefst og er hluti af vönduðum undirbúningi hvers verkefnis. Fjármál og bókhald sviðsins og þ.m.t. eignfærslur efnislegra og óefnislegra eigna eru í samræmi við reglur borgarinnar og lúta sömu innri og ytri endurskoðun og önnur fjármál hennar.
Þorgeir Hafsteinn Jónsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 30. mars 2022, um endurskoðun þjónustustefnu Reykjavíkurborgar. ÞON21070032
Samþykkt og vísað til Borgarráðs.
Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:
Þjónustustefna Reykjavíkur var samþykkt árið 2016. Hún var tímamótaplagg sem hrinti af stað þeirri einföldun og nútímavæðingu þjónustu á forsendum íbúa sem nú er komin á fullt með tímamótaátaki í stafrænni umbreytingu. Nú er verið að uppfæra þjónustustefnuna með tilliti til þeirrar þróunar sem hefur orðið undanfarin ár, með hliðsjón af góðu samráði við íbúa, starfsfólk, fagráð og nefndir sem og svið borgarinnar. Markmið stefnunnar eru fagmennska, notendamiðuð þjónusta og skilvirkni og í aðgerðaáætlun til tveggja ára er að finna undirmarkmið og beinar aðgerðir til að fylgja því eftir. Starfsfólki er þakkað kærlega fyrir vandaða og góða vinnu.
Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins styður stafræn umbreytingu og gerir sér grein fyrir að það er framtíðin. Fulltrúi Flokks fólksins hefur nú í rúmt ár gagnrýnt hvernig Þjónustu- og nýsköpunarsvið ÞON hefur farið með á 13. milljarð á 2-3 árum í stafræna umbreytingu. Ámælisvert bruðl hefur átt sér stað. ÞON færðist of mikið í fang og mistókst að forgangsraða lausnum sem létta myndi á starfsmönnum og liðka fyrir þjónustu. Ómældum tíma og fjármagni hefur verið eytt í uppgötvanir, tilraunir og þróunarvinnu á lausnum sem virðist hafa frekar afþreyingar- og skemmtanagildi í stað notagildis, á sama tíma og tug kerfis- og tölvunarfræðinga voru reknir frá sviðinu og það í miðju Covid. Háum fjárhæðum hefur verið ausið í erlenda og innlenda ráðgjöf. Fjölmargar lausnir fóru aldrei af tilraunastiginu, heldur döguðu uppi. Að mati margra óháðra sérfræðinga er Stafræna Ísland (SÍ) komið lengra í stafrænni umbreytingu og hefði borgin haft fjárhagslegan hag af því að leita frá byrjun eftir stöðluðum lausnum og samstarfi við Stafræna Ísland sem vinnur þvert á 165 stofnanir ríkisins og sveitarfélög við að þróa lausnir og styðja við stafræna umbreytingu. Meirihlutann hefur skort alla gagnrýna hugsun hvað þennan málaflokk varðar og nú liggur fyrir að Innri Endurskoðun mun gera úttekt á ÞON á næsta ári.
Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Fulltrúi Flokks fólksins leggur hér enn eina bókunina fram sem samanstendur af fullyrðingum sem eiga sér ekki stoð í raunveruleikanum. Allt sem þarna kemur fram hefur annað hvort verið útskýrt skriflega eða á fundum sem fulltrúinn hefur setið. Afgangurinn virðist byggja á sögusögnum frá ónefndum sérfræðingum og upplýsingum sem virðast túlkaðar á rangan hátt. Þessi málflutningur er ekki svaraverður og dæmir sig sjálfur.
Arna Ýr Sævarsdóttir, Valý Ágústa Þórsteinsdóttir og Guðbergur Ragnar Ægisson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 31. mars 2022, um áætlun um greiningar, framkvæmd og eftirlit vegna kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar vegna undirbúnings fjárhagsáætlunar 2023 á þjónustu- og nýsköpunarsviði. ÞON22010012
Samþykkt.
Fulltrúar Flokks fólksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 3. mars 2022, um árshlutauppgjör þjónustu- og nýsköpunarsviðs - Q4 2021. ÞON21020041
Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Árshlutauppgjör, yfirlit. Fulltrúa Flokks fólksins finnst það sérkennilegt að sjá í uppgjörinu hvað netspjallið er lítið nota í Reykjavíkurborg. Netspjall var lengi að komast á í Reykjavík þegar netspjall var komið í litlar sem stórar verslanir og fyrirtæki. Þetta þarf að rýna og finna út ástæður þess að Reykvíkingar eru ekki að nota netspjallið meira en raun ber vitni. Finna þarf út hvað veldur þessu og leysa úr því þar sem netspjall er að virka mjög vel almennt séð annars staðar eftir því sem fulltrúi Flokks fólksins kemst næst. Ferðakostnaður 2021 fyrir sviðið er eðlilega í lágmarki sökum Covid og verður vonandi það áfram. Í raun hefði ferðakostnaður átt að vera núll. Það er bæði hægt að tjá sig og fræðast í gegnum fjarfund. Engin ástæða er til að eyða peningum í ferðir þegar hægt er að gera allt í gegnum fjarfund sem hlýtur að vera ódýrara en ferðalag með öllu. Huga þarf einnig að kolefnissporum, minnt eru á stefnu meirihlutans, þessa „grænu“.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 19. október 2021, um endurskoðun á reglum um meðferð símtalagagna. ÞON20090034
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 10. desember 2021, um endurskoðun á reglum um tölvunotkun hjá Reykjavíkurborg. ÞON21010018
Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fram kemur að með erindisbréfi dagsett 21. febrúar 2020 var hópi starfsmanna þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar falið að endurskoða og uppfæra reglur um tölvunotkun borgarinnar sem tóku gildi 12. ágúst 2014. Hlutverk hópsins samkvæmt erindisbréfi fól í sér endurskoðun og uppfærslu reglna um tölvunotkun auk þess að leggja mat á hvaða lög og aðrar reglur innan borgarinnar snertu á gildissvið reglnanna með það að markmiði að forðast tvítekningar. Fulltrúi Flokks fólksins veltir því upp hvað margir sem voru í þessum tilgreinda hópi eru hættir en stór hópur var rekinn af sviðinu í lok árs 2020 og tapaðist þar án efa mikil sérfræðiþekking og reynsla. Það hlýtur að vera mikið álag á vinnustað eins og á Þjónustu- og nýsköpunarsviði þar sem harkalegar uppsagnir hafa viðgengist og hvað mest á miðju Covid tímabili.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 14. febrúar 2022, við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um kynningar stafrænna leiðtoga, sbr. 13. lið fundargerðar mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs frá 27. janúar 2022. MSS22010322
Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins þakkar svarið en vill taka það fram að hvergi var spurt um tíma og kostnað vegna vinnu við svör fyrirspurna kjörinna fulltrúa, hvort sem þær fyrirspurnir hafi komið frá Flokki fólksins eða öðrum flokkum. Ef Þjónustu og nýsköpunarsvið telur sig þurfa að leggja fram aukavinnu í að svara því sem ekki var spurt um, er það gott og vel. Það vekur eftirtekt að í svari er því haldið fram að Reykjavíkurborg sé komin lengra á veg í stafrænni vegferð en velflestir aðrir opinberir aðilar á Íslandi. Fulltrúa Flokks fólksins hefur rætt þessi mál við sérfræðinga víða og er skemmst frá því að segja að ekki er tekið undir þetta nema síður sé. Í svari kemur einnig fram að mikið sé um auglýsinga og kynningarstarf um stafræna vegferð Reykjavíkurborgar undir forystu Þjónustu- og nýsköpunarsviðs, innanlands sem utan. Fulltrúi Flokks fólksins telur að stafræn umbreyting Reykjavíkurborgar sé í raun komin langt fram úr sér varðandi það hvað stafræn umbreyting eigi að snúast um. Stafræn umbreyting í almannaþágu á að snúast um það að flýta innleiðingu lausna sem nú þegar eru til og komnar í notkun víða í löndunum hér í kringum okkur. Hún á ekki að snúast um auglýsingamennsku og endalausar tilraunir.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 24. mars 2022, við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um félagið Ráðgjöf slf, sbr. 14. lið fundargerðar mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs frá 13. janúar 2022. MSS22010164
Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins hefur lengi gagnrýnt það hversu glannalega Þjónustu- og nýsköpunarsvið hefur farið með fjármuni borgarbúa. Það að segja upp reyndu starfsfólki með mikla sérfræðiþekkingu á stafrænum innviðum og þjónustu Reykjavíkurborgar og kaupa í staðinn mun dýrari þjónustu af ytri aðilum, er í raun aðför að útsvarspeningum borgarbúa. Það er alveg augljóst að Þjónustu og nýsköpunarsvið hefur tekið ákvarðanir sem hafa haft stóraukinn kostnað í för með sér fyrir Reykjavíkurborg. Í svari sviðsins kemur fram að borgarsjóður hefur þurft að greiða um 740 milljónir í aðkeypta þjónustu fyrir sviðið árið 2021 fyrir þjónustu sem brottreknir starfsmenn sáu um áður. Ekki kemur fram í svari við spurningu um tengsl sviðsstjóra við fyrirtækið I Ráðgjöf, Það er í raun með ólíkindum að stjórnandi og embættismaður hjá Reykjavíkurborg skuli hafa verið undanfarin ár í beinum viðskiptum við skrifstofuna og sviðið sem hann stýrir. Þar er á ferðinni eitthvað sem eykur hættu á spillingu þegar sami aðili situr beggja vegna borðsins, jafnvel þó því sé haldið fram að gerður hafi verið verðsamanburður. Embættismaður í opinberri stjórnsýslu á að vita betur.
Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Um er að ræða smávægileg innkaup sem fóru fram að undangenginni verðfyrirspurn. Fram hefur komið að ákvarðanir um þessi innkaup voru teknar af þeim starfsmönnum sviðsins sem bera ábyrgð á hverju verkefni fyrir sig en ekki af sviðsstjóra.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 28. febrúar 2022, við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokks um fjölda heimsókna á vefsvæði, sbr. 11. lið fundargerðar mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs frá 27. janúar 2022. MSS22010320
Fylgigögn
-
Lagt fram svar þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 23. mars 2022, við fyrirspurn fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um vefsíðu Reykjavíkurborgar, sbr. 6. lið fundargerðar mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs frá 24. febrúar 2022. MSS22020266
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Flokks fólksins:
Tillaga um að verkefni eins og Betri Reykjavík og Hverfið mitt bjóði upp á ábendingar/kosningar um viðhald í hverfum. Eins og fulltrúi Flokks fólksins hefur áður bókað er verkefnið Betri Reykjavík og Hverfið mitt góð verkefni. En það er eins með það og annað að margt má betur fara. Tillaga er nú lögð fram að Betri Reykjavík og Hverfið mitt rúmi einnig ábendingar um viðhald á ýmsu í hverfum en ekki aðeins tillögur um nýjungar. Þegar verkefni eins og Betri Reykjavík er svona dýrt eins, þarf að vanda sig. Margir senda inn ábendingar um viðhald en svo virðist sem sumum sé hafnað og bent á annað ferli en einstaka viðhaldsverkefni komast engu að síður í hóp verkefna sem kosið er um.
Greinargerð fylgir tillögunni. MSS22040070
Frestað.Fylgigögn
-
Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Fyrirspurnir um netspjallið. Það kemur á óvart hvað netspjallið er lítið notað eins og sjá má í árshlutauppgjöri Þjónustu- og nýsköpunarsviðs. Notkun netspjallsins er innan við 10% af símtölum og síðan eru heimsóknir um 50% fleiri en netspjöllin. Hvað veldur því? Er netspjallið ekki nógu skilvirkt? Kann fólk ekki nógu vel á það? Er því ekki svarað nógu fljótt? Er ekki hægt að gefa nógu skilvirk svör í gegnum netspjallið?MSS22040096
- Kl. 17.57 víkur Örn Þórðarson af fundinum og aftengist fundarbúnaði.
- Kl. 18.07 víkur Anna Wojtynska af fundinum.
- Kl. 18.20 víkja Alexandra Briem, Þorkell Heiðarsson og Kolbrún Baldursdóttir af fundinum
Fundi slitið klukkan 18:22
Dóra Björt Guðjónsdóttir Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
59._fundargerd_mannrettinda-_nyskopunar-_og_lydraedisrad_7._april_2022.pdf