Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð - Fundur nr. 41

Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð

Ár 2021, fimmtudaginn 27. maí var haldinn 41. fundur, mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs. Fundurinn var haldinn í fjarfundi í Ráðhúsi og hófst kl.13.02. Fundinn sátu: Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir fulltrúar mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs tóku sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 1436/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Dóra Björt Guðjónsdóttir, Diljá Ámundadóttir, Skúli Helgason, Örn Þórðarson og Daníel Örn Arnarsson. Einnig sat fundinn Anna Kristinsdóttir og Karen María Jónsdóttir sat fundinn með fjarfundarbúnaði.

Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram að nýju erindi mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs dags. 3. maí 2021 til forsætisráðuneytis, vegna reglna sem ganga í berhögg við lög nr. 80/2019, um kynrænt sjálfræði, sbr. 4. lið fundargerðar mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs frá 6. maí s.l. R21050037
    Samþykkt.

    -    Kl. 13.05 tekur Ellen J. Calmon tekur sæti á fundinum. 

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf starfshóps um kynja- og hinseginfræðslu í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar, dags. 12. maí 2021, með beiðni um frest á skilum lokaskýrslu til 30. september 2021. R20060218
    Samþykkt. 

    Fylgigögn

  3. Lagðar fram til afgreiðslu umsóknir um skyndistyrk til mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs. R21020040 
    Samþykkt að veita verkefninu Hinsegin Reykjavík styrk að upphæð kr. 200.000,- 
    Samþykkt að veita verkefninu Skömm – listræn stuttmynd styrk að upphæð kr. 200.000,- 

  4. Fram fer umræða um tillögur stýrihóps um innleiðingu íbúaráða. R19100342 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Engin gögn fylgdu með málinu Tillögur stýrihóps um innleiðingu íbúaráða þannig að ekki var hægt að kynna sér þær fyrir fundinn. Hér er um að ræða stórt mál og mjög mikilvægt að fulltrúar geti kynnt sér tillögurnar og rökin fyrir þeim til að þeir geti verið umræðuhæfir um málið. Margt hefur án efa gengið vel með íbúaráðin en sumt alls ekki. Íbúar sjálfir hafa margir sagt að þeir hafi átt erfitt með að ná til íbúaráðanna og að ekki hafi verið á þá hlustað. Nærtækast er að taka dæmi um íbúaráð Breiðholts. Þar var ítrekað reynt að koma máli inn í ráðið til að fjalla um, sem er fyrirhugaður 3. áfangi Arnarnesvegar. Vinir Vatnsendahvarfs reyndu að fá sett á dagskrá íbúaráðs Breiðholts umræðu um nauðsyn þess að fá nýtt umhverfismat í stað þess að byggja eigi á 18 ára gömlu mati. Meirihlutinn í ráðunum er valinn af meirihlutanum í borginni og það má ekki vera þannig að erfitt eða ómögulegt verði að koma málum á dagskrá ef meirihlutanum í borginni hugnast þau ekki. Í stuttu máli eru ráðin, mörg hver, í allt of litlum tengslum við hverfin og íbúa hverfanna eftir því sem fulltrúi Flokks fólksins kemst næst. 

    Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Þökkuð er þessi fyrsta kynning á vinnslutillögum stýrihópsins. Var það ósk stýrihópsins að mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð væri upplýst um stöðu mála sem fyrst í ferlinu og gæti þá komið á framfæri athugasemdum á vinnslustigi. Skjalið hefur verið í vinnslu fram á þennan dag og því hefur það ekki verið tilbúið til framlagningar. Áætlað er að tillögurnar fari í umsagnarferli með tilheyrandi skjölum sem gefur öllum færi á að kynna sér málið til hlítar, skila athugasemdum eða veita umsögn.

    Þorkell Heiðarsson og Sanna Magdalena Mörtudóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. 

  5. Fram fer kynning á leikvöllum Reykjavíkurborgar og algildri hönnun. R21050216 

    Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Þökkuð er góð kynning umhverfis- og skipulagssviðs. Kemur fram skýr sýn um að fylgja eigi hugmyndafræði algildrar hönnunar við hönnun á leikvöllum og útisvæðum. Mikilvægt er að þetta sé alltaf gert við breytingar eða nýframkvæmdir.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Kynning er á algildri hönnun á leiksvæðum og almenningsrýmum. Ekki kemur nægjanlega skýrt fram hver skilgreining er á algildri hönnun. Er hér átt við að hönnunin sé þannig að allir hafi aðgengi að tækjum/svæðum þ.m.t. fatlaðir þ.e. fólk með mismunandi þarfir? Fulltrúi Flokks fólksins veltir fyrir sér hvort hér sé einna helst hugsað um aðgengi og rými. Umhverfis- og skipulagssvið í samvinnu við Vegagerðina létu árið 2019 sérmenntaðan ráðgjafa í aðgengismálum vinna leiðbeiningar í handbókar formi um algilda hönnun utandyra. Þessi fræði mætti kynna betur. Líklegt er að ekki allir viti út á hvað þetta gengur. Í þessu sambandi er fulltrúa Flokks fólksins einnig hugsað til öryggisatriða t.d. hvað varðar leiktæki barna og kemur fram að gott eftirlit sé með því hjá borginni og öll frávik skoðuð.

    Ólafur Ólafsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  6. Lögð fram drög að umsögn mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs, dags. 27. maí 2021, um reglur um verklag vegna uppljóstrunar starfsmanna um lögbrot og aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi Reykjavíkurborgar. R21010268 
    Samþykkt að fela mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu að klára umsögn m.t.t. málfars og stafsetningar. 

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 19. maí 2021, um yfirlit yfir einstök innkaup, yfir 1,0 m.kr. á 1. ársfjórðung 2021. R21050204 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Það er ekki nógu gott að mati fulltrúa Flokks fólksins að kaup sem eru undir milljón séu ekki tilkynnt. Þótt hver einstök kaup séu undir milljón kunna þar undir að vera miklir peningar þegar allt er lagt saman. Einnig er minnt á að þótt útboðsskylda verði aðeins virk fari samningur yfir ákveðin fjárhæðarmörk þá er ekkert sem kemur í veg fyrir að borgin bjóði út minni verk. Útboð eru til þess fallin að auka traust almennings á stjórnvöld og leiða gjarnan til sparnaðar fyrir borgina. Innkaupamál á þessu og síðasta kjörtímabili hafa verið í ólestri og mörg dæmi um að borgaryfirvöld hafi ítrekað virt lög og reglur um opinber innkaup að vettugi og gengið til samninga við einkaaðila án þess að útboð fari fram. Dæmi um þetta er þegar borgin keypti ljósastýringu án undangengins útboðs og svo aftur nú fyrir skemmstu þegar orka var keypt án útboðs. Ekki er langt síðan braggamálið kom upp á yfirborðið og sú staðreynd að lítið var um útboð við endurgerð Braggans í Nauthólsvík. Verkið fór langt umfram kostnaðaráætlanir. Þar voru meira og minna öll verk og öll þjónusta keypt án undangengins útboðs. 

    Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Framlagningar í ráðinu eru í takt við lög um opinber innkaup og innkaupareglur Reykjavíkurborgar.

    Fylgigögn

  8. Fram fer kynning á Ráðgjafastofu innflytjenda, New in Iceland. R21050096 

    Joanna Marcinkowska tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

  9. Lagt fram minnisblað mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 19. maí 2021, um stöðu tilraunaverkefnis sem snýr að rafrænni upplýsingagjöf fyrir innflytjendur. R19050087 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Rafræna upplýsingagjöf fyrir innflytjendur er sannarlega þess virði að skoða. Sambærilega rafræna lausn sem þessa er án efa víða að finna og er mikilvægt að nálgast það frá þeim sem eiga hönnunina með hagkvæmum hætti. Einnig hefur verið bent á að gera þarf ráð fyrir að stór hópur innflytjenda geti með engu móti nýtt sér rafræna upplýsingagjöf / lausnir vegna tungumálaerfiðleika. Það eru ekki allir innflytjendur sem læra íslensku og jafnvel hafa hvorki auðveldan aðgang að tölvum eða símum. Finna má nú þegar dæmi um snjalllausnir sem komnar eru í notkun í öðrum stofnunum sem Reykjavíkurborg ætti að geta nálgast og aðlagað að þjónustuþörfum borgarinnar. Svið borgarinnar vita best hvað þau þurfa og hvernig sú aðlögun þarf að vera.

    -    Kl. 15.15 víkur Karen María Jónsdóttir af fundi og Óskar J. Sandholt tekur sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

  10. Fram fer kynning á nýjum vef Reykjavíkurborgar. R21050095 

    Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Þakkað er kærlega fyrir góða kynningu á nýjum vef Reykjavíkurborgar. Ánægjulegt er að sjá að algild hönnun og aðgengilegur og auðlesinn texti er í forgangi og búið að leggja mikla vinnu í endurgerð texta byggt á hugmyndafræði algildrar hönnunar. Vefurinn er léttur og allt er hugsað út frá notendamiðaðri hönnun. Auk þess er gaman að sjá mikilvæga þörf uppfyllta, sem fjallað hefur verið um á þessum vettvangi, að upplýsingar um aðgengisaðstæður á mismunandi stöðum borgarinnar verði gefnar upp. Með nýrri vefsíðu verða miklar betrumbætur í aðgengi fólks að upplýsingum sem ekki hefur íslensku að móðurmáli.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúa Flokks fólksins líst vel á að vefur Reykjavíkurborgar fái einhverja uppfærslu. Erfitt er að skilja af hverju ekki er búið að því t.d. til samræmis við vefi annarra opinberra aðila þar sem fólk hefur getað sótt þjónustu bæði fljótt og vel t.d. vefir hjá Heilsuveru, Skattinum, Atvinnuleysistryggingasjóði og Tryggingastofnun. Ekki þarf að leita langt yfir skammt heldur hægt að sækja það sem aðrir eru nú þegar komnir með og virkar. Fulltrúa Flokks fólksins hefur blöskrað hversu miklum fjármunum er búið að eyða í endalausar prófanir, án þess oft að áþreifanlegar afurðir hafi orðið til. Má benda á áralangar notendatilraunir Gróðurhúss þjónustu- og nýsköpunarsviðs sem lítið hefur komið út úr hingað til. Nú er talað um notendarýni, vinnustofur, þjónustuhönnun og áfram verða prófanir sem aftur vísar til meiri tilraunastarfsemi. Fyrir sérfræðinga á sviðinu er ekki um nein geimvísindi að ræða. Ef horft er í fjárhæðir þá er vel hægt að taka umbætur í skrefum t.d. einfalda strax flóknustu ferlana. Margt annað má bíða nú á þessum erfiðu tímum vegna Covid. Fulltrúi Flokks fólksins vill að þetta svið þjónustu- og nýsköpunarsvið, skili a.m.k. fimm milljörðum til baka inn í borgarsjóð svo hægt sé að deila þeim út til að taka á raunverulega vanda sem t.d. stór hópur barna glímir við í grunnskólum en fær ekki aðstoð með.

    -    Kl. 15.28 víkur Diljá Ámundadóttir af fundinum og Geir Finnsson tekur sæti með fjarfundarbúnaði. 

    Ólafur Sólimann Helgason og Hreinn Valgerðar Hreinsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

  11. Tillaga mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs um fyrirkomulag fjölmenningarviðburðar 2021. R19020227 
    Frestað.

  12. Lögð fram tillaga mannauðs- og starfsumhverfissviðs dags. 23. apríl 2021, um breytingu á Jafnlaunastefnu Reykjavíkurborgar. R20050193 
    Samþykkt og vísað til borgarráðs.

    Fylgigögn

  13. Lögð fram svohljóðandi tillaga mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs: 

    Lagt er til að ráðast í vinnu við að endurskoða jafnlaunastefnu Reykjavíkur þannig að hún endurspegli enn betur margbreytileika starfsfólks borgarinnar með meiri áherslu á launajafnrétti óháð uppruna, stöðu og öðrum breytum, auk kyns. Núverandi stefna tekur mikið mið af innleiðingu jafnlaunavottunar þar sem lykiláhersla er kynbundinn launamunur. Hér er verið að leggja til að ramma betur inn aðrar breytur sem valdið geta launamisrétti.

    Greinagerð fylgir tillögunni. R21050253
    Samþykkt.

      Fylgigögn

    1. Lögð fram afgreiðsla vegna mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar 2021, var samþykkt á fundi mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs, þann 6. maí s.l., að veita Rótinni félagi um konur, áföll og vímugjafa, mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar. Trúnaður ríkti um verðlaunahafa sem nú er aflétt í kjölfar afhendingar verðlaunanna sem fram fór þann 17. maí s.l. R21030018 

      Fylgigögn

    2. Lögð fram afgreiðsla vegna hvatningarverðlauna mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs 2021, var samþykkt á fundi mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs þann 6. maí s.l., að veita Hinsegin félagsmiðstöð S78 og Tjarnarinnar, hvatningarverðlaun mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs. Trúnaður ríkti um verðlaunahafa sem nú er aflétt í kjölfar afhendingar verðlaunanna sem fram fór þann 17. maí s.l. R21030018

      Fylgigögn

    3. Lagt fram svar stjórnar Strætó b.s. dags. 20. maí 2021, við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands, um aðgengi fatlaðs fólks að þjónustu Strætó bs., sbr. 12. lið fundargerðar mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs frá 11. mars 2021. R21030025

      Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

      Svar er lagt fram við fyrirspurn um aðgengi fatlaðs fólks og þjónustu Strætó bs. Svarið er greinargott en benda má á nokkur mál sem bæta mætti. Staðan á biðstöðvum er slæm á meira en 500 stöðum. Eiginlega er aðgengi hvergi gott. Þarfir fatlaðs fólks í umferðinni hefur ekki verið forgangsmál árum saman. Strætó sem almenningssamgöngur hefur ekki verið raunhæfur kostur fyrir fatlað fólk og þess vegna eru almenningssamgöngur lítið notaðar af hreyfihömluðu fólki og sjónskertu og blindu fólki. Ástandið er það slæmt að reikna má með löngum tíma til að gera ástandið viðunandi hvað þá fullnægjandi þótt byrjað sé á verkinu. Engar hugmyndir eru um hversu langan tíma þetta á eftir að taka eftir því sem fulltrúi Flokks fólksins kemst næst.

      Fylgigögn

    4. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Flokks fólksins: 

      Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að mannréttinda- nýsköpunar- og lýðræðisráð standi vörð um alla minnihlutahópa í borginni. Fulltrúa Flokks fólksins finnst sem dæmi hafa hallað á að ráðið standi vörð um réttindi eldri borgara í borginni og barna sem eiga um sárt að binda af einhverjum orsökum. Fulltrúa Flokks fólksins finnst ráðið of sjaldan setja mannréttindamál þessara hópa á dagskrá. Eldri borgarar er hópur fólks sem lang flestir eiga eftir að tilheyra, ef Guð lofar. Þetta er fólkið sem hefur lagt sitt af mörkum til samfélagsins allt sitt fullorðinslíf og langar til að fá að lifa ævikvöldið sitt áhyggjulaust og með þeim hætti sem það sjálf kýs. Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð gæti gert miklu meira til að hvetja borgarstjórn til að taka málefni eldri borgara ofar á forgangslistann og samþykkja fleiri tillögur þeim til heilla. Það mætti sem dæmi færa rök fyrir því að, sé maður skikkaður til að hætta að vinna 70 ára þrátt fyrir fulla starfsgetu, þá sé það mannréttindabrot. Einnig horfir fulltrúi Flokks fólksins til þeirra barna sem nú telja 1033 á biðlista Skólaþjónustu eftir faglegri aðstoð. Bið barna eftir nauðsynlegri þjónustu hlýtur að ganga í berhögg við mannréttindi. Þessi biðlisti hefur t.d. aldrei komið til umræðu í mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráði. R21050275

      Frestað.

    5. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

      Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir að vita hver sér kostnaðurinn við tillögu 1-4, í gögnum segir aðeins að kostnaður sé innan ramma þjónustu- og nýsköpunarsviðs og mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu? Hverjar eru þessar upphæðir? Eru þær teknar af 10 milljarða innspýtingu til þjónustu- og nýsköpunarsviðsins eða af almennu rekstrarfé? Óskað er sundurliðunar kostnaðar eftir tillögum. Um er að ræða eftirfarandi tillögur: 1.Tillaga um að búa til viðmótið á ensku Can I help you? 2. Tillaga um þýðingar á Spurt og svarað á vef, FAQ, á ensku og pólsku. 3. Tillaga um svör við algengum spurningum um málefni innflytjenda. 4. Tillaga um þjálfun tveggja þjónustufulltrúa þjónustuvers í samstarfi við sérfræðinga mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu auk þess að vinna upplýsingaefni. R19050087

      Vísað til umsagnar mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu og þjónustu- og nýsköpunarsviðs.

    Fundi slitið klukkan 16:15

    Dóra Björt Guðjónsdóttir Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir

    Skúli Helgason

    PDF útgáfa fundargerðar
    mnl_2705.pdf