Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð - Fundur nr. 15

Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð

Ár 2020, fimmtudaginn 27. febrúar var haldinn 15. fundur, mannréttinda-, nýsköpunar-, og lýðræðisráðs. Fundurinn var haldinn í Tjarnarbúð og hófst kl.13.00. Fundinn sátu Dóra Björt Guðjónsdóttir, Diljá Ámundadóttir, Daníel Örn Arnarsson, Örn Þórðarson, Skúli Helgason, Sigríður Arndís Jóhannsdóttir og Þór Elís Pálsson. Einnig sátu fundinn Anna Kristinsdóttir, Óskar J. Sandholt og Elísabet Pétursdóttir sem var fundarritari.

Þetta gerðist:

  1. Lagðar fram fundargerðir ofbeldisvarnarnefndar frá 3. febrúar, aðgengis og samráðsnefndar fatlaðs fólks í Reykjavík frá 6.febrúar og öldungaráðs frá 10. febrúar 2020.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun við 3. lið fundargerðar aðgengis- og samráðsnefndar frá 6. febrúar s.l.:

    Þessi fyrirspurn var um hvort borgin sé ekki örugglega að virða ný umferðarlög sem tóku gildi 1.1.2020. Flokkur fólksins spurði hvort ekki standi til  að opna  göngugötur fyrir bílum sem hafa heimildarákvæði samkvæmt nýjum umferðarlögum, sem eru nýmæli og undantekning frá akstursbanni um göngugötur. Allir bílar merktir með stæðiskorti fyrir hreyfihamlaða og bílar sem sinna akstursþjónustu fatlaðra mega nú nýta sér göngugötur og mega jafnframt leggja þar í merkt stæði. Í raun eiga þeir sem aka P merktum bílum að hafa heimild til að aka og leggja í allar göngugötur borgarinnar samkvæmt nýjum lögum. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun við 6. lið fundargerðar öldungaráðs frá 10. febrúar s.l.:

    Afstaða öldungaráðs er að ekki eigi að styðja tillögu Flokks fólksins um að rýna í regluverk borgarinnar með gagnrýnisgleraugum til að skoða hvort textinn sé gildishlaðinn og feli í sér fordóma. Engu að síður vill öldungaráðið hafa tillöguna að leiðarljósi? Hér er verið að leggja til að skoða hvort borgin sjálf sé með gildishlaðinn texta í sínu regluverki og ef svo er þá lagfæra það. Borgin á að vera fyrirmynd. Flokkur fólksins hefur séð  gildishlaðinn bækling  í félagsmiðstöð aldraðra. Athuga ber að eldri borgarar hafa ekki beina aðkomu að samningu texta í reglum og samþykktum sem þeim ætti að sjálfsögðu að vera boðið að gera.

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning á innleiðingu barnasáttmála sameinuðu þjóðanna út frá jafnræði barna óháð efnahag. 

    Ellen J. Calmon tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  3. Fram fer kynning um málefni trans barna og skólakerfi.

    Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð þakkar Svandísi Önnu fyrir góða kynningu á málefnum trans barna í Reykjavík. Fulltrúar telja það afar mikilvægt að starfsfólk, nemendur og iðkendur í leikskólum, grunnskólum, frístundaheimilum og íþróttafélögum fái góða fræðslu um málefni trans barna og -fólks. Það er vitað mál að fræðsla og upplýsingar geta dregið úr og eytt fordómum. Ráðið hvetur skóla- og frístundasvið og ÍTR til að beita sér fyrir því að undirstofnanir hljóti þessa mikilvægu fræðslu.

    Svandís Anna Sigurðardóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  4. Fram fer kynning á viðmiðum um sundfatnað grunnskólabarna og lagt fram minnisblað skóla- og frístundasviðs. 

    Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð leggur fram svohljóðandi bókun:
    Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð lýsir yfir vilja til þess að sett verði viðmið um sundfatnað barna í skólasundi. Mikilvægt er að hafa mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar til hliðsjónar við gerð slíkra viðmiða. Skólasund er skyldugrein í grunnskóla samkvæmt aðalnámskrá og mikilvægt er að tryggja að börn og ungmenni geti valið sér sundfatnað við hæfi en þeim séu ekki settar skorður sem ýta undir kvíða og neikvæða upplifun af skólasundi. Ráðið hvetur til góðs samstarfs við skóla- og frístundasvið um gerð viðmiða í þessu efni með aðkomu skólastjórnenda.

    Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram minnisblað mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 7. febrúar 2020, um úttekt á klefa- og salernisaðstæðum í húsnæði sem Reykjavíkurborg veitir þjónustu. 

    Flokkur fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins hefur mótað sér skýra afstöðu í þessu máli. Flokkur fólksins tekur undir mikilvægi þess að gera úttekt á búningsklefum enda eru sumir komnir á tíma og mætti bæði endurhanna og endurbyggja. Sjálfsagt er að gera úttekt á salernum en breytingar á merkingu þannig að öll salerni verði ókyngreind hefur flokkurinn haft ákveðna efasemdir, þær snúa fyrst og fremst viðhorf almennings. Flokkur fólksins vill ekki að farið verði í framkvæmdir sem þessar m.a. vegna kostnaðar án þess að fólkið í borginni telji þetta brýna nauðsyn. Flokki fólksins finnst þessi kyngreiningarmál salerna meira svona áherslumál meirihlutans í borginni á þörf fyrir að setja mál af þessu tagi á stall. Flokkur fólksins styður jafnrétti í einu og öllu og leggur mikla áherslu á að öllum líði vel í samfélaginu. Varðandi salernismálin og kyngreiningu þeirra þá hafa heyrst fjöldi radda sem vilja gjarnan halda aðskildum klósettum, vegna þeirra sem setjast á klósettsetuna og hinn sem standandi við postulínið. Skoðanir allra þarf að virða gagnvart  þessu sem öðru og hlusta þarf á raddir allra hópa. Flokkur fólksins skilur að málið getur verið flókið og vonandi finnst viðunandi lausn sem flestir geta sætt sig við. En fyrst er að fá lögin á hreint.

    Guðrún Elsa Tryggvadóttir, Valgerður Jónsdóttir og María Björk Lárusdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  6. Fram fer trúnaðarmerkt kynning þjónustu- og nýsköpunarsviðs á UTR – Vegferðin framundan.

    Friðþjófur Bergmann tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  7. Kynning þjónustu- og nýsköpunarsviðs á nýjum vef Visit Reykjavík.
    Frestað.

  8. Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 28. janúar 2020 um tíma- og verkáætlun vegna undirbúnings og afgreiðslu fjárhagsáætlunargerðar 2021- 2025, ásamt tíma- og verkáætlun fjármála- og áhættustýringarsviðs.

    Fylgigögn

  9. Lögð fram til afgreiðslu styrkumsókn frá 12. desember.
    Samþykkt að veita verkefninu TravAble upplýsingaaðgengisapp kr. 2.000.000,- með þeim fyrirvara um að ákvæði sé í samningi við styrkþega um aðgang Reykjavíkurborgar að gögnum um húsnæði borgarinnar.

    Fulltrúi Sjálfstæðisflokks situr hjá við afgreiðslu.

  10. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 25. febrúar 2020, ásamt erindisbréfi um skipan starfshóps um endurskoðun reglna um tölvunotkun. 
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  11. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 25. febrúar 2020, ásamt erindisbréfi um skipan starfshóps um endurskoðun reglna um notkun símtalagagna. 
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  12. Lögð fram til afgreiðslu umsókn um skyndistyrk.
    Samþykkt að veita verkefninu celebrating the new year of hijri calendar kr. 200.000,-

    13.    Lagðar fram greinagerðir vegna veittra styrkja mannréttinda-, nýsköpunar-, og lýðræðisráðs.
    a)    Raust róttæk hausthátíð 
    b)    Útmálun og Skiltagerð

  13. Lagðar fram greinagerðir vegna veittra styrkja mannréttinda-, nýsköpunar-, og lýðræðisráðs.

    a) Raust róttæk hausthátíð

    b) Útmálun og skiltagerð

  14. Fram fer kynning íþrótta- og tómstundasviðs á notkun frístundakorts út frá mannréttindastefnu.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Kortið á að vera alfarið tengt barninu og óskum þess til frístundaiðkunar og því eingöngu nýtanlegt til að greiða fyrir tómstundir sem barnið velur sjálft að stunda eins og upphaflegt markmið þess var. Kortinu á ekki að vera ætlað til annarra hluta eins og að greiða frístundaheimili sem barnið er á af nauðsyn eða tungumálaskóla. Tenging frístundarkorts við fjárhagserfiðleika foreldra er óeðlilegt. Þetta sést glöggt í hverfi 111 þar sem fátækt er hlutfallslega mest og hæsta hlutfall innflytjenda, þar er einnig minnsta notkun kortsins í íþróttir barna. Rjúfa þarf tengsl kortsins við 16. grein.a um sérstaka fjárhagsaðstoð þannig að án tillits til efnahags foreldra fái barnið alltaf tækifæri til að nota kortið til að velja sér íþrótt eða tómstund. Aftur á móti verði foreldrum veittur nauðsynleg aðstoð samkvæmt 16. gr.a reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg, fyrir greiðslur á frístundaheimilum óháð notkun á frístundakortinu. Frístundakortið er í þágu tómstundariðkunar barns og jafnframt barna þeirra sem fá aðstoð. Það þarf með öllu að koma í veg fyrir skerðingu á frístundakortinu njóti foreldrar annarrar fjárhagsaðstoðar eða fyrirgreiðslna vegna barns eða barna frá Reykjavíkurborg. Þannig ætti aldrei að skerða þann rétt barnsins að nota kortið til tómstunda eða íþróttaiðkunar, enda er það í anda íþróttaáætlunar borgarinnar.

    Jóhanna Garðarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  15. Fram fer umfjöllun um meðferð trúnaðargagna. 

    Helga Björk Laxdal tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  16. Fram fer kynning mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu á jafnréttisúttekt á íþróttafélögum. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Við væntanlega úttekt á jafnrétti innan starfsemi íþróttafélaga vill Flokkur fólksins árétta að hugað verði að jafnrétti í sem víðustum skilningi. Hér skal benda sérstaklega á fötluð börn og skýran rétt þeirra til að stunda íþróttir sem og börn efnalítilla foreldrar, en komið hefur ljóslega fram að þessir hópar stunda íþróttir síður en önnur börn í borginni. Má í því samhengi nefna frístundakortið sem efnalitlir foreldrar neyðast til að nota til að greiða fyrir frístundaheimili fyrir börn sín. Þar þarf annar stuðningur að koma til. Kynningastarf þarf að vera betra þá sérstaklega hvað varðar erlenda borgara sem jafnvel eru nýflutt til landsins. Hvað varðar kynjajafnrétti þá ber klárlega að hafa í huga launajafnrétti, en nýlega hefur komið í ljós að þar er mikill mismunur m.a. laun dómara í kvennaboltanum v.s. karlaboltanum. Því má ætla að svipað sé upp á teningnum hvað varðar þjálfaragreiðslur innan íþróttafélaga. Menntun þjálfara ber jafnframt að hafa í huga hvað allt jafnrétti áhrærir og að opnaður sér skilningur á mismun einstaklinga og getu þeirra til íþróttaiðkunar, en íþróttaiðkun er öllum holl hvernig sem einstaklingurinn er í laginu bæði að innan og/eða utan.

    Halldóra Gunnarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

    Fylgigögn

  17. Lögð fram svohljóðandi tillaga mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs um lýðræðisgáttir Reykjavíkurborgar í fjórum liðum:

    1. Lagt er til að fela þjónustu- og nýsköpunarsviði að hefja vinnu við að skapa heildræna hugbúnaðarlausn vegna samráðs og þátttöku íbúa. Lagt er til að fundin verði besta mögulega lausn fyrir hvert verkefni eða feril fyrir sig og að viðmót og bakvinnsla verði samræmd og samþætt. Einfalt, heildstætt og notendamiðað aðgengi skal hafa að leiðarljósi og meta verkefni með gagnrýnum hætti á forsendum notenda út frá þægindum og þörfum þeirra. 2. Lagt er til að verkefnið Hverfið mitt verði endurskoðað þannig að viðhalds- og öryggisverkefni verði ekki lengur hluti af því og að þeim sé vísað í annan farveg, s.s. ábendingavefinn og/eða til íbúaráðanna. 3. Lagt er til að hafin verði vinna við að móta til framtíðar eignarhald á hugbúnaðarlausninni fyrir Hverfið mitt þannig að það sé vel afmarkað og tryggt að það sé á hendi Reykjavíkurborgar. 4. Lagt er til að framvegis verði kosið í verkefninu Hverfið mitt annað hvert ár. Slíkt yrði gert til þess að auka samráð, gæði og skilvirkni verkefnisins. Miðað verði við að næst verði kosið árið 2021.
     
    Greinagerð fylgir tillögunni. R19010390
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  18. Fram fer kynning þjónustu- og nýsköpunarsviðs á Stafrænu heilbrigðiseftirliti. 

    -    Kl. 16.00 víkur Daníel Örn Arnarson af fundinum.

    Eyvindur Elí Albertsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  19. Lögð fram umsögn mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs um reglur Frístundakorts.
    Samþykkt að fela mannréttinda- og lýðræðiskrifstofu að klára umsögn. 

    -    Kl. 16.15 víkja Diljá Ámundadóttir og Skúli Helgason af fundinum

    Fylgigögn

  20. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins:

    Flokkur fólksins spyr af hverju umsagnarbeiðni mannréttindaskrifstofu til aðgengis- og samráðsnefndar um fyrirspurn Flokks fólksins hafi verið afturkölluð? Fyrirspurnin var um hvort borgin ætli ekki að virða ákvæði nýrra umferðarlaga og hvort ekki standi til að opna lokaðar göngugötur fyrir þeim bílum sem hafa heimildarkvæði samkvæmt umferðarlögunum að aka göngugötur og leggja þar. Um er að ræða nýmæli sem er undantekning frá akstursbanni um göngugötur.

Fundi slitið klukkan 16:20

Dóra Björt Guðjónsdóttir Skúli Helgason

PDF útgáfa fundargerðar
mnl_2702.pdf