Íþrótta- og tómstundaráð - Fundur nr. 192

Íþrótta- og tómstundaráð

ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDARÁÐ

Ár 2013, föstudaginn 27. sept. var haldinn 192. fundur íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Höfðatorgi og hófst hann kl. 11.05. Viðstaddir: Eva Einarsdóttir formaður, Diljá Ámundadóttir, Sverrir Bollason, Kjartan Magnússon, Marta Guðjónsdóttir og Björn Gíslason. Einnig: Hermann Valsson áheyrnarfulltrúi VG, Ómar Einarsson framkvæmdastjóri, Steinþór Einarsson skrifstofustjóri, Gísli Árni Eggertsson skrifstofustjóri og Helga Björnsdóttir skrifstofustjóri sem skrifaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram að nýju bréf Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar dags. 26. ágúst sl. með ósk um umsögn um forvarnarstefnu Reykjavíkurborgar 2013-2017. Á fundinn kom Stefanía Sörheller og kynnti stefnuna. Erindinu er frestað.

kl. 11.15 kom Ingvar Sverrisson á fundinn.

2. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins frá síðasta fundi vegna svefnskála í Vatnaskógi: Íþrótta- og tómstundaráð leggur til að á fjárhagsáætlun 2014 verði 50 milljónum króna varið í styrki vegna brýnustu viðhaldsverkefna mannvirkja íþróttafélaga í Reykjavík. Samkvæmt skýrslum sérfræðinga, m.a. úttekt Almennu verkfræðistofunnar, er viðhaldi margra slíkra íþróttamannvirkja ábótavant og sum liggja beinlínis undir skemmdum vegna þess. Skoðað verði hvort unnt sé að standa að slíkum viðhaldsframkvæmdum í tengslum við aðgerðir Reykjavíkurborgar í atvinnumálum og/eða í samstarfi við Vinnumálastofnun. Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.

3. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins frá síðasta fundi vegna viðhalds íþróttamannvirkja: Íþrótta- og tómstundaráð beinir því til borgarráðs að veittur verði styrkur til KFUM og –K til að unnt verði að ljúka byggingu svefnskála í Vatnaskógi. Framkvæmdir hófust 2007 og hefur Reykjavíkurborg þegar veitt styrk til verksins en vegna áfalla í efnahagslífi, hafa aðrar leiðir við fjármögnun þess að töluverðu leyti brugðist. Verkið er þó vel á veg komið en umtalsverð vinna eftir innanhúss. Hinn nýi skáli mun fullnægja öllum kröfum eldvarna- og heilbrigðiseftirlits en eldra húsnæði er ábótavant hvað slíkar kröfur varðar. Á hverju ári dvelja þúsundir barna og ungmenna í Vatnaskógi og taka þátt í uppbyggilegu æskulýðsstarfi. Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.

4. Lagt fram svar framkvæmdastjóra dags. 20. sept. sl. við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins frá 6. sept. sl. varðandi Fjölni.

5. Lagt fram bréf framkvæmdastjóra ÍTR dags. 23. sept. sl. varðandi samninga við Skátasambandið og KFUM og K.

kl. 11:55 kom Bjarni Þór Sigurðsson á fundinn.

6. Lagt fram bréf framkvæmdastjóra ÍTR dags. 23. sept. sl. vegna fyrirspurnar um hjólabrettaaðstöðu á Klambratúni.

7. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 20. sept. sl. með ósk um umsögn vegna skýrslu starfshóps á vegum Kópavogsbæjar og Reykjavíkurborgar um sundlaug í Fossvogsdal. Samþykkt að óska eftir kynningu.

8. Lagt fram bréf Önnu Ingólfsdóttur dags. 17. sept. sl. f.h. gesta Ylstrandarinnar með ósk um laugardagsopnun.

9. Lagt fram bréf Fimleikasambands Íslands dags. 23. sept. sl. til sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Fundi slitið kl. 12.40.

Eva Einarsdóttir

Diljá Ámundadóttir Sverrir Bollason
Bjarni Þór Sigurðsson Kjartan Magnússon
Marta Guðjónsdóttir Björn Gíslason

PDF útgáfa fundargerðar
Ithrotta_og_tomstundarad_2709.pdf