Innkauparáð - Fundur nr. 172

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2008, þriðjudaginn 23. september var haldinn 172. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 11:00. Viðstaddir voru Vigdís Hauksdóttir, Vilhjálmur Andri Kjartansson og Stefán Jóhann Stefánsson. Jafnframt sátu fundinn Ólafur Jónsson innkaupastjóri á innkaupaskrifstofu, Ingi B. Poulsen lögfræðingur hjá borgarlögmannsembætti og Helgi Bogason deildarstjóri á innkaupaskrifstofu, sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram tillaga um að Vilhjálmur Andri Kjartansson yrði kosinn varaformaður innkauparáðs.
Samþykkt.

2. Lagt fram erindi verlferðasviðs dags. 17. september sl., varðandi heimild til framlengingar á samningi við Heklu hf. um eitt ár, vegna rekstrarleigu bifreiða fyrir þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar.
Frestað.
Unnur Halldórsdóttir velferðasviði sat fundinn við meðferð málsins.

3. Lagt fram erindi framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 17. september sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Adakris UAB ehf. í EES útboði nr. 12165 Norðlingaskóli, uppsteypa og fullnaðarfrágangur. R08070012.
Frestað.
Ámundi Brynjólfsson framkvæmda- og eignasviði sat fundinn við meðferð málsins.

4. Lagt fram yfirlit innkaupaskrifstofu dags. 3. september sl. yfir viðskipti við skrifstofuna í ágúst 2008. R08010193.

Fundi slitið kl. 11.59

Vigdís Hauksdóttir

Vilhjálmur Andri Kjartansson Stefán Jóhann Stefánsson