Innkauparáð - Fundur nr. 171

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2008, föstudaginn 29. ágúst var haldinn 171. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 11:00. Viðstaddir voru Vilhjálmur Andri Kjartansson, Vigdís Hauksdóttir og Kjartan Valgarðsson. Jafnframt sátu fundinn Ólafur Jónsson innkaupastjóri á Innkaupaskrifstofu, Helgi Bogason deildarstjóri á Innkaupaskrifstofu, Eyþóra K. Geirsdóttir lögfræðingur á skrifstofu Borgarlögmanns og Guðbjörg Eggertsdóttir deildarstjóri á Innkaupaskrifstofu sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 18. ágúst sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Saltkaupa ehf. í EES útboði nr. 12158 Götusalt 2008 - 2009. R08060076.
Samþykkt.

Guðbjartur Sigfússon Framkvæmda- og eignasviði sat fundinn við meðferð málsins.

2. Lagt fram erindi Innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar dags. 27. ágúst sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði eftirtaldra aðila í EES útboði nr. 12159 Rammasamningur um kjötvörur:
Esja kjötvinnsla ehf. í flokkum 1-10,
Gæðakokkar ehf. í flokki 9,
Kjarnafæði ehf. í flokkum 1-2, 6-7 og 10,
Norðlenska ehf. í flokkum 1-3, 5 og 8-10,
Sláturfélag Suðurlands hf. í flokkum 1-8. R08060077.
Samþykkt.

3. Lagt fram erindi Innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar dags. 29. ágúst sl. þar sem óskað er eftir heimild til að framlengja rammasamning um fisk til 1. september 2009. R06070106.
Samþykkt.

4. Rætt um útfærslu á fjárhagsskoðun í væntanlegum nýjum innkaupareglum.

Fundi slitið kl. 11:55

Vilhjálmur Andri Kjartansson

Vigdís Hauksdóttir Kjartan Valgarðsson