Innkauparáð - Fundur nr. 168

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2008, þriðjudaginn 15. júlí var haldinn 168. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 11:25. Viðstaddir voru Gunnar Hólm Hjálmarsson og Dofri Hermannsson. Jafnframt sátu fundinn Helgi Bogason deildarstjóri á Innkaupaskrifstofu, Ingi B. Poulsen lögfræðingur á skrifstofu Borgarlögmanns og Guðbjörg Eggertsdóttir deildarstjóri á Innkaupaskrifstofu sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 10. júlí sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Jarðkrafts ehf. í útboði nr. 12155 Almannadalur 3. áfangi, gatnagerð, reiðstígagerð og lagnir. R08060029.
Samþykkt.

Ólafur Ólafsson Framkvæmda- og eignasviði sat fundinn við meðferð málsins.

2. Lagt fram erindi Upplýsingatæknimiðstöðvar Reykjavíkurborgar dags. 9. júlí sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Exton ehf. í EES útboði nr. 12131 Höfðatorg, hljóð- og myndsýningarkerfi. R08050036.
Samþykkt.

Tómas Guðmundsson Upplýsingatæknimiðstöð sat fundinn við meðferð málsins.

3. Lagt fram svar Umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar, við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingar á fundi innkauparáðs þann 24. júní sl.

Fundi slitið kl. 11:30

Gunnar Hólm Hjálmarsson

Dofri Hermannsson