Innkauparáð - Fundur nr. 46

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2004, miðvikudaginn 21. apríl, var haldinn 46. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12.45. Viðstaddir voru Hrólfur Ölvisson, Jóhannes Sigursveinsson og Haukur Leósson. Jafnframt sátu fundinn Sjöfn Kristjánsdóttir frá Innkaupastofnun og Ólafur Kr. Hjörleifsson, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram bréf framkvæmdastjóra íþrótta- og tómstundaráðs frá 19. þ.m. þar sem óskað er eftir heimild til framhaldskaupa af Omega electronics á tímatökubúnaði fyrir nýja sundlaug í Laugardal. Samþykkt. Ómar Einarsson og Erlingur Jóhannsson frá íþrótta- og tómstundaráði sátu fundinn við meðferð málsins.

2. Lagt fram bréf Innkaupastofnunar frá 19. þ.m. varðandi niðurstöðu matsnefndar í útboði vegna rammasamnings um kaup á plastpokum fyrir stofnanir og fyrirtæki Reykjavíkurborgar, þar sem lagt er til að gerður verði rammasamningur til tveggja ára við Olíuverslun Íslands hf. og Rekstrarvörur. Jafnframt lagt fram bréf Innkaupastofnunar um skoðun á fjárhag fyrirtækjanna, dags. í dag. Samþykkt. Guðbjörg Eggertsdóttir frá Innkaupastofnun, Garðar Jóhannsson frá Leikskólum Reykjavíkur og Hafsteinn Sævarsson frá Fræðslumiðstöð sátu fundinn við meðferð málsins.

3. Lagt fram bréf Innkaupastofnunar frá 19. þ.m. varðandi niðurstöðu matsnefndar í útboði vegna rammasamnings um kaup á hreinlætispappír fyrir stofnanir og fyrirtæki Reykjavíkurborgar, þar sem lagt er til að gerður verði rammasamningur til tveggja ára við Olíufélagið Esso hf. og Rekstrarvörur. Jafnframt lagt fram bréf Innkaupastofnunar um skoðun á fjárhag fyrirtækjanna, dags. s.d. Samþykkt. Guðbjörg Eggertsdóttir frá Innkaupastofnun, Garðar Jóhannsson frá Leikskólum Reykjavíkur og Hafsteinn Sævarsson frá Fræðslumiðstöð sátu fundinn við meðferð málsins.

Fundi slitið kl. 13.55.

Hrólfur Ölvisson

Jóhannes Sigursveinsson Haukur Leósson