Innkauparáð - Fundur nr. 319

Innkauparáð

Ár 2014, föstudaginn 4. apríl var haldinn 319. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 12:15. Viðstaddir voru Kjartan Valgarðsson, Elsa Yeoman og Rúna Malmquist. Einnig sátu fundinn Eyþóra K. Geirsdóttir lögfræðingur á skrifstofu Borgarlögmanns, Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir deildarstjóri innkaupadeildar og Guðbjörg Eggertsdóttir innkaupadeild sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, skrifstofu framkvæmda- og viðhalds dags. 31. mars sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði Jarðvals sf sem átti lægsta gilda tilboð í útboði nr. 13178 Sæbraut – Hjólastígar. Faxagata – Kringlumýrarbraut. R14020144.

Samþykkt.

Einnig lögð fram kvörtun Þórðar H. Sveinssonar hdl. f.h. Jarðvals sf., vegna útboðs nr. 13178 Sæbraut - Hjólastígar. R14020144.

2. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, skrifstofu framkvæmda- og viðhalds dags. 31. mars sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Sérverks ehf í útboði nr. 13199 Lindargata 48, breytingar og endurbætur. R14030026.

Samþykkt.

3. Lagt fram til kynningar erindi umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, skrifstofu framkvæmda- og viðhalds dags. 2. apríl sl., varðandi samning við VA Arkitekta ehf um arkitektahönnun vegna viðbyggingar og útilaugar við Sundhöll Reykjavíkur. R14010098.

Ámundi Brynjólfsson og Magnús Haraldsson skrifstofu framkvæmda- og viðhalds sátu fundinn við afgreiðslu mála 1-3.

4. Lagðar fram að nýju tillögur að breytingum á innkaupareglum Reykjavíkurborgar. Frestað á fundi þann 7. mars sl.

Frestað. 

Fundi slitið kl. 12:34

Kjartan Valgarðsson (sign)

Elsa Yeoman (sign) Rúna Malmquist (sign)