Innkauparáð - Fundur nr. 318

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2014, föstudaginn 28. mars var haldinn 318. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 12:15. Viðstaddir voru Kjartan Valgarðsson, S. Björn Blöndal og Rúna Malmquist. Einnig sátu fundinn Benedikt Hallgrímsson lögfræðingur á skrifstofu Borgarlögmanns, Hrólfur Sigurðsson verkefnastjóri innkaupadeild og Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir deildarstjóri innkaupadeildar sem jafnframt ritaði fundargerð. 

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi innkaupadeildar Reykjavíkurborgar dags. 26. mars  sl., varðandi heimild til fyrri framlengingar á rammasamningi nr. 12970 Matvara, tilbúnir réttir, funda- og veislumatur um eitt ár eða til 1. apríl 2015. R13010246.

Samþykkt.

Elín B. Gunnarsdóttir innkaupadeild sat fundinn við afgreiðslu málsins.

2. Lagt fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, skrifstofu framkvæmda- og viðhalds, dags. 26. mars sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda, Spangar ehf í kjölfar samningskaupa nr. 13147 Fjölskyldu- og húsdýragarður, móttaka og miðasöluhús, sem samþykkt var á fundi ráðsins þann 28. febrúar sl. R14030045.

Samþykkt.

Kristjón Jónsson og Magnús Haraldsson skrifstofu framkvæmda- og viðhalds sátu fundinn við afgreiðslu málsins.

3. Lagt fram yfirlit Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar varðandi einstök innkaup yfir 1. m.kr. vegna 4. ársfjórðungs 2013. R14010098.

Fundi slitið kl. 12:25

Kjartan Valgarðsson (sign)

S. Björn Blöndal (sign) Rúna Malmquist (sign)

PDF útgáfa fundargerðar
Innkauparáð 28.3.2014 - prentvæn útgáfa