Innkauparáð - Fundur nr. 312

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2014, föstudaginn 7. febrúar var haldinn 312. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 12:15. Viðstaddir voru Stefán Jóhann Stefánsson, S. Björn Blöndal. Einnig sátu fundinn, Eyþóra K. Geirsdóttir lögfræðingur á skrifstofu Borgarlögmanns, Benedikt Hallgrímsson lögfræðingur á skrifstofu Borgarlögmanns, Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir deildarstjóri innkaupadeildar og Hrólfur Sigurðsson innkaupadeild sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. 29. janúar sl.,  þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði JB Lighting Lichtanlagentechnick GmbH sem átti lægsta gilda tilboð í útboði nr. 13139, Reykjavík City Theatre, LED wash luminaire. R14010140.

Samþykkt.

2. Lagt fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. 3. febrúar sl., varðandi beiðni um heimild til samningskaupa án undangenginnar útboðsauglýsingar við verkfræðistofuna Vatnaskil ehf vegna rannsókna á grunnvatni og gerð grunnvatnslíkans af Vatnsmýrarsvæðinu. R14010098. 

Samþykkt.

Ámundi Brynjólfsson og Þorkell Jónsson,  Umhverfis- og skipulagssviði sátu fundinn við afgreiðslu mála 1 og 2.

Fundi slitið kl. 12:36

Stefán Jóhann Stefánsson (sign)

S. Björn Blöndal (sign)

PDF útgáfa fundargerðar
Innkauparáð 7.2.2014 - prentvæn útgáfa