Innkauparáð - Fundur nr. 300

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2013, föstudaginn 5. júlí var haldinn 300. fundur s. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 12.15. Viðstaddir voru Kjartan Valgarðsson og Elsa Hrafnhildur Yeoman. Einnig sátu fundinn Eyþóra K. Geirsdóttir lögfræðingur á skrifstofu Borgarlögmanns, Jóhanna E. Hilmarsdóttir deildarstjóri á innkaupadeild og Guðbjörg Eggertsdóttir sérfræðingur á innkaupadeild, sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. 25. júní sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði Ístaks ehf., sem átti eina tilboðið sem barst í útboði nr. 13044 Hverfisgata endurgerð, Frakkastígur - Vitastígur. R13050168. Samþykkt.

2. Lagt fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. 2. júlí sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði Garðyrkjuþjónustunnar ehf., sem átti eina tilboðið sem barst í útboði nr. 13058 Borgartún endurnýjun, Snorrabraut að Sóltúni. R13050130. Samþykkt.

Kl. 12:19 tók Jórunn Frímannsdóttir sæti á fundinum.

Ámundi Brynjólfsson Umhverfis- og skipulagssviði sat fundinn við afgreiðslu mála 1 og 2.

3 Lagt fram yfirlit Velferðasviðs Reykjavíkurborgar varðandi einstök innkaup yfir 1. m.kr. fyrir tímabilið janúar – mars 2013.

4 Lagt fram yfirlit innkaupadeildar yfir viðskipti við deildina í júní 2013. R13010126.

5 Lagt fram erindi innkaupadeildar Reykjavíkurborgar dags. 4. júlí sl., þar sem farið er fram á að Múlalundur-Vinnustofa SÍBS verði aðili að rammasamningi nr. 13037 Ritföng og skrifstofuvörur. R13050030. Samþykkt.

Fundi slitið kl. 12.31

Kjartan Valgarðsson

Jórunn Frímannsdóttir Elsa Hrafnhildur Yeoman