Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 145

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2024, miðvikudaginn 31. júlí var haldinn 145. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar Sandra Hlíf Ocares, Björn Gíslason og Pawel Bartoszek. Kristinn Jón Ólafsson og Ellen Jacqueline Calmon sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn Theodór Kjartansson starfsmaður borgarlögmanns með fjarfundarbúnaði.

Fundarritari var Halla Björg Evans.

Þetta gerðist:

  1. Lagt er fram bréf umhverfis- og skipulagssvið, dags. 29. júlí 2024, merkt USK24070198 þar sem lagt er til að gengið yrði að tilboði lægstbjóðanda sem er Jarðvirki ehf. í útboði nr. 16036 – Grafreitur í Úlfársfelli 2024 – Efnismóttaka, landmótun og frágangur.

    Samþykkt.

    Guðni Guðmundsson og Rúnar Gísli Valdimarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið

    Fylgigögn

  2. Lagt er fram bréf umhverfis- og skipulagssvið, dags. 23. júlí 2024, merkt USK23010330 þar sem lagt er til að gengið yrði að tilboði lægstbjóðanda sem er Garðyrkjuþjónustan ehf. í útboði nr. 16038 – Orkureitur - Yfirborðsfrágangur.

    Samþykkt.

    Guðni Guðmundsson og Rúnar Gísli Valdimarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. 

    Fylgigögn

  3. Lagt er fram bréf umhverfis- og skipulagssvið, dags. 30. júlí 2024, merkt USK24070233 þar sem lagt er til að gengið yrði að tilboði lægstbjóðanda sem er Altis ehf. í útboði nr. 16028 – Æfingarvöllur Fram í Úlfarsárdal – Endurnýjun og gervigras.

    Samþykkt.

    Guðni Guðmundsson og Rúnar Gísli Valdimarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. 

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 13.29.

Kristinn Jón Ólafsson Pawel Bartoszek

Björn Gíslason Sandra Hlíf Ocares

Ellen Jacqueline Calmon

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 31.júlí 2024