Innkaupa- og framkvæmdaráð - og framkvæmdaráð

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2023, fimmtudaginn 13 apríl. var haldinn 107. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir, Pawel Bartoszek og Björn Gíslason. Hjálmar Sveinsson og Sandra Hlíf Ocares sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Elín Hrefna Ólafsdóttir og Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir sat fundinn í fundarsal. Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu framkvæmda og viðhalds, umhverfis og skipulagssvið dags. 5. apríl 2023, merkt USK23010215, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstsbjóðanda MG Hús ehf. í útboði nr. 15775 - Klettaskóli - Færanlegar kennslustofur. USK23010215

    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu framkvæmda og viðhalds, umhverfis og skipulagssvið dags. 5. apríl 2023, merkt USK23010143, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði nr. 1 hjá lægstbjóðanda Metatron ehf. í EES útboði nr. 15760 - Þróttur aðalvöllur - Endurnýjun gervigrass. USK23010215

    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf skrifstofu umhverfisgæða, umhverfis og skipulagssvið dags. 5. apríl 2023, merkt FAS23020039, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstsbjóðanda HJ-bílar ehf. í EES útboði nr. 15756 - Samsetning, merking og dreifing flokkunaríláta í Reykjavík. FAS23020039

    Samþykkt.

    Guðmundur B. Friðriksson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf þjónustu og nýsköpunarsviðs dags. 5. apríl 2023, merkt ÞON2304002, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstsbjóðanda Þekking - Tristan hf. í útboði nr. 15749 - Endurnýjun á Lightspeed. ÞON23040002

    Samþykkt.

    Helga S. Kristjánsdóttir og Sæþór Fannberg Sæþórsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 13:47

Hjálmar Sveinsson Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir

Pawel Bartoszek Björn Gíslason

Sandra Hlíf Ocares

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 13. apríl 2023