Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2023, fimmtudaginn 13 apríl. var haldinn 107. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir, Pawel Bartoszek og Björn Gíslason. Hjálmar Sveinsson og Sandra Hlíf Ocares sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Elín Hrefna Ólafsdóttir og Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir sat fundinn í fundarsal. Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf skrifstofu framkvæmda og viðhalds, umhverfis og skipulagssvið dags. 5. apríl 2023, merkt USK23010215, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstsbjóðanda MG Hús ehf. í útboði nr. 15775 - Klettaskóli - Færanlegar kennslustofur. USK23010215
Samþykkt.
Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu framkvæmda og viðhalds, umhverfis og skipulagssvið dags. 5. apríl 2023, merkt USK23010143, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði nr. 1 hjá lægstbjóðanda Metatron ehf. í EES útboði nr. 15760 - Þróttur aðalvöllur - Endurnýjun gervigrass. USK23010215
Samþykkt.
Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu umhverfisgæða, umhverfis og skipulagssvið dags. 5. apríl 2023, merkt FAS23020039, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstsbjóðanda HJ-bílar ehf. í EES útboði nr. 15756 - Samsetning, merking og dreifing flokkunaríláta í Reykjavík. FAS23020039
Samþykkt.
Guðmundur B. Friðriksson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu og nýsköpunarsviðs dags. 5. apríl 2023, merkt ÞON2304002, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstsbjóðanda Þekking - Tristan hf. í útboði nr. 15749 - Endurnýjun á Lightspeed. ÞON23040002
Samþykkt.
Helga S. Kristjánsdóttir og Sæþór Fannberg Sæþórsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 13:47
Hjálmar Sveinsson Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir
Pawel Bartoszek Björn Gíslason
Sandra Hlíf Ocares
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 13. apríl 2023