Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 102

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2023, fimmtudaginn 23. febrúar var haldinn 102. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Kristinn Jón Ólafsson og Björn Gíslason. Hjálmar Sveinsson, Pawel Bartoszek og Sandra Hlíf Ocares sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Elín Hrefna Ólafsdóttir og Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir. Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarlands, umhverfis- og skipulagssviði, dags. 3. febrúar 2023, varðandi tilboðs lægstbjóðanda Hreinsitækni ehf. í EES útboð nr. 15712 – „Hreinsun gatna og gönguleiða 2023-2026 útboð I“. FAS22120020
    Samþykkt.

    Karl Eðvaldsson tekur sæti undir þessum fundarlið.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarlands, umhverfis- og skipulagssviði, dags. 3. febrúar 2023, varðandi tilboðs lægstbjóðanda Hreinsitækni ehf. í EES útboð nr. 15712 – „Hreinsun gatna og gönguleiða 2023-2026 útboð III“. FAS22120020
    Samþykkt.

    Karl Eðvaldsson tekur sæti undir þessum fundarlið.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf skrifstofu framkvæmda og viðhalds, umhverfis- og skipulagssviði, dags. 20. febrúar 2023, merkt USK22030147, varðandi tilboðs lægstbjóðanda Höfn ehf. í útboð nr. 15716 – „Vörðuskóli. Endurnýjun glugga og þaka“. USK22030147
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti undir þessum fundarlið með rafrænum hætti.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 13:30

Hjálmar Sveinsson Kristinn Jón Ólafsson

Pawel Bartoszek Björn Gíslason

Sandra Hlíf Ocares

PDF útgáfa fundargerðar
Innkaupa- og framkvæmdaráð 23.2.2023 - Prentvæn útgáfa